Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 78
78 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Tommi og Jenni
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Rcykjavík • Sími 569 1100 • Sfmbréf 569 1329
Hreinni borg
Frá Guðmundi Bergssyni:
EINS og eðlilegt er hafa D-lista-
menn skrifað í Morgunblaðið og
talað í útvarp, mest á Bylgjunni, um
væntanlegar borgarstjómarkosn-
ingar og oftast ef ekki alltaf rætt
um holræsagjaldið. Ég skal viður-
kenna að þegar ég fékk fyrsta seðil-
inn þá rauk ég upp og vandaði ekki
ummælin um R-listann, því ég var
að hætta að vinna og allir vita að
þeim sem hafa verið í lægstu launa-
flokkunum er ekki ætlað að lifa í
vellystingum í ellinni, vægast sagt.
í Vesturbænum
Ég átti heima í Vesturbænum
þegar allt rusl var sett á Eiðis-
grandann. Loguðu þar eldar og í sv-
átt lagði reykinn frá eldunum yfir
íbúana með tilheyrandi lykt. Þá var
ófagurt oft á að líta við Selsvörina
eftir sv-storm og brim þegar sjórinn
var búinn að hreinsa til á haugunum
og hlaða öllu ruslinu upp á götuna
þar sem nú er komið hringtorg. Þá
byggði borgarstjórinn í Reykjavík,
Gunnar Thoroddsen, skamaverk-
smiðju og var gerður áburður úr
sorpinu. Haugarnir lagðir niður,
lyktin hvarf og Vésturbæingar gátu
andað að sér hreinu sjávarlofti.
Tengdur höfninni
Ég er búinn að vera tengdur
höfninni nálægt 60 ár og veit hvern-
ig útlitið var meðan menn hentu
allskonar rusli í hana og rneiri mun
er ekki hægt að hugsa sér, að sjá
allt núna eða það sem var. Allir þeir
sem fóru um gömlu Skúlagötuna
gátu ekki komist hjá því, ef þeir
vora á ferð um fjöra, að sjá þann
óþverra sem vall úr holræsunum og
þá var ekki betra í vesturbænum
frá fiskverkunarhúsunum enda
lifðu svartbakur og sílamáfur lúx-
uslífi. Ég fer margar ferðir með
sjónum út á Granda mér til gamans
og hef séð þann mikla mun sem
orðinn er með hreinsun strand-
lengjunnar og hættur að hafa orð á
holræsagjaldinu.
Gullinbrú
Gullinbrú hefur verið mikið í um-
ræðunni eftir að Grafarvogsbúar
lentu í erfíðleikum einn morguninn í
vetur en minna hefur verið rætt um
þann litla spotta sem á vantaði á
breikkun vegarins frá Grafarlæk að
Keldnaholti sem af óskiljanlegum
ástæðum var skilinn eftir, en það
hefði að stórum hluta getað bjargað
í þessu tilfelli. Gullinbrú er ekki
ýkja gömul og hefur ekki verið
byggð fyrir framtíðina. Var hún þó
talin mikið mannvirki á sínum tíma.
Áður gerst
Arið 1968 hafði snjóað mikið eins
og oft áður en svo gerði asahláku og
allur Elliðaárdalurinn fór á kaf í
krap og vatn flæddi yfir veginn og
ekki fært yfír brúna í hálfan sólar-
hring, auk þess að hestamenn voru í
stórhremmingum. Þá var gamla
brúin bara ein á ánni og var frá
1940 og þetta var eina Ieiðin út úr
borginni, líka fyrir öll Suðurnesin.
Það eru því ekki aiveg nýjar fréttir
að fólkið í Reykjavík komist ekki
leiðar sinnar. Reykvíkingai' ættu
allir að gleðjast yfír að hafa sem
hreinasta borg árið 2000, enda er
það mikið afmælisár hjá þjóðinni og
Reykjavík er ætlað að vera ein af
menningarborgum á því ári.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Ætla ræningjarnir
að stjórna
Kardimommubæ?
Smáfólk
/THI5 I5THE
6E5TTHIN6
YOU’VE ever
LURITTEKI
V
IF IT 6ET5 ACCEPTEP,
YOU MAf HAVE TO 60
ON A BOOKTOUR..
I DON T PO
PAU) PR.INT5..
Veröld án katta. Þetta er það besta sem Ef það verður tekið við Ég geri ekki loppu-
þú hefur nokkru sinni henni, þá gætirðu þurft að prent...
skrifað ... fara í kynningarferð ...
Frá Baldri Hermannssyni:
RÆNINGJARNIR voru í sjálfu
sér ekki vondir menn, en þeir voru
illa upp aldir, ósiðlátir, dálítið
heimsldr, virtu ekki rétt annarra og
gerðu ekki skýran mun á réttu og
röngu, en þegar þeir rændu Soffíu
frænku kom þó í ljós að það leyndist
manntak með þeim, innst inni langaði
þá til að verða nýir menn og betri.
Helgi Hjörvar og Hrannar Arn-
arsson eru ekki endilega vondir
menn þótt þeir hafí átt í óreiðu og
fjármálasukki, þvert á móti eru
bjórar í piltum þessum, og hver veit
nema þeir verði einhvern tíma nýtir
menn, en fyrst þurfa þeir að vaxa úr
grasi og læra að umgangast fémuni
annarra með talsverðri virðingu.
Með óráðsíu og fyrirhyggjuleysi
hafa þeir haft fimmtíu milljónir
króna af öðrum mönnum, og það er
svaðaleg fjárhæð, miklu hærri en sú
sem varð Sverri Hermannssyni og
þeim laxabræðrum að aldurtila.
En sem sagt, fjármálasukkið eitt
og sér gerir ekki piltunga þessa að
misyndismönnum. Verra er að þeir
skuli vera svo forhertir að ásælast
fjármálavöld í höfuðborg landsins,
meðan allt í kringum þá sjálfa er ein
rjúkandi rúst og eldar gjaldþrota-
sukksins hvergi nærri kulnaðir.
Þeim ber skylda til að fara sér
hægt, koma undir sig fótum, byggja
upp hag sinn og sanna að þeir séu
traustsins verðir, þá fyrst er þeim
stætt á því að gefa kost á sér í
æðstu stöður samfélagsins, til dæm-
is eftir tíu-tólf ár eða svo.
Einna verstar eru rökstuddar
ásakanir um að þeir hafi rekið um-
fangsmikla svarta atvinnustarfsemi
um árabil. Þetta verður skilyrðis-
laust að rannsaka. Svartur atvinnu-
rekstur er lireint lögbrot, og reyn-
ast þessar ásakanir réttar, mun
fleirum þykja stungin tólg en Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, og þá er
líka einboðið að þeir félagar,
Hrannar og Hjörvar, sýni af sér
þann manndóm að segja sig af R-
listanum þegar í stað, því annars er
hætt við því að kjósendur hans
bindi ráð sitt við refshala, þegar
kjördagur rennur.
BALDUR HERMANNSSON,
Krummahólum 8, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.