Morgunblaðið - 26.05.1998, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Viðræður um myndun nýs meirihluta á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
ÁSGEIR Magnússon og Oktavía Jóhannesdóttir
af Akureyrarlista og Kristján Þór Júlíusson og
Sigurður J. Sigurðsson Sjálfstæðisflokki könn-
uðu smurbrauðstertubirgðirnar á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins þar sem viðræðurnar fóru
fram í gær, en fundurinn var langur og þó
nokkuð verk eftir og því eins gott að hafa eitt-
hvað til að næra sig á.
Sjálfstæðisflokkur og
Akureyrarlisti ræða málin
VIÐRÆÐUR stóðu í allan gærdag
milli fulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Akureyrarlista um myndun nýs
meirihluta í bæjarstjórn Akureyr-
ar. Fulltrúamir hittust fyrst á
sunnudag og ræddu saman og
langur fundur var í gær. Krislján
Þór Júlíusson og Sigurður J. Sig-
urðsson eru fúlltrúar Sjálfstæðis-
flokks í viðræðunum og þau Ás-
geir Magnússon og Oktavía
Jóhannsdóttir em fulltrúar Akur-
eyrarlistans.
„Það er góður gangur í
viðræðunum og við höfum ekki
strandað á neinu enn,“ sagði
Krislján Þór, en fulltrúarnir
kváðust ætla að gefa sér góðan
tíma til að fara yfir málin. „Við
ætlum að vanda okkur við þetta,
en ég geri ráð fyrir að við ljúkum
við gerð málefnasamnings þegar
líður á vikuna," sagði Kristján
Þór.
Er nokkur
hagur að blóta?
SÉRA Friðrik Friðriksson gaf
árið 1902 út smárit, sem hann
kallaði „Er nokkur hagur að
blóta?“ Texti þess fer hér á eftir.
„Eigi saurgar það manninn,
sem inn fer í munninn, heldur
það, sem út fer af munninum, það
saurgar manninn." Matt. 15.11.
Þegar ég heyri einhvern blóta
og ragna eins og hann ætli öllu
að sökkva, dettur mér oft í hug:
„Hvaða hag skyldi hann sjá sér í
þessu?“ Ég hefi velt þessu
spursmáli fyrir mér á ýmsar hlið-
ar, en ekki getað séð eða skilið,
að menn hefðu nokkurt gagn af
blótsyrðum sínum. Ég hefi reynt
að skoða það frá ýmsum hliðum,
þar á meðal þessum:
Er nokkur hagur í því
a) í Guðs augum? Nei. í Guðs
augum er það synd og and-
styggð. Hann hefir sagt: „Fyrir
hvert illyrði, sem mennirnir
mæla, skulu þeir á dómsdegi
reikningsskap lúka!“
b) En í augum trúaðra manna?
Nei, í þeirra augum er þetta
svívirðilegt hneyksli.
c) En þá í augum siðaðra
manna? Nei. Þótt þeir séu van-
trúaðir, álíta þeir blót argasta
dónaskap og merki upp á sið-
leysi.
d) Fegrar það málið? Nei, fjarri
fer því.
e) Gjörir það málið kröftugra?
Nei, því að það eru meiningar-
lausir hortittir. Það er haft án til-
lits til efnis og innihalds útí
bláinn. Margir brúka það, hvern-
ig sem á stendur við ljótt eða fal-
legt, illt og gott. Ef þeir í leik
missa marks, bölva þeir, ef þeir
eru svo heppnir að ná marki,
bölva þeir líka. Ef þeir tapa slag í
spilum, bölva þeir og eins ef þeir
vinna. Ef þeir draga fisk úr sjó,
bölva þeir af gleði; ef þeir ekkert
fá, hafa þeir sömu orðin í bræði.
- Það er því aðeins þvaður út í
bláinn. -
Eftir beztu umhugsun hefi ég
þannig komizt að raun um hvað
blót er:
Synd og viðurstyggð fyrir
Guði, hneyksli trúuðum mönnum,
siðleysi í augum siðaðra manna,
lýti og hortittir í málinu og mein-
ingarlaust þvaður og
sjálfsmótsögn eftir innihaldinu.
Hvað er svo unnið við það? Ef
einhverjir af þeim, sem hafa
fengið mikla æfingu og þar af
leiðandi reynslu í þessari fögru
(!!) list, vilja gjöra svo vel að
sannfæra mig með gildum rökum
í hveiju tilliti hagur sé að blóta,
mun ég vera þeim mjög þakklát-
ur fyrir, því að ég get ekki séð
hvar hann er fólginn.
Fr. Fr.
Framkvæmdir við
Borgarbraut
Samið við
Arnarfell
VEGAGERÐIN og Akureyrar-
bær skrifuðu í gær undir samn-
ing við fyrirtækið Arnarfell ehf.
á Akureyri um framkvæmdir
við Hlíðarfjallsveg um Borgar-
braut. Arnarfell átti lægsta til-
boð í verkið og hljóðaði upp á
rúmar 125 milljónir króna en
kostnaðaráætlun verkkaupa
var upp á rúmar 165 milljónir
króna.
