Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 35
LISTIR
FYRSTI dagur maímánaðar
verður sögulegur fyrir ís-
lenskt tónlistarlíf því
þann dag kemur hollenski
bassa-barítonsöngvarinn Róbert
Holl til landsins til að taka þátt í
Schubert-hátíðinni sem nú stendur
yfir í Garðabæ. Laugardaginn 3.
maí mun hann flytja sönglög eftir
Franz Schubert í Kirkjuhvoli í
Garðabæ og heijast tónleikarnir
kl. 17.
Astríðufullur aðdáandi
þýskrar ljóðlistar
Það var einhvern tíma árið 1979
að mér varð gengið inn í eitt af
æfingaherbergjum Tónlistarhá-
skólans í Rotterdam og rakst þar
á Robert Holl við æfingar. Við tók-
um tal saman og ákváðum að líta
á nokkur sönglög saman að gamni
okkar. í ijóra klukkutíma fórum
við yfir fjöldann allan af sönglögum
og upp úr þessu fórum við að vinna
saman reglulega. Ég spilaði undir
fyrir hann i öllum söngtímum hans
og við eyddum ómældum tíma í að
læra hundruð sönglaga og aría.
Aðeins fáeinum mánuðum eftir að
við hittumst þarna fyrst héldum
við okkar fyrstu sameiginlegu tón-
leika.
Robert hefur alla tíð verið
ástríðufullur aðdáandi þýskrar ljóð-
listar rómantíska tímabilsins og
það leið ekki á löngu þar til ég
smitaðist af áhuga hans. Við eydd-
um saman mörgum eftirmiðdögum
í dimmum og rykugum kjöllurum
fornbókabúða þar sem við grófum
upp gamlar ljóðaútgáfur sem við
eyddum öllum okkar aurum í. Yfir-
gripsmikil þekking hans og skiln-
ingur á ljóðlist þessa tímabiis er
án efa ein helsta ástæðan fyrir því
að hann er einn mesti ljóðasöngv-
ari okkar tíma. Snemma á áttunda
áratugnum fór Robert Holl með
sigur af hólmi í tveimur alþjóðleg-
um söngkeppnum og upp úr því fór
Ótæmandi tónsvið
Ljóðatónleikar með bassa-barítonsöngvaran-
um Robert Holl verða á Schubert-hátíðinni
í Garðabæ á laugardaginn kemur 3. maí.
Gerrit Schuil, listrænn stjórnandi og upp-
hafsmaður Schubert-hátíðarinnar, segir frá
söngvaranum sem hann segir að sé viður-
kenndur sem einn sá fremsti í heiminum í
dag þótt lítt þekktur sé á Islandi.
stjarna hans hækkandi
með hveiju árinu sem
leið. Um sama leyti hóf
hann nám hjá hinum
frábæra söngvara
Hans Hotter í
Miinchen og ég var svo
heppinn að fá gjarnan
að vera viðstaddur
söngtímana og hlusta
á kennslu þessa stór-
kostlega listamanns. Á
þessum árum ferðuð-
umst við Robert vítt
og breitt um Evrópu
og héldum fjölda tón-
leika. Enn þann dag í
dag eru mér þó minnis-
stæðastir debúttónleikar okkar í
Brahmssalnum í Musikverein í
Vínarborg.
Nefndur hinn nýi
„Dieskau"
Robert var fljótlega ráðinn við
Ríkisóperuna i Múnchen og söng
þar fjölda hlutverka við
hlið margra af mestu
söngvurum heims.
Hann var einnig mjög
eftirsóttur til tónleika-
halds og var brátt far-
inn að syngja undir
stjórn allra helstu
hljómsveitarstjóranna,
og má þar meðal ann-
arra nefna Herbert von
Karajan, Wolfgang
Sawalisch, Leonard
Bernstein, Bemhard
Haitink, _ Claudio
Abbado. Á þessum
tíma debúteraði hann
einnig við Ríkisópemna
í Vínarborg í hlutverki Sarastros í
Töfraflautu Mozarts.
