Morgunblaðið - 22.09.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1998 43
FRETTIR
Lyfjatæknar styðja
gagnagrunnsfrumvarpið
STJÓRN Lyfjatæknafélag íslands
styður frumvarp til laga um mið-
lægan gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði eins og það lítur út, „þó vænt-
anlega megi gera einhverjar
breytingar enn til bóta“, segir í
ályktun stjórnar félagsins.
„Stjórn félagsins telur að frum-
varp, sem leiða á til aukinnar
þekkingar á sviði lyfja- og læknis-
fræði, hljóti að vera til heilla, enda
er það svo að margar helstu fram-
farir á þessu sviði hafa orðið vegna
víðtækrar söfnunar og rannsókna
á upplýsingum," segir í ályktun
stjómarinnar. „Margoft hefur
komið fram að erfðafræðiupplýs-
ingar þær sem við íslendingar bú-
um yfir eru að öllum líkindum ein-
stæðar í veröldinni og eru vísinda-
menn sammála um að þær geti
nýst á ótrúlega margan hátt, sé
þeim skipulega fyrir komið. Þá er
augljóst að frekari rannsóknar-
starfsemi mun leiða til fleiri starfa
í þessum geira og bættra launa-
kjara heilbrigðisstétta."
Síðan segir að þess beri að gæta
sérstaklega að frumvarpið brjóti á
engan hátt í bága við vernd ein-
staklingsins, eins og hún hefur
verið skilgreind í stjórnarskrá og
alþjóðasáttmálum sem Islendingar
eru aðilar að. „Það er ljóst að gæta
ber vandlega að því að slíkar upp-
lýsingar snúist ekki upp í and-
hverfu sínar þannig að þær verði
notaðar á vafasaman hátt,“ segir í
ályktun félagsins. Síðar segir að
segja megi að líklega hafi gæsla
upplýsinga sem þessara mátt vera
betri í gegnum tíðina „og því sé
frumvarp þetta íyrsta ski-efið í
breytingum varðandi geymslu og
meðferð slíkra upplýsinga“.
Morgunblaðið/Golli
Slepptu
svörtum
blöðrum
25 ára afmæli
Mennta-
skólans í
Kópavogi
TUTTUGU og fimm ár eru liðin í
dag, þriðjudaginn 22. september,
síðan Menntaskólinn í Kópavogi
var settur í fyrsta sinn árið 1973. í
tilefni af afmælinu verður jarð-
hæð, lokaáfangi verknámshúss,
tekin í notkun, Kjötiðnaðardeild
skólans formlega opnuð og brauð-
búð sem er gjöf frá Landssam-
bandi bakarameistara, Klúbbi
bakarameistara og Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur, form-
lega afhent skólanum.
í skólanum er boðið upp á átta
brautir til stúdentsprófs: Eðlis-
fræðibraut, ferðabraut, náttúru-
fræðibraut, hagfræðibraut, mála-
braut, tónlistarbraut, félagsfræði-
braut og tölvubraut auk tveggja
anna skrifstofubrautar og fornám.
Boðið er uppá nám til sveinsprófs
og meistararéttinda í bakaraiðn,
framreiðslu, kjötiðn og mat-
reiðslu. Einnig er boðið upp á
matartækninám, matsveinanám
og nám í grunndeild matvæla-
gi'eina.
Auk ferðabrautar í dagskóla er í
boði almennt ferðafræðinám í öld-
ungadeild skólans. Einnig IATA
UFTAA nám sem veitir alþjóðlega
viðurkenningu og leiðsögunám.
Skólameistai'i Menntaskólans í
Kópavogi er Margrét Friðriks-
dóttir.
Mótmæla
niðurskurði
framlags til
tónlistar-
kennslu
AÐALFUNDUR Samtaka tónlist-
arskólastjóra, haldinn að Kirkju-
bæjarklaustri 21.-23. ágúst 1998,
vill vekja athygli á eftirfarandi:
„Haustið 1996 breytti Reykja-
víkurborg svo til fyrirvaralaust
kennslukvóta margi-a tónlistar-
skóla í Reykjavík, skar af sumum
og bætti við kvóta annarra. Mest-
ur var niðurskurðurinn á kvóta
þeirra skóla sem kenna hvað mest
á efstu stigum tónlistarnáms og
kom rekstri þeirra í mikinn vanda.
