Morgunblaðið - 26.05.1998, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
A
KÓPAVOGSBÆR
Laus störf
í Kópavogsskóla
Við Kópavogsskóla eru eftirtalin störf laustil
umsóknar:
1. Þrjú störf almennra bekkjarkennara.
2. Starf sérkennara.
3. Starf skólaritara.
4. Starf ræstis.
Umsóknarfrestur er til 12. júní nk.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 0475.
Starfsmannastjóri.
Matreiðslumaður
Matreiðslumeistari óskast á veitingahúsið
Bing Dao á Akureyri.
Upplýsingar í síma 461 1617.
Húsvörður
Húsfélag í austurborginni
óskar eftir að ráða húsvörð. Viðkomandi þarf
að vera ábyggilegur, snyrtilegur og handlag-
inn. Starfið felst m.a. í að hafa umsjón með
allri sameign og sjá um þrif hennar ásamt
minni háttar viðhaldi. Starfinu fylgir 2ja herb.
íbúð. Umsóknirsendist afgreiðslu Mbl. fyrir
1. júní merktar: „Húsvörður — 4781".
Seljalandsskóli
Vestur-Eyjafjallahreppur
Skólastjóri óskast í forföllum næsta vetur.
Einnig vantar kennara til starfa. Húsnæði á
staðnum. Upplýsingar hjá formanni skóla-
nefndar, sími 487 8912 eða oddvita, sími
487 8900.
Laus skólastjórastaða
Við Grunnskólann á Eiðum er laus til umsóknar
staða skólastjóra frá og með 1. ágúst nk. með
umsóknarfresti til 5. júní 1998.
Nánari upplýsingar veitirformaður skólanefnd-
ar, Sigurbjörn Snæþórsson, í síma 471 3835.
Skólanefnd.
Afgreiðslustarf
Kvenverslun í Kringlunni óskar að ráða starfs-
kraft á aldrinum 30—55 ára.
Vinnutími 13.00—18.00. Framtíðarstarf.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf og þess
háttar sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 29. maí
merkt: „Framtíð — 4771"
„Au pair" í Sviss
íslensk-svissneskfjölskylda í Genf óskareftir
stúlku frá 15. ágústtil að gæta tveggja barna,
1 og 3ja ára hluta úr degi og til aðstoðar við
heimilisstörf. Á heimilinu er töluð íslenska og
franska. Upplýsingar í síma 553 4507.
A U G L V S I IM
TILBQÐ/ÚTBOÐ
M KÓPAVOGSBÆR
Útboðá
skólpdælustöðvum
Kópavogsbær óskareftirtilboðum í byggingu
tveggja skólpdælustöðva, annars vegar við
Hafnarbraut og hins vegar við Sunnubraut í
Kópavogi.
Verktaki skal sjá um jarðvinnu, uppsteypu, nið-
ursetningu á dælum og fullnaðarfrágang á
stöðvunum og skila þeim tilbúnum til gang-
setningar.
Dælustöð við Hafnarbraut er um 140 m2 að
grunnfleti og dælustöð við Sunnubraut er um
90 m2 að grunnfleti.
Verklok: Skolpdælustöð við Hafnarbraut skal
lokið 1. mars 1999.
Skolpdælustöð við Sunnubraut skal lokið 1.
mars 1999.
Heimilt er að bjóða í annað verkið eða bæði.
Útboðsgögn verða afhent á Tæknideild Kópa-
vogs, Fannborg 2, 3. hæð, gegn 10.000 kr.
skilatryggingu frá og með þriðjudeginum 26.
maí 1998.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 10. júní 1998 kl. 11.00.
Tæknideild Kópavogs.
Sandgerðisbær
Hafnargata
Sandgerðisbær óskar hér með eftirtilboðum
í safnræsi og gatnagerð í Sandgerði.
Helstu magntölur eru:
Safnræsi 0400 — 0800 500 m
Götulagnir 0150 — 0300 330 m
Fyllingar 20.000 m3
Vatnslagnir 460 m
Brunnar 7stk.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Sand-
gerðisbæjar, Tjarnargötu 4, Sandgerði, og hjá
VSÓ ráðgjöf, Borgartúni 20,105 Reykjavík,
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Sandgerðis-
bæjar þriðjudaginn 9. júní kl. 14.00
Verklok eru 20. nóvember 1998.
< Bæjarstjórinn í Sandgerðisbæ.
Safnræsi —
Útboð
KÓPAVOGSBÆR
Útboð
Kælivélasamstæða
Kópavogsbær óskar hér með eftir tilboði
í kælivélasamstæðu og annan búnað auk
stjómkerfis í nýbyggingu Verknámshúss
Menntaskólans í Kópavogi. Kælimiðstöð
verður í útbyggingu við húsið.
