Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 37
36 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 3f
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
RETTUR
TUNGUNNAR
FJARSKIPTATÆKNI og samgöngutækni nútímans hafa
fært þjóðir heims í nábýli. íslendingar taka og vaxandi
þátt í hvers konar fjölþjóðlegu samstarfí, einkum samnor-
rænu og samevrópsku. Með aðild okkar að Fríverzlunarsam-
tökum Evrópu [EFTA] og skörun þess við Evrópusambandið
[ESB] höfum við undirgengizt fjölmargar sameiginlegar regl-
ur og skuldbindingar, sem frumsamdar eru á erlendar tungur
og þýða þarf á íslenzku. Þannig hafa nýjar reglur um flug-
rekstur frá Flugöryggissamtökum Evrópu verið þýddar á ís-
lenzku, sem fagna ber.
Kostir fjarskipta- og samgöngutækni okkar tíma, sem og
vaxandi samstarfs þjóða heims, eru miklu fleiri en annmark-
ar. Gallar eru á hinn bóginn fáeinir. Sá sýnu alvarlegastur, að
margra dómi, að lítil málsamfélög, þ.e. tungur fámennra
þjóða, eiga í vök að verjast. Þannig á íslenzk tunga undir
högg að sækja gagnvart vaxandi erlendum máláhrifum, eink-
um frá enskri tungu. Þar koma einnig til sögunnar erlendar
sjónvarps- og útvarpsstöðvar, sem spanna heimsbyggðina
alla, aðrir tækni- og fagmiðlar og sitthvað fleira.
Islenzk tunga hefur fyrr átt við ramman reip að draga. Á
það var minnt í helgispjalli hér í blaðinu fyrir fáeinum miss-
erum að upprennandi höfuðborg Islands, Reykjavík, var af
ýmsum talin hálfdanskur bær um miðja síðastliðna öld, vegna
dönskuskotinnar mállýzku sem hér var þá töluð. Islenzk lög
voru og á þessum tíma gefín út bæði á dönsku og íslensku. I
nefndu helgispjalli var af því tilefni vitnað til orða Jóns for-
seta Sigurðssonar í Nýjum Fjelagsritum árið 1885: „Að form-
inu til er mikill og undarlegur galli á vorum lögum, sem vér
ætlum ekki eiga sér stað nokkurstaðar í heimi, þarsem svo á
að heita að þjóðin njóti þeirra réttinda, að mega tala sínu
máli; að eiga fulltrúaþing með réttindum til að ræða löggjaf-
armál og sérhver önnur stjórnmál landsins á þess eigin máli;
að hafa kirkjustjórn, skólastjórn og dþmaskipan einnig á sínu
eigin máli: Þessi galli er sá, að lög íslands koma út bæði á
Dönsku og íslenzku, en þannig, að Danskan ein er undirskrif-
uð af konúngi, og hefur að því leyti meira gildi en íslenzkan,
en íslenzkan ein er aptur þinglesin, og hefur af þeim helm-
ingnum meira gildi en Danskan.“
Það er hollt að hafa þessi orð Jóns forseta í huga í tilefni af
því að það hefur kostað nokkurn eftirrekstur að fá ýmsar
EFTA-tengdar reglugerðir útgefnar á íslenzku, þótt þær taki
strangt tekið ekki gildi hér á landi fyrr en þær hafa verið
prentaðar í Stjórnartíðindum. Fagna ber því sem fyrr segir
að nýlega kom út á íslenzku á vegum samgönguráðuneytisins
reglugerð af þessu tagi um loftferðir. Er það til fyrirmyndar.
Texti 140. greinar frumvarps um loftferðir, sem hefur verið
afgreitt til þriðju umræðu á Alþingi, er aftur á móti heldur
óljós og mætti betrumbæta svo að hann gæti ekki kallað á
minnsta misskilning. Þar segir m.a.: „I flugmálahandbók
skulu birtar þær ákvarðanir Flugmálastjórnar sem teknar
eru á grundvelli laga þessara og regina settra samkvæmt
þeim og hafa almennt gildi en birtast ekki í stjórnartíðindum.
