Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 86
86 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTAVORUR
ÍPRQTTAVÖRUR
í HÆSTA
GÆOAFLOKKI
GULLIT TRAINER JR.
(f. gerfigras)
stærðir 30 - 39
Uerð kr. 2.200.-
stærðir 27 - 39
Uerð kr. 2.200.-
G0 GULLIT TRAINER JR.
stærðir 27 - 39
Uerð kr. 2.200.-
stærðir 33 - 39
Uerð kr. 2.900.-
stærðir 24 - 35
Uerð kr. 2.400.-
T0REN0 JR
^ leðurskór.
stærðir 27 - 35
Uerð kr. 2.700.-
IÞROTTAVÖRUR
L0TT0 heildsöluuerslun,
Stórhöfða 17, Reykjauík,
sími: 587 7685.
SENDUM í PÚSTKRÖFU.
FÓLK í FRÉTTUM
„Þetta var mjög
krefjandi vinnau
Mynd danska leik-
stjórans Thomas
Winterbergs Hófíð eða
„Festen“ hefur fengið
góðar viðtökur í Cann-
es og vakið mikla at-
hygli. Pétur Blöndal
hitti Valdísi Oskars-
dóttur sem klippti
myndina.
FESTEN er önnur af tveimur
dönskum myndum sem komust í
aðalkeppnina, sem verður að teljast
gott ef miðað er við umfang kvik-
myndamarkaðarins í Danmörku.
Hin myndin er Fávitarnir eftir Lars
von Trier. Það sem einkum hefur
vakið athygli við dönsku myndimar
em hinar svokölluðu „Dogma“-regl-
ur sem þær era unnar eftir og
kveða á um sem minnstan til-
kostnað við myndimar. Ekkert er
lagt í hönnun leikmyndar, búninga,
forðun eða tónlist, - fyrir utan það
sem er til staðar í myndinni.
Valdís Óskarsdóttir sér um að
klippa myndina en hún hefur unnið
með leikstjóranum Winterberg að
einni annarri mynd sem nefnist
„Den storste helte“. „Við lukum við
að klippa Hófið í byrjun febrúar
þannig að segja má að hún sé
nýskriðin út úr klippiherberginu."
Valdís segir að efni myndarinnar
sé þungt en hún sé fyndin líka - „al-
veg þangað til hún er það ekki leng-
ur“. Hófið fjallar um 60 ára afmæli
fjölskyldufóður. Af því tilefni er
haldið afmælisboð sem er ósköp
venjulegt eða allt þar til elsti sonur-
inn heldur ræðu ... En var erfitt að
klippa myndina?
„Mjög svo en að sama skapi gef-
andi,“ svarar Valdís. „Þetta var
krefjandi vinna og þar spiluðu hinar
svokölluðu „Dogma“-reglur inn í.
Ut af þeim var myndin tekin á
handupptökuvél, með engum ljós-
um, engum búningum, engri förðun
og þegar klippt var þurftu mynd og
hljóð alltaf að fara saman. Ekki var
notast við aukahljóð, tæknibrellur
eða tónlist. Þetta gerði það að verk-
um að maður þurfti að hugsa meira
til að fá hana til að ganga upp. Það
þarfnaðist yfirlegu. En það hjálpaði
til að efnið var tekið upp á 2 til 3
upptökuvélar í erfiðum atriðum og
ég hafði því viðbrögð hvers og eins
til að moða úr. Alls var efnið 56
klukkustundir sem var klippt niður
í 100 mínútur."
Valdís stundaði nám í kvik-
myndaskólanum í Danmörku frá
1987 til 1991. Hún bjó heima á ís-
landi í þrjú ár eftir það og klippti þá
myndirnar Inguló, Sódómu Reykja-
vík og Skýjahöllina. Hún vann
einnig við að klippa fréttir í Sjón-
varpinu. „Ég fór svo til Danmerkur
þegar Jesper W. Nielsen bauð mér
Sumarskólinn sf.
6.
og ódýrastir
Um 50 matshæfir framhaldsskólaáfangar eru í boði.
kennsla fer fram í júrú. Verð frá kr. 9.900.
Skráning er virka daga frá 18. til 29. maí, kl. 17:00-19:00 í
Odda, Háskóla íslands og í símum 565-6429 og 565-9500.
B o f g <i r s 1 j ó r n a r k o s n i n g a r I 9 9 8
n
Kaffi og góður félagsskapur
Sjálfstæðismenn hittast daglega íValhöll
kl. 15 -18. Frambjóðendur verða til skrafs
Heitt kaffi ráðagerða auk þess sem uppákomur
og hressandi verða a hverÍum degi - pfanóleikur, söngur,
, upplesturo.fi.
umræður rr
sem koma Allir velkomnir
bióðinuá Sjálfstæðisfélöqín
hreyfingu! ÍReqkjavík
Valdís Óskarsdóttir
Morgunblaðið/Halldór
að kligpa myndina „Den sidste vik-
ing“. Astæðan fyrir því að mér stóð
það til boða var sú að hann hafði séð
lokaverkefni mitt úr kvikmynda-
skólanum. Eftir það bauðst mér að
klippa aðra mynd „Forbudt for
b0rn“ og þá ákvað ég að flytja út til
Danmerkur. Síðan þá hef ég klippt
tvær stuttmyndir og mynd Bille
August Vesalingana."
