Morgunblaðið - 20.12.1997, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ
^46 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
MINNINGAR
HELGA SOFFÍA
GUNNARSDÓTTIR
+ Helga Soffía
var fædd að Eiði
í Eyarsveit 8.
nóvember 1937.
Hún lést 11. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Gunnar Jó-
hann Stefánsson, f.
22. nóvember 1903,
d.23. júlí 1980, og
kona hans Lilja El-
ísdóttir, f. 24. júní
1907, d. 1. júní 1964.
Systkini hennar
eru: Elís, f. 25.2.
1929, bóndi á
Vatnabúðum, Hjálmar, f. 5.3.
1931, útgerðarmaður í Grund-
arfirði, Garðar, f. 17.7. 1932,
skipstjóri í Grundarfirði, Sig-
rún, f. 3.2. 1934, gangastúlka í
Reykjavík, Sigurlín, f. 17.5.
1936, bóndi Þingvöllum, Jóhann
Leó, f. 15.3. 1941, verslun-
armaður í Mosfellsbæ, Snorri,
f. 22.9. 1943, sjómaður í Dan-
mörku, stúlka fædd andvana
6.1. 1946, Þórarinn, f. 18.7.
1947, sjómaður í Reykjavík.
Helga stundaði nám við Hús-
mæðraskólann að Varmalandi.
Hinn 29. desember 1956 gekk
Helga að eiga Njál Gunnarsson,
f. 22. maí 1930, bónda frá Suð-
ur-Bár. Þau eignuðust átta börn
sem eru: 1) Sunna, f.18.9. 1956,
bókavörður í Grundarfirði, gift
Gunnari Inga Jó-
hannessyni og eiga
þau þijú börn,
Helgu Soffíu,
Signýju og Hákon.
2) Gunnar, f. 27.10.
1957, verkamaður í
Grundarfirði,
kvæntur Kolbrúnu
Rögnvaldsdóttur og
eiga þau þrjá syni,
Njál, Sigurgeir
Sturlu og Daníel.
Áður átti Gunnar
Kristján Birnir með
Sigurborgu Krist-
jánsdóttur. 3) Erna,
f. 17.10. 1958, útibústjóri, gift
Erni Ármanni Jónassyni og á
Erna Helgu með Pétri Lúðvíks-
syni. Helga er í sambúð með
Marvin ívarssyni. 4) Lilja, f.
23.2. 1960, skrifstofumaður i
Reylq'avík, og á hún Valtý Njál
með Birgi Olafssyni. 5) Valgeir,
f. 18.6. 1962, vélvirki í Reykja-
vík. 6) Rósa, f. 13.10. 1963, hús-
móðir á Akureyri, gift Hannesi
Karlssyni og eiga þau þijár
dætur, Lísbet, Helen og Berg-
lindi. 7) Anna, f. 19.1. 1965,
skrifstofumaður í Reylgavík, og
á hún Stefán með Guðbrandi
Baldurssyni. 8) Marteinn, f.
15.11. 1973, bóndi Suður-Bár.
Útför Helgu Soffíu fer fram
frá Setbergskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku mamma. Ég er svo þakklát
fyrir allar stundirnar með þér. Síð-
ustu daga er eins og ég hafí verið
að horfa og hlusta á langa kvik-
mynd, svo margar minningar sem
^ verða vel geymdar. Fjölskyldan var
alltaf í fyrirrúmi hjá þér, einnig
þeir sem minna máttu sín. Mér verða
alltaf minnisstæðar fjölskyldusam-
komumar, lífið og fjörið þegar við
hittumst 511. Bárin var þér hugstæð
og þegar leið að sumri hringdir þú
og spurðir hvað ætti að gera í sum-
ar? Hefurðu nokkuð annað að gera
en koma heim? Og auðvitað fór ég
alltaf heim, enda geymdirðu hann
Valtý Njál minn öll sumur frá því
hann var lítill og hjá honum komst
ekkert annað að en klára skólann á
vorin til að komast í sveitina og
hjálpa afa og ömmu og koma svo
heim með síðustu ferð á hausti áður
en skólinn byijaði. En nú verður
tómt í sumar hjá honum en hann á
minningar sem hjálpa og ég veit að
afi tekur vel á móti honum í vor
og hjálpar honum jrfir erfiðasta
hjallann ‘þegar engin amma er.
