Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 6

Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 6
6 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Þjóðverjar kjósa í dag um hver eigi að stjórna landi þeirra inn í 21. öldina „Hin uýj a miðja“ eða áframhald Kohl-tímabilsins í dag ræðst hvort kynslóðaskipti verða í stjórn Þýzkalands. Sextíu milljónir þýzkra kjósenda ganga að kjörborðinu og kveða upp sinn dóm um það, hvort Helmut Kohl fái umboð til að halda áfram fímmta kjör- tímabilið í röð eða hvort Gerhard Schröder verði þriðji jafnaðarmaðurinn til að setjast í kanzlarastólinn frá þvi Sambandslýð- veldið var stofnað 1949. Auðunn Arnórsson lýsir því hér hvað einkenndi kosningabar- áttuna fyrir þessar hugsanlega sögulegu kosningar og nokkrum ályktunum sem hægt er að draga af henni. XC^kr hApLf Reuters KONA gengur framhjá kosningaspjöldum með myndum af Gerhard Schröder, kanslaraefni þýskra jafnaðarmanna, og Helmut Kohl, kanslara Þýskalands. ÓTT skoðanakannanir séu gallagripir og þeir sem gera slíkar kannanir í Þýzkalandi hafi orðið að viðurkenna að hafa misreiknað sig er þeir spáðu um úrslit í nokkrum síðustu kosningum til héraðsþinga í landinu - öllum kom t.d. á óvart hve mikið fylgi hægriöfgamenn fengu í austur-þýzka sambands- landinu Sachsen-Anhalt fyrir nokkrum mánuðum - þá er óhætt að draga eina ályktun af niðurstöð- un nýjustu skoðanakannananna fyrir Sambandsþingkosningarnar sem fara fram í dag. Hlutfall óákveðinna var síðustu dagana fyrir kosningamar hærra en nokkru sinni hefur áður mælzt svo skömmu áður en á hólminn skal gengið. Niðurstöðumar voru að vísu nokkuð mismunandi eftir stofnunum, en í stórum dráttum má segja að tæplega fjórðungur aðspurðra teldi sig myndu styðja Kristilega demókrata (CDU), flokk Helmuts Kohls kanzlara, rámlega fjórðungur Jafnaðarmannaflokkinn (SPD) með Gerhard Schröder í broddi fylkingar, þriðji fjórðungur- inn dreifðist á alla aðra flokka og framboðslista en um einn fjórði að- spurðra hefði enn ekki getað gert upp hug sinn. Inni í þessari tölu má að vísu gera ráð fyrir fólki sem ekki hyggst neyta kosningarréttar síns, en ljóst er að með svo háu hlutfalli óákveðinna er ómögulegt að segja til um hver verður raun- verulegur sigurvegari kosning- anna. Mislukkuð kosningabarátta Fyrsta ályktunin sem blasir við að draga megi af þessu er sú, að kosningabarátta jafnaðaimanna hafi mistekizt að miklu leyti. í vor, hálfu ári fyrir kosningarnar, var staða SPD að mörgu leyti sam- bærileg við stöðu brezka Verka- mannaflokksins undir forystu Tonys Blairs fyrir þingkosningarn- ar í Bretlandi í fyrravor. Enda hugðist Gerhard Schröder og stjórnendur kosningabaráttu SPD reyna að leika þann leik eftir sem Blair hafði tekizt í Bretlandi og Lionel Jospin, leiðtoga franska sós- íalistaflokksins, hafði tekizt í Frakklandi. Með sannfærandi sigri SPD í kosningum til þings Neðra- Saxlands, þar sem Schröder er for- sætisráðherra, sameinaðist flokk- urinn að baki honum og útnefndi hann kanzlaraefni sitt. Þetta setti Kohl kanzlara alveg út af laginu, þar sem hann hafði fastlega reikn- að með að Oskar Lafontaine, for- maður SPD, yrði mótherji sinn í Sambandsþingskosningunum. Svipað og í Bretlandi, þar sem mik- il óeining einkenndi Ihaldsflokkinn síðustu misseri valdatíma Major- stjómarinnar, sáu flokksbræður Kohls um að veikja stöðu CDU með óeiningu og mánaðalöngu karpi um það hver ætti að taka við af Kohl sem leiðtogi flokksins og hvenær. í vor mældist Schröder mörgum sinnum vinsælli en „mara- þon-kanzlarinn“ - eins og Kohl er gjarnan nefndur eftir að hafa setið í sextán ár á valdastóli - það var útlit fyrir að yfirgnæfandi meiri- hluti Þjóðverja hefði sannfærzt um - svipað og Bretar - að nú væri kominn tími til að skipta um „liðið í bránni", og Sehröder væri rétti maðurinn til að taka