Ohætt er að segja
að Valdís sé búin að
koma sér vel íyrir í
Danmörku. Hún hefur
klippt myndir fyrir
tvo af helstu leikstjór-
um Dana, Thomas
Winterberg, sem
orðinn er heimsfræg-
ur í Danmörku eftir
að myndin Hófið var
valin í aðalkeppnina í
Cannes, og Bille Aug-
ust. En einnig stendur
til að hún leggi lokahönd á mynd
sem unnin er af leikstjóra á vegum
Lars von Triers. „Listastofnun í
Danmörku óskaði eftir samstarfi við
Trier og hann lagði til drög að verk-
efni með 52 persónum í húsi með 23
herbergjum. Hann mótaði línurnar
fyrir persónumar, hvað þær hétu
og tengsl þeirra hverra við aðrar -
afgangurinn var svo spunavinna.
Verkefnið var keyrt í tvo mánuði í
þrjá tíma á dag og spunnið eins og
leikrit undir stjórn Mortens Arn-
freds. Jesper Jargil tók þetta upp
og ég sé um að klippa myndina sem
nefnist „Verdens Uret“. Hún byrjar
sem heimildarmynd þar sem per-
sónumar eru kynntar til leiks og
endar sem bíómynd.“
Valdís segir að persónurnar í
myndinni séu meira og minna
„klikk“. „Ég fæ efnið í hendurnar
sem er 76 klukkustundir og má svo
bara klippa það eins og mér sýnist.
í öllum herbergjunum gerast lítil
atriði og það er í raun enginn þráð-
ur í verkinu - aðeins það sem fólki
dettur í hug. Mismunandi lýsing er í
herbergjunum, gul, rauð, græn eða
blá eftir því hvernig
skapi persónurnar eru
í. Yfirleitt era þær þó
árásargjamar og
meinfýsnar.“
Leikstjórinn Soren
Kragh Jacobsen er
ekki síður vinsæll í
Danmörku en til
stendur að Valdís
klippi aðra „Dogma“-
mynd undir hans leik-
stjóm, en allt í allt era
þær fjórar. „Ég hef
ekki lesið handritið en
mér skilst að þetta sé saga um fólk
sem villir á sér heimildir eða eins og
danskurinn segir er „fuld af logn“.
Valdís segir að samstarfið við
Thomas Winterberg hafi gengið
mjög vel. „Hann er opinn og er ekk-
ert að ráðskast með mann. Ég fæ
bara efnið upp í hendurnar og svo
er það klippt. Við förum svo yfir
efnið í sameiningu og þá kemui-
hann oft með uppástungur sem eru
kveikjan að góðum hugmyndum -
það var mjög skemmtilegt tímabil í
vinnslu myndarinnar."
Svona að lokum - hvað finnst
Valdísi um Cannes? „Þetta er of-
boðslegur sirkus!" Hvernig var að
ganga upp tröppumar á frumsýn-
ingunni? „Teppið var mjúkt og
þægilegt."
www.islandia.is/kvikmyndaskoli
Kvikmyndaskóli
S L A N D S
Kvikmyndavinnustofa
1 sumar mun Kvikmyrjdaskóli Islands í samvinnu við Japis, Stöð
2 oq Kvikmyndasjóð Islands standa fyrir stuttum námskeiðum
með áherslu á verklega kennslu. Þetta er kjörið tækifæri til að
kynnast leyndardómum kvikmyndagerðar á markvissan hátt.
Farið er yfir framleiðsluferli kvikmynda, skoðaðar leiknar myndir,
heimildarmyndir; tilraunamyndir, sjónvarpsþættirog auglýsmgar.
Mismunandi upptökutækni kynnt, filma, SP beta, digital og
VHS. Fjailað um lýsingu og heístu lampa.
Nemendurtaka upp stuttar myndir undir leiðsögn leiðbeinanda.
Klippt og hljóðsett á Avid töívu og forritið kynnt nemendum.
Leiðbeinendur eru allir starfandi kvikmyndagerðarmenn.
Takmarkaður fjöldi, aðeins 6 manns í hóp
Kennsla ferfram 19:00-23:00
V!Ð LEITUM AÐ HÆFILEIKAFÓLKI
dómnefnd velja 5 verkefni til frámleiðslu. Framleiðslustyrkur
er veittur í formi tækja, aðstöðu og ráðgjafar.
Námskeið hefjast 8. júní, 22. júní, 6. júlí, 20. júlí,
10. ágúst og 24. ágúst
Nýttu sumarið. Skráðu þig strax á
namskeið í síma 588 2720
eða 8960560
a33fflpm %
KVIKMYNDASJÓÐUR
ÍSLANDS