Styrkur þinn var aðdáunarverður
þegar veikindi pabba heijuðu á og
þú máttir búa við þín eigin veikindi
einmitt á sama tíma, en tíminn leið
og ekki bera allir sigur úr býtum
en ég veit að nú líður þér vel.
Elsku mamma mín, ég vildi segja
svo margt en ég bið að heilsa og
bestu kveðjur frá Valtý Njáli. Þú
manst að kíkja við.
Lilja.
Hún systir mín, Helga, er látin
eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk-
dóm. Það er erfitt að sætta sig við
þegar illur sjúkdómur heijar á
hrausta, dugnaðarkonu langt um
aldur fram.
Helga ólst upp á stóru og fjöl-
mennu heimili á Eiði. Á Eiði voru
18 börn í hennar æsku en þá var
þar tvíbýli, hin hjónin á Eiði voru
Guðrún, systir Lilju, og Kristján
Jónsson. Það þurfti að vera mikil
samheldni og samvinna á svo stóru
heimili eins og var á Eiði þegar
þessi stóri barnahópur var að alast
upp. Þær systur urðu að sjá um
heimilishald og búskap löngum um
vetur því bændumir þurftu að vera
á togurum á vetrarvertíð og síðar á
vertíðarbátum.
Þegar Helga hafði lokið bama-
skólanámi fór hún í Kvennaskólann
á Varmalandi eins og títt var til að
búa sig undir lífsbaráttuna. Helga
og Njáll hefja búskap í Suður-Bár
með foreldmm Njáls, þeim Valgerði
Valgeirsdótttur og Gunnari Njáls-
syni. Þetta fólk hafði flutt með allan
sinn búskap og börn norðan úr
Norðurfírði. Helga og Njáll áttu
átta börn. Það hlýtur að hafa verið
mikið þrekvirki að ala upp þessa
stóm bamahópa og breyta smákot-
um í stórbýli. Hjónin í Suður-Bár
létu ekki deigan síga þó að börnin
flygju úr hreiðrinu og búskapurinn
drægist saman. Þá var hafist handa
við að byggja, breyta og útbúa heil-
mikla bændagistingu ásamt ágæt-
um golfvelli og hafa margir gestir
notið góðrar dvalar við leik, störf
og hvfld í fallegu umhverfi; því hvar
er fallegra en í Grandarfirði?
Helga min, þú hefur gengið göt-
una til góðs, þú varst stundum köll-
uð litla systir en þú varst aldrei lít-
il heldur stór og glæsileg kona. Ég
held að þú hafir verið stærst í kirkj-
unni okkar á Setbergi á síðustu
Jónsmessu þegar þú stóðst við alt-
arið og fluttir góða ræðu þegar all-
ir afkomendur foreldra okkar komu
saman til að minnast þeirra á ættar-
móti sem var haldið á ykkar heimili
í Suður-Bár. Við hjónin vottum
Njáli, börnum, mökum og barna-
börnum okkar dýpstu samúð. Við
eigum minningu um góða konu.
Hjálmar og Helga,
Grundarfirði.
Elskuleg tengdamóðir mín er fall-
in frá langt um aldur fram. Það er
margs að minnast og minningarnar
streyma fram enda var Helga mikil-
hæf og dugleg kona. Þegar ég kom
fyrst á heimili hennar með syni
hennar fyrir tæplega 12 árum var
tekið hlýlega á móti mér og ætíð
síðan. Síðustu fímm árin höfum við
umgengist meira og kynnst betur
síðan við fluttum til Gmndarfjarðar.
Oft var skroppið í sveitina síðdegis
að ég tali ekki um á helgum. Strák-
unum okkar fannst alltaf jafn yndis-
legt að koma og vera í sveitinni hjá
ömmu og afa, vildu helst hvergi
annarsstaðar vera enda alltaf nóg
um að vera í sveitinni.
Fyrir 2 ámm hættu Helga og
Njáll hefðbundnum búskap og helg-
uðu sig ferðaþjónustunni, sem þau
höfðu byijað á nokkmm ámm áður.