við og leiða Þýzkaland inn í 21. öldina. Síðan liðu mánuðirnir, og kosn- ingabaráttan komst á fullan skrið eftir sumarleyfistímann í ágúst. Þá þegar hafði dregið nokkuð saman með stóru flokkunum tveimur í skoðanakönnunum, en SPD og Schröder héldu fylgisforskoti sínu. Allir flokkar, einkum og sér í lagi þó SPD, eyddu að þessu sinni mun meira púðri en áður í auglýsinga- herferðir, ekki sízt í sjónvarpi. Svipað og Verkamannaflokkurinn gerði með því að leggja allt kapp á nýja ímynd sína („New Labour"), sem miðaði ekki sízt að því að telja kjósendum trá um að flokkurinn hefði varpað af sér hugmynda- fræðiballest fortíðarinnar og færzt nær miðju stjórnmálanna, stóð kosningabarátta SPD að þessu sinni undir yfirskriftinni „Hin nýja miðja“ (Die Neue Mitte). í kosn- ingaauglýsingum flokksins, sem mjög var vandað til að allri ytri gerð, bar mikið á viðleitni til að sýna að Kohl væri ekki lengur í takt við tímann - ólíkt Schröder og hinni „nýju miðju“ - framtíðin væri jafnaðarmanna, ekki Kohls. Með slíkum áherzlum þótti mörgum sem málefnin - pólitískt innihald - hefðu notið of lítils vægis. Kjósend- ur stóðu frammi fyrir tveimur meginvalkostum: Annan gerþekktu þeir, en sökum þess hve erfitt virt- ist að festa hendur á því hvað hinn valkosturinn, „hin nýja miðja“, stæði fyrir, vann CDU aftur á í skoðanakönnunum og hlutfall óá- kveðinna minnkaði ekki þótt ekki vantaði að Schröder og hans lið legði hart að sér til að koma sínum boðskap tO hinna sextíu milljóna kjósenda landsins. Á síðustu vikum kosningabaráttunnar tróð Schröder upp á sjötíu stórum kosn- ingafundum og veitti ótal fjölmiðla- Helstu stjórnmálaflokkar í Þýskalandi^JK Þjóðverjar ganga að kjörborðinu í dag, 27. sept., og kjósa menn á Sambandsþingið (Bundestag). CDU Kristilegir demókratar/Kristilega sósíalsambandið (CDU/CSU) Helsta stjórnmálaafl í Þýskalandi eftir stríð og þakkar sér efnahags- legan uppgang landsins. Flokkur Helmuts Kohls kanslara nýtur þó heldur minna fylgis en SPD og Gerhard Schröder samkvæmt skóöanakönnunum. Jafnaðarmannaflokkur Þýskalands (SPD) SPD, sem kallar sig nú hina nýjú miðju’, hefur varpað fyrir róða mörgum gömlum stefnumálum vinstrimanna og oft er erfitt að greina á milli hans og CDU. Flokkurinn sjálfur er þó talinn töluvert lengra til vinstri en Schröder, leiðtogi hans. EEXR 'Jr E3 Frjálsir demókratary (FDP) FDP hefur tekið þátt í samsteypustjórnum frá 1969 en stuðningur við flokkinn hefur minnkað að undanförnu, einkum í austurhlutanum. Hafa þeir goldið þess, að lítið hefur orðið úr áætlunum um umbætur í skattamálum og óvíst, að þeir fái tilskilin 5% til að koma manni á þing. ____________________________________ Bandalag 90/Græningjar Græningjar, sem skipta má í hófsaman og róttækan arm, eiga þess hugsanlega kost í fyrsta sinn að taka þátt í stjórn beri jafnaðarmenn sigur úr býtum en þurfi samt á stuðningi þeirra að halda. Lýðræðislegi sósíalistaflokkurinn (PDS) Afkomandi austur-þýska kommúnistaflokksins, heldur fram sósíalisma og berst gegn kapítalisma en segist styðja lýðræði og þýsku stjórnarskrána. Nýtur helst stuðnings í austurhlutanum. Hægri öfgafiokkar Dvut Deurscur vuiksunion ' ±) Þýska þjóðarsambandið (DVU) TDVU skaut uppkollinum í apríl sl. og fékk þá næstum 13% atkvæða ríkisþinginu í Sachsen-Anhalt í austurhlutanum. Er það mesta fylgi við hægriöfgaflokk eftir stríð. Þjóðlegi lýðræðisflokkurinn (NPD) NPD hefur náð besta árangri hægriöfgaflokks í þingkosningum eftir stríð þegar hann fékk 4,3% 1969. Vantaði hann lítið upp á að fá menn kjörna á þing. Sameining landsins jók félagatöluna og nú er þriðjungur félagsmanna í austurhlutanum. Lýðveldisflokkurinn (Die Republikaner) Hefur reynt að skapa sér virðulegri ásýnd en hinir tveir flokkarnir hafa og reynir að höfða meir til miðstéttarinnar en til óánægðs verkalýðs og ungmenna. hann