Skulu þær vera á íslenzku eðn ensku eftir því sem við á.“
Hér þarf að færa orðalag til betri vegar svo að um engan
misskilning verði að ræða. Lög og reglur eiga að vera á ís-
lenzku og ef unnt er einnig í handbókum, en ef ekki þarf
varla um það að ræða í lagaákvæðum.
Aðstandendur fyrrnefndrar 140. greinar telja hana aug-
ljóslega skýra og án tilefni til efasemda. Hún taki af allan
vafa um að lög og reglugerðir séu á íslenzku en ákvarðanir á
þeim byggðar skuli vera á íslenzku eða ensku. Má vera að
þetta sé ljóst þeim sem til þekkja, en samt er orðalag með
þeim hætti að gæti misskilizt, ef til þess væri vilji. Hér er um
að ræða svo mikilvægt mál að það hlýtur að kalla á fyllstu ná-
kvæmni í orðalagi. Það má ekki leggja málskussum vopn í
hendur.
Engin lög eru gild nema á frumtungunni, á það lagði Jón
Sigurðsson höfuðáherzlu og talaði um rétt íslenzkrar tungu;
hún væri „helgust réttindi“ okkar Islendinga.
I marzhefti Scientific American frá fyrra ári er grein um
dauðar og deyjandi þjóðtungur. Þar segir að um þrjú þúsund
tungumál lítiila málsamfélaga, eða um helmingur tungumála
sem töluð eru í heiminum, séu í útrýmingarhættu. Greininni
fylgir heimskort þar sem mýmargir punktar, sem tákna dauð
og deyjandi tungumál er sum hver geyma ómetanleg menn-
ingarverðmæti, þekja heimsálfurnar. Á þessu korti sést ís-
land - án slíks dauðapunkts. Með samátaki þings og þjóðar,
fólks og fjölmiðla, skóla og skrifandi höfunda mun svo áfram
verða. 011 áhrifaöfl samfélagsins þurfa að slá skjaldborg um
þjóðtunguna, hornstein fullveldis okkar, sérstöðu og þjóðern-
is. Það eitt er viðunandi að íslenzkar reglur komi fyrir augu
landsmanna á íslenzku. Af þeim sökum ber að fagna því sér-
staklega að nýjum reglum um flugrekstur frá Flugöryggis-
samtökum Evrópu skuli hafa verið snarað á íslenzka tungu
þótt í styttri útgáfu sé en frumtextinn. Slíkt átak eitt full-
nægir metnaði okkar.
Olafur B. Ólafsson naumlega endurkjörinn formaður Vinnuveitendasambands íslands á aðalfundi í gær
—■—
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ aðalfundi Vinnuveitendasambands íslands í gær. Taldir frá vinstri: Ólafur B. Ólafsson, formaður VSÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri, Páll Siguijónsson, forstjóri fstaks, og Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
01
LAFUR B. Ólafsson var
jnaumlega endurkjörinn for-
Imaður Vinnuveitendasam-
bands íslands á aðalfundi
samtakanna í gær. Þátttaka í kosning-
unum var tæp 99% og hlaut Ólafur
64.793 atkvæði eða 50,11%, en
Víglundur Þorsteinsson, fyrrum vara-
formaður samtakanna, sem einnig gaf
kost á sér, hlaut 64.314 atkvæði eða
49,74%. 198 atkvæði voru auð eða
0,15%.
Ólafur sagði í samtali við Morgun-
blaðið eftir kosninguna að þetta hefði
verið geysilega jöfn og spennandi
keppni og hann yrði að segja að það
kæmi þægilega á óvart að ná þessari
niðurstöðu miðað við það forskot sem
Samtök iðnaðarins hefðu vegna þess
stóra hluta sem iðnaðurinn hefði af at-
kvæðum Vinnuveitendasambandsins.
„Ég hlýt að vera ánægður með niður-
stöðuna. Þetta lýsir vissulega líka
vissri íhaldsemi vegna þess að sá sem
fyrir situr hefur kannski eðli málsins
samkvæmt eitthvað meiri meðbyr,“
sagði Ólafur.
