Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 84
84 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
glíBIBJBJBJgJSJBMBJBfBIBfBIBMBMBMBÍBJBMBJBMBJgJ
6 ^Flamenco
í Kramhúsinu
25. maí
til 4. júní
Kennari:
Gabriela Gutarra
l<RAm
HÚSI&'
Sími 551 5103.
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til Ö: Hvað er að gerast? Hverjir voru hvar? Hvað er í boði - á skemmtistöðum?
í bláu húsi við Fákafen,
sími 568 3919.
Á EFRI hæðinni er bjartur og
vistlegur borðsalur.
slögurum frá sjöunda og áttunda
áratugnum, enda voru flestir gest-
anna vel með á nótunum og mun
fæn-i komust að gólfinu en dansa
vildu.
Þegar lúinn blaðamaður ákvað
að skakklappast heim á leið, reynd-
ist erfitt í framkvæmd að brjótast
gegn styrkum þorstastraum að
barnum. Fyrir utan var löng röð
vonglaðra Reykvíkinga sem
langaði í eitthvað allt annað en
kaffi, þótt klukkan nálgaðist
hættulega þá sorgarstund þegar
skrúfað er fyrir bjórkrana borgar-
innar, lögum samkvæmt.
Barnaskór
24—36.
Verð frá
Fjölskrúðugur
gestahópur
Kaffí Reykjavík hefur verið einn af vinsæl-
ustu skemmtistöðum borgarinnar síðustu
ár. Guðmundur Asgeirsson gerði sér
miðbæjarferð og kannaði stemmninguna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
INGI Björn Ágústsson, Anna Rakel Sigurðardóttir og Ragna Sölva-
dóttir voru við afgreiðslu á barnum á efri hæðinni.
FYRIR innan anddyrið er nota-
legur sófi sem oft er þétt setinn.
S
ARIÐ 1863 var byggt hús við
fjöruna í Reykjavík. Aftan
við húsið var byggð bryggja
og því talað um bygginguna sem
Bryggjuhúsið. Þessi 135 ár sem
liðin eru hefur mikið vatn runnið til
sjávar auk þess sem hann hefur
hopað nokkuð í norður. Þau fjögur
ár sem Kaffi Reykjavík hefur verið
starfrækt í gamla Bryggjuhúsinu
hefur talsvert magn af annarskon-
ar vökva runnið niður kverkar
þyrstra gesta staðarins. Miklar
breytingar hafa verið gerðar á
byggingunni í áranna rás, en
nokkuð er síðan sú stefna var tekin
að koma húsinu sem næst upp-
runalegum stíl.
Kaffi Reykjavík er stór staður á
þremur hæðum. Jarðhæðin er þó
hjarta staðarins og þangað koma
gestir í stríðum straumum frá
morgni og fram á nótt. Gestahóp-
urinn er fjölskrúðugur. Staðinn
sækja útlendingar í stórum hópum
auk þess sem hann er vinsæll
meðai ólíkra hópa Islendinga.
Stemmningin er margbreytileg,
allt eftir því hvenær vikunnar eða
sólarhringsins komið er við.
Á daginn má sjá alla aldurshópa
í kaffi, misþæg börn með foreldr-
unum eða gömul hjón að rifja upp
minningar yfir rjómapönnsum og
heitu súkkulaði. Veitingar eru af
ýmsum toga, allt frá drykkjum á
barnum upp í margbrotnar máltíð-
ir úr eldhúsinu. I hádeginu og á
kvöldin má velja rétti af viðeigandi
matseðlum, en þess á milli panta
menn sér kræsingar úr kökuskápn-
um með kaffinu.
En næturlífið er það sem flestir
sækjast eftir á Kaffi Reykjavík.
Boðið er upp á lifandi tónlist öll
kvöld og oft er rífandi stemmning á
dansgólfinu. Það er sérstök upplif-
un að verða vitni að stökkbreyt-
ingu stemmningarinnar frá níu að
kvöldi til þrjú að nóttu á laugar-
dagskvöldi. Snemma kvölds ríkir
rólegt andrúmsloft meðal matar-
gesta sem njóta þess besta úr eld-
húsinu í góðra vina hópi. Eftir
miðnætti er allt orðið troðfullt af
djammandi skemmtanafíklum og
erfitt er að ímynda sér milda
kvöldverðarstemmningu, hvað þá
gömlu hjónin og pönnsumar
þeirra.
Heldur þrengri aldurshópur
sækir Kaffi Reykjavík á næturnar
en á öðrum tímum sólarhringsins.
Flestir eru milli þrítugs og fertugs,
enda tónlistin sniðin að þeim hópi.
Þetta kvöld lék hljómsveitin Átta-
villt fyrir trylltum dansi. Dag-
skráin einkenndist af þekktum
ÍTÖLSKU blaðakonurnar
fundu fjörið á dansgólfinu en
þær voru hér staddar í tilefni af
blaðamannafundi í Bláa lóninu
vegna snyrtivörukynningar.
ÞEGAR líður á kvöldið safnast
saman myndarleg röð sem getur
stundum náð útí Hafnarstræti.
HLJÓMSVEITIN Áttavillt spil-
aði og söng fyrir dansi og það
var dúndrandi stuð á liðinu.
Ef þú hefur góðan smekk,
þá missir þú ekki af þessu ...
Á morgun föstudag, hefst glæsileg sýning á
gleraugnaumgjörðum frá l.a.Wíveworks,
úrvalið er stórkostlegt og litirnir glæsilegir.
Verslunin er opin frá
kl. 10:00-20:00,
léttar veitingar.
Komdu og sjáðu
„oGNAVESc.
<>v ^
- SJAÐU -
T
Laugaveg 40, sími 561 0075
Útskriftargjafir
íslenskir lístmunír
Stefánsblóm
Laugavegi 178 S: 561 0771