Morgunblaðið - 21.05.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt sveitarfélag
í Eyjafírði
Kosið milli
sjö nafna á
laugardag
FRETTIR
Hlutur Sölumiðstöðvarinn-
ar var boðinn Parlevliet
STJÓRN Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
samþykkti í dag að heimila Utgerðarfélagi Ak-
ureyringa að bjóða hollenska fyrirtækinu Par-
levliet & van der Plas B.V. til sölu 7% hlut sinn í
Mecklenburger Hochseefíscherei. Aður hafði
ÚA samþykkt að selja fyrirtækinu allan sinn
hluta, 68%, í Mecklenburger Hochseefischerei.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, segir að Sölu-
miðstöðin hafi komið að því með ÚA á sínum
tíma þegar Mecklenburger Hochseefischerei
var keypt. Rekstur fyrirtækisins hafi fljótlega
farið að ganga illa og ÚA óskaði eftir því stuttu
síðar að SH keypti 7% af félaginu, sem fyrir-
tækið gerði. ÚA hefur verið langstærsti eigand-
inn í félaginu og SH annast sölu á afurðunum.
ÚA leitaði eftir því við SH að hafa þeirra bréf
í Mecklenburger Hochseefischerei með til sölu
þegar ljóst var að Parlevliet vildi ekki kaupa
hlut ÚA nema fyrirtækið ætti kost á því að eign-
ast einnig hlut SH.
„Þegar málið var komið á lokastig þurfti ÚA
formlega á því að halda að við staðfestum að
þeir mættu bjóða bréfin okkar til sölu og
stjórnin hefur núna fallist á það,“ segir
Friðrik.
Hann segir að sala fyrir Meeklenburger
Hochseefischerei hafi skipt SH máli. „Við mun-
um að sjálfsögðu vinna að því að bæta okkur
það upp með öllum tiltækum ráðum. En þetta
er ekkert högg á fyrirtækið," sagði Friðrik.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja hf., segir að ástæða þess að tilboði Sam-
herja í bréf ÚA í Mecklenburger var hafnað sé
sú að Reykjavíkurvaldið í stjórn ÚA vildi hrein-
lega ekki fá Samherja inn. Fyrir okkur er þetta
tjón fyrir íslenska útgerð og að sjálfsögðu tjón
fyrir Samherja. Þama er Reykjavíkurvaldið að
skaða Akureyringa og virðir ekki eign Akureyr-
inga í félaginu. Með því að selja Samherja hlut-
inn í MHF hefði verið hægt að tryggja hags-
muni ÚA jafnvel og hagsmunir Akureyringa
hefðu verið meiri“, segir Þorsteinn Már. I sam-
tali hans við blaðamann kom fram að ÚA og
Samherji hefðu verið í sambandi vegna málsins
síðan í febrúar og hefði upphaf þreifinganna
verið það að ÚA falaðist eftir kaupum á hlut
Samherja í þýska sjávarútvegsfyrirtækinu
Deutsche Fischifang.
Morgunblaðið/Kristinn
Skattrannsóknasljdri hefur skilað skýrslu um mál Hrannars B. Arnarssonar
Er nú til með-
ferðar hjá ríkis-
skattsljóra
Vatnsleik-
fimi í laug-
unum
SUNDSPRETTUR er alltaf
hressandi og víst er að sundið er
holl og góð hreyfing. Ekki spillir
heldur fyrir að í vatni eru allar
hreyfingar auðveldari en á þurru
og því tilvalið að nota tækifærið
og taka nokkrar laufléttar vatns-
leikfimiæfingar eins og hann
gerði í dag, sundmaðurinn sem
hér sést í iljarnar á.
Skoðanakönnun
Stöðvar 2
Dregur
saman með
fylkingum
REYKJAVÍKURLISTINN hefur
töluvert forskot á Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjavík en nokkuð
hefur dregið saman með fylking-
unum á síðustu dögum og
óákveðnum fjölgar. Þetta kom
fram í skoðanakönnun sem
Markaðssamskipti gerðu fyrir
Stöð 2 og sagt var frá í fréttum
stöðvarinnar í gærkvöld.
Af þeim sem afstöðu tóku
sögðust liðlega 42% myndu kjósa
D-listann en það er 2,6% fylgis-
aukning frá könnun sem gerð var
tæpri viku fyrr. 56,4% sögðust
myndu kjósa R-listann en það er
3% minna fylgi en í fyrri könnun.
H-lista húmanista sagðist 1,1% að-
spurðra kjósa og L-lista Launa-
listans 0,2%.
Stærsta breytingin frá fyrri
könnun Markaðssamskipta er á
fjölda óákveðinna en hlutfall
þeirra hækkar úr 14% í 20%.
Úrtakið var 1.200 íbúar Reykja-
víkur, sem hringt var í á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld. Svör
fengust frá ríflega 70% úrtaksins.
