Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1997 49
Samræmt próf gruimskóla
1 stærðfræði vorið 1997
ÉG VIL fara nokkr-
um orðum um þetta
umtalaða próf. Prófið
var í tvennu lagi: fyrst
krossapróf, sem lagt var
fram fyrst og síðan í
sífellu rekið á eftir nem-
endum að klára það því
prófið „sjálft" væri svo
stórt og mikið. Síðan
kom prófið. Dæmin í því
voru fleiri en nokkru
sinni áður á samræmdu
prófi í starðfræði! (þótt
búið væri að nota tölu-
vert af tímanum í áður-
greint krossapróf).
Bæði þessi próf voru
að mínu mati rangt upp-
byggð (ég er ekki einn um þá skoð-
un, kennari úr skóla í Kópavogi
hringdi í þjóðarsálina í gær og tjáði
sig um það sama). Svör voru notuð
til áframhaldandi vinnslu þannig að
ef nemandi flaskaði á einu dæmi,
þá voru honum allar bjargir bannað-
ar til þess að fá rétt út úr framhald-
inu, jafnve! þótt hann hefði kunnað
það. T.d. var eitt dæmi þess vaid-
andi, ef ekki var rétt reiknað, að
nemandi tapaði 5 stigum vegna þess
þótt hann kynni næstu afleiddu dæmi
og útkoman varð röng!
Það vita allir að ekki er hægt að
prófa út úr öllu námsefni 8., 9. og
10. bekkjar í einu prófi. Þetta viður-
kenna allir skólamenn nema þeir sem
sömdu prófíð, þeir beija höfðinu við
stein og reyna, reyna, reyna. Hver
er tilgangur þeirra? Að semja próf
sem væri fyrirmynd annarra prófa
án tillits til þess hvort hægt sé að
leysa það á þeim tíma sem ætlaður
var!!??
Tími til úrlausnar í samræmdu
prófi í stærðfræði var lengdur árið
1993 til þess að það kæmi alls ekki
fyrir að tímaþröng við úrlausn prófa
skekkti niðurstöður. (í einum skóla
þurfti að taka prófið af
60% nemenda áður en
þeir luku við það.) Þetta
er aldrei hægt að laga
í yfirferð prófs. Þar
spila allt of mörg önnur
atriði inní.
Deildarstjóri prófa-
deildar rannsóknar-
stofnunar uppeldis- og
menntamála segir að
ekki hafi verið „ætlunin
að hafa próftímann of
skamman“. Það er ekki
það sem málið snýst
um, enginn hefur verið
að gagnrýna próftím-
ann sjálfan. Hann var
ákveðinn fyrirfram og
lengdur árið 1993. Nei, maðurinn
þarf ekki annað en að telja dæmin
sem lögð voru fyrir nemendurna í
ár og árið á undan til þess að sjá
Próf eiga að endur-
spegla kunnáttu
nemenda. Geir
Thorsteinsson spyr
hver tilgangurinn hafi
verið með þessu prófi.
að spurningin var ekki um það hvort
það væri ætlun þeirra að hafa eitt-
hvað með próftímann að gera heldur
var prófið einfaldlega allt of langt
með tilliti til tímans. Dæmin voru
of mörg og til viðbótar var krossa-
prófið innan sama tíma!
Ég heyrði í útvarpinu að athuga
ætti hvort prófið hefði verið of langt
með því að hafa samband við „trún-
aðarmenn" þessarar deildar með
langa nafnið, á nokkrum stöðum á
landinu. Ég hefði nú talið að einfald-
ast væri að tala við yfirkennara
og/eða stærðfræðikennara nokkurra
grunnskóla og þá kemur hið sanna
í ljós. Það voru gerð mistök! Jafn-
framt var deildarstjórinn með mein-
ingar um að hann gæti „séð“ út úr
prófinu hvort tíminn hefði verið of
skammur! Jahérna, gaman þætti mér
að vita hvernig það á að gerast og
óska ég eftir skriflegri lýsingu á
því. Hún má vera tæknileg og full
af fræðiorðum, ég fæ mér bara ein-
hvern úr deildinni með langa nafnið
til þess að þýða hana yfir á íslensku
fyrir mig.
Það er ekki mikið hægt að gera
til þess að leiðrétta þessi mistök.
Þrennt kemur til greina: Taka nýtt
próf, ógilda prófíð til samræmdra
prófa eða láta það standa. Hvað af
þessu sem verður niðurstaðan, þá er
það ófyrirgefanlegt gagnvart þessu
unga fólki, sem hefur búið sig undir
venjulegt próf, að setja jafn þunga
langloku fyrir það. Ég veit með vissu
að í fleiri skólum brotnuðu nemendur
hreinlega niður og grétu og voru
lengi að ná sér eftir þetta áfall, jafn-
vel nemendur sem voru góðir í stærð-
fræði!