Aðspurður hvort kosningabarátt-
an hefði veikt sambandið eða styrkt
það, sagði hann að baráttan hefði
verið sérstök og skemmtileg lífs-
reynsla. Hann hefði þarna haft til-
efni til að ræða við menn sem hann
hefði ekki heyrt í á þriggja ára ferli
sínum sem formaður. „Þetta hefur
svona skerpt hugmyndir manna og
hugsun um þessi samtök og hversu
mikilvæg þau eru. Ég tel að það sé
tækifæri til að nota þessa athygli til
að láta góða hluti þróast, sem við er-
um að vinna að núna með fulltrúum
og forystumönnum frá öllum helstu
samtökum íslensks atvinnulífs,"
sagði Ólafur.
Hann sagði að með þessum orðum
væri hann að vísa til skipulagsmála
samtakanna. Aðspurður um hvernig
sú umræða gengi sagði hann að það
hefði verið mjög góður andi í um-
ræðunum, en það væri með þessi mál
eins og öll önnur að vandamálin
vildu leynast í smáatriðunum.
Hann sagðist ekki eiga _________
von á því að kosningabar-
áttan ætti eftir að eiga sér
einhver eftirmál. Sér fynd-
ist að kosningafram-
kvæmdin hafi verið mjög
prúðmannleg. „Ég held að þetta sé
nú prófraun sem við höfum staðist
með prýði,“ sagði Ólafur einnig.
Ljóst að það yrði mjótt
á mununum
Víglundur Þorsteinsson sagði að
það hefði verið nokkuð ljóst síðustu
dagana að það yrði mjög mjótt á mun-
unum og nánast ógjörningur að segja
til um það hvernig kosningin myndi
fara. „Áðallega held ég þó að kosn-
Framleiðsluþættirnir full-
nýttir og hætta á ofþenslu
Aðalfundur Vinnuveitendasambands
✓
Islands varar við yfírvofandi hættu á
ofþenslu og í ályktun fundarins segir að
óhjákvæmilegt sé að sporna við útgjalda-
þenslu og viðskiptahalla til að koma í
*
veg fyrir vaxandi verðbólgu. I samantekt
Hjálmars Jónssonar kemur fram að nú
reyni á hagstjórnarhlutverk opinberra
aðila en rekstur þeirra þurfi að skila
verulegum afgangi.
Brýnt að halda
fast við
samninga
ingabaráttan hafi leitt það af sér að
þessi áherslumál iðnaðarins, sem hann
setti fram í sambandi við skipulagsmál
og í sambandi við gjaldamál Vinnu-
veitendasambandsins, komust aftur
inn í umræðuna. Þau voru ekki í um-
ræðunni og menn voru ekkert að
hugsa til þeirra. Ég er nokkuð viss um
að í þeim skipulagsbreytingum sem
framundan eru fá þau framgang og
menn vinna úr hlutum þannig að allii'
geti sáttir við unað,“ sagði Víglundur.
Aðspurður sagði hann að kosninga-
baráttan myndi ekki hafa nokkur eft-
irmál. „Kosningunni er lokið, niður-
staða er fengin og menn fylkja sér að
baki nýendurkjörnum formanni,11
sagði Víglundur.
Hann sagðist ekki vera
frá því að Vinnuveitenda-
sambandið væri sterkara
eftir en áður. „í fyrsta lagi
er þetta nú kannski betri
aðsókn að aðalfundi Vinnu-
veitendasambandsins heldur en hefur
verið í langan tíma og menn vöknuðu
svolítið til hugsunar og vitundar um
hlutverk og verkefni Vinnuveitenda-
sambandsins, þannig að ég er ekki frá
því að Vinnuveitendasambandið sé
bara sterkara á eftir,“ sagði Víglundur
ennfremur.
12% kaupniáttaraukning
I ályktun aðalfundar VSI segir að
við blasi að framleiðsluþættirnir séu
cíAiic+m 49 mánnAi
Lúxemborg 0,6
Finnland 1 0,7
Kanada Z 1 0,9
Nýja Sjáland ] 2,1
Belgía 2,2
Kórea 2,4
Holland : 2,5
OECD 12, 5
Frakkland ,8
Bandaríkin ..... . ■ ■ . 2,9
Ítalía ] 3,2
Japan 3,5 S.
