Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997 63
FRÉTTIR
Kaffisala
Kristniboðs-
félgs kvenna
KAFFISALA Kristniboðsfélags
kvenna í Reykjavík er í dag, 1.
maí, frá kl. 14-18 í Kristniboðs-
salnum á Háaleitisbraut 58, 3.
hæð.
„Kristniboðsfélag kvenna er
elsta félagið innan vébanda Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga,
en SÍK hefur sent kristniboða til
alhliða starfa víða um heim. Er
þar litið til fjölmargra þátta mann-
legrar tilveru og leitast við að koma
virkri hjálp á framfæri. Allur ágóði
kaffisölunnar 1. maí rennur nú sem
fyrr til þessa málefnis," segir í
fréttatilkynningu.
Athugasemd frá
menntamálaráðuneyti
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
menntamálaráðuneytinu:
„í Morgunblaðinu í dag, dálkin-
um „Bréf til blaðsins", birtist pistill
frá Ólafi Ólafssyni landlækni með
yfirskriftinni „Ný skilgreining á
veikindaforföllum". í pistlinum er
því m.a. slegið föstu að veikindi
skólanema séu skráð sem „skróp“
og rakið dæmi úr einum skóla þessu
til staðfestingar. Ennfremur segir
að „undirrituðum (þ.e. landlækni)
hafí verið tjáð að þetta væru reglur
menntamálaráðuneytisins".
Af þessu tilefni vill ráðuneytið
taka fram að í námskrá handa
framhaldsskólum, útg. í júní 1990,
segir um skólasókn nemenda:
a. Nemendur skulu sækja allar
kennslustundir og koma stundvís-
lega til kennslu.
b. Langvarandi og þrálát veikindi
skal staðfesta með læknisvottorði.
Heimilt er skóla að vísa nemanda
frá námi og prófum uppfylli hann
ekki lágmarkskröfur um skólasókn.
c. Skólasókn nemenda má meta
til einkunnar og/eða námseininga
eftir frekari reglum er skólastjórn
setur og staðfestar verða af
menntamálaráðuneytinu.
Það er því ekki rétt sem fram
kemur í pistli landlæknis að sú fram-
kvæmd sem sagt er að átt hafí sér
stað í tilteknum skóla sé skv. reglum
menntamálaráðuneytisins. Það er
lagt í vald hvers skóla að setja nán-
ari reglur um fjarvistir nemenda en
þær sem tilgreindar eru hér að ofan.
Tímamóta-
verk Bítl-
anna flutt á
A
1 Islandi
I JÚNÍ verða þrjátíu ár liðin frá
því að tímamótaverk Bítlanna,
hljómplatan Sgt. Pepper’s Lonely
Hearts Club Band, var gefin út.
Af þessu tilefni verða haldnir hljóm-
leikar í Háskólabíói þar sem þessi
i víðfræga hljómplata verður flutt í
* heild. Mun þetta vera í fyrsta skipti
( á íslandi að hljómplata erlendrar
| hljómsveitar er flutt af íslenskum
tónlistarmönnum á þennan hátt.
Það er Nótt og Dagur - Lista-
smiðja íslands sem stendur að fram-
kvæmd hljómleikanna.
Flytjendur ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Islands verða: Stefán Hjör-
leifsson, gítar, Björgvin Gíslason,
gítar og sítar, Jón Ólafsson, hljóm-
i borð, Róbert Þórhallsson, bassi,
' Jóhann Hjörleifsson, trommur, og
( Steingrímur Guðmundsson, tabla-
( trommur. Söngvarar á hljómleikun-
um verða: Daníel Ágúst Haralds-
son, Stefán Hilmarsson, KK -
Kristján Kristjánsson, Ari Jónsson,
Siguijón Brink og Rúnar Júlíusson.
Um tónlistarstjórn sér Jón Ólafsson
og útsetningar fyrir sinfóníuhljóm-
sveitina annast Ölafur Gaukur.
Bítlunum og Georg Martin, upp-
. tökustjóra þeirra, hefur verið boðið
á hljómleikana en ekki er enn ljóst
' hvort af heimsókn þeirra verður.
Alls verða haldnir fernir hljóm-
leikar og fara þeir fram föstudaginn
6. júní kl. 20, laugardaginn 7. júní
kl. 17 og 20 og sunnudaginn 8.
júní kl. 17.
Takmarkaður sætafjöldi, eða að-
eins um 3.500 aðgöngumiðar, er í
boði. Miðasalan hefst í dag, 1.
maí, kl. 12 í Háskólabíói.
Að frumkvæði forsvarsmanna
, Nætur og Dags mun Fílharmoníu-
sveit Óslóarborgar halda samskon-
! ar hljómleika nú í haust eða helgina
27. og 28. september. Norskir hljóð-
færaleikarar og söngvarar munu
minnast þessara tímamóta í tónlist-
arsögunni undir tónlistarstjórn Jóns
Ólafssonar og í útsetningu Ólafs
Gauks.
( Auður Eir með
heimasíðu
SÉRA Auður Eir Vilhjálmsdóttir hef-
ur sett upp heimasíðu vegna biskups-
kjörs þar sem hún kynnir stefnu sína
ítarlega. Þar er einnig að finna ræðu
sem hún flutti á fundi með guðfræði-
nemum nýlega, kafla úr bók hennar
Vinátta Guðs, sálma sem hún hefur
ort fyrir Kvennakirkjuna o.fl.