Það þarf að fyrirbyggja að slíkt
komi fyrir aftur og athuga á raun-
hæfan hátt þetta próf. Það er óeðli-
legt að þeir sem sömdu prófíð skuli
vera fengnir til þess að dæma um
hvort það hafí verið í lagi eða ekki.
Það eru til háskólastofnanir í
kennslufræðum sem geta dæmt um
þetta. Það yrði þokkalegt réttarríki
þar sem hver og einn ætti að dæma
í sinni sök!
Próf eiga að miðast við að komast
að kunnáttu nemenda úr námsefn-
inu. Það gerist alls ekki í prófí eins
og lagt var fyrir á samræmdu prófí
grunnskóla í stærðfræði í ár.
Höfundur er hagfræðingur.
BOGI Ágústsson er
nú (30.4.) búinn að
taka upp vörnina fyrir
fréttastofu sína sem við
var að búast. Frétta-
stofufólk virðist ekki
lesa mjög vandlega það
sem fyrir augu ber,
hvorki lögfræðilegar
álitsgerðir né_ stuttar
blaðagreinar. Ég hafna
í grein minni 29.4.
þeirri skoðun að sjón-
varpið sé óhæft til að
miðla upplýsingum, en
held henni ekki fram
eins og ráða má af
grein Boga. Samt lang-
ar mig enn að reyna
að komast að kjarna málsins með
því að leggja fyrir Boga fjórar
spurningar sem ekki var svarað í
hinu „efnislega" svari Kristínar
Þorsteinsdóttur 26.4.:
Þetta eru einfaldar
spurningar, segir
Vésteinn Ólason og
óskar svara.
1) Var það góð og eðlileg frétta-
mennska að taka mál hins spænska
lektors á dagskrá dagana 13.-15.
apríl, tveimur árum eftir að honum
var sagt upp og nærri mánuði eftir
að umboðsmaður skrifaði bréf sitt
um málið en síðustu dagana fyrir
rektorskjör þar sem ég var í fram-
boði?
2) Voru ástæður svo knýjandi
að það væri góð fréttamennska að
fara með málið í fréttir 13.4. þótt
ég hefði beðið um sólarhringsfrest
til að kynna mér máls-
gögn og verið látinn
skilja að ég fengi þann
frest?
3) Var það góð
fréttamennska að per-
sónugera fréttina með
þeim hætti 13. apríl
að það leit út eins og
umboðsmaður hefði
sakfellt mig fyrir að
beita fyrrverandi
starfsmann Háskólans
ólögum?
4) Var það góð og
eðlileg fréttamennska
að fella út úr svörum
mínum 15. apríl grein-
argóða skýringu á því
um hvað umboðsmaður fjallaði í
bréfi sínu?
Og ein til viðbótar: Eru sjón-
varpsfréttamenn eina fólkið í land-
inu sem hefur rétt til að reiðast eða
hneykslast ef það er sakað um
óvönduð vinnubrögð?
Þetta eru einfaldar spurningar,
og þeim er hægt að svara með já
eða nei.
Höfundur er prófessor.
^mikuna
-kjami málsin s! s»
Geir
Thorsteinsson
Frétta-
stjóri spurður
Vésteinn
Ólason
Verkakvennafélagið
Framsókn
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins Framsóknar verður hald-
inn í Hreyfilshúsinu v. Grensásveg þriðjudag-
inn 6. maí 1997 kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreyting og breyting á reglugerð
sjúkrasjóðs félagsins.
3. Onnur mál.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
Garðbæingar
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar boðar til almenns
fundar um umhverfismál laugardaginn 3. maí
kl. 10.30 í Lyngási 12 í Garðabæ.
Frummælandi á fundinum verður Einar Guð-
mundsson, formaður umhverfismálanefndar
Garðabæjar. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta
á fundinn.
Sjálfstæðisfélagið í Garðabæ.
VOpinn fundur Þórs-
höfn — Raufarhöfn
Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður og Einar
Kr. Guðfinnsson, for-
maður samgöngunefnd-
ar, verða með fundi um
sjávarútvegs- og vega-
mál sem hér segir:
Þórshöfn: Föstudaginn
2. maí kl. 20.30.
Raufarhöfn: Laugar-
daginn 3. maí kl. 14.00.
Allir velkomnir.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins.
s M Á A U Q L V S I I IM G A
FELAGSLIF
Landsst. 5997050119 VIII GÞ
I.O.O.F. 12 = 178528'/. = HF
I.O.O.F. 1 = 178528'/ - 9.I.*
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 1. maí. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
í fyrsta sinn
á Islandi:
„Flower of
life" - Blóm
lífsins eftir
Drunvalo
Melchizedek.
