Morgunblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 70
70 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
**<**-,‘\<í
L',
f ••
/Vi *»* 'slæ*£.
Sýnd kl. 3 og 9. Fös. kl. 9.
UNDRIÐ
hine 1
Sýnd kl. 9 og11.
Fylgist með þættinum um gerð myndarinnar
Liar - Liar á Stöð 2, föstudaginn 2. maí kl. 21.
Sýnd kl. 6. Siðustu sýningar
Háskólabíó
G-ott bí<5
Jim Carrey leikur Fletcher Reede, lögfræðing og forfallinn
lygalaup sem veröur að segja sannleikann í einn dag. Þarf að
segja meira? Ja, því má kannski bæta við að þetta er
auðvitað langvinsælasta myndin í Bandaríkjunum í dag, sú
allra fyndnasta með JimmCarrey og hún er...
Sýnd kl. 1,3, 5, 7, 9 og 11.
Fös. kl. 5, 7, 9 og 11.
ÓSKARSVERÐLAUN:
BESTA ERLENDA
MYNDIN
KO L Y
„Þessi mynd er galdur sem dáleiðir þig, nær þér gjörsamlega á sitt
band og þú óskar þess að hún megi aldrei hætta."
Ásgrímur Sverrisson (Land og synir, rit kvikmyndagerðarmanna)
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9.05 og 11.10.
Fös. kl. 7, 9.05 og 11.10.
★★★★
Ó. H. T. Rás 2
★★★★>.
Ó. Bylgjan
★ ★★l/2
H. K. DV
★ ★★l/2
Á. Þ. Dagsljós
★ ★★l/2
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
HEFJUM SUMARIÐ MEÐ HLATRI
GRÍNMYND SUMARSINS ER
KOMINM
UALLIAR
Skemmtanir
■ STEFÁN OG EYJÓLFUR, Dægur-
lagahljómsveit Eyjólfs Krisljánssonar
ásamt Stefáni Hilmarssyni leikur föstu-
dagskvöld á Kaffi Krók, Sauðárkróki. Á
laugardagskvöldið i Hlöðufelli á Húsavík
verður svo Júróvísíon stemmning og munu
þeir Eyjólfur og Stefán flytja lagið
„Draumur um Nínu“ sem þeir félagar
fluttu fyrir íslands hönd í Júróvisíon á
ítalfu árið 1991.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtudags-
kvöld verður hjómsveitin Reggae on Ice
með Jamaica-stemmningu. A föstudags-
og laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Skítamórall en þeir munu hljóðrita nokk-
>. ur ný lög sem koma út á nýjum diski 5.
júní nk. Einnig munu ýmsar aðrar uppá-
komur verða hljóðritaðar. Hljómsveitin
hefur að undanförnu verið í hljóðveri og
tekið upp sjö ný lög fyrir nýja diskinn og
er ætlunin að fylgja því eftir með spila-
mennsku um land allt í sumar. Hljómsveit-
ina skipa: Gunnar Ólason, Arngrímur
Fannar, Herbert Viðarsson, Jóhann
Bachmann og Karl Þ. Þorvaldsson. Á
sunnudags- og mánudagskvöld verða síðan
tónleikar með hinum Pink Floyd, Led-
Zeppelin-geggjurum í Dúndurfréttum.
■ FÓGETINN Hljómsveitin Hafrót leik-
ur fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Boðið er upp á 2 fyrir 1 úr
krananum frá kl. 21-23 öll kvöldin.
■ HÓTEL BORG Hljómsveitin So What
leikur léttan „rauðvínsdjass" föstudags-
_ ■ og laugardagskvöld.
■ DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆ Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur hljóm-
sveitin Stykk fyrir dansi. Opið frá kl.
22-3 bæði kvöldin.
Bio depiless
hamlar hárvexti
Kynning í Holtsapóteki
föstudaginn 2. maí
kl. 14:00-18:00.
■ KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin
Hunang leikur fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld. Á sunnudagskvöld
leikur Rcgína Ósk og hljómsveitin og á
mánudags- og þriðjudagskvöld ieika þau
Sigríður Beinteins og Grétar Örvars-
son.
■ KÁNTRÝBÆR Hljómsveitin Últra
heldur uppi kántrýstemmningu laugar-
dagskvöld.
■ ÖLKJALLARINN Á föstudags- og
laugardagskvöld halda Jonni og Einar
uppi „partýstemmningu" fram á nótt með
spili og söng.
■ THE DUBLINER Á föstudags- og
laugardagskvöld leikur bandaríska hljóm-
sveitin Cajun Paddy frá kl. 23.30.
■ TODMOBILE leikur laugardagskvöld
f veitingahúsinu Sjallanum á Akureyri.