, Á heimasíðunni er skoðanatorg
þar sem fólki gefst kostur á að skrifa
( séra Auði Eir og skiptast á skoðun-
mn við hana um stefnu hennar. Slóð
heimasíðunnar er: http://kirkj-
an.is/biskupskjor/audureir
Ingibjörg Hafstað, verkefnisstjóri,
Baldur Sigurðsson, lektor, Guðný
Ýr Jónsdóttir, kennari, Valgerður
Stefánsdóttir, forstöðumaður og
Árný Elíasdóttir, ritstjóri.
Nemendur úr 7. bekk grunnskóla
munu flytja ljóð milli erinda.
Málþingið verður haldið í Borgar-
túni 6, Reykjavík. Þátttakendur í
málþinginu eru vinsamlegast beðnir
um að skrá sig.
Aðalfundur Samtaka móðurmáls-
kennara verður kl. 16.30.
LEIÐRÉTT
Bréfi ESA var svarað
VEGNA rangra upplýsinga sagði í
frétt Morgunblaðsins í gær að ís-
lenzk stjórnvöld hefðu ekki svarað
fyrirspurn Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) um lagaákvæði varðandi
landanir erlendra fiskiskipa.
Hið rétta er, að sjávarútvegsráðu-
neytið svaraði bréfi ESA um þremur
vikum eftir að það barst.
Nöfn styrkþega féllu niður
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær var
sagt frá þeim aðilum sem hlutu styrk
úr Námunni, námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands. Nafn eins styrk-
þegans féll niður en það var Vigdís
Hrefna Pálsdóttir, nemandi við
Menntaskólann í Reykjavík og Söng-
skólann í Reykjavík. Jóel Karl Frið-
riksson, einnig nemandi við Mennta-
skólann í Reykjavík, var sagður vera
í Söngskólanum í Reykjavík og er
það ekki rétt. Sigurður Bjarki Gunn-
arsson var sagður stunda leiklist en
átti að vera sellóleikur. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Lottósalan í Gerplu
PRENTVILLA slæddist inn í frétt
af lottósölunni í liðinni viku. Raðir
seldust fyrir 3 milljónir vikuna
20.-26. apríl í söluturninum Gerplu
en ekki þijátíu eins og stóð í frétt-
inni. Beðist er afsökunar á þessu.
Fyrirlestur
um siðfræði
DANSKI læknirinn Povl Riis prófess-
or heldur opinberan fýrirlestur í Nor-
ræna húsinu kl. 13-14 á laugardag.
Fjallar fyrirlesturinn um siðfræði-
vanda varðandi lífsýnabanka. Titillinn
er: Láfsýnabankar í heilbrigðiskerfínu
— Gjafasöfn eða verslunarvara? Allir
eru velkomnir á fýrirlesturinn.
Dæmi um lífsýnabanka eru t.d.
blóðbankar, sæðisbankar, fóstur-
vísabankar, vefjasýnabankar og söfn
er geyma sýni úr krabbameinsæxl-
um. Varðandi slíka banka vakna
ýmsar siðfræðilegar spumingar,
segir í fréttatilkynningu. Einnig
segir: „Siðfræðileg vandamál er lúta
að líftækni hafa mjög verið rædd á
Norðurlöndum á undanförnum
árum, bæði meðal sérfræðinga og
almennings, en eins og kunnugt er
hafa einstök málefni, eins og klónun
manna, notkun genbreyttra lífvera
í matvælum og genalækningar, verið
sérstaklega í brennidepli."
Fyrirlestur prófessors Riis er hald-
inn í tengslum við málþing er Norræn
lífsiðfræðinefnd heldur í Norræna
húsinu í Reykjavík um lífsýnabanka,
en nefndin starfar á vegum Norrænu
ráðherranefndarinnar. Sérfræðingar,
bæði vísindamenn, lögfræðingar,
heimspekingar, guðfræðingar og rit-
höfundar frá öllum Norðurlandanna,
alls um 50 manns, koma hingað til
lands um helgina til að ræða siðfræði-
legar, tæknilegar, lagalegar og hag-
fræðilegar spurningar er vakna varð-
andi slíka banka.
Málþing móður-
málskennara
SAMTÖK móðurmálskennara
standa fyrir málþingi 2. maí nk. í
tengslum við endurskoðun aðalnám-
skrár sem nú stendur yfír. Málþing-
ið er styrkt af menntamálaráðuneyt-
inu og er öllum opið.
Frummælendur verða Ingibjörg
Einarsdóttir, formaður SM,
Höskuldur Þráinsson, prófessor,
Þuríður Jóhannsdóttir, kennari, Guð-
rún Geirsdóttir, námskrárfræðingur,
Hestadagar
í Reiðhöllinni
HINIR árlegu hestadagar, sem
hestamenn af Suðurlandi og
Norðurlandi standa að, verða
haldnir um helgina.
Á sýningunni verða sýndir
margir fremstu stóðhestar lands-
ins og úrval frá ræktunarbúum á
Suður- og Norðurlandi. Gert er
ráð fyrir miklum fjölda gesta á
þessa yfirgripsmiklu sýningu.
Sýningar verða föstudaginn 2.
og laugardaginn 3. maí og hefjast
kl. 21 og á sunnudaginn 4. maí
og hefst sú sýning kl. 16. Miðar
verða seldir í Reiðhöllinni og
Morgunblaðið/Kristinn
hefst miðasalan í dag kl. 13. Verð
miðanna er 1.500 kr. á föstudag
og sunnudag en 2.000 kr. á laug-
ardagskvöldið. Á sunnudaginn
verður frítt fyrir börn 10 ára og
yngri sem eru í fylgd með full-
orðnum.