Morgunblaðið - 01.05.1997, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Með rytmasveit
Bill Evans
Tónleikar með bandarískum þungavigtar
djassmönnum eru ekki daglegt brauð
hér á landi. Guðjón Guðmundsson ræddi
við Mike Garson, Marc Johnson og
Joe LaBarbera sem halda tvenna
tónleika á landinu um helgina
TRÍÓ Garsons sem leikur í Súlnasal
1. maí og Loftkastalanum 2. maí
er að koma saman í fyrsta sinn á
íslandi. Garson bendir á að Marc
Johnson og Joe LaBarbera hafi
verið í síðustu rytmasveit Bill
Evans, sém var einn af helstu
áhrifavöldum Garsons í píanóleik.
Til þess að koma því strax frá
þá hefur David Bowie sagt að Mike
Garson sé allra besti píanóleikari
sem hann hefur starfað með. Þetta
má lesa í öllum fréttatilkynningum
um Garson, í æviágripi hans og
jafnvel á plötuumslögum. Garson
ríður ekki við einteyming í tónlist-
inni, hann hefur klassíska menntun
frá Julliard skólanum í New York,
hefur samið kvikmyndatónlist,
klassíska tónlist og djasstónlist og
kveðst hann hafa skrifað um 2.500
verk af ýmsu tagi um dagana. Þrátt
fyrir það klingdi engum bjöllum í
mínu djasslegna heilabúi þegar
nafn hans bar á góma á sama tíma
og Marc Johnson og Joe LaBarbera
áttu þar sinn sess.
Líkaði rýmið
Snögg kynni fengust af Garson
á hljómdisknum The Oxnard Sessi-
ons sem var gefinn út 1993. Þar
leikur hann með Brian Bromberg
bassaleikara, Ralph Humphiy
trommuleikara og Eric Marienthal
saxófónleikara. Strax við fyrstu
hlustun varð ljóst að þar fer sannar-
lega enginn meðalskussi heldur
geysilega tæknilegur og blæbrigða-
ríkur píanóleikari með sinn eigin
stíl. _
„Ég kom til íslands síðastliðið
sumar og þá í allt öðrum erinda-
gerðum með David Bowie. Við vor-
um hér í 36 klukkustundir og mér
líkaði svo vel dvölin að vildi koma
aftur,“ sagði Garson.
Hann er um þessar mundir að
semja óperu fyrir Jessicu Tivens og
þrátt fyrir að hún sé ófullgerð voru
fluttar fjórar aríur úr henni á tón-
leikum Tivens og Garsons í Há-
skólabíói í gærkvöldi.
„Mér datt í hug að koma með
henni hingað og setja upp tvö
óperukvöld og tvö djasskvöld. Ég
hef búið í New York og Los Angel-
es, tveimur þéttbýlustu borgum
heims, og ég kann að meta rýmið
hér. Það veitir mér mikinn innblást-
ur að vera hér á landi," sagði Gar-
son.
Áfram með Bowie
í næstu viku heldur Garson á
fund Bowies í Dublin þar sem æf-
ingar hefjast fyrir nýja tónleika-
ferð. „Ég færa mig mikið milli
rokktónlistar, klassískrar tónlistar
djass og kvikmyndatónlistar og það
hef ég gert síðan ég var fjórtán
ára. Eg elska tónlist,“ sagði Gar-
son.
Garson rakst á Marc Johnson á
Morgunblaðið/Golli
MIKE Garson, Marc Johnson og Joe LaBarbera.
Blue Note djassklúbbnum í New
York þar sem hann lék með Pat
Martino gítarleikara. Hann bauð
honum að koma með sér til íslands
ásamt LaBarbera, sem býr eins og
Garson í Los Angeles.
Marc Johnson segir að dagskrá
sín sé þéttskipuð alla jafna. „Ég
ferðast með nokkrum ólíkum sveit-
um og kom til Evrópu 3-4 sinnum
á ári milli þess sem ég er í hljóð-
veri. Það er mikið að gerast í New
York um þessar mundir. Það hefur
alltaf verið mikið að gerast í klúbb-
unum þar og svo er einnig margt
athyglisvert framlagið neðanjarðar
frá ungum spilurum. Þessa dagana
spila ég með Eliane Elias og Wolf-
gang Muthspiel,“ sagði Johnson.