HRANNAR B. Amarsson, 3. mað-
ur á framboðslista Reykjavíkurlist-
ans, hefur fengið í hendur úttekt
skattrannsóknastjóra ríkisins á
skattamálum sínum og er framhald
þeirra mála nú til ákvörðunar hjá
rfldsskattstjóra, að sögn Hrannars.
Hjá ríkisskattstjóra fengust eng-
ar upplýsingar um málið og með-
ferð þess. Aðspurður hvort hann
vissi hvenær ákvörðun mundi liggja
fyrir sagði Hrannar að hann hefði
margsinnis rekið á eftir rannsókn-
inni en það sé ekkert ljóst um
hvenær afgreiðslan liggi fyrir.
Hann vildi ekki fjalla um efni
skýrslu skattrannsóknastjóra og
hver niðurstaða hennar væri en
kvaðst alls ekki kvíða því að niður-
staða málsins yrði sér óhagstæð.
Fyrrverandi starfsmaður í
verktöku við símsölu á vegum
Hrannars hefur lýst því yfir í
fjölmiðlum undanfama daga að
skattyfirvöld séu nú að innheimta
hjá henni skatta frá árinu 1994, þar
á meðal virðisaukaskatt sem hún
hafi ekki innheimt af launa-
greiðandanum. Starfsmaðurinn gaf
ekkert af launum sínum frá fyrir-
tæki Hrannars upp til skatts.
Virðisaukaskattur
mál verktaka
Morgunblaðið spurði Hrannar
hvort hann hefði fengið í sitt bók-
EKKI verður hægt að hafa nafnið •
Dalvíkurbær með í kosningum
um nafn á nýtt sveitarfélag sem
til verður í framhaldi sameiningar
Dalvíkur, Árskógshrepps og
Svarfaðardalshrepps. Er það álit
félagsmálaráðuneytisins að nafn
sem hefur verið í notkun áður
komi ekki til greina í þessum efn-
um.
Kristján Ólafsson, formaður
sameiningarnefndar sveitarfélag-
anna, segir að nafnið Dalvíkur-
bær hafi verið notað á bréfsefn-
um, innheimtuseðlum og fleiru
allt frá árinu 1974 og þyki það því
ekki koma til greina. Hefur
nefndin í framhaldi af þessu
ákveðið að leggja fram lista yfir
sjö nöfn sem kjósa má milli
í sveitarstjórnarkosningunum j
næstkomandi laugardag. Nöfnin I
eru: Árdalsvík, Víkurbyggð,
Eyjafjarðarbær, Norðurslóð, Vík-
urströnd, Norðurbyggð og Valla-
byggð.
Sveitarstjórnirnar þrjár fólu
sameiningarnefndinni 4. mars sl.
að láta kjósa um nýtt nafn fyrir
hið sameinaða sveitarfélag jafn-
hliða sveitarstjórnarkosningun-
um. Nefndin setti fram hugmynd-
ir að nöfnum sem bæjarstjórn
Dalvíkur breytti síðan. Félags-
málaráðuneytið hefur úrskurðað
að sameiningarnefndin hafi fullt
umboð til að ganga frá nafnamál-
inu þar sem umboð sveitarstjórn-
anna til handa nefndinni hefur
ekki verið afturkallað. Rristján
kvaðst vona að einhver þessara
sjö nafna yrðu ofan á og jafn-
framt að þetta yrði ekki aðalmálið
í hinu nýja sveitarfélagi, að menn
hefðu einnig um önnur mál að
hugsa.
I hugmyndasamkeppni á nafn
fyrir sveitarfélagið sameinaða í
febrúar síðastliðnum völdu flestir
nöfnin Dalvík og Dalvíkurbær.
hald reikninga frá þessum verk-
taka með sundurgreindum virðis-
aukaskatti en hann sagði að svo
hefði ekki verið. „Hefði hún ætlað
að innheimta virðisaukaskatt þá
hefði hún átt að skila mér lögleg-
um reikningum með virðisauka-
skatti en það gerði hún ekki.
Skattyfirvöld vissu það.“
- Bar þér ekki að gæta þess að
hún innheimti virðisaukaskatt?
„Nei, það er á hennar ábyrgð
hvernig hún innheimtir sínar tekj-
ur. Verktakar hafa leyfi til að inn-
heimta virðisaukaskattslausar
tekjur upp að ákveðnu marki. Það
hlýtur að vera þeirra að fylgjast
með fjárhæðunum í því sam-
bandi,“ sagði Hrannar B. Arnars-
son.
Sérblöð í dag
m
8SÍMIR }4S^m
VIDSKBPn/AIVlNNUlÍF!
Lyfjaverslun
Keðjur herja
á apótekin
Fyrirtæki
Zoom í
þrívídd
Real Madrid Evrópu-
meistari meistaraliða/B2
ÁSAMT: KOSNINGAHANDBÓK OG AÐSENDAR GREINAR/KOSNINGAR
Boitinn
á Netinu
www.mbl.is