Spánn 13, 6
Svíþjóð ,7 .S 55
Noregur 4.4
Bretland J 4,!
ísland ... 1 8,1
fullnýttir og yfirvofandi hætta sé á of-
þenslu. Kaupmáttur ráðstöfunartekna
hefur vaxið hratt á þessu og síðasta
ári og sé aukningin áætluð 12%, sem
sé ríflega tvöfalt meira en í viðskipta-
löndunum á fyrri hluta samningstíma
gildandi kjarasamninga. Þrátt fyrir
þetta hafi verðlag haldist stöðugt og
sé það til marks um mikla framleiðni-
aukningu í atvinnulífinu. Hagvöxtur
hafi verið rúmlega 16% á árabilinu
1996-98, sem sé rúmlega tvöfalt á við
það sem sé í viðskiptalöndum og þrátt
fyrir þetta tvennt hafi verðlag ekki
farið úr böndunum, sem jafnan hafi
þó gerst við sambærilegar aðstæður.
„Við þessar aðstæður er óhjá-
kvæmilegt að sporna við útgjalda-
þenslu og vaxandi viðskiptahalla til að
koma í veg fyrir vaxandi verðbólgu.
Nú reynir á hagstjórnarhlutverk op-
inberra aðila sem verða að hemja út-
gjöldin svo verulegur afgangur verði
bæði í rekstri ríkis og sveitarfélaga.
Sveitarfélögin verða að hætta skulda-
söfnun sem hefur farið vaxandi þrátt
fyrir gríðarlega aukningu á útsvars-
tekjum samfara bættum kjörum al-
mennings."
Þá kemur fram að þó vextir hafi
farið lækkandi hér á landi að undan-
förnu séu þeir þó enn 2-3% hærri en í
þorra Evrópuríkja, en það skaði sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs og
dragi úr nýsköpun. Því sé eitt mikil-
vægasta verkefni stjórnvalda að örva
sparnað svo fjármagnskostnaður geti
orðið hliðstæður því sem gerist er-
lendis.
Samkeppnishlutinn
verður að aukast
Síðan segir: „Framleiðni mun áfram
fara vaxandi í þeim hluta atvinnulífs-
ins sem býr við samkeppni. Það dugar
þó ekki til að vega upp hækkandi
launakostnað á meðan svo stór hluti
efnahagsstarfseminnar er án mark-
aðshalds og íþyngjandi fyrir sam-
keppnisgreinar atvinnulífsins. Sam-
keppnishluti efnahagsstarfseminnar
verður því að stækka. Aðferðin er
þekkt og úrræðin skýr. Það gerist
með einkavæðingu og útboðum hefð-
bundinna rekstrarverkefna opinberra
aðila. Það lækkar kostnað, eykur
framleiðni og bætir almennt skilyrði
til atvinnurekstrar og búsetu í land-
inu.
VSI hvetur því til þess að:
• einkavæðingu verði hraðað og af-
rakstrinum varið til lækkunar skulda
ríkisins;
• ríkisbankarnir verði seldir hið allra
fyrsta þannig að skilyrði skapist fyrir
hagræðingu í bankakerfinu og lækkun
fjármagnskostnaðar;
• almenningi gefist kostur á kaupum
á hlutum í ríkisfyrirtækjum í orku-
vinnslu og fjarskiptum til að efla inn-
lendan sparnað og þátttöku almenn-
ings í atvinnurekstri;
• ríki og sveitarfélög bjóði út þjón-
ustuverkefni m.a. í mennta- og heil-
brigðismálum;
• vaxandi skattgreiðslur fyi'irtækja
verði nýttar til að færa skattalegt um-
hverfi fyrirtækja til samræmis við það
sem best gerist í öðrum Evrópuríkj-
um;
• sett verði markmið um afgang á
fjárlögum næsta árs sem nemi Þ/2-2%
af VLF eða 8-10 milljörðum króna.
