Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 39
Ljósm./Helgi Hróbjartsson
vera vinur fólks, svo að það geti
kynnst kristnum náungakærleika.
Ég vann að því að stofna nýja
söfnuði en einnig að þróunarstörf-
um. Við vorum með heilbrigðis-
þjónustu og ýmislegt tengt land-
búnaði og svo grófum við brunna.
Það hefur sýnt sig að það er mikil-
vægt að reka þróunarstarf sam-
hliða kirkjustarfi á meðal múha-
meðstrúarmanna. Við fengum að
starfa í friði.
Þarna starfaði ég í fjögur ár,
frá 1987 til 1991.“
Eþíópía eftir
17 ára fjarveru
!
„Ég hafði farið þrisvar í heim-
sókn til Eþíópíu eftir að ég þurfti
að fara þaðan árið 1975 og fylgd-
ist alltaf með þróun mála í Wadd-
era og Negellí og hafði gott sam-
band við fólkið þar.
Mér fannst ég hafa köllun til
að fara þangað. Þegar stjórn Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga
spurði mig hvort ég vildi fara aft-
ur til Waddera eftir að kristniboðs-
stöðinni hafði verið skilað aftur til
kirkjunnar, en kommúnistar tóku
hana í byltingunni og notuðu hana
sem herstöð í mörg ár, gat ég
ekki sagt nei. Enginn kristniboði
hefur verið eins lengi á þessu
svæði og ég. Ég fór í janúar 1992.
Kommúnistar máluðu Lenín,
Marx og Engels yfir altaristöfluna
sem ég hafði málað í kirkjunni í
Waddera. Myndin var af Kristi
með útréttar hendur. Þeir gerðu
kirkjuna að samkomuhúsi þar sem
predikað var að enginn guð væri
til.
Ég kom til Waddera í febrúar
’92. Það var stórkostlegt að hitta
fólkið aftur, en skrýtið að koma
inn á stöðina og sjá hana alla í
niðurníðslu. Þegar ég var búinn
,að ganga um stöðina fann ég loks-
ins herbergi sem var aðeins 2x3
m að flatarmáli. Þar gat ég búið
fyrstu mánuðina. Ég valdi það
vegna þess að ég gat lokað hurð-
inni og læst! Nú fór í hönd tími
uppbyggingar og um síðir gat ég
flutt inn í gamla húsið mitt.
Það tilheyrði uppbyggingunni
að gera við kirkjuna. Ég málaði
yfír Lenín og félaga og gerði nýja
altaristöflu sem var svipuð þeirri
fyrri. Þegar allt var tilbúið endur-
vígði forseti kirkjunnar hana vorið
1993.
Þegar ég kom árið 1992 til-
heyrðu 13 söfnuðir Waddera.
Kristnir menn höfðu þolað miklar
ofsóknir á tíma kommúnistanna
og starfið hafði staðnað. Ég man
að eitt sinn, er ég heimsótti Eþíóp-
íu, voru allir leiðtogar kirkjunnar
á þessu svæði í fangelsi. En þrátt
fyrir þessa erfiðleika hafði starfið
haldið áfram og vaxið. En margir
þeirra sem fóru í fangelsi þurftu
að þola ýmiss konar pyndingar og
sumir misstu jafnvel heilsuna
vegna þess. Samt voru þeir glaðir
í trúnni.
Það var mjög mikil eftirvænting
hjá fólkinu í Waddera þegar ég
kom og eftir að við vorum búin
að fá stöðina. Það vildi fá að heyra
Guðs orð. Það varð slíkur vöxtur
í starfinu að síðastliðið sumar
(1996), þegar ég fór heim, voru
söfnuðirnir orðnir 45.
Það var starfsfriður allan tím-
ann en samt voru fulltrúar yfir-
valda sums staðar til vandræða.
Einn þeirra lét eitt sinn fangelsa
30-40 kristna menn í einu. Hann
stóð gegn því að við byggðum upp
kirkju á hans slóðum og lét t.d.
brjóta niður kirkjuhús, sem við
höfðum byggt, og notaði efnivið-
inn í sitt eigið hús. Engin lög náðu
yfir hann. Svona mál gátu komið
upp og valdið erfiðleikum, en þeg-
ar á heildina er litið var þróunin
á þessum árum stórkostleg og hún
heldur áfram enn þann dag í dag.
Maður fyllist bara undrun yfir öll-
um þessum kirkjuvexti.
Auk starfsins í Waddera, langar
okkur til að ná fólkinu á svæðinu
austan við Waddera, báðum megin
við Ganale-fljótið. Þar er töluvert
af múhameðstrúarmönnum sem
tilheyra Oromo-þjóðinni. Nú erum
við búnir að ná fótfestu á þessu
svæði og koma á fót 5-7 söfnuð-
um. Margir múhameðstrúarmenn
hafa gengið yfir til kristni.
Kjarkurinn óx til að fara enn
lengra þegar við sáum svona mik-
inn vöxt og fórum að nota flugvéi-
ar. Vegna þess að ég tók þátt í
hjálparstarfi gafst mér kostur á
að nota flugvél og komst því allt
suður til landamæra Sómalíu."
- Varla predikaðirðu eingöngu?
„Nei. Mikið þróunarhjálparstarf
fer fram á þessu svæði, ekki síst
uppbygging skóla. Eftir að borga-
rastríðið braust út í Sómalíu hafa
tugir þúsunda flóttafólks flætt
yfir landamærin til Eþíópíu ásamt
Eþíópum sem flýðu heimalandið á
tíma kommúnismans en eru nú
að snúa heim vegna þess að ný
ríkisstjórn heldur um stjórnartau-
mana. Hálparstofnun norsku
kirkjunnar ákvað að gera eitthvað
fyrir fólkið og ég var fenginn til
að stjórna þessu starfi.
