Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tíðindalítill fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins í Óman Hvalveiðibannið verður ekki endurskoðað Morgunblaðið/Ásdís UNDIRSKRIFTALISTAR 300 manna sem mótmæla byggingu í Norð- ur-Mjódd afhentir Kristínu Áruadóttur, aðstoðarkonu borgarstjóra, í gær. Aðrir á myndinni eru Ágúst Ármann, Bragi Jóhannesson, Jón Aðalsteinn Jónsson og Ragnar Þórhallsson. Mótmæla fyrir- hugaðri byggingu í Norður-Mjódd ÁRLEGUR fundur Alþjóðahval- veiðiráðsins, sem að þessu sinni var haldinn í Óman, var tíðindalítill. Þó kom fram á fundinum að tilraunir formanns ráðsins til að sætta sjón- armið þeirra sem vilja hefja hval- veiðar á nýjan leik og hinna sem vilja friða stofninn áfram hafa eng- an árangur borið. ísland átti áheymarfulltrúa á fundinum, sem lauk í gær, en íslend- ingar sögðu sig úr Alþjóðahval- veiðiráðinu árið 1991. Arnór Hall- dórsson frá sjávarútvegsráðuneyt- Morgun- blaðið á Netinu með kosningavakt MORGUNBLAÐIÐ á Netinu verður með kosningavakt eftir sveitarstjómarkosningamar á laugardag. A Kosningavef verða kosn- ingatölur birtar og úr þeim unnið jafnóðum og þær ber- ast, og á Fréttavef verða sagð- ar fréttir af þróun mála og viðbrögðum frambjóðenda. Slóð Fréttavefjarins er http://www.mbl.is. Þaðan er hægt að fara á Kosningavef og einnig með því að skrifa slóðina http://www.mbi.is/kosningar/ Forsvarsmenn þeirra fram- boðslista, sem ekki hafa enn sent upplýsingar um röðun á listann til Kosningavefjarins, era hvattir til að gera það hið fyrsta. Kennitölur þurfa að fylgja nöfnum frambjóðenda. Upplýsingar má senda á net- fangið kosning@mbl.is inu, sem sat fundinn fyrir hönd ís- lands, sagði í samtali við Morgun- blaðið að mjög fátt hefði gerst á fundinum og ekkert sem yki líkumar á því að ráðið endurskoðaði hval- veiðibann og leyfði aftur hvalveiðar í atvinnuskyni. Það mál hefði ekki nálgast neina lausn. Hins vegar hefði verið felld tillaga Bandaríkjanna og fleiri um að skipa vísindanefndinni að vinna ekki að tilteknum vísinda- rannsóknum sem ættu meðal annars að miða að því að viðhalda þeklangu á hvalastoftium. Ef slík tillaga hefði í RÆÐU sem flutt var á Ráðherrastefnu Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, WTO, lýsti Hall- dór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, þeirri skoðun að samn- ingaumhverfi hins fjölþjóðlega viðskiptakerfis eigi að vera víðtækara um aldamótin en samn- ingar WTO gera nú ráð fyrir. I því sambandi lagði hann áherslu á viðræður um iðnaðarvörur og fjölþjóðlegar samkeppnis- og fjár- festingareglur, að því er fram kemur í frétt frá utanríkisráðu- neytinu. Ennfremur segir í fréttatil- kynningunni að ráðherra hafi talið grandvöll fyrir reglusetningu á sviði viðskiptalipranar og gagn- merkari umræður um viðskipti og umhverfi. Loks hafi hann fjallað um nauðsyn þess að aðilar WTO skapi hagstæð skilyrði fyrir þróun verið samþykkt hefði það haft alvar- legar afleiðingar. Arnór sagði að fram hefði komið að enginn árangur hefði orðið af þeim viðræðum sem formaður ráðs- ins, sem er íri, hefði staðið fyrir um framtíð