Þótt vel ári í atvinnulífinu vantar
enn nokkuð á til að vinna upp hagvaxt-
arforskot annarra Evrópuríkja síðasta
ái-atuginn. Því verður að búa atvinnu-
rekstrinum samkeppnishæf starfs- og
vaxtarskilyrði til að tryggja áfram ör-
uggan vöxt. Mikilvægustu þættir þess
eru framfarir í menntun og
skýr stefna í umhverfismál-
um sem tryggi Islendingum
nauðsynlegt svigrúm til
nýtingar náttúrulegra auð-
linda. Vinnuveitendasam-
bandið áréttar þá afstöðu að umhverf-
ismál eru alþjóðlegt viðfangsefni og
nýting hreinna orkulinda og annarra
endurnýjanlegra auðlinda eiga að
færa íslendingum og öðrum þjóðum
bæði efnahagslegan ávinning og bætt
andrúmsloft,“ segir í ályktun aðal-
fundarins.
I nýn-i framkvæmdastjóm Vinnu-
veitendasambands Islands sem kjörin
var á fundinum sitja: Arnai’ Sigur-
mundsson, Bjarnar Ingimarsson,
Launahækk-
anir nær
þrefalt meiri
Brynjólfur Bjarnason, Eiður Haralds-
son, Einar Sveinsson, Erna Hauks-
dóttir, Gunnar Svavarsson, Kristinn
Björnsson, Loftur Ái-nason, Sigurður
Helgason, Sigurðm- G. Pálmason,
Skúli Jóhannesson, Stefán Friðfinns-
son, Sturlaugur Sturlaugsson, Sveinn
Hannesson, Sveinn Hjörtur Hjartar-
son, Theodór Blöndal, Vilmundur Jós-
efsson, Þorgeir Baldursson og Þórður
Magnússon.
Varaformaður samtakanna og
samningaráð verða kjörin á fyrsta
fundi framkvæmdastjórnarinnar sem
haldinn verður næstkomandi þriðju-
dag.
Hættuástand í
efnahagsmáium
Þórai'inn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, gerði miklar
launahækkanir hér á landi og hættuna
á þenslu að umtalsefni í ræðu sinni.
Hann sagði að nýjustu fréttir um nær
40% aukningu innflutnings ættu að fá
öll rauð ljós til að blikka og sírenur til
að væla. „Það er komið hættuástand í
efnahagsmálum," sagði hann.
Hann sagði að á tólf mánaða tíma-
bili frá desember 1996 til jafnlengdar
1997 hefðu launahækkanir hér á Iandi
verið nær þrefalt meh'i en víðast ann-
ars staðar í viðmiðunarríkjunum. Nú
sé gert ráð fyrir að launahækkanir í
Evrópusambandsríkjunum verði 3,3%
í ár og haldi laun áfram að hækka hér
á landi í sama takti hljóti eitthvað und-
an að láta. Nú sé mál að linni, enda
kaupmáttur orðinn hærri en hann hafi
nokkru sinni orðið.
„Þess vegna er brýnt að fast verði
haldið við þá kjarasamninga sem
þegar hafa verið gerðir og sam-
keppnishæfni atvinnulífsins og stöðu
krónunnar varðveitt. Það er hætta á
verðbólgu og minnkandi atvinnuleysi
sýnir glögglega að þensluhætta er á
vinnumarkaðnum. Ég verð í þessu
sambandi að lýsa sérstökum áhyggj-
um af launaþróun innan opinbera
geirans, sérstaklega því ef stjórn-
völd í sveitarstjórnum og stjórnend-
ur opinberra stofnana ætla
enn að setjast við samn-
inga ofan í nýgerða og afar
rausnarlega samninga við
ýmsa hópa opinberra
starfsmanna. Þegar heilir
starfshópar eða vinnustaðir segja
upp störfum undir yfirlýsingum um
óásættanleg kjör, þá er það vinnu-
stöðvun í skilningi vinnulöggjafar-
innar. Það eru nýgerðir samningar
við alla þessa hópa svo aðgerðirnar
eru klárlega ólöglegar. Ég fullyrði
að fari svo að opinberir aðilar láti
undan þessum ólöglegu aðgerðum,
þá er hafið nýtt tímabil átaka og óða-
verðbólgu á íslandi," sagði Þórarinn
ennfremur.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Alþjóðleg viðskipta-
miðstöð í athugun
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í ávarpi á aðalfundi VSI í
gær að ríkisstjórnin hefði nú til
umfjöllunar möguleika á að stofna
sérhæfða alþjóðlega viðskiptamið-
stöð á Islandi. „Hugmyndin er sú
að nýta hugvit og þekkingu íslend-
inga sem best í viðskiptastarfsemi
utan lögsögu og í upphafi yrði
fyrst og fremst miðað við sjávarút-
veg og sérhæfða skráningu. Ef af
verður er eingöngu um að ræða
viðbót við þá athafnamennsku sem
fyrir er í landinu. Við skoðun hefur
til að mynda komið í ljós að íslensk
fyrirtæki nýta nú þegar í veruleg-
um mæli aðstöðu til viðskipta utan
lögsögu þar sem slíkir möguleikar
finnast annars staðar í heiminum.
