Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Oddur H. Halldórsson drakk kaffí með
strákunum á verkstæði Samherja
s
Eg er bara blikkari
Morgunblaðið/Kiistján
ODDUR Helgi Halldórsson svaraði fjölmörgum fyrirspurnum starfs-
manna á verkstæði Saniherja í síðdegiskaffinu í gær.
ODDUR Helgi Halldórsson á L-
lista, Lista fólksins hefur varla
tíma til að vera í vinnunni vegna
anna við kosningabaráttuna, en
hann rekur blikksmíðaverkstæðið
Blikkrás. Hann hefur mikið verið á
ferðinni milli vinnustaða, til að
heyra hljóðið í fólkinu í matar- og
kaffitímum og í síðdegiskaffinu í
gærdag heimsótti hann strákana á
verkstæðinu hjá Samherja.
„Ég er að reyna að fá fólk til að
trúa því að ég ætla að standa við
það sem ég segi, ég er ekkert bara
að tala um það sem ég held að sé
vinsælt hjá kjósendum," sagði
Oddur.
Samherjastarfsmönnum lék for-
vitni á að vita hver stefna listans
væri í atvinnumálum. Oddur hefur
ekki verið feiminn við að segja að
bærinn eigi að taka lán til að flýta
nauðsynlegum framkvæmdum og
skapa þenslu í bænum, það er það
sem vanti og svigrúmið nægjan-
legt enda standi bæjarsjóður vel.
Ilann vill að markvisst verði unnið
í því að finna atvinnutækifæri.
„Hvað með stóriðjuna, menn eru
alltaf að tala um matvælafram-
leiðslu," sagði einn. „Verðum við
endalaust á láglaunasvæði," sagði
annar og bað um eina röndótta
takk með kaffinu. Oddur sem
sendur var í sveit sjö ára gamall
og hélt upp frá því hann væri
framsóknarmaður, þar til frekar
nýlega sagði að flokkurinn hefði
ekkert grætt á því að hafa flokks-
bræður sína í ríkissljórn. „Menn
lofa öllu fögru en svíkja það svo
um leið og þeir koma suður,“ sagði
hann. Engin stóriðja í sjónmáli.
Allt orðið grænt
Samheijastrákarnir voru súrir
yfir að fyrirtækið fékk ekki að
kaupa Mecklenburger og líka IS-
SH málinu fyrr í kjörtímabilinu.
Væri bara ekki öll þessi SH-starf-
semi að fara úr bænum, tveir kall-
ar eftir á skrifstofunni. „Við gerð-
um taktísk mistök í þessum máli,“
sagði Oddur sem þá var frammari
og ætlar að leita eftir frekari skýr-
ingum á því af hveiju UA vildi
ekki selja Samherja MHF. Svo
sagði hann það hafa verið skamm-
sýni að selja Krossanes og nú væri
skipulagsmistök í uppsiglingu,
Krossneshaginn, þetta frábæra
íbúðarbyggingaland væri að fara
undir iðnaðarlóðir, allt út af verk-
smiðjunni, enginn vildi búa við
lyktina frá henni. „Þú verður að
stefna að því að flytja hana út í
Grímsey árið 2000,“ lagði einn
strákanna til.
„Ef þið fylgist með strákar, þá
eru bara nokkrar vikur síðan okk-
ar framboð kom fram og það er
allt orðið grænt,“ sagði Oddur.
Framkvæmdir við 3. áfanga Dalvikurskóla
Samið verði við Tréverk
145 milljónir króna
fyrir
KRISTJÁN Ólafsson, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins á Dalvík og forseti bæjarstjórnar,
greiddi atkvæði með því á fundi bæjarstjórnar í
síðustu viku að tilboði Arfells ehf. í byggingu 3.
áfanga Dalvíkurskóla yrði tekið, en fyrirtækið átti
lægsta tilboð í verkið. Svanhildur Ámadóttir,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, greiddi hins veg-
ar atkvæði með þvi að samið yrði við Tréverk ehf.
sem átti næst lægsta tilboðið. Bæjarstjórn
samþykkti með fimm atkvæðum gegn tveimur að
taka tilboði Tréverks og við það klofnaði meiri-
hluti B-lista og I-lista.
