Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Setningarathöfn fimmtudaginn 1. maí
Á gervigrasvelíinum í Laugardal - Dagskrá:
KI.10:10 Ellert B. Schram formaöur Ólympíunefndar setur hátíðina.
Kl.10:15 Ávarp - Þórir Jónsson formaður UMFÍ.
Kl.10:20 Ávarp - Björn Bjarnason menntamálaráðherra.
Kl.10:25 Ari Bergmann Einarsson formaður undirbúningsnefndar Smáþjóðaleikanna '97
gengur með menntamálaráðherra að bragðalseldstæði þar sem hann tendrar
eld að fornum sið og kveikir í kyndlinum sem síðar verður afhentur einum af
íþróttamönnum Reykjavíkurborgar.
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur syngur.
Kynnir verður Brynhildur Barðadóttir.
KI.10:40 Hlaupið hefst - (Laugavegur - Bankastræti - Austurstræti - Aðalstræti - Vonarstræti - Frikirkjuvegur
- Með Öskjuhlíðinni - Kringlumýrarbraut að bæjarmörkum Kópavogs).
Með kyndilinn hlaupa kjörnir íþróttamenn Reykjavíkur frá upphafi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun taka við kyndlinum við Ráðhúsið
og hlaupa með hann áleiðis.
ÍBR og ÍTR sjá um framkvæmd og skipulag hlaupsins í Reykjavík.
Sjá nánar auglýst á þátttökustöðum um land allt.
VERO mODA
Laugavegi 95, sími 552 1444. Kringlan, stmi 568 6244
70% afmœlisafsláttur
AÐSENDAR GREINAR
Veiðimanna-
samfélag á
hverfanda hveli
ÍSLENSK fyrirtæki
í sjávarútvegi fjárfesta
hvert í öðru, renna
saman og búa til sam-
steypur þvert á sveit-
arfélagamörk og
landshluta. Þannig
verða þau fyrst og
fremst íslensk þó að
lögheimilið sé á til-
teknum stað. Það er í
raun merkilegt hvað
þessar miklu breyting-
ar hafa þó orðið átaka-
lítið vegna þess að þær
eru liður í gjörbyltingu
þess samfélags sem ég
hér kalla gamla veiði-
mannasamfélagið.
Umbyltingin úr gamla veiðimanna-
samfélaginu í það, sem ég hér kalla
nýja sjávarútvegssamfélagið, jafn-
ast að sumu leyti á við iðnbylting-
una í öðrum ríkjum. Einhverjir hafa
reyndar leitt að því getum að það
væri þróunarstig sem við myndum
að mestu hlaupa yfir og hoppa nán-
ast beint úr gamla frumframleiðs-
lusamfélaginu í upplýsingasamfé-
lagið.
Nýja sjávarútvegs-
samfélagið tekur við
Veiðimannasamfélagið, þar sem
það var sjálfsagður réttur þeirra
sem bjuggu við ströndina að róa til
fiskjar, er liðið undir lok og sjávar-
útvegssamfélag tækni og þekking-
ar, fjármagns og markaðsvæðingar,
upplýsinga og alþjóðavæðingar er
tekið við. Fyrirtæki í sjávarútvegi,
sem komin eru á hlutabréfamarkað
og lúta þeim lögmálum sem þar
gilda um árangur, eru ekki hluti
af gamla veiðimannasamfélaginu.
Fyrirtæki í sjávarútvegi, sem eru á
viðskiptaforsendum komin í sam-
vinnu við fyrirtæki erlendis, eru
heldur ekki hluti af gamla veiði-
mannasamfélaginu. Og fyrirtæki,
sem kaupa besta hráefni í heimi á
íslenskum fiskmörkuðum og vinna
í dýra neytendavöru sem send er á
erlenda markaði með flugi, eru
heldur ekki hluti af gamla veiði-
mannasamfélaginu. Þau eru hluti
af nýja sjávarútvegssamfélaginu.
Ný hugtök, nýr
hugsunarháttur
Upptaka kvótakerfisins var frá-
hvarf frá veiðimannasamfélaginu.