Námskeið i
þróun Merkaba, rafsegulsviðs
jarðlíkama, sem myndast með
því að þróa og stilla saman til-
finningalikama og huglíkama.
Meðvitundarbreyting er for-
senda þess að mynda þetta svið,
sem gerir okkur óháð tíma og
rúmi. Til að auðvelda hana lær-
um við að tengjast okkar æðra
sjálfi og fáum í hendur upplýs-
ingar sem búa hugann undir
stökkbreytingu.
Einnig er kennd öndunartækni,
sem tengist virku Merkaba-sviði.
Hún einkennist af því að við tök-
um alheimsorku inn i gegnum
hvirfilinn og kallast hún „hring-
laga öndun Kristsmeðvitundar".
Skv. Drunvalo hafa sömu fræði
verið kennd í Egyptalandi til
forna undir heitinu „Hægra auga
Horusar".
Kennarinn á þessu námskeiði er
Franz Winkler, reyndur leiðbein-
andi í hugleiðslu, hópefli og til-
finningavinnu. Kennslan fer fram
á ensku og verður námskeiðið í
júlí í sjö daga samfelit.
Nánari upplýsingar og skráning
hjá K*?rct'ni' • címp 4R1
I .^eer »hc
Kristnibodssalurinn,
Háaieitisbraut 58
Samkoma í kvöld og annað
kvöld kl. 20.30. Helgi Hróbjarts-
son talar.
kvöld kl. 20.00: Kvöldvaka i umsjá
Guðmundar og bræðranna.
Happdrætti og veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
„ SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kaffisala
í dag kl. 14-18 í Kristniboðssaln
um, Háaleitisbraut 58-60.
Allur ágóði rennur til kristniboðs
starfs í Eþíópíu, Kenýu og Kína.
Kristniboðsfélag kvenna.
Munið samkomuna í kvöld
kl. 20.30.
Helgi Hróbjartsson talar.
Frá Guðspeki-
félaginu
lólfsstræti 22
Áskriftarslmi
Ganglera er
896-2070
Föstudagskvöld 2. maí kl. 21 les
Sigurður Skúlason kafla úr bók Jack
Kornfield „Um hjartað liggur leið" í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á
laugardag er opið húsfrá kl. 15, með
fræðslu kl. 15.30 i umsjón Emils S.
Björnssonar. Á sunnudögum kl. 15-17
er bókasafn félagsins opið til útláns
fyrir félaga, en kl. 17 er kyrrðar- og
hugleiðslustund fyrir almenning.
Aðalfundur Guðspekifélagsins verður
haldinn I húsi félagsins laugardaginn
10. mai kl. 15. Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf.
Innanfélagsmót
l*JI skíðadeildar ÍR
Innanfélagsmót skíðadeildar |R
verður haldið sem hér segir:
Fimmtudaginn 1. maí:
Stórsvig, allir flokkar.
Brautarskoðun kl. 13.00.
Laugardaginn 4. maí kl. 11.00:
Svig, allir flokkar.
Brautarskoðun kl. 11.00.
Verðlaunaafhending og kaffi-
veitingar.
Félagsmenn fjötmennið og takið
með ykkur gesti.
Stjórnin.
Aglow Reykjavfk
Konur athugið! Fundartími maí-
fundarins hefur breyst og verður
hann föstudaginn 9. maf kl. 20
í Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58—60.
Nánar auglýst síðar.
FERÐAFELA0
ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Fimmtudagur 1. maí
1. Kl. 10.30 Hengill (afmælisganga).
Gönguferð og skíðagnga.
2. Kl. 13.00 Hellaskoðunarferð í
Arnarker o.fl. Munið Ijós og húfu.
Verð 1.200 kr„ fritt f. börn m. full-
orðnum. Brottför frá BSÍ, austan-
megin og Mörkinni 6.
Raðganga um Reykjaveginn
hefst á sunnudaginn 4. maí kl.
10.30.
Kvöldnámskeið í skyndihjálp fyr-
ir göngu- og ferðafólk 5. og 6.
mai í Mörkinni 6. Skráning á
skrifst.
Hallvcigarstig 1 • sími 551 4330
Dagsferð 1. maí
kl 10.30 Helgafell fyrir ofan
Hafnarfjörð. Létt fjallganga.
Dagsferð sunnudaginn 4. maí
kl.10.30 Reykjavegurinn.
Þingvellir-Heiðarbær. 1. áfangi.
Netslóð:
http://www.centrum.is/
utivist
TILKYNNINGAR
Auglýsendur athugið
breyttan skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbún-
um atvinnu-, rað- og smáauglýs-
ingum sem eiga að birtast í
sunnudagsblaðinu, þarf að skila
fyrir kl. 12 á föstudag.
Auglýsingadeild
Sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
- kjarni málsins!