Garson sagði að ekki væri búið
að leggja á ráðin um hvað þeir
myndu leika á tónleikunum. Líklega
yrðu einhverjir standardar fyrir
valinu og e.t.v. 1-2 frumsamin lög
hans. „Mig hefur alltaf að leika
eitt lag Bowies með djasstríói, þ.e.
Space Oddity. Ég vonast til þess
að við getum æft það upp og flutt
á tónleikunum," sagði Garson.
Tónleikar tríósins verða í Súlna-
sal Hótel Sögu í kvöld og
Loftkastalanum annað kvöld.
Jón Thor
framlengir
SÝNING Jóns Thors Gíslason-
ar í Sverrissal Hafnarborgar
hefur verið framlengd til 5.
maí næstkomandi. A sýning-
unni eru 13 olíumálverk og 21
teikning en yrkisefni lista-
mannsins eru börn, goðsagnir
og smáar verur sem tilheyra
öðrum heimi.
EITT verka Jóns Thors.
Lj ósmyndasýning
á Eyrarbakka
UÓSMYNDASÝNING verður opn-
uð sunnudaginn 4. maí kl. 14, í
samkomuhúsinu Stað á Eyrar-
bakka, í tilefni af 100 ára afmæli
Eyrarbakkahrepps. Á sýningunni
verða ljósmyndir eftir Völu Dóru
Jónsdóttur.
Vala Dóra er fædd og uppalin á
Eyrarbakka, en hefur verið erlendis
við ljósmyndanám undanfarin ár.
Hún dvaldist á Eyrarbakka í fyrra-
sumar og tók þá mikið af ljósmynd-
um. Hún hefur valið og stækkað 37
ljósmyndir í svart-hvítu og lit af
mönnum og umhverfi Eyrarbakka
og verða þær á sýningunni, sem hún
kallar Þorpið mitt, segir í kynningu.
Sýningin er opin frá kl. 17-21 á
virkum dögum, en frá kl. 14-21
um helgar og á helgidögum.
Viðskipta- og hagfræðingar
BÆKUR
Ævi og fcrill
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐINGATAL
1877-1996, I-III
eftir Gunnlaug Haraldsson.
Þjóðsaga ehf. 1997,1390 bls.
FYRIR ellefu árum kom Við-
skipta- og hagfræðingatal fyrst út.
Það var þá í einni bók og innihélt
1.135 æviskrár. Nú eru æviskrám-
ar orðnar 2.612 og bækurnar þijár.
Talsverða sögu segir þetta. Árið
1877 brautskráðist fyrsti íslenski
hagfræðingurinn. 1926 vom þeir
orðnir sex og við bættust 24 til
ársins 1941. Mest hefur fjölgunin
orðið eftir 1986, en þá hefur meðal-
§öldi brautskráninga frá Háskóla
Islands verið 112,3. Til samanburð-
ar má nefna að á tímabilinu
1941-61 vom árlega brautskráðir
7,5 kandídatar að jafn-
aði.
Stéttartal þetta
hefst með ítarlegum og
fróðlegum inngangi
skrásetjara, þar sem
gripið er á sögulegum
atriðum og skýrt skil-
merkilega frá tilhögun
verksins. Þá koma
nokkrar stuttar rit-
gerðir. Þorvaldur
Gylfason ritar greinina
Brautryðjandinn. Þar
er rætt um hagfræði-
legt framlag Jóns Sig-
urðssonar. Að ósekju
hefði sú frásögn mátt
vera lengri. Gylfi Þ.
Gíslason skrifar um Upphaf og þró-
un kennslu í viðskiptafræðum við
Háskóla íslands. Enginn er þeim
málum kunnugri en hann, því að
hann hefur verið þar í fylkingar-
bijósti frá upphafi. Grein þessi er
endurprentuð úr eldra
talinu. Ingjaldur
Hannibalsson tekur
svo við og fjallar um
kennslu í viðskipta-
fræði og hagfræði við
Háskóla íslands undir
lok 20. aldar. Er það
hin fróðlegasta saman-
tekt. Loks greinir Elín
G. Óskarsdóttir frá fé-
lagssamtökum hag-
fræðinga og viðskipta-
fræðinga á Islandi.
