Morgunblaðið - 13.09.1998, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Efóirmdelc i/m gullftskci
O/ltafah v&zu stutb.
Ég vissi það! Eyrun á þór
kippast ennþá til!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
I sátt og
samlyndi
Frá Jóni Gröndal:
NÁMSGAGNASTOFNUN hefur
í samvinnu við Lionshreyflnguna
gefið út nýtt efni í Lions-Quest.
Aður hefur komið út efnið Að ná
tökum á tilverunni sem notað hef-
ur verið í fjölmörgum grunnskól-
um undanfarin ár. Nýja efnið
heitir í sátt og samlyndi og er
ætlað 14-15 ára unglingum (8.-9.
bekk).
Markmið
Námsefnið hefur það að mark-
miði að kenna unglingum góð
samskipti, að þekkja eigin tilfínn-
ingar og að leysa ágreining án of-
beldis.
Námsefnið er þýtt úr ensku.
Sérfræðingar fræðslustofnunar-
innar Quest International sömdu
efnið. Stofnun þessi hefur verið
samstarfsaðili Lionshreyfingarinn-
ar um alllangt skeið. Um íslenska
þýðingu sáu þær Erla Kristjáns-
dóttir og Aldís Yngvadóttir.
Námsefnið f sátt og samlyndi er
enn eitt dæmi um farsælt samstarf
Lionshreyfingarinnar og stjórn-
valda sem hófst með útgáfu á efn-
inu „Að ná tökum á tilverunni" ár-
ið 1990.
Lionshreyfingin lítur á kostun
þýðingar og annan stuðning við
notkun og útgáfu Lions-Quest
námsefnis sem mikilsvert framlag
til aukinna forvama gegn vímu-
efnaneyslu barna og ungmenna í
landinu og veigamikinn stuðning
við menntun í landinu.
Námsefnið „í sátt og samlyndi"
var kennt í tilraunaskyni að hluta í
nokkrum skólum hér veturinn
1997-98.
Þar safnaðist mikilsverð reynsla
og upplýsingar sem nýttust við
lokagerð efnisins.
Forsendur nýja námsefnisins
Með þessu nýja námsefni á að
reyna
að breyta viðhorfum unglinga til
samskipta við aðra,
að auka þekkingu nemenda á að-
ferðum sem fela ekki í sér ofbeldi,
s.s. að hafa stjórn á reiði sinni, að
leysa úr ágreiningi og að komast
að samkomulagi,
að styrkja hegðun sem hjálpar
unglingum við að beita þekkingu
sinni.
Námsefnið er byggt á eftirfar-
andi forsendum sem grundvallast
á niðurstöðum nýrra rannsókna á
vörnum gegn ofbeldi:
Agreiningur er ein af staðreynd-
um lífsins og hluti af öllum sam-
skiptum manna.
Reiði er sterk en eðlileg vanlíð-
an og henni fylgja likamleg við-
brögð.
Reiði getur verið jákvæð og
opnað leiðir til farsælla lausna.
Reiði er sterk tilfinning sem
getur brotist út í ofbeldi ef ekki
eru hafðar hömlur á henni.
Ofbeldi er ekki viðunandi hegð-
un í kjölfar reiði og ágreinings.
Virðing og umburðarlyndi fyi-ir
ólíkum kynþáttum, kynferði, trú-
arbrögðum og annars komar mis-
mun manna í milli eru forsendur
þess að ágreining megi leysa á
friðsamlegan hátt.
Ungt fólk getur lært að hemja
reiði sína og leysa þannig ági'ein-
ing á friðsamlegan hátt, án íhlut-
unar fullorðinna.
Allir verða að meta gildi friðar
og læra aðferðir til að hafa stjórn á
reiði sinni, leysa vandamál og
koma í veg fyrir ofbeldi í lífi sínu.
Arangur af kennslu I sátt og
samlyndi var kannaður í banda-
rísku stórborginni Detroit árið
1996. I ljós kom að nemendur sem
fengust við efnið sýndu mun betri
samskiptahæfni og jákvæðari
hegðun en þeir sem voru til sam-
anburðar og fengust ekki við efnið.
Þá fækkaði tilvikum ofbeldishegð-
unar um 68% hjá þeim nemendum
sem fengust við efnið samanborið
við hina.
Lokaorð
Eins og áður segir er námsefn-
ið gefið út af Námsgagnastofnun
með styrkjum frá Lionshreyfing-
unni og er tilbúið til kennslu.
Efnið samanstendur aðallega af
kennarahandbók en engin sér-
kennslubók er fyrir nemendur
þannig að efnið er ódýrt fyrir
skóla. Þeim skólum sem áhuga
kynnu að hafa á að taka þetta
námsefni er bent á að snúa sér til
Námsgagnastofnunar og Aldísar
Yngvadóttur þar.
JÓN GRÖNDAL,
kynningarstj óri Lionshreyfingarinnar.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
® •
ww.mbl.is/fasteignir