Alls bárust fimm tilboð í
verkið, sem er það stærsta sem
boðið verður út á Norðurlandi á
árinu. Stefnt er að því að fram-
kvæmdir hefjist í byrjun næsta
mánaðar og verði lokið 1. ágúst
á næsta ári.
I verkinu fellst m.a. lagning
1,5 km vegarkafla milli Gler-
árgötu og Hlíðarbrautar, ásamt
undirgöngum undir Borgar-
braut, brúm á Glerá og rof-
vömum.
Rúður
brotnar í
biðskýlum
RUÐUR voru brotnar í þremur
biðskýlum Strætisvagna Akur-
eyrar um helgina, einu við
Skarðshlíð við Hvítasunnu-
kirkjuna og tveimur við Þing-
vallastræti. Talsvert þarf til að
brjóta rúðumar og við það
myndast mikill hvellur. Rúð-
umar em mjög dýrar og biður
lögregla þá sem einhverjar
upplýsingar geta gefið að láta
sig vita.
AKSJON
Þriðjudagur 26. maí
21.00Þ Annáll MA Kvik-
myndagerðarmenn Mennta-
skólans á Akureyri hafa
tekið saman syrpu frá
félagsstarfmu í vetur.
Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 141 nemanda á laugardag
Fyrstu fjarnáms-
nemarnir luku
stúdentsprófí
TVEIR nemendur luku
stúdentsprófi frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri með fjamámi og
eru þetta fyrstu stúdentarnir sem
brautskrást frá skólanum með
þeim hætti. Alls vora brautskráðir
við hátíðlega athöfn í íþróttahöll-
inni síðastliðinn laugardag 141
nemandi, 94 stúdentar og 47
iðnnemar.
Flestir stúdentanna voru af heil-
brigðissviði, 27, 15 af hússtjórnar-
sviði, 20 af uppeldissviði, 14 af við-
skiptasviði, 5 af tæknibraut, 11 úr
öldungadeild og 2 úr fjarnámi,
annar frá Bolungarvík og hinn úr
Reykjavík.
Þá voru útskrifaðir trésmiðir,
vélsmiðir, fjórða stigs vélstjórar,
fólk með meistararéttindi í ýmsum
iðngreinum, stálskipasmiður, stál-
virkjasmiður, rennismiður, vél-
virki, sjúkraliði og úr sérdeild.
Um 1.100 nemendur voru skráð-
ir í dagskóla á Akureyiá og Dalvík
á liðnu skólaári sem er nánast
sami fjöldi og var árið áður, en í
öldungadeild voru í upphafi
skólaárs skráðir 143 nemendur og
fækkaði þeim reyndar nokkuð um
annaskipti.
Dreift bakland
Nemendum í fjarnámi hefur
fjölgað mikið en þeir vora 254 á
síðustu haustönn. Fram kom í máli
Bernharðs Haraldssonar skóla-
meistara að fjárhagur leyfði ekki
sama fjölda á vorönn, þeir voru um
200 og þurfti að synja um 100
manns um skólavist. „Þetta era
dapurleg tíðindi og kannski örlag-
aríkari en okkur granar.
Fjarnámsnemendur eru dreifðir
um heiminn, langflestir hér á landi
en þeir eru í Rússlandi, Norður-
löndunum, Vesturheimi og allt
suður í Namibíu og austur á
Tælandi. Þetta er hópur fólks sem
með aðstoð nýjustu tækni vinnur
bug á landafræði- og félagslegum
forsendum, fólk, sem kannski á
ekki heimangengt vegna fjarlægð-
ar eða vinnu, bændur komast ekki
frá búi, sjómenn verða að róa.
Verkmenntaskólinn á Akureyri er,
það best ég veit, eini framhalds-
skólinn sem hefur svo dreift bak-
land, ef orða má það svo,“ sagði
Bernharð.
Fyrstu hjónin
útskrifuð
Fyrstu hjónin voru útskrifuð frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri,
Jóhanna Hansen af félagsfræði-
braut og Kristján Hálfdánsson af
hagfræðibraut. „Þetta var mjög
góður tími og hefur gefið manni
mikið,“ sagði Kristján og bætti við
að framhaldið væri óljóst hjá þeim
báðum, en þessi áfangi myndi
verða þeim báðum mikil hvatning.
Kristján stundaði nám við öld-
ungadeild skólans, en Jóhanna var
af og til í fjarnámi og síðustu önn-
ina stundaði hún námið eingöngu í
fjarkennslu.
Morgunblaðið/Kristján
ALLS voru um 140 neinendur brautskráðir frá VMA um helgina, 94 með stúdentspróf
og 47 iðnnemar í ýmsum greinum. Hér má sjá fríðan flokk nýstúdenta.
HJÓNIN Jóhanna Hansen og Kristján Hálfdánsson
ánægð með áfangann.