Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 80
80 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
th Arden
kynning á morgun,
föstudag
CRAFARVOGS
APÓTEK,
Hverafold, sími 587 1200
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Sumarsandalar
Teg. 1020
Verð: 3.495,-
Litir: Svart, brúnt, og beige.
Stærðir: 37-41
Teg. 4493
Verð: 3.995,-
Litir: Brúnt, blátt.
Stærðir: 37-41
5% staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE STEINAR WAAGE #
SKÓVERSLUN SKÓVERSLUN .
Sími 551 8519 # Sími 568 9212 V
Félagsmálastofnun
Rey kj avíkurborgar
hefur tekið í notkun nýjar
símstöðvar með beinu innvali.
Nýtt símanúmer Félagsmálastofnunar:
Aðalskrifstofa, Síðumúla 39...............535 3000
Skrifstofa félagsmálastjóra ..............535 3030
Fjármála og rekstrardeild................535 3020
Fjölskyldudeild...........................535 3070
Húsaleigubótadeild .......................535 3010
Starfsmannaþjónusta......................535 3015
Tölvudeild ...............................535 2980
Öldrunarþjónusta ....................... 535 3040
Hverfaskrifstofa fjölskd., Skógarhlíð 6.... 535 3100
Heimaþjónusta............................... 535 3160
Hverfaskrifstofa fjölskd., Suðurlbr. 32 ... 535 3200
Heimaþjónusta............................. 535 3260
Forvarnarsvið.............................535 3270
Hverfaskrifstofa fjölskd., Álfabakka 12 .. 535 3300
Heimaþjónusta............................535 3360
Vinsamlegast geymið auglýsinguna.
í DAG
VELVAKAVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Orlof húsmæðra
ÞRIÐJUDAGINN 12.
maí sl. bar „Kjósandi í
Reykjavík" fram fyrir-
spum í Velvakanda um
orlof húsmæðra. Bréfrit-
ari kvaðst hafa heyrt að
til stæði hjá borgaryfír-
völdum að leggja niður
starfsemi orlofs
húsmæðra í Reykjavík.
Það er skemmst frá því
að segja að þetta er al-
rangt. í fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir
yfirstandandi ár er gert
ráð fyrir 4.600.000 króna
framlagi vegna orlofs
húsmæðra og óbreyttri
starfsemi.
Kristín A. Árnadóttir,
aðst.kona borgarstjóra.
Ánægð með störf
borgarstjóra
í TILEFNI kosninganna
langar mig að láta í Ijósi
ánægju með störf núver-
andi borgarstjóra, Ingi-
bjargar Sólrúnar. I mín-
um augum er það per-
sónuleiki leiðtoga sem
mestu máli skiptir. Ingi-
björg Sólrún hefur flest
það til brunns að bera
sem góður stjórn-
málamaður þarf að hafa.
Hún er ekki bara eldklár
og dugleg, - hún er
jákvæð, hefur ríka
kímnigáfu og er alltaf
skemmtileg. Það var
reyndar mál til komið að
veita Sjálfstæðisflokkn-
um hvíld í borgarforyst-
unni og þó fyrr hefði ver-
ið. Ekki ætla ég að tala
mikið um Ama litla og D-
listann sem reyna að
halda á lofti neikvæðum
áróðri og ódrengilegum á
stundum. Þeir tala mikið
um Geldinganesið en þeir
muna líklega ekki eftir
því eins og ég þegar
byrgt var fyrir útsýnið út
í Viðey af Kleppsveginum
með lengjunni sem hýsir
heildverslanir. Þetta var
þegar D-listinn réði ríkj-
um. Það var stórslys.
Hvað með byggingu
gamla Morgunblaðshúss-
ins, sem engan veginn
fellur inn í miðbæinn
gamla? Þetta á ekki að
vera neikvæð upptalning
um 50 ára stjórn D-list-
ans í Reykjavík.
Eitt mikilvægasta at-
riðið í mínum augum er
að uppvaxandi kynslóð í
landinu sjái að í æðstu
embættum sitji jafnt kon-
ur sem karlar. Þetta
styrkir sjálfstæði kvenna
og hvetur þær til dáða.
En erum of seinar í svif-
um að komast í sveitar-
stjórnir og þingsæti. Þai-
á að vera sem jöfnust
skipting milli kynja.
Við erum fyrsta
lýðveldið með konu sem
þjóðhöfðingja og eins og
Vigdís Finnbogadóttir
styrkti sjálfsmynd
kvenna hefur Ingibjörg
Sólrún líka gert það. Eg
trúi því að allir Islending-
ar séu stoltir af þeim,
hvar í flokki sem þeir
standa. Það er reisn yfír
Ingibjörgu Sólrúnu, hún
hefur sterka leiðtoga-
hæfíleika og mín ósk er
að við njótum hennar
lengi enn. _
Vigdís Ágústsdóttir.