Eingöngu sú aðgerð að flytja þessi
viðskipti heim mundi skila miklu,“
sagði forsætisráðherra.
Áhrif evrunnar verða lítil
hérlendis í upphafi
Davíð sagði enga hagsmuni Is-
lands kalla á aðild að Evrópusam-
bandinu. „Um þessar mundir virð-
ist því miður allt stefna þar í aukin
völd miðstýrðrar Evi'ópu, ininni
áhrif einstakra ríkja á eigin mál og
sífellt smásinugulegri reglusetn-
ingar," sagði hann. Davíð vék
einnig að sameiginlegri Evrópu-
mynt og sagði óhætt að fullyrða að
áhrif hennar yrðu lítil hérlendis í
upphafi.
„Þegar fram líða stundir skiptir
Islendinga miklu hvort Bretar, og
einnig Danir og Svíar, ákveða að
taka þátt eða ekki. Hver sem sú
þróun verður munu ýmsir kostir
Ijlgja hinum nýja gjaldmiðli fyrir
Islendinga, þótt okkur sjálfum
henti að standa utan hans. Til að
mynda verða utanríkisviðskipti
okkar þá í færri og væntanlega
stöðugri myntum. Vissulega eru
einnig nokkrar líkur á að sam-
keppnishæfni vissra Evrópuríkja
geti aukist vegna lægri viðskipta-
kostnaðar. I því efni eru þó ýmsar
blikur á lofti, þar sem pólitísk og
efnahagsleg ólga ýmissa jaðar-
svæða getur dregið úr ábata evr-
unnar. Við Islendingar höfum
ekki þurft að breyta skráningu
gjaldmiðils okkar um langa hríð
og búum nú við stöðugt og gott
árferði. Jafnóðum og áhrif evr-
unnar koma smám saman í ljós er-
um við því ágætlega í stakk búin
til að bregðast við í þeim efnum,“
sagði Davíð.
Slípa vankanta af opinberri
umgjörð atvinnulífs
Forsætisráðherra sagði að
stjórnvöld myndu áfram leitast við
að lialda verðlagi stöðugu, aðhalds
yrði gætt í ríkisfjármálum og
áfram yrði unnið að markaðsvæð-
ingu hagkerfisins og sölu ríkisfyr-
irtækja. „Slík Iangtímastefnumið
eru fallin til að örva framleiðni og
hagvöxt. Að auki stendur nú fyrir
dyrum átak í að slípa vankanta af
opinberri umgjörð um atvinnulífið.
Stemma á stigu við þeirri tilhneig-
ingu til of ítarlegra reglusetninga
og umfangsmikils opinbers eftirlits
sem almennt hefur borið á í iðn-
væddum ríkjum, og eins hér á
landi í nokkrum mæli. Nú fer fram
alþjóðleg könnun meðal íslenskra
fyrirtækja á vegum forsætisráðu-
neytisins, Vinnuveitendasambands-
ins og Verslunarráðs, sem fjallar
um reglubyrði atvinnulífsins. Mun
slík úttekt koma sljórnvöldum að ..
góðum notum við að draga fram á
hvaða sviðum helst er þörf á að
grisja reglugerðaskóginn," sagði
Davíð.