Að þessu búnu taka
við æviskrár. Ég fæ
ekki betur séð en þær
séu einkar vandaðar
og eins ítarlegar og
hægt er að ætlast til. Þær eru f
stöðluðu og vel skipulögðu formi.
Æviskrám fylgja myndir, hafi þær
fengist. Tvennt má sérstaklega
nefna, sem kostur er, þó að stund-
um sé það undan fellt í stéttar-
tölum. Hér er greint frá ritstörfum
manna (sem lengir sumar skrámar
allverulega) svo og skyldleika við
aðra í ritinu.
Að æviskrám loknum er skrá
yfir alla þá sem útskrifast hafa frá
Háskóla Islands í viðskipta- og hag-
fræði frá 1941-1996. Hvert ár er
tekið fyrir sig og kandidatar taldir
í stafrófsröð. Önnur skrá er yfir þá
sem útskrifast hafa frá erlendum
háskólum frá 1877-1996. Er það
fjölbreytt flóra, því að mér telst til
að skólarnir séu ekki færri en hálft
þriðja hundrað í 23 löndum. Býsna
fróðlegt er það og leiðir hugann að
því að mikið víðfeðmi er í mennta-
heimi íslendinga.
Til stuðnings skrásetjara var rit-
nefnd. Hana skipuðu Siguijón Pét-
ursson, Jóhannes Nordal og Gylfí
Þ. Gíslason.
Þetta mikla rit er einkar vandað
og vel frá því gengið í alla staði.
Sigurjón Björnsson
Gunnlaugur
Haraldsson
Þöglubörn
í Eldgömlu
ísafold
HÖRÐUR Gunnarsson les
frumsamin ljóð í kaffíhúsinu
Ömmu í Réttarholti í
Eldgömlu ísafold, Þingholts-
stræti 5, kl. 21 á sunnudag.
Ljóðin eru úr handriti sem
Hörður nefnir Þöglubörn.
Orðið hefur hann búið til sjálf-
ur. Hann lítur á handritið sem
ófullgert, nokkurs konar
ófullgerða sinfóníu. Þema
handritsins er bamið í mann-
inum eða leit mannsins að
bamslegri einlægni. í ljóðun-
um gerir hann tilraun til að
færa eigin reynslu í skáldlegt
form, en til þess hefur hann
knýjandi þörf.
Hörður Gunnarsson hefur
sent frá sér ljóðabókina Her-
bergi, 1994.
Úr djúpi
tímans í Gall-
eríi Myndáss
VILMUNDUR Kristjánsson
heldur Pinhole-ljósmynda-
sýningu laugardaginn 3. maí
í Galleríi Myndáss, Skóla-
vörðustíg 41 kl. 14.
Þetta er fyrsta einkasýning
Vilmundar. Einnig verða til
sýnis myndavélar 4x5“ og
35 mm myndavélar sem hafa
verið notaðar við Pinhole—
ljósmyndun en þær eru allar
heimasmíðaðar.
Sýningin stendur frá
3.-31. maí og er opin á versl-
unartíma.
Fyrirlestur um Pinhole-
tæknina verður haldinn 7. maí
kl. 20 i Myndási.
Strengir í
Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar
TÓNLEIKAR verða á vegum
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
laugardaginn 3. maí í forsal
Safnaðarheimilis Hafnar-
fjarðarkirkju, Ljósbroti. Þar
munu nemendur strengja-
deildar koma fram og leika
saman í litlum og stórum hóp-
um svo sem yngri sveit þeirra
sem eru búnir að læra í 1-2
ár og eldri sveit, þeirra sem
eru lengra komnir.
Sossa sýnir í
Galleríi Fold
SOSSA - Margrét Soffía
Björnsdóttir opnar sýningu á
olíumálverkum í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg laugardag-
inn 3. maí kl. 15. Sýninguna
nefnir listakonan Frestingar
og félagslegt samneyti. Sýn-
ingin stendur til 25. maí.
Gallerí Fold er opið daglega
frá kl. 10-18, laugardaga frá
kl. 10-17 og sunnudaga frá
kl. 14-17.
Barnakórar í
Selfosskirkju
KÓR Snælandsskóla, yngri og
eldri kór, ásamt Barnakór
Selfosskirkju, halda tónleika
í Selfosskirkju laugardaginn
3. maí kl. 16.
Tónleikarnir verða einnig í
Digraneskirkju í kvöld kl. 16.