þess. Hann hefði upplýst um það í lok fúndarins og hefðu menn í kjölfarið farið að deila um það hver ætti sök á því. Það hefði hins vegar komið fram að formaðurinn myndi halda þessum tilraunum áfram, þó margir hefðu lýst yfir efasemdum um að það væri til nokkurs. rafrænna viðskipta, m.a. með því að leggja ekki innflutningstolla á rafrænar sendingar en það hafí orðið ein af niðurstöðum ráðherra- stefnunnar. Samhliða ráðherrastefnunni, sem ráðherrar hinna 132 aðildar- ríkja WTO ávörpuðu, var efnt til hátíðarsamkomu í tilefni 50 ára af- mælis hins fjölþjóðlega viðskipta- kerfis, en GATT samningurinn gekk í gildi 1948 og féll undir WTO um áramót 1995. I frétt utanríkis- ráðuneytisins segir að nokkrir þjóðarleiðtogar hafi ávarpað hátíð- arsamkomuna, þar á meðal Bill Clinton, Bandaríkjaforseti, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, Nelson Mandela, forseti Suður-Af- ríku, og Fidel Castro, forseti Kúbu. Benedikt Jónsson, fastafulltrúi íslands í Genf, flutti ávarp Hall- dórs Ásgrímssonar. TÆPLEGA 300 manns hafa mót- mælt tillögu að deiliskipulagi í Norð- ur-Mjódd sem kynnt hefur verið hjá Borgarskipulagi. Þar er fyrirhugað að reisa 3.000 fermetra verslunar- húsnæði og telja Mar á svæðinu að það hafi í for með sér stóraukna um- ferð. Þá hafa eigendur sölutumsins Staldursins óskað eftir stækkun á umráðasvæði sínu og leyfi til veit- ingareksturs. Reykjanesbraut og Stekkjarbakki anni nú þegar ekki þeirri umferð sem þar er á álagstím- um. Aukin umferð hafi í fór með sér aukna slysahættu. Þegar byggð hafi hafist í Breiðholti hafi verið ákveðið að Norður-Mjódd yrði útivistarsvæði. Jón Aðalsteinn Jónsson, talsmað- ur Manna, segir að borgaryfirvöld hafi nokkrum sinnum reynt að brigða því sem lofað var og koma þama fyrir ýmsum mannvirkjum. Fram að þessu hafi að mestu tekist að koma í veg fyrir þau áform. Nú vilji hins vegar svo til að borgaryfir- völd stefni að því að láta þetta svæði af hendi til einkaaðila til rekstrar sem krefst bæði mikilla umsvifa og bygginga á því. Þama er um að ræða gróðrarstöð sem viðbúið sé að stór- auki umferð á svæðið. Stekkjarbakki hafi í upphafi einungis átt að vera ró- leg safngata fyrir Stekkjarhverfið en borgaryfirvöld hafi breytt henni í hreina umferðargötu. Jón Aðalsteinn segir að þrátt fyrir bréfaskriftir og umræður við Borg- arskipulag og eins loforð um grennd- arkynningu og tilraunir til þess að ná fúndi helstu ráðamanna borgar- innar hafi ekkert gerst. Augljóst sé að stefna borgaryfirvalda sé sú að freista þess að drepa málinu á dreif um sinn. „Hér er því mikil hætta á ferðum um endalok Norður-Mjóddar sem útivistarsvæðis. Gangi þetta eft- ir eru forráðamenn Borgarskipulags búnir að ná því markmiði sínu að svíkja allt það sem lofað var um þetta svæði í upphafi Breiðholts- byggðar og íbúar treystu að sjálfsögðu á.