Hver er spurningin?
í VINAHÓPI, sem öðru
hvoru hittist hér í borg
yfír kaffibolla og ræðir
málefni dagsins, hefur
komið upp skoðanaá-
greiningur um það, hvort
ungu mennirnir tveir,
sem eru í fyrsta og þriðja
sæti á framboðslista R-
listans til borgarstjórnar,
væru vanhæfír vegna
þess hvimleiða orðróms,
sem gengur um borgina
um fjármálaferil þeirra,
til að fara með fjármál
borgarinnar eða ekki, ef
þeir kæmust í þá aðstöðu
eftir kosningar.
Okkur flestum í hópn-
um finnst spurningin ekki
snúast um það, hverjir
hafa einhvem tíma lent í
fj árþrengingum,
gjaldþroti og því um líku,
eins og sumir vilja snúa
út úr umræðunum með.
Það þurfa ekki að vera
fjárglæframenn þó að
þeir hafi lent í slíku, það
vitum við öll. Spurningin
er, hvort það nálgist ekki
dónaskap við kjósendur
þegar búið er að ásaka
tvo af frambjóðendum R-
listans um fjárglæfrahátt,
og það fyrsta og þriðja
mann á listanum, að fær-
ast undan að taka þetta
mál alvarlega.
Ef allt er í lagi, sem
þeir virðast ekki í neinum
vafa um, ætti það að vera
frambjóðendum, ekki síst
meðlistamönnum þessara
tveggja manna, umhugað
að upplýsa okkur hin um
hið sanna í þessu máli.
Annað bara gengur ekki.
Borgarstjóri getur hreint
ekki afgreitt þetta sem
„rógsherferð".
Kjósandi.
Fólksflutningar
fyrir kosningar
í LÍTILLI sveit á Suður-
landi, þ.e.a.s. í Austur-
Eyjafjallahreppi, hefur
íbúafjöldi fólk með kosn-
ingaaldur aukist um ríf-
lega 17% frá 1. desember
1997 og er aukningin
langmest í apríl síðast-
liðnum, eða rúmlega 14%.
M.ö.o. hafa 20 manns
flust inn í sveitina á síð-
ustu mánuðum og eru nú
135 manns á kjörskrá.
Fjölgaði um 1 í heimili
hjá oddvitanum og tvo
hjá varaoddvitanum svo
eitthvað sé nefnt. En
fleiri voru nú vildarmenn
hreppsins sem ólmir
vildu setjast hér að og í
samfélagi þar sem svo fá-
ir búa telst það mikil
fjölgun að allt í einu bæt-
ist við átta nýir heimilis-
menn á 3 bæi vestarlega í
sveitinni. Þykir sveita-
mönnum jaðra við að það
svæði geti talist kaup-
staður ekki síst þar sem
þangað í hjarta bæjarins
er hægt að sækja hina
ýmsu þjónustu. Auðvitað
hljótum við að gleðjast
yfír því að þessi hreppur
skuli eiga svo marga vild-
armenn sem vafiaust
koma til með að greiða
sitt útsvar til hreppsins
næstu árin og ekki veitir
sveitarfélaginu af. En það
væri nú ekki slæmt ef
börnin fæddust með
kosningarétt. Þá væri
þessi atkvæðasmölun ut-
an hrepps með öllu óþörf
en ef til vill þyrfti þá að
sýna aðeins meiri fyrir-
hyggju en nú hefur verið
gert. Líklegt þykir einnig
að samviska meirihluta
yrði betri ef björninn yrði
unninn með þeim aðferð-
um í stað þeirra sem nú
eru viðhafðar.
Sveitungur.
Djásnið dýra,
móðurhlutverkið
DJÚPVITUR kona,
Steinunn Bjamadóttir,
einn stofnenda Kvennaat-
hvarfsins, skrifaði eftir-
farandi í grein í Morgun-
blaðinu í des.’89: „Það,
sem í upphafi voru stórir
draumar og fagr'ar hug-
sjónir hefur leitt konur á
villigötur. Framkvæmdin
á ,jafnrétti“, þessu
útþynnta hugtaki sem fer
afskaplega í taugarnar á
mér, hefur verið upp og
ofan, en ég held að konur
hafí fórnað of miklu fyrir
það. Eg vil ekkert jafn-
rétti fyrir konur. Eg vil
annan rétt fyrir konur, að
þær fái að vera konur og
haldi sínum sérmálum.