Ólafur B. Ólafsson, formaður VSÍ
Semja þarf um regl-
ur á vinnumarkaði
ÓLAFUR B. Ólafsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
sagði í ræðu á aðalfundi sambands-
ins í gær að tímabært væri að VSÍ
og Alþýðusambandið tækju upp
viðræður og reyndu að semja um
leikreglur sem tryggðu betur stöð-
ugleika og hagsmuni félagsmanna
beggja samtakanna en vinnulög-
gjöfin ein gerði.
Ólafur sagði síðustu samninga-
gerð hafa verið langvinna og ósam-
stæða. „Við höfum aldrei áður gert
jafn marga samninga á jafn löngum
tíma við jafn marga hópa fyrir eitt
samningstimabil. Þetta gerðist
þrátt fyrir nýja vinnulöggjöf sem
hafði þann yfirlýsta tilgang að
stytta samningaferlið þannig að
samningar gætu tekist sem næst
samtímis. Frumvarp félagsmála-
ráðherra um breytingar á vinnu-
löggjöfinni miðaði ákveðið að þessu
marki en breytingar Alþingis á
frumvarpinu gengu hins vegar all-
ar til öndverðrar áttar. Við vöruð-
um við þessum breytingum og
sögðum fyrir að þær myndu efla
sundurþykki innan launþegahreyf-
ingarinnar þannig að hætta ykist á
átökum. Allt gekk þetta eftir og nú
eru komnar fram yfirlýsingar
þeirra sem fyrstir sömdu um að
ekki verði samið á ný án uppsagn-
arheimilda sem grípa megi til ef
aðrir hópar semji um meira. Þessar
aðstæður sýna glöggt að lög og
leikreglur á vinnumarkaði full-
nægja hvorki þörfum okkar né
launþegasamtakanna,“ sagði Ólaf-
ur.
Meiri framleiðniaukning
en nokkurn óraði fyrir
Ólafur sagði efnahagslíf íslend-
inga einkennast af miklum upp-
gangi og flest benti til að árlegur
hagvöxtur á næstu árum yrði
a.m.k. 3%. Hann fjallaði um sam-
keppnishæfni þjóðarinnar og sagði
að aukin samkeppni, ábyrgð og
frjálsræði í atvinnulífinu væru þau
öfl sem mestu hefðu skilað. Þá
hefði tekist að gera verðstöðug-
leika að meginmarkmiði launa- og
efnahagsstefnunnar.
„Þessi skilyrði hafa leyst úr læð-
ingi meiri framleiðniaukningu en
nokkurn óraði fyrir. Sést það best
af því að þótt launahækkanir séu
miklar og raunar miklu meiri en
með öðrum þjóðum þá hefur at-
vinnulífið náð að mæta þeim án
verulegra verðhækkana og án þess
að afkoma þess hafi versnað. Lætur
nærri að heildarframleiðni í ís-
lensku efnahagslífi hafi aukist um *
10% á síðustu þremur árum,“ sagði
hann.
Mjög háir langtímavextir
Ólafur vék að áformum um
myntsamruna í Evrópu, sem hann
sagði hafa leitt til þess að langtíma-
vextir hefðu lækkað verulega í
flestum ríkjum innan ESB. „Á ís-
landi eru langtímavextir mjög háir
samanborið við önnur Evrópuríki.
Helstu skýringarnar eru ónógur
þjóðhagslegur sparnaður og ríður
á að aðhald ■ opinberum fjármálum
verði aukið. Raunar má í þessu
samhengi velta því upp að okkur
Islendingum hefur tekist heldur
óhönduglega að tímasetja breyting-
ar á skattbyrði einstaklinga.
Þannig voru skattar hækkaðir í
upphafi síðustu niðursveiflu og
lækkaðir nú í góðærinu. Skatt-
breytingarnar hafa þannig ýtt und-
ir sveiflur í stað þess að draga úr 5
þeim,“ sagði Ólafur.