„Ég lagði til að lægsta tilboði yrði tekið þar
sem Arfell uppfyllti þau lög og reglur sem eru í
gangi og með því taldi ég mig vera að verja hags-
muni bæjarbúa. Það skiptir ekki máli hvað fyrir-
tækið heitir, á meðan við erum með þessar leik-
reglur í gangi á að fara eftir þeim. Arfell hefur
alla burði til að vinna verkið og uppfyllti öll þau
skilyrði sem sett voru,“ sagði Kristján.
Hann sagði að ekki yrði um annað að ræða en
að semja við Tréverk um að taka að sér verkið
fyrir rúmar 145 milljónir, þótt lögfræðingur sem
kom að málinu hafi gefið í skyn að hægt væri að
lækka tilboðið vegna skekkju í útreikningum. Til-
boð Árfells var upp á rúmar 143,4 milljónir króna.
Vönduð vinnubrögð
Svanhildur Árnadóttir sagði að í greinargerð
frá Árfelli hafi komið fram að fyrirtækið hafi gert
samkomulag við Tréver í Ólafsfirði um að vinna
verkið saman, ef annað þeirra hlyti hnossið.
„Menn settu spurningannerki við hvort slíkt bryti
í bága við samkeppnislög en síðan þá hef ég kom-
ist að því að slík fordæmi eru til en það er þó ekki
aðalmálið. Eftir þau vönduðu vinnubrögð sem mér
fannst vera viðhöfð var mín niðurstaða að fara að
áliti hönnuða og lögfræðings bæjarins, að gengið
skyldi til samninga við næst lægsta tilboðsgjafa.“
Töluverðar umræður urðu um málið í bæjar-
stjórn en tillaga um að samið yrði við Tréverk var
samþykkt með 5 atkvæðum sjálfstæðismanna, I-
listamanna og framsóknarmanns. Á þessum
síðasta bæjarstjórnarfundi kjörtímabilsins
klofnaði því meirihluti B-lista og I-lista í bæjar-
stjórn í fyrsta sinn á kjörtímabilinu.
Kristján sagði að þrátt fyrir að meirihlutinn
hafi spnmgið á þessu máli, hafi samstarfíð á
kjörtímabilinu gengið mjög vel. „Við höfum leyst
öll mál þar til nú og ég tel mig hafa unnið að full-
um heilindum gagnvart mínum umbjóðendum.
Þetta raskar ekki ró minni og ég tek því sem að
höndum ber.“
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni
eru forsvarsmenn Árfells mjög ósáttir með þessa
niðurstöðu og ætla að sækja það fast að fá verkið
og telja sig hafa fullan rétt á því.
Morgunblaðið/Kristján
GUÐMUNDUR Ómar Guðmundsson, Sigfríður Þorsteinsdóttir og Ásta
Sigurðardóttir tóku viðskiptavini KEA-Nettó tali í bh'ðunni í gær, m.a.
ræddu þau við léttklæddan Sigurð Bjarklind.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
SKÓLASLIT
fara fram í Iþróttahöllinni á Akureyri
laugardaginn 23. maí nk.
og hefjast þau kl. 10.00.
Skólameistari.
Frambjóðendur Framsóknar
sýna sig og sjá aðra
Allt er vænt sem
vel er
FYRRVERANDI þingkona
Kvennalistans, Málmfríður Sigurð-
ardóttir, tók því vel að hlýða á nokk-
ur vel valin orð um ágæti
Framsóknarflokksins í bæjarstjórn
Akureyrar um ieið og hún gekk út
úr verslun KEA-Nettó með tvo
kaffipakka, kyrfilega merkt Akur-
eyrarlistanum, X-F. Vandræðalaust
að bæta X-B neðar á kragann. „Allt
er vænt sem vel er grænt,“ sagði
húsfreyjan fyrrverandi á Jaðri.
Ásta Sigurðardóttir, Sigfríður
Þorsteinsdóttir og Guðmundur Óm-
ar Guðmundsson voru á faraldsfæti
í gær eins og aðrir frambjóðendur,
en þau tóku púlsinn á viðskiptavin-
um Nettó. Límmiði á bílinn, penni
og barmmerki í boði fyrir gesti og
gangandi. Tveir spurðu hvað
merkið kostaði. Svolítið hissa á að
það væri ókeypis.
Hvar er kosningakaffið?