Þetta verður einn af sfðustu.dansleikjum
Todmobile úti á landi í bili því brátt held-
ur sveitin f íslensku Óperuna og tekur
þátt í uppsetningu á Evitu. Aldurstakmark
á laugardagskvöldið er 18 ár og hefst
dansleikurinn um miðnætti.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudagskvöld
verður haldið Vestmannaeyjakvöld þar
sem perlur Eyjamanna verða fluttar. Ýfir
60 manns koma fram, söngvarar, hrekkja-
lómar, þingmenn, hljómsveitin Logar og
Karma o.fl. Þríréttaður kvöldverður og
dansleikur til kl. 3. Á laugardagskvöld
verður haldið áfram sýningunni Braggabl-
ús, söngbók Magnúsar Eiríkssonar.
Flytjendur: Pálmi Gunnarsson, Bjarni
Arason, Ellen Kristjánsdóttir og íris
Guðmundsdóttir. Tónlistarstjóm er í
höndum Gunnars Þórðarsonar. Flutt
verða Brunaliðslög, Mannakornslög o.fl.
Þríréttaður kvöldverður. Að sýningu lok-
inni skemmta MiHjónamæringarnir
ásamt Bjama Arasyni á dansleik til kl. 3.
■ ÓPERUKJALLARINN Á föstudags-
kvöld verður stórdansleikur með Óperu-
bandinu ásamt Bjögga Halldórs. Opið
til kl. 3. Á laugardagskvöld er svo diskó-
tek. Opið til kl. 3.
■ NAUSTKRÁIN Á fimmtudagskvöld
leikur H(jómsveit Önnu Vilhjálms og á
laugardags- og sunnudagskvöld leikur
hljómsveitin Sunnan tveir.
■ ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN Á
föstudags- og laugardagskvöld er dans-
leikur með Stjórninni.
■ KÁNTRÝKLÚBBURINN KÚREK-
INN, Hamraborg 1-3 (norðanmegin),
SKÍTAMÓRALL Icikur á Gauki á Stöng föstudags- og laugardagskvöld þar scm þeir ætla
að hljóðrita lifandi flutning.
STEFÁN og Eyjólfur Kristjáns leika á Kaffi Krók
á föstudagskvöld og á Hlöðufelli á Húsavík á laugar-
dagskvöld.
Kópavogi á eins árs afmæli
um þessar mundir og stendur
fyrir afmælisdansæfingu
föstudagskvöld kl. 21. Þess
má geta að Kúrekinn er með
sýningarhóp.
■ CAFÉ ROMANCE Ástr-
alski píanóleikarinn Robin
Rose leikur og syngur fyrir
gesti staðarins alla daga vik-
unnar nema mánudaga. Einn-
ig mun hann leika fyrir matar-
gesti veitingahússins Café
óperu. Þess má geta að Rose
var hér á landi fyrir 4 árum.
■ FEITI DVERGURINN Á
föstudags- og laugardags-
kvöld leikur Rúnar Júlíusson.
Veitingahúsið er opið frá kl.
13.30 fimmmtudag, föstudag,
laugardag og sunnudag.
Snyrtilegur klæðnaður.
■ GRAND HÓTEL v/Sig-
tún. Á fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld frá
kl. 19-23 leikur og syngur
Gunnar Páll Ingólfsson perl-
ur dægurlagatónlistarinnar fyrir gesti
hótelsins.
■ HÓTEL SAGA Á Mímisbar er opið
fimmtudags- og sunnudagskvöld frá kl.
19-1 og frá kl. 19-3 föstudags- og
laugardagskvöld en þá koma fram þeir
Stefán Jökulsson og Ragnar Bjarna-
son. í Súlnasal á föstudagskvöld er
einkasamkvæmi en á laugardagskvöld
verður sýningunni Allabaddarí haldið
áfram en þetta er skemmtidagskrá I
frönskum anda. Þeir sem taka lagið á
sýningunni eru Egill Ólafsson, Sigrún
Eva Xrmannsdóttir, Rósa Ingólfsdótt-
ir, Karl Ágúst Úlfsson og Órn Árna-
son. Á opnum dansleik eftir kl. 23.30
leika Aggi Slæ og Tamlasveitin ásamt
Sigrúnu Evu.
■ GULLÖLDIN Á föstudags- og laugar-
dagskvöld skemmtir Aðalsteinn Leó.
Opið til kl. 3 bæði kvöldin.
■ KRINGLUKRÁIN Á fimmtudags-,
föstudags- og sunnudagskvöld leikur
hljómsveitin í hvítum sokkum frá kl. 22.
Á laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Léttir sprettir frá kl. 22 og í Leikstof-
unni föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur trúbadorinn Viðar Jónsson.