En ljóðasöngur er þrátt fyrir
þetta mesta ástríða Roberts Holl
og hann tók þá ákvörðun að snúa
sér að mestu leyti að honum og
tónleikahaldi. Á næstu árum hélt
hann ljóðatónleika vítt og breitt um
Robert Holl
heiminn og hvarvetna fékk hann
hástemmt lof fyrir söng sinn. Hann
er oft nefndur hinn nýi „Dieskau"
eða hinn nýi „Hotter“, en þótt hann
sé alfarið söngvari af sama gæða-
flokki og þeir, hefur hann sinn eig-
in sérstaka söngstíl og afar per-
sónulega túlkun svo að samanburð-
ur við aðra söngvara á varla rétt
á sér. Rödd hans er ákaflega fögur
og hljómmikil og hann hefur yfir
að ráða slíkri tæknilegri fullkomn-
un að litbrigði raddarinnar og tón-
svið virðast ótæmandi. Þegar við
bætist hinn djúpi og næmi ljóðskiln-
ingur hans og einstök hæfni til að
túlka dýpstu og innilegustu tilfinn-
ingar ljóðanna, er ljóst að Robert
Holl hlýtur að teljast einn af allra
fremstu ljóðasöngvurum heims í
dag.
Á seinni árum hefur óperuheim-
urinn æ meir farið þess á leit við
hann að hann kæmi aftur á óperu-
sviðið og nú syngur hann oft í óper-
unni í Zúrich og á síðasta ári sló
hann eftirminnilega í gegn í hlut-
verki Hans Sachs í Meistarasöngv-
urum Wagners á Óperuhátíðinni í
Bayreuth og mun hann syngja það
hlutverk þar næstu ijögur árin.
Hljómplötufyrirtæki eru líka ákaf-
lega áfram um að vinna með honum
og hann hefur þegar sungið inn á
plötur fyrir Philips, Deutsche
Grammophone, Decca og fleiri und-
ir stjórn ofannefndra hljómsveitar-
stjóra.
Einstæður
tónlistarviðburður
Við undirbúning og skipulagn-
ingu Schubert-hátíðarinnar hér í
Garðabæ kom sú staðreynd fljót-
lega upp á borðið að hátíðin yrði
ekki svipur hjá sjón án tveggja
helstu Schubert-túlkenda heimsins
í dag: Elly Ameling og Robert
Holl. Elly Ameling hélt hér nám-
skeið (masterclass) fyrir unga
söngvara fyrir fáeinum vikum og
allir þeir unnendur ljóðasöngs sem
þar komu til að hlusta luku upp
einum rómi um hve frábær reynsla
það hefði verið og nú eigum við
von á Robert Holl eins og áður
sagði og ég þori að lofa því að tón-
leikar hans verði áheyrendum ekki
síðri upplifun.
Mér hefur þótt undarlegt hve
Robert Holl er lítið þekktur meðal
tónlistarfólks og söngunnenda hér
á landi. Það er reyndar satt að
hann hefur sjaldan eða jafnvel aldr-
ei sungið á Norðurlöndum en það
er því meiri ástæða tii að gleðjast
yfir því að hann skuli nú vera að
koma hingað. Fáir þekktu rúss-
neska píanóleikarann Dimitri Hor-
ostovsky áður en hann kom hingað
á síðustu Listahátíð, en aliir vita
hvernig hann heillaði áheyrendur
gjörsamlega með snilldarlegum leik
sínum. Grundvallarhugmyndin að
baki Schubert-hátíðarinnar er að
flytja bæði þekkt verk eftir Schu-
bert en ekki síður ýmis sjaldheyrð
verk eftir hann og þó nokkur sem
jafnvel hafa aldrei verið flutt hér
á landi fyrr. Robert Holl mun flytja
nokkur af þekktustu verkum Schu-
berts, svo sem „Schwanengesang",
sönglög við samnefndan ljóðaflokk
Heinrich Heines, en einnig verða á
efnisskránni mörg af sönglögum
Schuberts sem sjaldan eða aldrei
hafa heyrst hér á landi fyrr.
Ég leyfi mér að halda því fram
að koma Roberts Holl hingað til
lands sé einstæður tónlistarvið-
burður sem tónlistarunnendur ættu
ekki að láta fram hjá sér fara því
hér býðst einstætt tækifæri til að
hlusta á frábæran ljóðasöngvara
og stórkostlegan listamann.
sumarhatio
Fjölskylduhátíð eldri borgara verður haldin í
DACSKRÁ
Ávarp borgarstjóra i^jpí Spaugstofan
Kórar Félags eldri borgara og Leikhópurinn
félagsmiðst. Reykjavíkurborgap „Snúður & Snælda"
Þórarinn Egill Ólafsson ■
Nýi Tónlistarskólinn með fiaddi|p5jr/ 'WéJmk
atriði úr Meyjarskemmunni Raggi Bjarna
Árni Johnsen Hljómsveit Arngríms Dansj^gf -"'fflfi*-
Stjórnandi Páll Gíslason formaður FEB
Allir velkomnir
húsið opnar kl. 12.30 - miðaverð kr. 300,-
Félag eldri borgara í Reykjavík
Félags- og þjónustumiðstöðvar
í Reykjavík