Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 33
LISTIR
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egitsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,-
HJ
HONDA
Simi: 520 1100
Sýningum lýkur
Hafnarborg
SÝNINGU Jónínu Guðnadóttur í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnunar Hafnarfjarðar, lýkur
mánudaginn 25. maí. A sýningunni
tekst Jónína á við veruleika hvers-
dagsleikans og þann efnivið sem
myndar nánasta umhverfi okkar,
en verkin eru tólf og unnin í fjöl-
breytileg efni. Sýningin er opin frá
kl. 12-18 alla daga nema þriðju-
daga.
Listasetrið Kirkjuhvoli
SÝNINGU Heiðrúnar Þorgeirs-
dóttur á glerlistaverkum í Lista-
setrinu Kirkjuhvoli, Akranesi, lýk-
ur á sunnudag. A sýningunni eru
yfir 30 verk sem öll eru unnin í
rúðugler en með ýmsum útfærsl-
um.
Listasetrið er opið daglega frá kl.
15-18.
---------------
Breyttur
opnunartími
SÝNING Evu Benjamínsdóttur í
húsnæði Bílaleigunnar Geysis,
Dugguvogi 10, er opin alla daga frá
kl. 14-18 til 31. maí.
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
Caput-hópurinn í Iðnó á Listahátíð
Æfingin er
galdurinn
CAPUT-HÓPURINN kemur
fram á tónleikum Listahátíðar í
Reykjavík í Iðnó annað kvöld,
föstudag, kl. 20. Flutt verða
verk eftir tvo Islendinga, Hauk
Tómasson og Hróðmar Inga
Sigurbjörnsson, og tvo Breta,
Mark-Anthony Turnage og
Thomas Ades. Einleikari í verki
Hauks verður Sigrún Eðvalds-
dóttir og einsöngvari í verki
Hróðmars Inga Sverrir
Guðjónsson. Stjórnandi verður
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Verk Hauks, sem frumflutt
var á tónleikum Listahátíðar í
Þjóðleikhúsinu siðastliðinn
sunnudag, er fíðlukonsert,
skrifaður sérstaklega með
Sigrúnu Eðvaldsdóttur í huga.
Segir hún alltaf ómetanlegt að
fá verk, sem aldrei hefur verið
flutt áður, upp í hendurnar -
það feitasta sem hún komist í.
„Ég hefði ekki viljað missa af
þessu!“
Sigrún kveðst, aldrei slíku
vant, hafa orðið dálítið stressuð
þegar hún byrjaði að æfa
konsertinn - hann liafi litið út
fyrir að vera svo erfíður í flutn-
ingi. „Mér óx þetta pínulítið í
augum í fyrstu en svo kom
þetta allt saman og núna fínnst
mér konsertinn alls ekki erfíð-
ur. Æfíngin er, sein fyrr, gald-
urinn.“
Algjör lúxus
Segir Sigrún rúman tíma hafa
komið í góðar þarfír en nóturn-
ar bárust henni í janúar síðast-
liðnum og í febrúar gafst henni
tími til að byrja að líta á þær.
„Þetta var algjör lúxus en sum
tónskáld eru alltaf á síðustu
stundu - ekki hann Haukur!“
Auk nótnanna sendi tónskáld-
ið Sigrúnu hljóðgerfissnældu,
þar sem tölva flytur verkið.
„Þetta var mjög athyglisvert og
lærdómsríkt, því þótt flutning-
urinn væri kaldur og tilfinn-
ingalaus, lieyrði ég sitt af
hveiju sem nýttist mér við und-
irbúmnginn. Fékk hugmyndir."
En þrátt fyrir langar og
strangar æfingar í einrúmi er
Sigrún þess sinnis að þetta
verk, eins og aðrir konsei-tar,
hafi þróast mest eftir að hún
kom heim frá Englandi til að
æfa með Caput-hópnum. „Það
er á hljómsveitaræfingunum
sem konsertar fæðast."
Sigrún segir að fíðlukonsert-
inn, sem er í fjórum köflum, sé í
frekar klassískum stíl og lýsi
tónheimi Hauks Tómassonar
ágætlega. „Konsertinn er svolít-
ið hrjúfur á köflum - spenna og
harka, sem fer mér alveg ágæt-
lega. Síðan nýtur hin hliðin á
Hauki, þessi ljúfa og fallega
hlið, sín líka í honum - manni
fínnst eins og maður sé uppi í
skýjunum."
Að áliti Sigrúnar á Haukur,
eins og fleiri íslensk tónskáld,
framtíðina fyrir sér. Aðeins
þurfi að skapa aðstæður til að
flylja verk þeirra oftar og í
mörgum tilfellum fyrr, en frum-
flutningur tónverka hefur oftar
en ekki dregist úr hömlu hér á
landi.
Stokkseyri
frumflutt
Tónverkið Stokkseyri, tólf
söngvar eftir Hróðmar Inga
Sigurbjörnsson, verður frum-
flutt í endanlegri mynd á tón-
leikunum en á Myrkum músík-
dögum í fyrra flutti Caput átta
þessara söngva. Ljóðin eru öll
tekin úr samnefndri Ijóðabók
Isaks Harðarsonar frá 1994.
Einsöngvari verður Sverrir
Guðjónsson.
nnifalið í verði bílsins
s 2.01 4 strokka 16 ventta léttmálmsvé
s Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
•/ Rafdrifnar rúður og speglar
v' ABS bremsukerfi
•S Veghæð: 20,5 cm
ri Fjórhjóladrif
Samlæsingar
ri" Ryðvörn og skráning
v' Ötvarp og kassettutæki
Hjóthaf: 2.62 m
■S Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
CAPUT-hópurinn
Sigrún Haukur Hróðmar Ingi
Eðvaldsdóttir Tómasson Sigurbjörnsson
Verk sitt Release samdi Mark-
Anthony Turnage árið 1988 að
beiðni breska ríkissjónvarpsins,
BBC, fyrir heimildamynd um
Essex, æskustöðvar tónskáldsins.
Saxófónn er áberandi í þessu
stutta verki, þar sem gætir
áhrifa blús-, rokk- og djasstón-
listar. Meðal annarra þekktra
verka Turnage eru óperan
Greek og kammerverkin Blood
on the Floor og On all Fours.
Ungur að árum
Thomas Ades samdi Living
Toys árið 1993, 22 ára gamall.
Ari síðar var verkið valið besta
verk tónskálds undir þrítugu á
Tónskáldaþinginu í París. Liv-
ing Toys er samið fyrir London
Sinfonietta og hefur verið flutt
víða um lönd. Meðal annarra
þekktra verka Ades eru óperan
Powder her Face, Chamber
Symphony og söngverkið Life
Story. Ades er afburða pianisti
og hefur einnig unnið til verð-
launa á því sviði.
Caput-hópinn skipa á tónleik-
unum Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari, Eydís Franzdóttir
óbóleikari, Guðni Franzson
klarínettuleikari, Brjánn Inga-
son fagottleikari, Sigurður
Flosason og Oskar Guðjónsson
saxófónleikarar, Emil Frið-
fínnsson og Anna Sigurbjörns-
dóttir hornleikarar, Eiríkur
Örn Pálsson trompetleikari,
Sigurður Þorbergsson básúnu-
leikari, Helga Bryndís Magnús-
dóttir píanóleikari, Steef van
Oosterhout slagverksleikari,
Gerður Gunnarsdóttir og
Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikarar, Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari,
Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari og Richard Korn sem leikur
á kontrabassa.
Verð
www.mbl.is