Kælikerfið er frostlagarkerfi sem hringdælt er
um húsið að kælum. Verkið felur í sér að full-
gera kælimiðstöð með nauðsynlegum búnaði
og stjórnkerfi sem samtengist núverandi
stjórnkerfi kæla. Kæliklefar, lagnir og annar
búnaður inni í húsinu er þegar kominn og upp
og tengdur við lagankerfi fyrir frostlög.
Helstu þættir:
Kælipressur: Heildarafköst um 100 kW. Miðað
við 2 stk. x tveggja þrepa kælivélar.
Frostlagarkældur þéttir með hraðastýranlegri
eimsvaladælu.
Loftkældur þéttir fyrir frostlög.
Millikælir og 2 stk. hringrásardælur á frostlaga-
kerfi hússins.
Millihitari, mótorlokar og annar búnaður fyrir
afhrímingu.
Stjórnkerfi og annan búnað sem þarf til að
skila fullbúnu og starfhæfu kerfi.
Framkvæmdir skulu hefjast sem fyrst.
Verklok: 20. ágúst 1998.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofunni
Hamraborg, Hamraborg 10, Kópavogi, 3. hæð,
gegn 1.000 kr. skilatryggiingu, frá og með
þriðjudeginum 8. apríl.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofunni
Hamraborg 10,3. hæð, þriðjudaginn 8. júní
1998 kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Verkfræðistofan Hamraborg
Hamraborg 10 , 200 Kópavogur
Sími: 554 2200. Fax: 564 2277
TÆKNIDEILD SELFOSS
Útboð
Selfossbær óskar eftir tilboðum í girðingu um
lóð við leikskólann Álfheima, Selfossi.
Girðingin er timburgirðing á járnstólpum, sem
eru steyptir niður. Lengd girðingar er 186 m.
Verktími er 8. júní til 10. júlí 1998.
Útboðsgögn verða afhent í Ráðhúsi Selfoss
að Austurvegi 2, frá kl. 13.00 mánudaginn 25.
maí 1998. Tilboð verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 2. júní 1998, kl. 11.00.
Bæjartæknifræðingur
Útboð
Raufarhafnarhreppur
óskar eftirtilboðum í jarðvegsskipti vegna
gatnagerðar.
Um er að ræða uppgröft úr götum sem svarar
2.740 m3 og fyllingu og fínjöfnun undir lagn-
ingu bundins slitlags sem svarar 2.300 m3.
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 15. júlí.
Útboðsgögn verða afhent gegn 3000,- kr. skila-
tryggingu frá og með þriðjudeginum 2. maí
á skrifstofu Raufarhafnarhepps.
Tilboð verða opnuð á sama stað 4. júní nk.
Sveitarstjórinn á Raufarhöfn.
FUIMOIR/ MAIMNFAGNAÐUR
MENNTAFÉLAG BYGGINGARICNAÐARINS
Aðalfundur
Menntafélags byggingariðnaðarins
verður haldinn á Hallveigarstíg 1 þriðju-
daginn 26. maí nk. kl. 17.00.
Til aðalfundar eru boðuð öll félög og fyrirtæki,
sem eru aðilar að Menntafélagi byggingariðn-
aðarins. í lögum MB segir m.a.: „Aðalfundur
er lögmætur ef löglega hefur verið til hans
boðað, án tillits til fundarsóknar. Aðalfundur
hefur æðsta vald í málefnum Menntafélags
byggingariðnaðarins."
Á aðalfundi verða þessir dagskrárliðir:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Gjaldkeri leggurfram til samþykktar endur-
skoðaða ársreikninga.
3. Tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir
næsta starfsár.
4. Framkvæmdastjóri leggurfram fram-
kvæmdaáætlun næsta starfsárs.
5. Lagabreytingar enda séu þær kynntar í fund-
arboði.
6. Tilnefningar til stjórnar.
7. Kjörinn löggiltur endurskoðandi.
8. Önnur mál.
• Kjarnaskóli bygginga og mannvirkjagreina.
• Starfsgreinaráð.
Stjórnin.
Aðalfundur
Dómkirkjusafnaðarins
verður haldinn í safnaðarheimili Dómkirkjunn-
ar, Lækjargötu 14a, miðvikudaginn 27. maí
nk. kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin.
Aðalfundur
Steinsteypufélags íslands
verður haldinn miðvikudaginn 3. júní kl. 17.00
á Hótel Loftleiðum.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.