Höfðu þau byggt upp mjög myndar-
lega og góða aðstöðu, gistingu í
íbúðarhúsinu, byggt tveggja íbúða
sumarhús, tjaldsvæði með góðri
aðstöðu og byggt upp níu holu golf-
völl. Þetta átti vel við Helgu, var
hennar líf og yndi að þjóna sínum
gestum enda sóttu margir ferða-
mennirnir Suður-Bár heim ár eftir
ár. Stundum var svo yfírfullt hjá
henni að þeim hjónum fannst ekk-
ert tiltökumál þótt þau þyrftu að
sofa sjálf í stofunni.
Blómakona var Helga enda sýndi
falleg garðstofan hennar merki um
það. Þar ræktaði hún allskonar
blóm. Falleg vínbeijaplantan bar
ríkulegan ávöxt og notaði hún vín-
berin I sultu sem var alveg einstök
eins og allt sem hún gerði. Rósirnar
hennar gáfu góða angan og kom
blómalyktin á móti manni þegar
komið var í dyrnar. Úti átti hún
stórt gróðurhús þar sem hún rækt-
aði grænmeti og fleiri plöntur. Allt
nýtti hún, það var alveg óþarfi að
hlaupa út í búð að kaupa nýtt, ef
nýta mætti eitthvað annað í staðinn.
Matargerð var hennar sérgrein
það var alveg sama hvenær þú
komst. Alltaf var dýrindis matur á
boðstólum, ljúffengur og góður eins
og hann gerist á bestu hótelum.
Helga starfaði í ýmsum félögum
og lét alls staðar gott af sér leiða.
Hún mátti aldrei neitt aumt sjá hjá
öðmm þá var hún tilbúin að bjóða
fram krafta sína. Þótt hún væri
þreytt, t.d. á vorin um sauðburð,
og eitthvað stæði til var hún ekkert
að hafa orð á því, heldur sagðist
hún geta hvílt sig seinna. Oft voram
við öll saman komin og þá var nú
líf og fjör og nóg að starfa. Man
ég eftir einum páskum þar sem
ákveðið var að skreppa í skemmti-
ferð á vélsleðum upp á Snæfellsjök-
ul og ætlaði hún að vera heima,
reyndar eins og ég. Hringdi hún þá
í mig og sagðist ekki taka það í
mál að ég færi ekki með. „Hafðu
strákana tilbúna ég kem og sæki
þá.“ Og hún kom að vörmu spori
og sótti strákana sem vom eitt sól-
skinsbros að fá að fara með ömmu
sinni í sveitina. Ferðin á jökulinn
heppnaðist vel og þegar heim var
komið beið Helga með mat handa
öllum, sannkallað veisluborð.
Erfiðleikamir gerðu vart við sig
hjá þeim hjónum þegar Njáll
tengdafaðir minn greindist með ill-
kynja sjúkdóm og þurfti í kjölfarið
að gangast undir mjög mikla og
erfiða aðgerð. Með mikilli þraut-
seigju stóð Helga við hlið eigin-
manns síns. Þegar merki um bata
fóru að sjást og birta átti til reið
annað áfall yfir. Helga greindist
með krabbamein og hefur með því-
líkum dugnaði barist hetjulega og
gengið í gegnum margar og mjög
erfiðar lyfjameðferðir. En hennar
tími var fullnaður og góður guð tók
hana til sín og gætir hennar fyrir
okkur.
Elsku tengdamamma. Betri
tengdamóður hefði ég ekki getað
hugsað mér, ég þakka þér fyrir allt
og bið góðan guð að geyma þig.
Ég kveð þig með söknuði, minning
þín er og verður alltaf ljós í hjörtum
okkar.
Elsku tengdapabbi, börn, bama-
börn og aðrir aðstandendur. Missir
ykkar er mikill, megi góður guð
styðja ykkur og styrkja í ykkar
miklu sorg.
Nú legg ég augun aftur
Ó, guð þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ,virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Hún hvfli í friði.
Kolbrún.
Fyrir allt of fáum ámm kynnt-
umst við hjónin Helgu og hennar
yndislega heimili á Suður-Bár.
Við þurftum að dvelja í Gmndar-
firði nokkra daga, og hafði okkur
verið bent á að gistingu væri hægt
að fá í Suður-Bár. Okkur var tekið
þar forkunnarvel af Helgu og manni
hennar Njáli Gunnarssyni.
