Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölbreytt hátíðardag-
skrá í Bolungarvík i
Samband austur-húnvetnskra kvenna 70 ára
Gáfu sjúkrahúsi peninga
til húsgagnakaupa
Blönduósi - Samband Austur-
húnvetnskra kvenna (SAHK) er
sjötíu ára á þessu ári og af því
tilefni heiðraði SAHK fímm
konur fyrir fórnfúst starf í
þágu samtakana. Éinnig gáfu
kvenfélögin í héraðinu og SA-
HK í sameiningu Héraðshælinu
á Blönduósi peningagjöf að
upphæð 215 þús sem nýtast á
til húsgagnakaupa
Þær fímm konur sem SAHK
heiðraði heita Elísabet Sigur-
geirsdóttir, Guðrún Jónsdóttir,
María Jónsdóttir, Theódóra
Berndsen og Valgerður
Ágústsdóttir. Jafnframt þessu
gaf kvenfélag Sveinstaða-
hrepps sjúkrahúsinu 70 þús kr
til að minnast þess að liðin eru
sjötíu ár frá stofnun þess. Það
var fráfarandi formaður SAHK
Elín Sigurðardóttir sem af-
henti viðurkenningarnar og
peningagjöfina. Guðmundur
Theódórsson formaður stjórn-
ar Heilbrigðisstofnunarinnar á
Blönduósi tók við peningagjöf-
ina og þakkaði í örfáum orð-
um.
LANDIÐ
BÖRN og tengdabörn Einars og Elísabetar Hjaltadóttur voru viðstödd hátíðina.
100 ár frá fæðingu Einars Guðfínnssonar
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
HEIÐURSKONUR í SAHK taldar frá vinstri: Guðrún Jónsdóttir, Val-
gerður Ágústsdóttir, Theódóra Berndsen og María Jónsdóttir. Á
myndina vanta Eh'sabetu Sigurgeirsdóttur sem ekki gat verið viðstödd.
Bolungarvík - Það blöktu víða fán-
ar við hús í Bolungarvík sl. sunnu-
dag, er þess var minnst, 100, ár eru
frá fæðingu Einars Guðfinnssonar,
hins mikla athafnamanns sem átti
svo mikinn þátt í uppbyggingu Bol-
ungarvíkur með atorku sinni og
dugnaði við uppbyggingu atvinnu-
rekstrar hér.
Uppbyggingin hófst formlega 1.
nóvember 1924, en þegar Einar
i
I
I
lést, 1987, á 88. aldursári, hafði
hann byggt upp fyrirtæki á
sviði útgerðar, fiskvinnslu og
verslunar sem var eitt glæsi-
legasta og best rekna fyrirtæki
landsins.
Þessara tímamóta var
minnst með dagskrá sem hófst
með því að Bolvíkingar fjöl-
menntu í messu í Hólskirkju kl.
11 um morguninn. Þar messaði
sr. Agnes Sigurðardóttir, sókn-
arprestur, og minntist í predik-
un sinni þeirra heiðurshjóna,
Einars og konu hans Elísabet-
ar Hjaltadóttur, sem lést 1981.
Einar var alla tíð mjög kirkju-
sækinn maður og sat gjaman á
sama stað í kirkjunni, hann
gegndi einnig formennsku í
safnaðarstjórn Hólssóknar í
fjölmörg ár.
Nýtt safn opnað
með Einarssýningu
Kl. 14 var opnuð „Einarssýn-
ing“ í sal Náttúrugripasafnsins
sem þá var jafnframt formlega
opnaður almenningi. Á Einars-
sýningunni gat að líta myndir
og muni frá Einarsárunum hér
í Bolungarvík. Mikill fjöldi
fólks kom að h'ta á sýninguna
ásamt því að skoða hið nýja
náttúrugripasafn Bolvíkinga sem
opnað var deginum áður og komið
hefur verið fyrir í myndarlegu
húsnæði sem áður var hluti af
verslunarhúsnæði Einars Guð-
fmnssonar
Um kvöldið var síðan efnt til
hátíðardagskrár í Víkurbæ þar
sem boðið var upp á kaffi og með-
læti. Bæjarstjórinn, Olafur Krist-
jánsson, minntist Einars og Elísa-
KARVEL Pálmason fyrrverandi
alþingismaður flutti ávarp í Víkur-
Fyrir aftan stendur Guðfinnur
Einarsson.
betar. Söngfélagið í neðsta flutti
nokkur lög og Kvennakór Bolung-
arvíkur söng. Böm og barnabörn
Einars og Elísabetar fluttu minn-
ingarbrot úr ævi þeirra.
Mikill fjöldi Bolvíkinga og ann-
arra gesta sótti þessa hátíðlegu
hátíðardagskrá og vottuðu þeim
heiðurshjónum þannig virðingu sína
og ljóst er að minningin um athafna-
skáldið Einar Guðfmnsson og konu
hans Elísabetu Hjaltadóttur lifir í
hugum Bolvíkmga um ókomin ár.
bæ.
er
me
rá
au
Blaðaukinn Brúðkaup kemur út
laugardaginn 30. maí. Blaðaukinn
er kjörinn vettvangur fyrir þá sem
vilja auglýsa brúðargjafir eða
þjónustu fyrir brúðkaupsveislur.
I
Meðal efnis:
Undirbúningurinn fyrir
veisluna
Veisluföngin
Viðtöl við fólk sem er búið
að vera gift lengi
Gjafirnar
Siðir tengdir brúðkaupinu
Snyrtingin
Bindishnúturinn
Undirfatnaðurinn
Skemmtilegar frásagnir af
óvenjulegum bónorðum
Brúðarskartið
Dansinn
Hlutverk barnanna
Tónlistin
Blómin
Brúðarbíllinn
Vertu með í brúðkaupsblaði Morgunblaðsins 30. maí.
Skilafrestur auglýsingapantana ertil kl. 12 mánudaginn 25. maí.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á söludeild sérauglýsinga í síma 569 1139.
JltovgnmMaíifö
AUGLÝSINGADEILD
Slmi: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
%