er þó ekki talinn neinn eftirbátur hinna í kynþáttahatri. viðtöl. Kohl, sem verður sjötugur árið 2000, sýndi sig á 60 stöðum út um allt landið, ekki sízt í austur- hlutanum, þar sem vinsældir hans hafa dalað allrækilega frá því hann var hylltur sem „kanzlari samein- ingarinnar“ árið 1990. Af viðbrögð- um nokkurra ungra óákveðinna kjósenda að dæma, sem Morgun- blaðið ræddi við eftir þrautskipu- lagðan kosningafund SPD í iðnað- arborginni Ludwigshafen í vikunni, virðist öll þessi fyrirhöfn þó ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Þetta unga fólk var alveg jafn óá- kveðið í því hvernig það myndi verja atkvæði sínu og áður en það kom og hlýddi á boðskap Schröders og annarra úr forystu- sveit SPD sem töluðu þetta kvöld, þar á meðal Rudolf Scharping, fyrrverandi forsætisráðherra sam- bandslandsins Rheinland-Pfalz og kanzlaraefni flokksins 1994. Hvatt til stjórnarskipta I allaugljósri tilraun til að vinna gegn því að fólki fyndist SPD ekki bjóða upp á nógu skýran valkost, sem óhætt væri að treysta fyrir því að setja landinu nýja stefnu, birt- ust á föstudaginn heilsíðuauglýs- ingar í stærstu dagblöðum Þýzka- lands, þar sem stór hópur þekktra og minna þekktra einstaklinga úr mennta- og menningarlífi, efna- hags- og stjórnmálalífi landsins skrifar undir áskorun til kjósenda um að veita stjórnarskiptum at- kvæði sitt. Yfirlýsingin hefst á þessum orðum: „I Bretlandi og í Frakklandi er búið að kjósa ný- frjálshyggjuöflin frá völdum. Líka í Þýzkalandi vonast æ fleiri til þess að það verði af umskiptum yfir í stjórnarstefnu, sem grípur þau mótunartækifæri sem gefast, sem vogar að hrinda í framkvæmd um- bótahugmyndum, sem snúast um frelsi, réttlæti og félagslega sam- kennd...“ En af stemmningunni að dæma við lok kosningabaráttunnar var ekki að sjá, að andstæðingum stjórnar Kohls hefði tekizt að nýta sér það tækifæri sem augljóslega felst í því að mörgum Þjóðverjum - ekki síður en Bretum - þykir tími til kominn að skipta um stjórn. Einu má þó ekki gleyma í þessu sambandi, sem örugglega sker þýzka kjósendur frá brezkum, al- mennt séð, en það er að þegar óvissa og óstöðugleiki blasir við í umheiminum, eins og margt bendir til að nú sé, þá'hneigist þeir frekar til þess að kjósa það sem þeir þekkja en að hætta á að veðja á nýjan hest, þegar þannig stendur á. Þessar tilfinningar hafa stjórn- endur kosningabaráttu CDU reynt að spila á með slagorðinu „öryggi í stað áhættu" (Sicherheit statt Risiko). Kynslóðaskipti framundan? Að öðru leyti gekk kosningabar- átta CDU að mestu út á að leggja áherzlu á hve mikilvægt það væri þýzkum þjóðarhagsmunum að Kohl héldi kanzlarastólnum, þar sem hann nyti gífurlegs álits á al- þjóðavettvangi og væri trygging fyrir stöðugleika. Eitt er víst, að gangi allt upp fyrir SPD og Ger- hard Schröder verði kanzlari, þá yrðu með því kynslóðaskipti í stjórn landsins. Helmut Kohl var orðinn nógu gamall áður en Þriðja ríkið hrundi til að verða félagi í Hitlerjugend, æskulýðshreyfingu Nazistaflokksins, eins og aðrir þýzkir drengir á þeim tíma. Hann er semsagt af þein-i kynslóð sem man vel hörmungar stríðsins og fór út í stjórnmál ekki sízt með þá hug- sjón að gera það sem hann gæti til að hindra að slíkt gæti nokkru sinni endurtekið sig. Þessi hugsjón er að baki innilegri sannfæringu hans um ágæti samruna Evrópu, þar sem hann tryggi að nágranna- þjóðir Þýzkalands fái aldrei aftur ástæðu til að óttast þetta volduga land í miðri álfunni. Schröder er fæddur 1944 og ólst upp hjá ein- stæðri móður, sem missti mann sinn í stríðinu. Hann hefur sýnt það á pólitískum ferli sínum, að hann er ekki maður hinna stóru hugsjóna, heldur öllu heldur stjórnunarstfls, sem markast af því eingöngu hvað lofar góðum árangri til að ná settu marki. ! I I , I s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.