Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 43
Davíð Art Sigurðsson barítonsöngvari þreytir frumraun sína
„Tek bara eitt
skref í einu“
DAVÍÐ Art Sigurðsson barítonsöngvari
heldur sína fyrstu einsöngstónleika hér á
landi í Norræna húsinu laugardaginn 23.
maí kl. 16. Ólafur Vignir Albertsson leikur
með á píanó. Á efnisskrá eru aríur eftir Moz-
art, Wagner og Gershwin og lög eftir
Schubert, Tosti og Rogers og Hammerstein,
auk íslenskra sönglaga.
Davíð hóf söngnám við Tónlistarskólann
í Garðabæ 1990, undir leiðsögn Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur, en þaðan lá leið hans
til Bandaríkjanna, þar sem hann nam á ár-
unum 1991-94 söng við Indiana University
í Bloomington og Brigham Young Uni-
versity í Utah. Meðal kennara hans í fyrr-
nefnda skólanum var hinn kunni bassa-
söngvari Georgio Tozzi. Davíð hefur sótt
einkatíma víða erlendis en frá janúar 1997
hefur söngkonan Lia Frey-Rabine verið
kennari hans.
Gæti vel hugsað sér að halda áfram
á braut barftonsöngvarans
Davíð hóf feril sinn sem tenórsöngvari en í
samráði við Frey-Rabine skipti hann yfir í
baríton. „Raddsvið mitt er mjög breitt og
hugmyndin á bak við þessa breytingu var að
sjá hvemig röddin kæmi til með að þroskast.
Eg er hins vegar mjög ánægður með það sem
ég er að gera núna, finn mig mjög vel, og gæti
vel hugsað mér að halda áfram á braut
barítonsöngvarans. Annars kemur röddin
örugglega til með að segja til þegar hún hefur
náð fullum þroska,“ segir Davíð.
Hann kveðst hafa búið sig af kappi undir
tónleikana og hlakkar til að fá tækifæri til að
Morgunblaðið/Kristinn
DAVIÐ Art Sigurðsson barítonsöngvari
kemur fram á tónleikum í Norræna
húsinu á laugardaginn kemur.
syngja hér heima. „Samt er skrekkur í mér.
Það er erfitt að syngja á íslandi, maður þekk-
ir svo marga og þótt ég hafi fundið fyrir hlýju
hef ég jafnframt fundið fyrir ákveðnum vænt-
ingum. Undir þeim kringumstæðum er maður
aOtaf hræddur um að valda einhverjum von-
brigðum. Annars þýðir ekkert að fást um það
- maður hugsar bara um að gera sitt besta.“
Eðlilegt að gera kröfur
til íslenskra söngvara
Islendingar eru þekktir fyrir að gera mikl-
ar kröfur til söngfólks síns. Telur Davíð að
kröfumar séu jafnvel orðnar of miklar?
„Nei, fólk á að gera kröfur. Það er eðlilegt.
Það má aftur á móti ekki gleyma því að
söngvarar em fyrst og síðast mannlegir."
Davíð líkir ferli sínum á þessu stigi við
opna bók. Hann býr nú hér heima en hefur
með haustinu hug á að leita hófanna um at-
vinnu erlendis. „Á það ber að líta að ég er
með konu og þrjú börn og fyrsta skylda mín
er og verður að sjá fjölskyldunni farborða.
Eg mun hins vegar reyna að þjóna hinni
konunni í lífi mínu, listagyðjunni, líka en
draumurinn er auðvitað að geta dregið fram
lífið sem söngvari. Ég geri því ráð fyrir að
fara utan í haust til að búa mig undir að
syngja fyrir umboðsmenn og ópemhús í
Þýskalandi og jafnvel víðar. í þessu fagi,
sem öðmm, gildir hins vegar sú gullna regla
að taka bara eitt skref í einu.“
Listræn
sólar-
landaferð
var gabb
London. The Daily Telegraph.
ÞAULSKIPULAGT gabb þrettán
breskra listaskólanema hefur
hrundið af stað deilum um hvað
sé list, auk þess sem menn sitja
uppi ringlaðir, reiðir og sárir
vegna uppátækis nemanna. Þeir
fengu 1.600 punda styrk, sem
nemur um 195.000 kr. ísi., til að
setja upp listsýningu. Kváðust
hafa notað hann til að bregða sér
í vikuferð til Costa del Sol og
fullyrtu að um væri að ræða hug-
myndalist. Það vakti gífurlega
reiði og stóð til að krefja nemana
um endurgreiðslu. í Ijós hefur
komið að allt var þetta gabb.
Nemendurnir, sem eru á þriðja
ári í listadeild háskólans, sögðu
ferðina hafa verið „ögrun við við-
teknar hugmyndir fólks um Iist“
og að henni hafi verið ætlað að
vekja umræður um hvort einhver
takmörk væru fyrir því hvað
teldist vera list.
Nemendurnir þrettán héldu
sýningu, sem þeir kölluðu „Á
ferð og flugi“. Urðu gestir á opn-
unarkvöldinu furðu slegnir er
kona í flugfreyjubúningi tók á
móti þeim undir dunandi fla-
mengótónlist en eini hluturinn á
sýningunni var stór skál með
sangría-drykk.
Ekki minnkaði undrun gest-
anna er þeir voru drifnir upp í
rútu og keyrðir á flugvöllinn við
Leeds, þar sem þeir voru teymdir
inn í komusalinn og skildir eftir á
barnum. Skömmu síðar horfðu
gestimir á listaskólanemana
þrettán þramma sólbrúna og sæl-
lega í gegnum tollinn, að því er
virtist eftir velheppnaða sólar-
landaferð. Nemarnir slógust í
hóp opnunargesta, skelltu sér á
barinn og drakk hópurinn fyrir
sem svarar til 220.000 kr. ísl. á
meðan hugtakið list var rætt
fram og aftur.
Nýttu féð vel
Uppátækið vakti hins vegar
litla kátínu nemendafélagsins við
háskólann, sem veitti stærsta
styrkinn til sýningarinnar og
stóð til að krefja nemanna um
endurgreiðslu. Talsmanni
háskólans fannst hins vegar
nokkuð til koma, sérstaklega í
ljósi þess hve vel nemendurnir
hefðu nýtt féð.