Allur bragur á heimilinu var með
þeim hætti, að til fyrirmyndar var,
og handbragð húsfreyjunnar í
hveiju skoti. Ráðdeildarsemi og
hagsýni einkenndu hana í öllu sem
hún tók sér fyrir hendur.
Af dugnaði og eljusemi byggðu
hjónin í Suður-Bár upp glæsilega
gistiþjónustu sem rómuð var af þeim
sem hennar nutu.
Helga var kraftmikil og hlífði
sjálfri sér aldrei, þótt hún gengi
ekki heil til skógar síðustu árin, en
einn af hræðilegustu sjúkdómum
mannkynsins sigraði þessa hetju að
lokum.
Samvemstundimar með Helgu
verða okkur hjónunum ógleyman-
legar og það er mannbætandi að
hafa kynnst henni. En þegar við
dvöldum þama tókust mjög góð
kynni með okkur og fjölskyldu henn-
ar, sem hafa haldist alla tíð síðan.
Við kveðjum þig, kæra vinkona,
með söknuði og virðingu, eigin-
manni þínum og börnum vottum við
okkar innilegustu samúð.
Astrid Ellingsen og
Bjarni Jónsson.
Hún kom ekki á óvart andláts-
fregn Helgu Soffíu Gunnarsdóttur,
frænku minnar, þegar Njáll eigin-
maður hennar hringdi til mín að
morgni 11. des. sl. og sagði: „Hún
Helga mín sofnaði í nótt.“
Þegar Helga veiktist fyrir um
þremur árum, fannst manni að þetta
væri eitthvað sem hún myndi yfir-
stíga, þessi sterka kona, sem alltaf
bar sig svo vel í veikindunum. Það
var aldrei að heyra á henni upp-
gjöf. Treyst var á að læknavísindin
réðu við þessi mein. En annað kom
í ljós, krabbameinið hafði náð yfir-
tökunum. Ferðum hennar fór fjölg-
andi til læknisrannsókna og á
sjúkrahús.
En á sextugsafmælinu sínu 8.
nóv. sl. þá nýkomin af sjúkrahúsi,
tók hún á móti fólkinu sínu á heim-
ili Sigrúnar systur sinnar í Reykja-
vík, og viku seinna var Helga kom-
in heim í Suður-Bár. Varð henni að
ósk sinni að fá til sín fólkið sitt,
vini og sveitunga, í tilefni af sex-
tugsafmælinu og eiga með þeim
stund, þar sem hún gat verið meðal
þeirra, og notið blómanna sem hún
Spennan eykst á HM í skák
SKAK
Groningcn, Ilollandi
HEIMSMEISTARA-
KEPPNIN f SKÁK
8. des.-9. jan.
ÖNNUR skákin í fjórðu umferð
heimsmeistaramótsins í skák var
tefld í Groningen á fimmtudaginn.
Úrslit urðu sem hér segir:
B. Gelfand - V. Tkachiev 'A-'A
V. Zvjaginsev - A. Dreev 'A-'A
V. Anand - Z. Almasi 1-0
A. Shirov - V. Akopian 1-0
M. Krasenkow - Azmaiparashvili
'A-'A
N. Short - A. Beliavsky 1-0
K. Georgiev - L. Van Wely 'A-'A
P. Svidler - M. Adams ’A-'A
Þeir Anand, Van Wely og Shirov
eru þar með komnir áfram í fimmtu
umferð, en önnur einvígi halda
áfram þar til úrslit fást. Anand
vann báðar skákimar gegn Almasi
og búast má við að hann nái langt
í keppninni. Short og Beliavsky
tefldu spánska leikinn og Short
vann eftir einungis 27 leiki. Athygl-
isvert er að staðan sem kom upp
eftir 22. leik hvíts hafði áður kom-
ið upp í skákinni Kovacevic - Glig-
oric í Niksic í Júgóslavíu fyrr á
þessu ári. Líklega hefur Beliavsky
ekki kannast við þá skák, því
Kovacevic vann glæsilega í 32 leikj-
um.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Alexander Beliavsky
1. e4-e5 2. Rf3-Rc6 3. Bb5-a6
4. Ba4—Rf6 5. 0-0-Be7 6. Hel-
b5 7. Bb3-d6 8. c3-0-0 9. h3-
He8 10. d4-Bb7 11. Rbd2-Bf8
12. d5-Rb8 13. Rfl-Rbd7 14.
