Morgunblaðið - 01.05.1997, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1997 65
BREF TIL BLAÐSINS
I
Gróska 1. maí
Ríkisútvarpið/Sjónvarp eða
RÚV, sem miðlað hefur enskri
knattspyrnu inná heimili lands-
manna nánast frá því það hóf
starfsemi fyrir 30 árum, verður
ekki lengur með þá starfsemi, þar
sem hún flyst yfir til Stöðvar 2,
sem keypt hefur sýningarréttinn.
Þar á bæ eru menn nægilega
skynsamir (les fjármálavit) til að
sjá það, að með því að „henda“
nokkrum tugum milljóna í það að
krækja í slíkan samning „neyða“
þeir hundruð ef ekki þúsundir
landsmanna til að finna til þeirra
þarfar að gerast áskrifendur að
Stöð 2. Og svona til að tryggja sig
enn frekar, „keyptu" þeir skásta
íþróttafréttamanninn frá Rúv. Það
verður að teljast afar ólíklegt að
þeir, sem fylgst hafa með ensku
knattspyrnunni áratugum saman
og eru ekki áskrifendur að Stöð
2, hætti að fylgjast með henni.
i Útlenda orðtakið „money talks“
sannar sig enn einu sinni hér.
Finnst mönnum e.t.v. nóg um þá
markaðshyggju sem tröllríður hús-
um í þessu guðsvolaða landi? En
svona sem plástur á sár ensku-
knattspyrnufíkla ríkissjónvarpsins
hefur RÚV gert samning um að
sýna þýsku knattspyrnuna í stað-
inn fyrir þá ensku. Það líður ugg-
laust ekki langur tími áður en Stöð
2 kaupir þann rétt líka. Svona rétt
( eins og ríkustu knattspyrnuliðin,
sem kaupa alla bestu leikmennina,
til að setja á „lagerinn", svo að
þeir séu ekki að þvælast fyrir í liði
andstæðinganna!
Nú á þessum tímum, þegar nán-
ast allt er falt fyrir peninga, sama
hvort um menningarlegt eða af-
þreyingarlegt gildi sé að ræða,
væri ekki úr vegi fyrir stjórnmála-
menn á íslandi að fara huga alvar-
lega að þessum málum. Á vett-
vangi ESB hefur nýlega verið rætt
um að setja reglur um að stórir
íþróttaviðburðir eigi ekki að vera
sýndir í læstri dagskrá. Bréfritari
skorar hér með á stjómmálamenn
þessa lands, að þeir beiti sér fyrir
þvi, að enska knattspyrnan verði
sýnd í opinni dagskrá. Takist það
hins vegar ekki væri nú þegar
hægt að fara að undirbúa „útför“
enskrar knattsj>yrnu úr íslensku
| menningarlífi. Islenskar Getraunir
geta farið að pakka saman og
íþróttafélögin að leita sér að nýjum
tekjustofnum.
Ef fram heldur sem horfir, end-
ar (?!) með því að Stöð 2 kaupir
nánast allan rétt á öllu bitastæðu
sjónvarpefni, s.s. alla helstu
íþrótta-, tónlistar- og menningar-
viðburði, þannig að þeir sem ekki
eru áskrifendur að Stöð 2 hafa
ekki hugmynd um hvað er að ger-
ast í þessu þjóðfélagi.
HJÁLMTÝR R. BALDURSSON,
Vesturbergi 46, Reykjavík.
Frá Björgvini G. Sigurðssyni:
Á MORGUN, 1. maí, verður stig-
ið enn eitt skrefið í átt að samein-
ingu íslenskra vinstrimanna. Þá
munu norðlenskir vinstrimenn
stofna Gróskufélag á Akureyri og
verður félagið vettvangur fyrir alla
norðlenska áhugamenn um samein-
ingu vinstrimanna.
Síðan Gróska var stofnun þann
18. janúar síðastliðinn hefur margt
gerst sem síðar mun liðka til fyrir
sameiginlegu framboði vinstriflokk-
anna fyrir næstu Alþingiskosningar.
Mikið málefnastarf hefur verið unn-
ið og fer það fram í mörgum ólíkum
hópum.
Málefnastarfið ber yfirskriftina
„Hin opna bók Grósku“ og meðal
þess sem tekið er fyrir má nefna
hlutverk ríkisvaldsins, umhverfis-
og atvinnumál, réttlætið, jafnréttis-
mál, kvenfrelsi, mennta- og menn-
ingarmál og lýðræðið, svo eitthvað
sé nefnt. Útkoma málefnastarfsins
verður lögð fram með haustinu og
verður innlegg í málefnagrunn sam-
eiginlegs framboðs vinstriflokk-
anna. Það er bráðnauðsynlegt fýrir
framvindu sameiningarumræðunn-
ar að Gróskufélög séu stofnuð sem
Frá Þórði E. Halldórssyni:
ÞAÐ væri synd að segja að íslend-
inga skorti skemmtiefni síðustu
mánuðina og jafnvel árin. Biskupinn
yfir íslandi og lærisveinar hans,
prestarnir, sjá vel fyrir því að dimma
vetrarmánuði haldist húmor þjóðar-
innar við. Nýjasta afrekið sá dagsins
ljós með Garðabæjar-revíunni. Eitt
atriði stendur þó uppúr mistrinu sem
vert er að leggja augu og eyru að.