Hjálparstarfið felst aðallega í
því að koma landbúnaði í gang.
Við lögðum vatnsveitur og notuð-
um vatn úr ánum, því að rigning
er af skornum skammti á þessum
slóðum. Bæði var gert við gamlar
vatnsveitur og nýjar gerðar. Við
kenndum fólkinu einnig fískveið-
ar.“
- Hvað liggur þér á hjarta núna
eftir starf síðustu fímm ára?
„Garrí-þjóðflokkurinn. Ég var í
sambandi við hann þegar ég var
í fýrst í Eþíópíu. Þeir eru hirðingj-
ar og hafa dvalið m.a. innan landa-
mæra Kenýu. Ég frétti af því í
fyrra sumar að þeir væru að koma
aftur til Eþíópíu. Mig langar að
reyna að komast í samband við
þennan þjóðfiokk, þegar ég fer
aftur til Eþíópíu, og taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið fyrir
20 árum. Þetta fólk er múhameðs-
trúar. Reynslan frá Senegal mun
koma að góðu haldi við að ná til
þess.
Starfið í Waddera er að komast
í það horf að þörfin fyrir kristni-
boða hefur minnkað mikið. Því
mun ég ekki þurfa að vera eins
mikið þar og áður. Það er gleði-
efni þegar við kristniboðarnir
verðum óþarfir.“
Hættur
- Hefurðu aldrei komist í hann
krappan?
„Jú. Eitt sinn á síðasta starfs-
tímabili var ég stöðvaður af hópi
vel vopnaðra ræningja. Þá hélt ég
að mín síðasta stund væri runnin
upp. Þetta var um hábjartan dag.
Mér fannst ég sjá morðglampa í
augum þeirra og það var greini-
legt að þeir ætluðu að drepa mig.
Það bjargaði mér að einhver kall-
aði utan úr skóginum: „Þeir til-
heyra okkur, þessir. Látið þá
fara.“ Það var einn maður með
mér. Hann sagði mér eftir á að
hann hefði þekkt einhvern í ræn-
ingjahópnum. Það hefur e.t.v.
hjálpað. Ekkert var tekið af okkur
og við fengum að fara.“
- Hvers vegna skyldu þeir hafa
haft áhuga á því að drepa þig?
„Það var framið fjöldamorð á
þessu svæði daginn áður og 25
manns af þeirra þjóðflokki höfðu
verið drepnir. Sennilega voru þeir
í hefndarhug og vildu ná til fólks
sem var á vegum ríkisstjórnarinn-
ar. Ef ég hefði verið á vegum
hennar væri ég sennilega ekki
héma núna. En það gilti öðru
máli um mig vegna þess að ég var
kristniboði sem starfaði á þessum
slóðum. Þetta er bara eitt dæmi.“
Samkomuröð til 4. maí
- Hvernig verður samkomum
þínum háttað?
„Samkomuraðir eru e.t.v. ekki
mjög algengar á íslandi, en ég hef
haldið margar slíkar erlendis og
var beðinn um að reyna það einn-
ig hér á landi. Ég mun segja frá
kristniboðsstarfinu okkar, en boð-
un orðsins verður í öndvegi. Það
þarf að glæða áhuga og skilning
á kristniboðsstarfinu okkar.
Ef við viljum halda áfram að
vera kristin þjóð og kristin kirkja
ætti okkur að vera eðlilegt, út frá
kristniboðsskipun Jesú, að hugsa
ekki bara um hólmann hér heldur
um heimskristniboð, þó að við
getum ekki gert mikið. Boðskapur
Jesú Krists á að ná til allra manna.
Yið öðlumst meiri víðsýni við að
taka þátt í kristniboði og ég álít
að kirkjan okkar á íslandi fái
blessun við að hugsa ekki bara
um sjálfa sig.“
Höfundur er kristniboði.
MOSFELLSPRESTAKALL
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
flytur síðara erindi sitt um trúarlíf í safnaðarheimili Lágafellssóknar,
Þverholti 3, nk. laugardag 3. maí kl. 10:30.
Allir velkomnir.
Sóknarnefnd Lágafellssóknar
Hef flutt læknastofu mína í
Domus Medica 3. hæð.
Tímapantanir í síma 563 1033.
Birkir Sveinsson,
húð- og kynsjúkdómalæknir;
Álnabúðin
opnar a morgun
á nýjum stað
Verið velkomin
Opið laugardaga 10-14
v:
Álnabúðin
Miðbær, Háaleitisbraut,
sími 588 9440.
Stökktu til
Benidorm
21. maí
frá kr.
29.932
0eins
20 sotti
Tryggðu þér síðustu sætin þann 21. maí
til Benidorm á sérstöku tilboðsverði.
Vistamar, einn okkar vinsælasti gististaður
býður nú sértilboð þann 21. maí í 1, 2
eða 3 vikur. Gott íbúðarhótel með móttöku,
garði með sundlaug, verslun, veitingastað og allar íbúðir með
sjónvarpi, síma, baði, svefnherbergi, stofu og svölum.
Bókaðu meðan
en er laust
Verð kr. 29.932
Verð m.v. hjón m. 2 börn,
2-11 ára, Vistamar, vika, 21. maí.
Verð kr. 39.960
M.v. 2 í íbúð, vika á Vistamar,
21 maí
Verð kr. 39.932
Verð m.v. hjón m. 2 börn,
2-11 ára, Vistamar, 2 vikur, 21. maí.
Bókunarstaða
6. maí - 11 sæti
21. maí - 18 sæti
28. maí - 19 sæti
4. júní - uppselt
11. júní- 17 sæti
r
m
HEIMSFERÐIR
1992 C 1997
w
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600