Karlmenn ganga ekki
með börn, þeirra hlut-
verk í fjölskyldunni er
einfaldlega annað. Það er
þetta dýra djásn, móður-
hlutverkið, sem við misst-
um úr hendi okkar. Eg
bara skil ekki að konur
skuli sjálfar hafa stuðlað
að þessu slysi.“
Eg er sammála Ingu
Jónu Þórðardóttur um að
R-lista framboðið sé
kommúnistaframboð.
Það, hvernig Ingibjörg
Sólrún heldur dauðahaldi
í það stefnumál sitt að
reka fleyg milli móður og
sex mánaða barns með 6-
9 þús. kr. styrk til
geymslu hjá dagmóður,
sannar það.
Rannveig Tryggvad.
Fyrirspurn til
Sjálfstæðisflokksins
ÞAÐ er grein í dag,
þriðjudaginn 19. maí, í
Morgunblaðinu eftir
Ágústu Johnson um fjöl-
skyldugreiðslur sem eru
á loforðalista Sjálfstæðis-
flokksins fyrir kosningar.
Þar segir Ágústa að for-
eldrar leikskólabarna
með 2 börn á leikskóla-
aldri eigi að fá um 83 þús.
á mánuði eða um 1 millj.
á ári. Og því spyr ég, sem
foreldri tveggja barna:
Hvað þarf ég að borga
mikið í skatt af milljón-
inni minni? Ég get ekki
séð að ég græði neitt á
þessu.
Arndís Jónasdóttir.
Dýrahald
Grár fress týndur
GRÁR fress týndist frá
Vatnsstíg sl. mánu-
dagskvöld. Þetta er
inniköttur. Þeir sem hafa
orðið varir við hann eru
beðnir að hringja í síma
898 7037.
Kettlingar fást gefins
GREINDIR og fallegir
kettlingar, kassavanir,
óska eftir kærleiksríku
og menningarlegu heim-
ili. Upplýsingar í síma
552 0834.
Víkverji skrifar...
HALLDÓR Laxness er engum
líkur. Vinur Víkverja, sem
reiðinnar býsn hefur lesið eftir
Nóbelsskáldið, hefur gluggað mikið í
bækur hans á ný eftir andlát hans,
og notið þeirrar snilldar sem fínna
má í verkunum. Hann benti Víkverja
m. á eftirfarandi úr Sjálfstæðu fólki:
„Hann kom heim um kvöldið með
fresskött í poka og hvolfir úr þesu á
loftskörinni, og hvað er þetta, sögðu
börnin, og það er köttur, sagði hann,
og það var ánægja um kvöldið, með-
an sagan fór einsog veðrabrigði um
hreppinn og allir sögðu: rottan í
Sumarhúsum. Þarna stendur fress-
kötturinn á loftskörinni grábröndótt-
ur og tortrygginn og lítur varkárlega
í kríngum sig, stórum útglentum
sjáöldrum, stígur í þrjá fætur og
mjálmar í fullkominni eymd, án þess
þó að missa kjarkinn; kötturinn gef-
ur frá sér það eymdarlegasta hljóð á
Islandi, og þó kann einginn sögu af
því að köttur hafí gefist upp, kettir
gefast ekki upp, - bara passa að tíkin
og hann fari ekki saman, sagði Bjart-
ur. Útundir vegg fór hann að hugsa
um það, hvort hann mundi ekki vera
orðinn vitlaus að hafa komið með
kött.“ Er þetta ekki alveg dæma-
laust?
xxx
VÍKVERJI nefndi í pistli á dögun-
um að hann hefði hvergi fundið
nýjustu geislaplötu kanadíska djas-
spíanistans Oscars Petersons. Lana
Kolbrún Eddudóttir, umsjónarmaður
djassþáttar á Rás 1, sendi Víkverja
línu af þessu tilefni. Þar segir:
„Ég get glatt viðkomandi með því
að nýjustu plötur Petersons fást
örugglega í 12 tónum á horni Grett-
isgötu og Barónsstígs. Sú verslun er
með umboð fyrir Telarc, útgáfufyrir-
tækið sem Peterson er samnings-
bundinn.
Bestu kveðjur úr Efstaleitinu!“
Víkverji þakkar kveðjurnar og
sendir bestu kveðjur til baka til Lönu
Kolbrúnar, með þökk fyrir góða
þætti. Þær upplýsingar fengust
reyndar í 12 tónum að platan væri
ekki komin, en hún er á leiðinni og
ætti að vera komin í búðina í næstu
viku. Að sögn afgi'eiðslumanns í
versluninni fæst mikið gamalla og
nýlegra diska með Peterson og félög-
um hans í 12 tónum og er Víkverja
sönn ánægja að benda aðdáendum
kanadíska snillingsins á það.