Síðan þá hafa Samtök tónlistar-
skóla í Reykjavík átt fjölmarga
fundi með fræðsluyfirvöldum
Reykjavíkurborgar um þetta
vandamál án þess að niðurstaða til
úrlausnar hafi fengist. Nú þegar
Reykjavík blasir við sem menn-
ingarborg Evrópu árið 2000; þykir
Samtökum tónlistarskóla á Islandi
það skjóta skökku við að launa
tónlistarskólum borgarinnar, bak-
hjarli hins blómlega tónlistarlífs,
með því að skerða starfsmögu-
leika þeirra með þessum hætti.
Enginn vafi leikur á því að hin
mikla gróska í tónlistarlífi Reykja-
víkur á stóran þátt í því að borgin
hlaut útnefningu sem menningar-
borg og er því niðurskurður þessi
í mikilli mótsögn við þá viðurkenn-
ingu og hrópandi mótsögn við við-
brögðum annarra menningar-
borga í sömu aðstöðu sem verð-
launuðu tónlistarskóla sína með
myndarlegum framkvæmdum og
frekari stuðningi.
Aðalfundur Samtaka tónlistar-
skólastjóra skorar skorar því á yf-
irvöld Reykjavíkurborgar að end-
urskoða afstöðu sína í þessu máli,
að borgin megi bera nafn með
rentu sem menningarborg árið
2000.“
AMNESTY International stóð
fyrir samstöðufundi á Austur-
velli sl. laugardag til þess að
mótmæla mannréttindabrotum í
Kovosi. Fólk var hvatt til að
klæðast svörtu til að sýna stuðn-
ing. Þá voru fundarmenn með
svartar blöðrur sem sleppt var
að fundinum loknum.
Málþing um
kosningar til
sambandsþings í
Þýskalandi
SKOR þýsku og Norðurlandamála
Háskóla Islands, sagnfræðiskor
Háskóla Islands og Politica, félag
stjórnmálafræðinema við Háskóla
Islands, standa að sameiginlegu
málþingi miðvikudaginn 23. sept-
ember í tilefni væntanlegra kosn-
inga til sambandsþings í Þýska-
landi.
Frummælendur verða dr. Peter
WeiB, lektor í þýsku, Steingrímur
Sigurgeirsson, blaðamaður á
Morgunblaðinu og dr. Valur Ingi-
mundarson, sagnfræðingur.
Málþingið verður haldið í hátíð-
arsal Háskóla Islands og hefst kl.
17.15. Öllum er heimill aðgangur.
Aðalfundur
Sagnfræðinga-
félagsins
AÐALFUNDUR Sagnfræðingafé-
lags íslands verður haldinn þriðju-
dagskvöldið 22. september kl.
20.30 í húsi Sögufélags í Fischer-
sundi.
Á dagskrá fundarins eru venju-
leg aðalfundarstörf en að þeim
loknum mun Ólína Þorvarðardóttii’
þjóðfræðingur flytja erindið
Galdramál á Alþingi á 17. öld.
Ólína er um þessar mundir að
leggja lokahönd á doktorsritgerð
við heimspekideild Háskóla ís-
lands um þrennuöldina á íslandi í
málskjölum og munnmælum.
Fundurinn er öllum opinn.
Fagna mögu-
leikum gagna-
frumvarps
STJÓRN MS-félags íslands hefur
sent frá sér eftirfarandi:
„Stjórn MS félags íslands fagnar
þeim nýju möguleikum sem felast í
gagnagi-unnsfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar til að rannsaka, auka skiln-
ing og leita lækninga á sjúkdómum.
