Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR t MAÍ 1997 59
________________MIMWIMGAR
HELGA ÓLAFSDÓTTIR
+ Helga Ólafsdóttir var fædd
í Vestmannaeyjum 13. jan-
úar 1925. Hún lést á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 11. apríl síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum 26. apríl.
Vorið er komið og litlar manneskj-
’ ur streyma bráðum út í frelsið eftir
f langan vetur og mikla vinnu. Við
taka útileikir, ferðalög, sumarbúðir
eða ýmis námskeið sem eru í boði
fyrir börn í dag. En í mínu barns-
minni þýddi vorið aðeins eitt, ég átti
í vændum dvöl í himnaríki á jörð -
Vestmannaeyjum! Þótt ég elskaði
mömmu og pabba af öllu hjarta og
færi með þeim í dásamleg ferðalög,
| innan lands og utan, mátti sú
skemmtan helst aldrei stytta sumar-
* dvölina í Eyjum. Og enn í dag, þótt
{ ég sé komin á miðjan aldur, tala ég
alltaf um að fara „heim til Eyja“!
Þau bjuggu á Flötum 14, fólkið
mitt, í tveggja hæða húsi. Niðri voru
afí Sveins og amma og „afí Stugg“
(langafi minn), en uppi bjuggu Helga
frænka og Eggert, og þeir frændur
mínir Óli og Stjáni. Já, þetta var
svona „stórfjölskylda", eins og menn
| líta til með söknuði í dag, þegar kyn-
. slóðimar eru að einangrast hver frá
' annarri í erli stórborgarlífsins. Það
{ var von að mér liði vel þarna, þau
bára mig á höndum sér, ekki síst
Helga frænka. Þegar ég hafði spurt
ömmu hvað væri í matinn hjá henni
kaliaði ég upp til Helgu og ef þar
var betra í boði, borðaði ég bara
þar! Þegar það komu gestir til þeirra
átti ég alltaf fast sæti við kaffiborðið
og Helga frænka hló bara og tók af
| mér sykurtangimar fínu, þegar ég
var farin að klípa í berar tæmar á
I mér með þeim, sem auðvitað þykir
( ekki kurteislegt í boðum!
Mér fannst Helga frænka dugleg-
ust og myndarlegust af öllum hús-
mæðram og sat oft og horfði lotning-
arfull á hana vinna. Hún var ein af
þessum konum, sem kunna að gera
sín eigin hversdagslegu störf að leik
barnanna, hafði lúmskt gaman af
þessari skefjalausu aðdáun minni og
| leyfði mér oft að „hjálpa til“, þótt
eflaust hafí ég fremur orðið henni
( til trafala en hjálpar. Ég fékk til
( dæmis að keyra „kleinubílinn" og
„snúa“. Stundum fékk ég líka að
sitja á háaloftsskörinni og rulla tau-
ið, sem var mikið vandaverk og á
mánudögum, sem voru þvottadagar,
var á mér mikill „ráðskonurass", því
ég fékk stundum, með aðstoð þeirra
ömmu, að færa upp úr suðupottinum
með stórum trétöngum og svo þurfti
I að rétta klemmur og fylgjast með
vindáttinni, svo við næðum að taka
I inn tauið, ef það slægi nú yfir frá
| lýsis-bræðslunni,sem stóð rétt hjá
húsinu okkar, Oddeyrinni. En aldrei
þurfti „frekjudolla frænka mín“, eins
°g hún kallaði mig stundum góðlát-
lega, að hjálpa til, Helga kvartaði
aldrei þó vinnukonan hennar hyrfi,
eins og dögg fyrir sólu! Alltaf voru
vinkonur mínar velkomnar, inni sem
úti og sjálfsagðir gestir við kaffi-
borðið. A afmælinu mínu, 26. júní,
var haldin mikil veisla, oftast dekkað
1 úti í garði, og veisluborðið svignaði
i undan kræsingunum. Og á Þjóð-
hátíðinni, þar sem við áttum tvö
samliggjandi tjöld í „Veltusundi" var
Helga drottning í ríki sínu.
Við fórum oft saman í bæinn,
„Litla Vintjóna" og „Stóra Vin-
tjóna“, hún í kápu með hatt, og ég
man hvað mér þótti skemmtilegt
hljóðið í háu hælunum hennar þegar
við spókuðum okkur saman og ákvað
að svona myndi heyrast í mér, þegar
ég yrði kona.
Hún var forkur dugleg. Hún tók
þátt í rekstri Skipaviðgerða með
Eggerti sínum og seinna aðstoðaði
hún Kristján dyggilega við rekstur-
inn og gerði mjög vel við mennina,
sem störfuðu hjá þeim. Kvenfélagið
°g SÍBS nutu krafta hennar og hún
sótti mörg námskeið og gaf margar
fallegar gjafir, sem hún hafði skapað
eigin höndum.