Ungur prestur, Halldór Reynisson,
hafði orð á því í opinberri ræðu fyr-
ir skömmu að vinna bæri að því að
gera kirkjuna fijálsa, það er að
stefna að því að aðskilja ríki og
kirkju. Fyrirmyndir að þessu fyrir-
komulagi fínnast svo til um allan
heim. Til dæmis í Bandaríkjunum
finnst hvergi þjóðkirkja. Eru Banda-
ríkjamenn þó með kirkjuræknustu
og trúuðustu þjóðum heims. Þar á
hver söfnuður sína eigin kirkju og
sér um hana að öllu leyti án nokk-
urra afskipta ríkisins. Hér á landi
er þjóðkirkjan orðin andlegur orustu-
völlur ríkisrekinna safnaða, sem
eyða milljónahundruðum á ári hveiju
í kirkjur og presta, sem hvetja bar-
áttuliðin til „góðra“ verka (skipu-
lagða úlfúð og mannskemmandi at-
víðast um landið. Framtak hinna
hugumstóru Akureyringa er glæsi-
legt og verður vonandi vísir að
stofnun Gróskufélaga um allt land.
Umræðan þarf að fara fram í hveiju
skoti landsins, sérstaklega í ljósi
þess að allt stefnir í að vinstrimenn
muni bjóða fram sameiginlega nán-
ast um land allt í sveitarstjórnar-
kosningunum að ári. Næsta skref
Gróskufólksins fyrir norðan verður
vonandi að taka upp málefnaum-
ræðu í stíl við þá umræðu sem fram
fer innan Grósku þessa dagana hér
syðra.
Það hefur sýnt sig að ungt vins-
trafólk sér ekkert því til fyrirstöðu
að félagshyggjuflokkarnir samein-
ist í eina breiðfylkingu. Unga kyn-
slóðin mun ekki láta bjóða sér
sundrungu smákónganna og þá
óeiningu sem haldið hefur vinstri-
mönnum sundruðum og hægri-
mönnum við völd áratugum saman.
Tími samstöðu er runninn upp, tími
samstöðu og breytinga. Islensku
þjóðfélagi til heilla. Mætum öll á
stofnfund Grósku á Akureyri þann
1. maí.
hafna). í skjóli þess, að hér á landi
er talið að ríki trúfrelsi hefur það
orðið til þess að fjöldi trúflokka hef-
ur skotið hér upp kollinum, sem eiga
það sameiginlegt að byggja eigin
kirkju og eða safnaðarheimili án
minnstu aðstoðar íslenska ríkisins.
Þessir söfnuðir virðast lifa góðu lífi.
Hvers vegna ætti þá ekki að vera
hægt að gera ráð fyrir að söfnuðir
þjóðkirkjunnar gætu lifað mann-
sæmandi lífi án innbyrðis deilna og
slagsmála? Með það að leiðarljósi
að vegna revíuþátta biskups og
margra presta að undanförnu hefur
það leitt til úrsagnar þúsunda aðila
úr þjóðkirkjunni. Hvað er þá eftir?
Hvers vegna ekki að gefa fólkinu
frelsi, lofa því að stofna eigin söfn-
uði í stað þess að kúga fjöldann til
að halda áfram að ausa fé í botn-
lausa hít afætunnar í þjóðfélaginu?
Eg lét liggja að því fyrir nokkru,
sem aðrir hafa tekið upp síðan og
gert að sínum orðum, að með fram-
ferði sínu væri prestastéttin að
skemmta skrattanum. í skjóli síðustu
atburða hef ég ekki skipt um skoðun.
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 23, Reykjavík.
BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON,
nemi í heimspeki við HÍ.
Um aðskílnað
ríkis og kirkju
Sumarúlpur
mcö og án hettu
Fyrir langömmuna,
ömmuna,
mömmuna og
ungu stúlkuna.
Á Stuttar og síöar
kápur.
Tilboðsslá
Alltaf eitthvað nýtt,
alit á kr. 5.000
0p\ö\au3^dasa
k\.l 0'16
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði v/búðarvegginn
Pelsfóðurskápur
to
■o
tu
g
0C
Greiðslukjör
við allra hæfl
á hálfvirði
PELSINN
Kirkjuhvoli • sími 552 0160