“ Ávarp utanríkisráðherra til WTO Vill víðtækara samningaumhverfi Andlát GUNNLAUGUR ÞÓRÐARSON GUNNLAUGUR Þórðarson hæstarétt- arlögmaður er látinn, 79 ára að aldri. Gunn- laugur var kunnur fyr- ir áhuga sinn á þjóðmálum og liggur eftir hann fjöldi greina, ekki síst í Morgunblaðinu. Gunnlaugur fæddist á Kleppi við Reykjavík 14. apríl árið 1919. Foreldrar hans vora Þórður Sveinsson, yfir- læknir á Kleppsspítala og prófessor við Háskóla íslands og Ellen Johanne Sveinsson, húsfreyja. Gunnlaugur lauk námi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1939 og prófi í lögfræði frá Háskóla íslands árið 1945. Hann lauk prófi í þjóðarrétti frá Sor- bonne háskóla árið 1951 og doktor- sprófi frá sama háskóla árið 1952. Hann varð héraðsdómslögmaður árið 1951 og öðlaðist réttindi hæstaréttarlögmanns árið 1962. Gunnlaugur var forsetaritari á áranum 1945-1950 og jafnframt orðu- og ríkisráðsritari á áranum 1947-1948 og 1949-1950. Hann var skipaður fulltrúi í félagsmálaráðu- neytinu árið 1950 en fékk lausn frá störfum að eigin ósk árið 1975. Auk þess rak hann lögfræðistofu í Reykjavík frá árinu 1952. Gunnlaugur átti sæti í aðalstjóm Rauða kross íslands, sem for- maður framkvæmd- aráðs á áranum 1952-1964 og átti fram- kvæði að komu ung- verskra flóttamanna til landsins árið 1956. Hann sat á Alþingi sem landskjörinn varaþing- maður fyrir Alþýðu- flokkinn á árunum 1957-1959 og átti sæti í miðstjóm Alþýðu- flokksins með hléum árin 1954-1971. Gunnlaugur var for- maður Listasafnsfélagsins frá 1956-1971 og var hann skipaður í nefnd til að semja framvarp um listasafn. Hann var síðan skipaður í safnráð Listasafns íslands árið 1961 og átti þar sæti þar til hann sagði sig úr ráðinu árið 1972. Gunnlaugur sat í stjóm Menning- arsjóðs Þjóðleikhússins á árunum 1961-1965. Gunnlaugur kvæntist Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu árið 1945. Þau slitu samvistum. Böm þeirra era Hrafn, fæddur 1948, Þorvald- ur, fæddur 1950, Snædís, fædd 1952 og Tinna, fædd 1954. Auk þess lætur Gunnlaugur eftir sig dóttur, fædda 1977. Morgunblaðið/B.Ó. HALLGRÍMUR Magnússon, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson með fslenska fánann á tindi Everest 21. maí 1997. Eitt ár liðið frá Everest-för EITT ár er liðið í dag frá því þrír íslendingar unnu það af- rek að klífa hæsta fjall f heimi, Everest fjall. Hallgrímur Magnússon, Bjöm Ólafsson og Einar K. Stefánsson náðu áfanganum kl. 7:15 að íslensk- um tíma 21. maí 1997. Daginn eftir mátti sjá fyrirsögnina „Komumst ekki hærra“ í Morgunblaðinu. Hallgrímur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að minningin frá ævintýrinu væri skemmtileg. „Þetta gekk vel og við erum sáttir við allt sem gerðist þarna,“ sagði Hall- grímur. Hann sagði að nú væru menn búnir að aðlagast lífinu á láglendinu á ný og því aldrei að vita nema ævin- týraþráin ræki þá af stað á ný. Hallgrímur var að undir- búa ferð á Vatnajökul með Hjálparsveit skáta þegar rætt var við hann í gær en til stóð að reyna að ná í jeppann sem fór fram af Grímsfjalli í síð- ustu viku. Björn og Einar vora einnig að undirbúa ferð á Vatnajökul frá Skálafell- sjökli og bjóst Hallgrímur fastlega við að hitta félaga sína á jöklinum. „Það væri svo sem ekki verra ef við gæt- um slegið saman glösum ein- hvers staðar uppi á jökli,“ sagði Hallgrímur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.