R3h2-c6 15. dc6-Bc6 16. Bg5-
Dc7 17. Df3-Db7 18. Rg3-d5 19.
Rg4-de4 20. Df5-Rd5 21. Re4-
He6 22. Hadl-h5
Gligoric lék 22. Hae8 gegn
Kovacevic. Framhaldið varð 23.
Hd3-h5 24. Bxd5-Bxd5 25.
Rgf6!-Rxf6 26. Rxf6-gxf6 27.
Bxf6-Bh6 28. Hxe5! og Kovacevic
vann í nokkrum leikjum.
23. Re3-Rf4 24. Bf4-Be4 25.
Hd7-Bf5 26. Hb7-ef4 27. Hf7-
1-0
Jón Viktor að ná í
þriðja áfangann?
Sex umferðum er lokið á þriðja
alþjóðlega Guðmundar Arasonar
skákmótinu, sem nú stendur yfir í
Hafnarfirði.
Eftir slaka byijun eru íslensku
keppendurnir að taka við sér, þó
enginn eins og Jón Viktor sem nú
hefur unnið 4 skákir í röð og er
með 4‘/2 vinning. Hann þarf l'/2
vinning í síðustu þremur umferðun-
um til að ná sínum þriðja alþjóð-
lega áfanga. Meðal annarra íslend-
inga, sem nú em að mjaka sér upp
töfluna er Bragi Þorfinnsson, sem
gekk afleitlega í fyrstu umferðun-
um, enda var hann samtímis í erfið-
um prófum. í sjöttu umferð náði
hann jafntefli við Jacob Aagaard
sem var einn í efsta sæti fyrir
umferðina.
Staða efstu manna í hvorum
flokki er þessi:
Flokkur A
1. Jacob Aagaard, Danm. (2435) 5 v.
2. -4. Jón V. Gunnarsson (2315) 4 'A v.
Jesper Hajl, Svíþj. (2460) 4 'A v.
Alexander Raetsky, Rússl. (2405) 4'A
v.
5.-6. Þröstur Þórhallsson (2510) 4 v.
Heikki Westerinen, Finnl. (2410) 4 v.
Flokkur B
1.-2. Stellan Brynell, Svíþj. (2465) 5 v.
Manuel Bosboom, Holl. (2430) 5 v.
3. Robert Astrom, Svíþj. (2455) 3 v.
Teflt er á hveijum degi og hefj-
ast umferðir klukkan 17. Síðasta
umferðin hefst þó klukkan 14,
sunnudaginn 21. desember. Áhorf-
endur eru velkomnir, en mótið er
haldið i íþróttahúsinu við Strand-
götu, Hafnarfirði.
Jólapakkamót Hellis í dag
í dag, laugardaginn 20. desem-
ber, klukkan 14 hefst Jólapakka-
mót Hellis og stendur yfir í u.þ.b.
3 klst. Fjöldi jólapakka er í verð-
laun, bæði til þeirra sem bestum
árangri ná og eins verður efnt til
happdrættis þar sem allir þátttak-
endur eiga jafna möguleika. Verð-
laun verða veitt í fjóram aldurs-
flokkum. Aðgangur er ókeypis og
allir krakkar 15 ára og yngri eru
velkomnir.
Mótið er haldið í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1 í Mjódd. í fyrra tóku
yfir 200 krakkar þátt í mótinu og
einnig er útlit fyrir mjög góða þátt-
töku að þessu sinni. Eins og áður
segir hefst mótið klukkan 14. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri Reykjavíkur, setur mótið.
Björn Þorfinnsson
skákmeistari Hellis 1997
Á fimmtudag lauk einvígi þeirra
Björns Þorfinnssonar og Vigfúsar
Vigfússonar um meistaratitil Tafl-
félagsins Hellis. Tefldar voru tvær
kappskákir. Björn hafði svart í fyrri
skákinni og náði að krækja í jafn-
tefli eftir að hafa fengið tapaða
stöðu í hróksendatafli. Önnur skák-
in í einvíginu var svo tefld á
fimmtudagskvöld. Björn, sem var
með hvítt, vann peð í byijuninni
og stýrði liði sínu til sigurs í fram-
haldi af því. Björn Þorfinnsson er
því skákmeistari Hellis 1997.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson