Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 66
'66 ITMMTUDAGUR 1.MAÍ1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
ÞA er lokið 17 umferðum af 21
í aðaltvímenningi vetrarins, meist-
aramótinu. Karl Hermannsson og
Amór Ragnarsson hafa hlotið 156
stig yfir meðalskor en félagar
þeirra Gísli Torfason og Jóhannes
Sigurðsson eru í öðru sæti með
123 stig.
Næstu pör:
Pétur Júlíusson - Kristján Kristjánsson 104
Garðar Garðarsson - Bjami Kristjánss. 90
Sigurður Albertsson - Jóhann Benediktsson 84
Sigurður Davíðsson - Þorvaldur Finnsson 58
Hæstu skor síðasta spilakvöld
fengu eftirtalin pör:
Garðar Garðarsson - Bjami Kristjánss. 60
Gunnar Siguijónsson - Einar Júlíusson 51
Kjartan ólason - óli Þór Kjartansson 51
Næsta mánudag verða spilaðar
4 síðustu umferðirnar. Spilað er í
Félagsheimilinu og hefst keppnin
kl. 19.45. Stefnt er að því að halda
aðalfund félagsins 19. maí.
Bridsfélag Akraness
Eins kvölds tvímenningur var
spilaður 17. apríl.
Efstir urðu:
SigurðurTómasson-TómasSigurðsson 199
Hörður Jóhannesson - Kjartan Guðmundsson 198
Ingi St. Gunnlaugsson - Olafur G. Ólafsson 196
Síðasta spilakvöld vetrarins hjá
Bridsfélagi Akraness verður haldið
í Veitingahúsinu Langasandi mið-
vikudaginn 7. maí nk. Spilaður verð-
ur tvímenningur og eru góð verð-
laun í boði sem Veitingahúsið Langi-
sandur gefur. Allir eru velkomnir
og hefst spilamennska kl. 19.30.
Vesturlandsmót í tvímenningi
Laugardaginn 26. apríl var
Vesturlandsmót í tvímenningi
haldið á Akranesi með þátttöku
20 para af Vesturlandi. Vestur-
landsmeistarar urðu Jón Viðar
Jónmundsson og Þórir Leifsson,
annars var röð efstu para þannig:
Jón Viðar Jónmundssn - Þórir Leifsson 145
Guðmundur Ólafsson - Hallgrimur Rögnvaldss. 89
Karl Alfreðsson - Bjami Guðmundsson 63
Jóhann Gestsson - Karl Ó. Alfreðsson 38
Einar Gíslason - Sigurgeir Sigurðsson 31
ÖRUGGUR
FJÖLSKYLDIIBÍIL
WEEKEND1,6 SX
Tveir loftpúðar, ABS hemlalæsivörn,
samtals 220.000 kr. eru innifalin í verðinu
RIKULEGUR STAÐALBUNAÐUR:
• ABS hemlalæsivörn • Útvarp/segulband/ RDS
• 2. öryggisloftbúðar • Miðjustokkur
• Bilbeltastrekkjarar • Tvískipt aftursæti
• Vél 103 hestöfl • Aöalljós með 2. parabólum
• Fiat Code þjóvavöpi.»• Hitastýring á afturrúðu
• Víkvii^itóí(rf-| • Afturrúðuþurrka með töf
• Samlæsingar » • Yfirbreiðsla yfir farangursrými
• Litaðar rúðlir • Þakbogar
• Samlitir stuðarar
• Hæðarstilling á stýri og
ökumannssæti og m.fl.
Istraktor
SMIÐSBÚÐ 2, GARÐABÆ • SÍMI: 565 85 80
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Steingrímur
jákvæður og
skemmtilegur
„ÉG VIL koma því á fram-
færi að ég hlusta stundum
á Þjóðarsálina og finnst
mér stundum fólk amast
við Steingrími Sigurðssyni
sem ég heyri stundum í í
Þjóðarsálinni. Ég er ekki
sammála þessu fólki því
ég tel að Steingrímur sé
með þeim skárstu sem
hringja í Þjóðarsálina því
hann talar mjög fallegt og
myndrænt mál. Hann er
yfirleitt mjög jákvæður og
gaman að hlusta á hann.
Hólmfríður Jónsdóttir.
Kúptu göturnar
í Vesturbænum.
ÞAÐ ER áberandi hvað
götumar í Vesturbænum
eru kúptar. Þess vegna er
bifreiðunum oftast lagt
með hjólunum farþega-
megin upp á gangstétt. Á
vetrum er þetta áberandi
því það er illmögulegt í ís
og snjó að komast af stað.
Bflstjórahurðin skellist á
mann þegar farið er út en
farþeginn nánast skríður
inn í sætið sitt nema um
háar bifreiðar sé að ræða.
Fyrir gangandi er þetta
líka allerfitt, því að gatan
er nánast kúpt. Væri ekki
hægt að skafa ofan af
þessum kúptu götum? Því
miður missti ég af hverfa-
fundi borgarstjóra um
daginn en þar hefði þetta
mál átt heima.