Margi-ét ljósmóðir átti leið um og
bráðvantaði merki í barminn.
Spurði hvar annálað kosningakaffi
framsóknar yrði. Á Poilinum já og
aldrei að vita nema hún gæti orðið
grænt
að liði, kannski hrært í pönnukökur.
Gladdist þegar hún frétti frá fram-
bjóðendum að baráttan gengi vel.
„Ég bið að heilsa Þorsteini," kvaddi
Ásta og sneri sér að þeim næsta,
ungri konu sem hún kannaðist við
úr heita pottinum.
Utanbæjarmenn voru áberandi í
versluninni, vertinn á Illugastöðum,
húsmóðirin á Öngulsstöðum, ýttu
hálffullum körfum út í sólina, en
voru samt alveg til í að spjalla smá-
stund við frambjóðendur og alltaf
hægt að bæta við sig pennum.
„Ég er ekki alveg nógu ánægður
með eitt,“ sagði eldri maður, en það
sem honum lá á hjarta voru
bílastæðamál í miðbænum. Hafði
tvívegis fengið sekt í janúar, brá sér
bara í banka og mælirinn rann út.
Þarf öðruvísi stöðumæla, lagði hann
til, en svo væri líka hægt að fækka
stöðumælavörðum. Sú tillaga féll
ekki í kramið hjá frambjóðendum,
en þetta mál verður skoðað eins og
fjölmörg önnur sem fyrir þau hafa
verið lögð. Það þarf til dæmis að
bæta aðstöðu fyrir hjóla-
brettakrakkana.
Góð veiði Samherja-
skipa á Reykjanes-
hrygg
Fjögur
skip með
fullfermi
FRYSTITOGARAR Sam-
herja hf. hafa verið að mok-
fiska karfa á Reykjaneshrygg
að undanförnu og eru þrjú
skip félagsins að landa nánast
fullfermi í Reykjavík í vik-
unni, svo og Akraberg, sem er
í eigu dótturfélags Samherja í
Færeyjum. Aflaverðmæti
skipanna fjögurra er um 190
milljónir króna.
Baldvin Þorsteinsson EA
landaði í gær og var afli skips-
ins um 380 tonn og afla-
verðmæti rúmar 50 milljónir
króna. Akureyrin EA landar í
dag og er afli skipsins einnig
um 380 tonn og aflaverðmæti
rúm 51 milljón króna.
Aflaverðmæti upp á
88 milljónir
Víðir EA og Akraberg lönd-
uðu í fyrradag, Víðir var með
320 tonn og aflaverðmæti upp
á um 40 milijónir króna og
Akraberg með um 370 tonn og
aflaverðmæti upp á um 48
milljónir króna.
Flest hafa skipin verið frek-
ar stutt á veiðum.
Hadda sýnir
„sitt af
hvoru“í
Galleríi ASH
GUÐRÚN H. Bjarnadóttir,
„Hadda“ opnar sýningu sem
hún kallar „sitt af hvoru“ í
Galleríi A.S.H. Varmahlíð í
Skagafirði á laugardag, 23.
maí kl. 13. Sýningin stendur
til 12 júní.
Hadda sýnir „sitt af hvoru“
af því sem hún hefur verið að
vinna á síðasta ári. Hún nam
almennan vefnað í Svíþjóð,
stundaði nám í listadeild
Lýðháskólans í Eskilstuna í
Svíþjóð og við Myndlistaskól-
annn á Akureyri.
Hún hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum og
haldið einkasýningar.
Námskeið í
línudansi á
Oddvitanum
JÓHANN Örn Ólafsson dans-
kennari verður með námskeið
í línudönsum á Oddvitanum á
föstudagskvöld ki. 21 fyrir
byrjendur og þá sem stutt eru
á veg komnir en kl. 22 fyrir
lengra komna. Hljómsveitin
Karma leikur fyrir almennum
dansi á eftir.
Línudans verður kenndur á
Bjargi á laugardag, kl. 17 fyr-
ii- lengra komna en byrjendur
kl. 18. Skráning í kennsluna
er á hvorum stað fyrir sig.
Hver danstími kostar 500
krónur.
AKSJÓN
Fimmtudagur 22. maí
21.00 ► Kosningasjónvarp
Fulltrúar framboðslistanna
sitja fyrir svörum.