Stjórnin treystir því að stjórnvöld
búi svo um hnúta að almenningur
þurfi ekki að óttast misnotkun upp-
lýsinga.“
■ FIMM félagar í NÁMUNNI,
námsiuannaþjónustu Landsbank-
ans, voru dregnir úr lukkupotti og fá
boðsmiða á gamanleikritið Hellisbú-
inn sem sýnt er í Islensku Óperunni,
en nöfn þeirra sem gerðust námufé-
lagar fyi'ir 15. ágúst sl. fóru sjálf-
krafa í lukkupottinn sem dregið var
úr. Vinningshafar eru eftirfarandi:
Ellert Vilberg Harðarson, Reynimel
31, Stefón Jónsson, Reynimel 72,
Karólina M Vilhjálmsdóttir, Víði-
bergi 9, Kristrún Ýr Auðardóttir,
Sörlaskjóli 44 og Guðrún Dóra Ingv-
arsdóttir, Ei'luhólum 6. Þessir
heppnu NÁMU-félagar geta nálgast
gjafabréf sín á einstaklings- og
markaðssviði Landsbanka Islands,
Austurstræti 11, 4. hæð.
LEIÐRÉTT
Ekki fyrsti fjölorkubíllinn
SAGT var í blaðinu sl. sunnudag að
Toyota Prius væri lyrsti fjölorku-
bíllinn sem kæmi hingað til lands.
Hið rétta er að Brimborg hf. flutti
inn fyrsta fjölorkubílinn, Volvo V70,
sem gengur jafnt fyrir gasi sem
bensíni, sl. sumar.
Byggiðn
í Staksteinum sl. laugardag, 19.
september sl., er tilvitnun í forystu-
grein eftir Magnús Stephensen í
blaðinu Byggiðn, sem Menntafélag
byggingariðnaðarins gefur út. í inn-
gangi að tilvitnun er heiti blaðsins
sagt Bygðin í stað Byggiðn sem rétt
er. Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
Úr dagbók lögreglunnar
Erill en engin
alvarleg mál
18. til 21. september
FÁIR voru á ferli í miðborg
Reykjavíkur framan af föstudags-
kvöldi enda rigndi talsvert. Fátt
var um unglinga undir útivistar-
aldri en þó voru einhverjir færðir
í athvarf og síðan komið til síns
heima. Talið er að um 1.200-1.500
manns hafi verið í miðborginni
þegar flest var og ástandið ágætt.
Nokkur erill var á vaktinni í
miðborginni á laugardagskvöld og
fram eftir nóttu og höfðu lög-
reglumenn í nógu að snúast þótt
handtökur yrðu ekki margar.
Engin alvarleg mál komu upp og
fáir unglingar voru á ferðinni
þarna um nóttina.
Umferðin
Umferðin gekk nokkuð vel um
helgina en þó voru voru 17 teknir
fyrir of hraðan akstur og 12 fyrir
ölvun við akstur.
Síðdegis á föstudag var ekið á
gangandi vegfaranda á Bústaða-
vegi. Maðurinn var fluttur á
slysadeild og var með áverka á
fótlegg. Um svipað leyti hjólaði
þrettán ára bai-n á bifreið á Hr-
ingbraut en varð ekki alvarlega
meint af. Vert er að minna á það
hvað mikillar aðgæslu er þörf á
slíkum umferðargötum.
Síðdegis á laugardag varð
harður árekstur á gatnamótum
Grensásvegar og Sogavegar.
Ökumaður og farþegi úr annarri
bifreiðinni fóru á slysadeild en
voru aðeins með minni háttar
meiðsli.
Síðdegis á sunnudag var dreng-
ur að stíga út úr bifreið á bifreiða-
stæði við Laugarásveg. Um leið
var annarri bifreið ekið aftur á
bak og á þá fyrrnefndu svo að
drengurinn klemmdist á milli
hurðar og dyrastafs. Hann var
fluttur á slysadeild en er ekki tal-
inn mikið slasaður.
Innbrot og þjófnaðir
Síðdegis á föstudag var tilkynnt
um innbrot í íbúð á Hrísateig.
Stolið var hátalara, magnara, og
fleiru verðmæti. Um svipað leyti
var tilkynnt um innbrot í íbúð í
Kríuhólum. Þar var stolið nokkru
af peningum.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í íbúð í Ljár-
skógum. Þar var stolið mynd-
bandstæki, skartgripum og fleiru.
Um hádegi á laugardag voru tveir
menn handteknir fyrir að nota
númer af stolnu gi'eiðslukorti. í
ljós kom að kortið var úr innbroti
og höfnuðu mennirnir í fanga-
geymslu enda þurfti að kanna
fleiri grunsemdir á hendur þeim.