Ég gæti fyllt blaðið af minningum
um Helgu frænku, bæði ljúfum og
sárum, því auðvitað fór lífið ekki allt-
af mjúkum höndum um hana, frekar
en aðra. En nú er komið að kveðju-
stund. Hún var sterk andspænis
dauðanum, hún frænka mín, tók veik-
indum sínum með jafnaðargeði og
kvartaði ekki. Og dauðinn fór um
hana mjúkum höndum, hún fékk að
sofna útaf með höndina sína í lófan-
um hans Stjána. Þau vora henni
ómetanleg stoð, Guðný og Stjáni, og
ég bið Guð að blessa þau og Óla og
Fríðu og bama- og bamabarnabörnin
öll og létta þeim sorgina.
Um leið og ég kveð þig, elsku
Helga frænka, vil ég þakka þér fyr-
ir síðustu gjöfina þína, - að þú skyld-
ir heimta að við kæmum með börnin
í „pysjuleit", síðastliðið sumar. Þú
vissir að hveiju stefndi og vildir taka
sjálf á móti okkur öllum, og gerðir
það eins og þér einni var lagið, þótt
þú værir svona veik. Við Jón þökkum
þér fyrir að gera þessa ferð okkur
og börnunum ógleymanlega og fyrir
það að nú þekkja þau töfra Eyjanna
af eigin raun og skilja betur sögurn-
ar, sem ég sagði þeim alltaf, þegar
þau báðu: „Mamma.segðu okkur frá
því þegar þú varst lítil stelpa!“
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
Helga frænka.
Ragnheiður Kristín (Heiða).
• Fleiri minningnrgreinar um
Helgu Ólafsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SÆMUNDUR GUÐMUNDSSON,
Brekku,
Hveragerði,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00.
Helga Dís Sæmundsdóttir, Ragnar Gunnarsson,
Gerður Sæmundsdóttir, Berndt Grönqvist
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona min, móðir, dóttir, tengdamóðir, amma og systir,
JÓNÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Fögruhlfð 5,
Hafnarfirði,
andaðist í Salgranska sjúkrahúsinu í Gautaborg föstudaginn 25. apríl.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 2. maí kl. 13.30.
Kristján Garðarsson,
Aðalheiður Árnadóttir,
Valborg H. Kristjánsdóttir, Örn Rúnarsson,
barnabörn og systkini.
+
Okkar ástkaeri,
JÓN HALLDÓR HANNESSON,
Hjarðarbóli,
Ölfusi,
sem andaðist þann 27. apríl verður jarðsung-
inn frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 3. maí
kl. 13.30.
Guðrún Andrésdóttir,
Andrés Ingi Jónsson,
Hannes Bjartmar Jónsson,
Einar Pétur Jónsson
og aðrir ástvinir.
+
Ástkær eiginmaður minn,
ÓSKAR SÖEBECK
prentari
Dalbraut 27,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
2. maí kl. 13.30.
Lilja Söebeck
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
bróður, afa og langafa,
EYJÓLFS ÁGÚSTSSONAR
bónda,
Hvammi
Landsveit,
sem andaðist 30. mars sl.
Guðrún Sigríður Kristinsdóttir,
Anna Magnúsdóttir
Katrín Eyjólfsdóttir, Már Jónsson,
Ævar Pálmi Eyjólfsson, Kolbrún Sveinsdóttir,
Knútur Eyjólfsson, Edda Halldórsdóttir,
Selma Huld Eyjólfsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
systkini, barnabörn og barnabarnabörn
+
Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
móðir, amma, langamma, langalangamma og
langalangalangamma,
SÓLBORG SIGURÐARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju,
Strandgötu, föstudaginn 2. maí kl. 15.00.
Sigurður Hallgrímsson, Svandís
Pétur Hallgrímsson,
Gunnar Hallgrímsson,
Una Hallgrímsdóttir, Þórir Sigurjónsson,
Hrönn Jóhannesdóttir, Baldur Sigurgeirsson,
Steinunn Magnúson, Haukur Jónsson,
Jóngeir E. Sigurðsson, Una Árnadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
barnabarnabarnabörn.
Salómonsdóttir,
Útför
+
STEINDÓRS STEINDÓRSSONAR
frá Hlöðum,
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hins látna, láti Öryrkjabandalag íslands njóta
þess.
Guðrún Sigbjörnsdóttir, Gunnar Steindórsson,
Steindór, Sigbjörn, Kristfn, Gunnar
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar systur
okkar,
SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR,
áðurtil heimilis
á Grettisgötu 6A.
Guðrún Helgadóttir,
Elín M. Helgadóttir,
Andrea Helgadóttir,
Anna María Helgadóttir.
+
Bróðir minn og mágur,
ODDUR ÁRNASON
frá Hrólfsstaðahelli,
Landsveit,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju laugardaginn 3. maí kl. 11.00 f.h.
Sigurþór Árnason,
Halldóra Ólafsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður og afa,
SIGURÐAR RUNÓLFSSONAR.
Gústa I. Sigurs,
Sverrir Sigurðsson, Veronica Li,
Kristján H. Sigurðsson, Hulda Snorradóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okk-
ur hlýhug og samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Gili.
Elísabet Þorsteinsdóttir, Klaus Holm,
Hængur Þorsteinsson, Hanna Lára Köhler,
barnabörn og barnabarnabörn.