V estur bæingur.
Þakkir fyrir
góða þjónustu
VIÐ fórum fjórar vinkonur
um síðustu helgi í mat á
Kaffi Reykjavík. Upp kom
smámisskilningur í sam-
bandi við tilboð sem hafði
verið í gangi á mat. Stúlkan
sem þjónaði okkur til borðs
hafði snör handtök og
leiðrétti þetta og ekki nóg
með það heldur sinnti hún
okkur samviskusamlega
allt kvöldið og passaði vel
upp á að okkur vantaði
ekki neitt. Viljum við senda
þessari stúlku kærar þakkir
fyrir vel heppnað kvöld.
Pjórar vinkonur.
Þakkir fyrir
góða sýningu
HELGINA 26.-27. apríl
vorum við hjónin stödd í
uppsveitum Ámessýsiu og
rákum þá augun í auglýs-
ingu um það að
Skugga-Sveinn yrði
sýndur í Árnesi sunnudag
kl. 3. Við ákváðum að
grípa tækifærið og sjá
þetta gamla, góða,
íslenska leikrit. Það
borgaði sig svo sannar-
lega, það var mjög gaman
að sjá þessar gamalkunnu
persónur birtast á sviðinu
og er ekki að orðlengja það
að þama áttum við yndis-
lega stund og þökkum hér
með Ungmennafélagi
Gnúpveija innilega fyrir
þessa góðu skemmtun. Það
er afrek af ekki fjölmenn-
ara samfélagi en Gnúp-
veijar eru að setja á svið
gott leikrit, og alltaf jafn
ánægjulegt að sjá gamalt,
þjóðlegt verk, þau era, því
miður, alltof sjaldséð hér á
þéttbýlissvæðum sunnan-
lands.
Kærar þakkir Gnúpverj-
ar, gangi ykkur allt í hag-
inn á ókomnum ámm.
Þakklátur leiksýningar-
gestur í Amesi.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
KVENMANNSÚR tapað-
ist 27. apríl á leiðinni frá
Hótel Esju að Laugardals-
laug. Úrið á spænsk kon'a
sem var í heimsókn héf á
landi og er úrið henni mjög
kært. Ef einhver hefur orð-
ið var við úrið er hann vin-
samlega beðinn um að
hafa samband í síma
553 4923 eða við móttök-
una á Hótel Esju.
Jazz-fjallahjól
fannst
Jazz Latitude 15 gíra
fjallahjól með talna- og
lyklalás fannst í Suðurveri
27. apríl. Uppl. hjá Gunn-
ari í síma 562 0336.
Dýrahald
Kettir fást gefins
TVEIR hálfstálpaðir fress-
kettir fást gefins á góð
heimili af sérstökum
ástæðum. Þeir kunna alla
góða kattarsiði og búið er
að gelda þá. Upplýsingar
um þá fást í síma 565 0101
eða í símboða 846 1701.
Róbert er týndur
RÓBERT er frekar lítill og
grár og hvítur kisi sem
hvarf að heiman 23. apríl
frá Miðbraut 10 á Seltjam-
arnesi. Hann er ólarlaus
en eyrnarmerktur. Uppl. í
síma 561 1885.
SKÁK
Umsjðn Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Gelsenkirchen í
Þýskalandi í vor. Enska
undrabarnið Luke
McShane (2.400) hafði
hvítt og átti leik, en alþjóð-
legi meistarinn M. Jirov-
sky (2.505), Tékklandi var
með svart.
23. Hdxd6! (Sterkasti
leikurinn í stöðunni. Ein-
hverjir hefði líkiega freist-
ast til að leika 23. He7 í
von um 23. — Bxe7 24.
Da8 mát, en svartur verst
með 23. — b5. 23. — cxd6
(Eða 23. - Hxd6 24. Hxd6
- Dxd6 25. Da8+ - Kd7
26. Dxh8) 24. He7 og
Tékkinn gafst upp, því
hann á ekki viðunandi
vörn við hótuninni 25. Da8
mát. 24. — b5 er svarað
með 25. Bb6 - Hd7 26.
Hxd7 - Dxd7 27. Da8
mát.
Luke McShane stal sen-
unni á mótinu, varð í
7.—12. sæti af 84 kepp-
endum með sex og hálfan
vinning af níu mögulegum
og náði þriðja og síðasta
áfanga sínum að alþjóð-
legum meistaratitli. Hann
er þó ekki yngsti
alþjóðlegi meist-
ari skáksögunn-
ar. Luke er 13
ára gamall,
fæddur 7. janúar
1984. Hann hef-
ur ennþá ár til
að slá nýtt met
Frakkans Eti-
enne Bacrots og
verða yngsti
stórmeistari sög-
unnar.
Öfugt við
undrabörn eins
og Júdit Polgar,
Peter Leko og Bacrot hafa
foreldrar Luke McShane
ekkert viljað raska skóla-
HVÍTUR leikur og vinnur.
göngu hans. Hann þarf þó
einstaka sinnum frí til að
taka þátt á mótum.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI er ekki frá því að
áhugi á íslands sögu fari
vaxandi, þótt ekki hafi verið mulið
undir hana í skólakerfinu. Hér
verður lítillega horft til þrenns, sem
nánast hefur legið í þagnargildi,
en varðar byggð í landinu fyrir
árið eitt þúsund.
Hverjir stigu fyrstir fæti á ís-
lenzkt land? Sagan segir Papar,
kristnir einsetumenn, írskir, sem
sigldu á skinnbátum (curach) til
íslands á 7. eða 8. öld. Einar Lax-
ness segir í íslands sögu:
„Elzta frásögn um mannavist
hérlendis er komin frá írskum
sagnaritara, Dicuil munki, sem í
riti sínu De mensura orbis terrae
(Um stærð jarðar), skráðu um 825,
segir, að hann hafi rætt við klerka
um 795, er dvöldust á eyjunni
Thule, en það nafn höfðu írar um
ísland. Dicuil getur ekki um það,
hvort þessir írar hafi verið hinir
fyrstu, sem til landsins fóru. Byggð
í landinu nefnir hann ekki, en hann
segir að Færeyjar hafi verið byggð-
ar frá írum frá því um 725; þang-
að munu þeir hafa flutt með
sauðfé.“
Ari fróði segir í íslendingabók
að um 870, þegar landnám nor-
rænna manna hefst, hafi verið í
landinu „menn kristnir, þeir er
Norðmenn kölluðu Papa, en þeir
fóru síðar á braut, af því að þeir
vildu eigi vera hér við heiðna menn,
og létu eftir bækur írskar og bjöll-
ur og bagla.“
xxx
ISLAND - ÍSLENDINGUR! Hve-
nær voru þessi orð fyrst fest á
skinn/blað? Hvenær fóru menn hér
á landi búsettir að líta á sig sem
sérstaka þjóð?
Talið er að orðið ísland komi
fyrst fram í norrænum kvæðum á
10. öld; að því er Einar Laxness
segir í Islands sögu. Það má einnig
sjá á engilsaxnesku korti og rúna-
steini frá 11. öld og í ritum Adams
erkibiskups í Brimum 1072 um sögu
Hamborgaraerkibiskupa, en þar
segir að eyjan Thyle liggi í miðju
úthafi og kallist nú ísland.
I Landnámabókum Sturlu Þórð-
arsonar og Hauks Erlendssonar er
nafngiftin ísland rakin til Flóka
Vilgerðarsonar, „Hrafna-Flóka",
sem hafði vetursetu í Vatnsfirði á
Barðaströnd en nam síðar land í
Fljótum í Skagafirði.
Heitið íslendingur kemur fyrst
fyrir í samningi, sem íslendingar
gerðu við Ólaf helga Noregskonung
um 1022, en mun skrásettur um
1083. Á 11. öld notaði og Sighvat-
ur skáld Þórðarson orðið íslenzkur í
Austurfararvísum.
XXX
TLI það sé á vitorði margra
nú til dags að þrælahald
var alldijúgur hluti af þjóðarbú-
skapnum fram yfir kristnitöku árið
1000? Enn skal vitnað í Einar Lax-
ness:
„Landnámsmenn fluttu með sér
þræla, einkum hertekið fólk, flest
keltneskt (vestmenn), frá Vestur-
hafseyjum (Orkneyjum, Hjaltlandi,
Suðureyjum) og írlandi, en einnig
af fornum norrænum þrælastofni
(fínnskt). Þrælar urðu aðalvinnu-
stétt á stórbýlum hérlendis á 10.
öld og hlutfallslega fjölmennir. Þeir
voru persónuleg eign húsbænda
sinna, sem nutu afraksturs vinnu
þeirra, en bar skylda til að fram-
færa þá; þeir gengu kaupum og
sölum... Réttur þræls fólst í leyfi
til giftingar og að standa fyrir búi;
fyrir sumar misgerðir áttu þeir
bótarétt, svo og fyrir ófijálsa
frændur, en máttu hefna fyrir rétt-
arskerðingu kvenna sinna. Eign
þræls var nefndur úrkostur, og með
honum gátu þeir keypt sér frelsi;
Þræll, sem varð fijáls, nefndist
grefleysingur, þar til hann hafði
verið leiddur í lög á vorþingi af
goða sínum, þ.e. vinna eið að því
að virða lögin, en eftir það nefndur
leysingi, en ambátt leysingja ..."
Endir var bundinn á þrælahald
hér við lok víkingaferða á 11. öld,
eða fljótlega eftir kristnitöku og
fyrr en á öðrum Norðurlöndum. Það
var þó hluti af sögu okkar á land-
náms- og þjóðveldisöld.