Kvótakerfið gerði það mögulegt að
skipuleggja starfsemina og fara á
markað með fyrirtækin. Sífellt fleiri
sjávarútvegsfyrirtæki eru skráð á
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
hegar þú kaupir Aloe Vera gel.
d Hvers vegna að borga 1200 kr, fyrir kvartlítra af Aloe geli
þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geli trá
Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana
Boat Aloe Vera geli á 1000kr.
□ Hvers vegna að bera á sig 2% af rotvarnarefnum þegar þú
getur fengið 99,7% (100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel?
□ Banana Boat næringarkremið Brún-án-sólar i úðabrúsa eða
með sólvörn #8,
□ Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat
óökksólbrúnkuolíunni eða -kreminu eða Banana Boat
Golden olíunni sem framkallar gyllta brúnkutóninn.
Q Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rala um,
uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðings
Norðurtanda? Naturica Ört-krám og Naturica Hud-tóm.
Banana Boat og Naturica fást i sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur.
Banana Boat E-gelið fæst lika hjá Samtökum psoriasis-og
exemsiúkiinqa.______________________________________
Heilsuval - Barónsstig 20 tr 562 6275
hlutabréfamarkaði og
ráða þessi fyrirtæki nú
yfir tæplega 50% af
öllum veiðiheimildum
við ísland. Eignarhald
þessara fyrirtækja er
ekki endilega í höndum
svokallaðra heima-
manna því í nýja sjáv-
árútvegssamfélaginu
hafa hugtök eins og
„heimamenn",
„byggð“ og „fólk“ vik-
ið fyrir hugtökunum
„hagræðing", „arð-
semi“ og „fjárfesting".
Starfsemin er ekki
bundin við það sem
kallaðist heimabyggð,
ekki einu sinni bara við ísland, og
fyrirtækin eru ekki bara í eigu
heimamanna heldur fólks og fyrir-
tækja sem kallast mega íslendingar
samkvæmt lögum.
Veiðileyfagjald eðlilegur
hluti af þróun
Sú þróun að fyrirtækin hasli sér
völl um land allt með fjárfestingum
og samruna og eignarhald þeirra
færist á nýjar hendur hefur orðið
Það er þess vegna eðli-
legur hluti af þessari
þróun, segir Svanfríð-
ur Jónasdóttir, að þau
fyrirtæki og hlutafélög
sem fá veiðiheimildir á
sín skip greiði veiði-
leyfagjald.
án mikilla átaka milli byggðarlaga
eða landshluta. Það sem gerir þessa
þróun mögulega og er forsenda
hennar, þ.e. fiskveiðistjórnunar-
kerfið sjálft, hefur hins vegar orðið
miklu meira bitbein. Fólk hefur
verið mun uppnæmara varðandi
sölu á kvótum milli útgerða en hvort
bréf í fyrirtækjum skipta um eig-
endur þó á því séu þekktar undan-
tekningar. Andstaða fólks við
kvótakerfíð er fyrst og fremst
byggð á réttlætisrökum. Til að
tryggja að þróunin geti haldið
áfram í sæmilegri sátt er því brýnt
að útgerðarmenn nái sáttum við
þjóðina og greiði sanngjarnt gjald
fýrir aðgang að hinni sameiginlegu
auðlind. Eftir markaðsvæðingu
veiðanna er eignarhald útgerðarfyr-
irtækjanna og starfsemi gjörbreytt
og undir allt öðrum lögmálum en
var í gamla veiðimannasamfélag-
inu. Önnur lögmál hljóta þá einnig
að gilda um aðgang að auðlindinni.
Það er þess vegna eðlilegur hluti
af þessari þróun að þau fyrirtæki
og hlutafélög sem fá veiðiheimildir
á sín skip greiði veiðileyfagjald.
Hvort það gjald yrði notað til að
greiða niður erlendar skuldir þjóð-
arinnar, öllum til hagsbóta, eins og
Samtök iðnaðarins leggja til, er svo
annað mál.
Höfundur er alþingismnður.
- kjarni málsins!
Svanfríður
Jónasdóttir