Eftir hádegi á laugardag var til-
kynnt um innbrot í Torfufelli, þar
var stolið myndavél og fleiru.
Nokki’u síðar kom maður heim til
sín í Kríuhólum og reyndist þá
óboðinn gestur í íbúðinni. Sá slapp
án þess að hafa stolið neinu.
Á laugardagskvöld kom í ljós að
farið hafði verið inn í kjallaraher-
bergi í Eskihlíð og stolið verð-
mætri tölvu.
Slagsmál og árásir
Á föstudagskvöld var óskað að-
stoðar á veitingastað á Grensás-
vegi vegna slagsmála. Þeir sem
slógust neituðu að hlýða fyrirmæl-
um lögreglu og voru handteknir.
Um klukkan hálfþrjú aðfaranótt
laugardags var maður handtekinn
í Lækjargötu fyrir líkamsárás. Á
manninum fundust ætluð fíkni-
efni. Stuttu síðar var maður flutt-
ur úr Hafnarstræti á slysadeild.
Hann var skorinn í andliti eftir
árás, nokkuð blóðugur og hafði
glatað farsíma sínum. Ái’ásarmað-
ur fannst ekki.
Nokkru eftir þetta tróð ölvaður
maður sér inn um afturglugga bif-
reiðar i miðborginni og þreif í
ökumanninn. Farþegar í bifreið-
inni drógu manninn út úr henni en
lentu þá í átökum við aðvífandi
vegfarendur sem héldu að verið
væri að ráðast á fótgangandi.
Lögi’eglan skarst í leikinn en þá
snerist sá ölvaði gegn lögreglunni.
Hann var handtekinn.
Á laugardagskvöld voru fjórir
menn við drykkju í húsi í austur-
borginni. Þeim sinnaðist og var
tekinn fram hnífur. Betur fór þó
en á horfðist og urðu meiðsli ekki
önnur en skurðir á fingi’um.
Aðfaranótt sunnudags var ráð-
ist á mann í Austurstræti og
meiddist hann í andliti. Hann vildi
þó enga aðstoð frá lögi’eglu eða
nein afskipti hennar af málinu.
Um tvöleytið um nóttina fór
maður upp í bíl hjá tveimur hon-
um ókunnugum mönnum í mið-
borginni. Ökuferð þeirra endaði
með því að maðurinn var sleginn í
andlit en síðan hurfu árásannenn-
irnir á brott. Um sama leyti var
maður sleginn í andlit með bjór-
könnu á veitingastað í miðborg-
inni. Hann skarst á augabrún. Um
kl. hálf fjögur voru þrjár konur
staddar í biðröð í Hafnarstræti.
Þeim sinnaðist svo mikið að lög-
reglan varð að skakka leikinn en
enginn var handtekin. Ekki er vit-
að hvort konurnar voru áfram í
biðröðinni.
Annað
Á föstudagskvöld var skotið á
dreng af loftbyssu og hlaut hann
meiðsli á baki. Gerendur voru
drengir, þeir náðust og lagt hald á
byssurnar. Svona byssur geta ver-
ið stórhættulegar í höndum þeirra
sem ekki kunna með þær að fara
og ástæða til að brýna fyrir öllum
að hafa ekki svona vopn á glám-
bekk. Síðdegis á laugardag var
maður handtekinn fyrir að stinga
á hjólbarða bifreiðar. Honum var
sleppt að rannsókn lokinni.
Á laugardagskvöld urðu
skemmdir í íbúð við Eggertsgötu
af völdum heitavatnsleka. Sem
betur fer voru engir innanstokks-
munir í íbúðinni. Eftir miðnætti
aðfaranótt sunnudags ætluðu lög-
reglumenn að ræða við mann sem
kastaði af sér vatni á Laugavegi.
Maðurinn brást illa við, réðst á
lögreglumennina og varð að hand-
taka hann, sem ekki hafði staðið
til í upphafi. Um kl. þrjú aðfara-
nótt sunnudags henti kona sér í
sjóinn við Faxagarð. Henni var
fljótlega náð úr sjónum og hún
flutt á slysadeild með sjúkrabif-
reið.