Morgunblaðið - 04.09.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.09.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1997 47 FÓLK í FRÉTTUM Stutt Demi lifði endinn af Anne Bancroft segir konur ekki eiga neitt erindi í stríð. ►Ridley Scott, leiksljóri „G.I. Jane“, sem er að- sóknarmesta kvikmynd i Bandaríkjunum um þess- ar mundir, vildi upphaf- lega að myndin hefði annan endi. Þá átti Jane, sem leikin er af Demi Moore, að deyja. Anne Bancroft fannst einnig sá endir ákjósanlegastur. „Mér fannst hann mjög góður,“ segir hún. „Kon- ur eiga ekkert erindi í stríð. Ég vil raunar ganga lengra og segja að karlar eiga heldur ekkert erindi í stríð.“ Taylor aftur á hvíta ► Elizabeth Taylor, sem er aðjafna sig eftir heilauppskurð, hefur verið boðið að- alhlutverk í nýrri kvikmynd. Gerðist það eftir yfirlýsingu Taylor þess efnis að hún væri tilbúin að leika á ný ef freist- andi tilboð bærist. Myndin kemur til með að fjalla um konu sem endur- heimtir lífsgleðina eftir að vinátta tekst með henni og þras- gjörnum manni sem verður á vegi henn- ar. Hafa bæði Rod Steiger og Tony Curtis sýnt áhuga á því hlutverki. í lagi að vera öðruvísi ► Nicolas Cage hafði börn í huga þegar hann tók að sér aðalhlutverkið í kvikmynd Tims Burtons um Súper- man. „Eg hreifst af hugmyndinni um að leika Súperman vegna þess að hann er þekktur af börn- um um allan heim. Þá fæ ég tækifæri til að koma því áleið- is að það er í lagi að vera öðruvísi," segir hann í nýlegu viðtali við Los Angeles Times. ELIZABETH Taylor í myndinni „Sudd- enly Last Summer" frá árinu 1959. Haustvörurnar frá Brandtex eru komnar. Verðdæmi: Buxur frá kr. 1.690. Jakkar frá kr. 6.900. Pils frá kr. 2.900. Blússur frá kr. 2.800. Sendum í póstkröfu. Nýbýlavegi, s. 5544433. yí"' .. Edda Björgvinsdóttir NO KAME ondlil órskis NO NAME ■ —COSMETICS ■■ ■■ ■■ Snyrtivörukynning á morgun frá kl. 14-18. Frí kynningarförðun. Sautján, Laugavegi. MYNDBÖND Kennari í klípu Fjör á fjölbraut (High School High) Gamanmynd ★ '/2 Framleiðendur: David Zucker, Rob- ert LoCash, Gil Netter. Leikstjóri: Hart Bochner. Handritshöfundar: David Zucker, Robert LoCash, Pat Proft. Kvikmyndataka: Vernon Layton. Tónlist: Ira Newborn. Aðal- hlutverk: John Lovitz, Tia Carrere, Louise Fletcher, Mekhi Phifer. 91 mín. Bandaríkin. Skífan. 1997. Út- gáfudagur: 6. ágúst. Myndin er leyfð til sýninga fyrir alla aldurs- hópa. ZAZ hópurinn, sem stendur fyrir Jerry Zucker, Jim Abrahams og David Zucker, var fyrir nokkrum árum einn fersk- asti blær sem gamanmyndir höfðu kynnst lengi. Myndir eins og „The Kentucky Fried Movie“, sem gerði grín að vestrænni menn- ingu, og „Air- plane!“, sem gerði útaf við flugslysamyndir, eru af mörgum taldar einar af fyndn- ustu gamanmyndum 8. og 9. ára- tugarins. En brandararnir urðu snemma mjög þreyttir og myndir, sem byggjast á sömu hlátursform- úlu, eins og „Spy Hard“ vekja frek- ar upp ógleðitilfinningu en hlátur. Einn úr ZAZ-hópnum tekur þátt í gerð myndarinnar Fjör á fjölbraut, en það er David Zucker. Jim og Jerry hafa báðir snúið sér að alvar- legri myndum, Jim gerði hina ágætu „First do no Harm“ og Jerry hefur gert myndir á borð við „Ghost“ og „First Knight“, en David virðist vera sá eini af hópnum sem á eftir að þroskast. Fjör á fjölbraut gerir óspart grín að myndum eins og „Stand and Deliver“ og „Dangerous Minds“, en nær sjaldan að kitla hláturtaugarn- ar. Það leynast nokkur atriði, sem hægt er að brosa að og Jon Lovitz er ekki eins óþolandi og hann oft vill verða. Aðrir leikarar standa sig flestir illa og þá sérstaklega Tia Carrere, sem virðist ekki hafa neina hugmynd hvað felst í orðinu gaman- leikur. Louise Fletcher, sem fer með hlutverk illkvendisins hefur ekki leikið vel síðan hún fékk Óskarinn fyrir illkvendið í „One Flew over the Cuckoo’s Nest“. Leikstjórinn Hart Bochner hefur staðið sig miklu bet- ur sem leikari en leikstjóri, en hann hefur leikið í myndum á borð við „Apartment Zero“ og „Breaking Away“. Fjör á fjölbraut er óttaleg vitleysa, en þeir sem gaman hafa af slíkum myndum ættu að athuga hana, aðrir ættu að halda sig fjarri. Ottó Geir Borg Háskóli íslands Viðskipta- og hagfræðideild GERMANIA Dr. Gerhard Stoltenberg fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands „THE CONCEPT OF SOCIAL MARKET ECONOMY AND THE ACHIEVEMENT OF PROFESSOR LUDWIG ERHARD“ Fyrirlestur í Háskóla fslands, Odda fímmtudaginn 4. september kl. 15.30 I fyrirlestrinum mun Dr. Stoltenberg fjalla um inntak og meginhugmyndir hins félagslega markaðskerfis og sögulegt hlutverk Ludwig Erhard, sem kallaður var faðir þýska efnahagsundursins. Prófessor Ludwig Erhard var efnahagsmálaráðherra V-Þýskalands 1949-1963 og seinna kanslari. Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Fyrirlesturinn er öllum opinn AG, FOSTUDAG OG LAUGARDAG VINNU- YRTUR 90, tií 1980,- DRESS MANN ,562-9730. Fax S62-973I VANTAR ÞIG VOG SOEHNLE Pakkavogir 20 kg - 50 kg -100 kg EINFALDAR OG ÓDÝRAR Verð frá kr. 35.949 Einnig allar stærðir iðnaðarvoga Hagstætt verð Leitið upplýsinga ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF SUNDABORG3 SÍMI5684800 FAX5685056 HR1SV1 V -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.