Morgunblaðið - 27.09.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 1 9
Konur og Kristur meðal útgáfubóka Setbergs
Þroskaleit og
heilbrigðir lífshættir
Á MEÐAL bóka frá Setbergi á
þessu hausti er Konur og Krístur,
ný bók eftir Sigurbjörn Einarsson
biskup. í kynningu segir að í bók-
inni sé mikill fróðleikur í aðgengi-
legum búningi, en fyrst og fremst
sé hún samin með tilliti til þess að
hún gæti orðið til hjálpar við íhug-
un og innri þroskaleit:
„Konur voru í fornöld rúmur
helmingur mannkyns, alveg eins og
nú. En í annálum og sagnaritum
fer ekki að sama skapi mikið fyrir
konum. Þær eru nánast ósýnilegar
í flestum heimildum. En hvað um
þau fornu rit sem skýra frá ævi og
störfum Jesú Rrists? Eða þau sem
kynna lífíð innan þeirrar hreyfing-
ar sem hann hratt af stað? Um
þetta er fjallað í bókinni Konur og
Ki-istur. Þar er athygli beint að
spurningunni um þátt kvenna í
sögu Jesú, eins og sú saga liggur
fyrh- í frumheimildum, og í fram-
haldi af því er spurt um aðild
kvenna að útbreiðslu
áhrifanna frá honum.“
Lækningar og sígild
ævintýri
Þorsteinn Njálsson
læknir annast útgáfu
bókar sem ber titilinn
Lækningabók heimilanna
- ráðleggingar fyrir ein-
staklinga og fjölskyldur.
Höfundur er kunnur
læknaprófessor, Patrick
Pietroni. „Hér er að finna
upplýsingar um orsakir
og einkenni algengi-a
sjúkdóma og kvilla, ráðleggingar um
forvamir og viðbrögð þegar veikindi
virðast yfii-vofandi... Sérstakur kafli
er um heilbrigða h'fshætti og hvem-
ig efla megi heilsu og vellíðan." Bók-
in er 224 blaðsíður í stóm broti og
efninu til stuðnings og skýringar em
450 teikningar og litmyndir.
Að venju gefur Setberg út eina
af nýjustu skáldsögum
Danielle Steel og er
það Til móts við liðna
tíð, nítjánda bók henn-
ar á íslensku, en bækur
hennar hafa verið
þýddar á 30 tungumál
og hafa selst í meira en
300 milljónum eintaka.
Fjöldi barnabóka
kemur út hjá Setbergi,
m.a. nýr flokkur Sígildu
ævintýrabókanna og
einnig harðspjaldabæk-
ur, en þýðandi þessara
bóka er Stefán Júlíus-
son. Stefán þýðir líka tvær nýjar ht-
ríkar bækur í víðfrægum bókaflokki
sem í em dýramyndir og ævintýri.
Þórir S. Guðbergsson þýðir nýja út-
gáfu Ævintýra bamanna og Fyrsta
orðabókin mín verður endurútgefin
með meira en 1.000 litmyndum og
mörg þúsund orðum á íslensku,
dönsku og ensku.
Sigurbjörn
Einarsson
Sýnisbók smásagna
BÆKUR
Smásögur
STJÖRNURNAR í
KONSTANTÍNÓPEL
Ritstjóri: Halla Kjartansdóttir. Mál
og menning 1998 - 255 bls.
SMÁSAGAN er sérstakt bók-
menntaform en hefur lengi vel hér á
landi verið í skugga skáldsögunnar.
Hún á sér þó sína sögu líkt og
skáldsagan og því ekki úr vegi að
gefa út sýnisbók íslenskra smá-
sagna frá 1847-1997. Halla Kjart-
ansdóttir hefur tekið saman slíka
bók og nefnir Stjörnurnar í Kon-
stantínópel. Bókin er ætluð fram-
haldsskólanemum til lærdóms og
skemmtunar og gefa þeim sýnis-
horn af sögum þessa tímabils. Auk
sagnanna eru í bókinni umsagnir
um hvern höfund og bókmennta-
söguleg umfjöllun í formála.
Halla velur í bókina á hefðbund-
inn hátt út frá bókmenntasöguleg-
um viðmiðum og reynir að gefa inn-
sýn inn í helstu tímabil bókmennta-
sögunnar. Það kemur þannig ekki á
óvart að sjá- Grasaferð Jónasar
Hallgrímssonar, Vonir Einars H.
Kvarans, Ósigur ítalska flugflotans
eftir Halldór Laxness, í hvaða
vagni eftir Ástu Sigurðardóttur eða
Tilbury eftir Þórarinn Eldjárn. Aðr-
ir höfundar að efni í bókinni eru
einnig með kunnustu höfundum
þjóðarinnar; Einar Benediktsson,
Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum,
Ólafur Jóhann Sigurðsson, Halldór
Stefánsson, Svava Jakobsdóttir,
Guðbergur Bergsson, Einar Kára-
son, Kristín Ómarsdóttir, Sjón og
Gyrðir Elíasson.
Mikilvægt er að vel takist til í vali
í slíka bók því að vitaskuld mótar
hún sýn manna á bókmenntasög-
una. Höfundur segir sjálfur um val
sitt að hugmyndin á bak við það sé
að það „spegli bókmenntasöguna
með því að geyma sögur eftir höf-
unda sem gagnast vel í þeim til-
gangi, annaðhvort sem fulltrúar
sinnar kynslóðar eða ákveðinnar
bókmenntastefnu eða -tísku.“
Valið í bókina myndar vissulega
heild. Höfundur leggur áherslu á
það í formála hvernig sumar sög-
urnar kallast hver á við aðra. Hins
vegar sýnist mér sú heild nokkuð á
kostnað fjölbreytninnar.
Ég geri mér svo sem grein fyrir
því að það er fremur holur hljómur í
þeirri gagnrýni sem snýst um að
hina og þessa höfunda vanti í safnið.
Gæti ég þó nefnt menn
og konur sem töluvert
hafa skrifað af góðum
smásögum og engin
eiga verkin í þessari
bók, Geir Kristjáns-
son, Matthías Johann-
essen, Thor Vilhjálms-
son, Indriða G. Þor-
steinsson, Steinar Sig-
urjónsson og Einar Má
Guðmundsson svo að
einhverjir séu nefndir
eða Gest Pálsson og
Jakobínu Sigurðar-
dóttur.
Það er einkum þó
tvennt sem mér finnst
gera þá heildarmynd af
smásögunni sem dregin er upp í
bókinni ofurlítið þrönga. í fyrsta
lagi velur Halla einungis þrjár sög-
ur frá 19. öld og þrjár frá fyrri hluta
20. aldar en fimm sögur sem gefnar
eru út á seinustu 10 árum. Þetta er
óheppileg slagsíða og óþarfa
áhersla á yngstu höfundana í slíkri
sýnisbók jafnvel þótt þeir eigi allt
gott skilið.
Áberandi er einnig hversu hug-
myndafræðileg lífssýn höfundanna
er keimlík. Félagsleg sjónannið eru
ráðandi og sögurnar hafa margar
mjög ríka söguhneigð. Á þessu eru
þó að vísu undantekningar.
Á móti kemur að höfundar vinna
með ólíkar hugmyndir. í sögum
Þórarins Eldjárns og Sjóns er sótt
til kynferðislegra hugmynda um
púka sem sjúga viðfang sitt, sumar
sögurnar fjalla um kvennakúgun og
aðrar um ki-eppu fjölskyldunnar og
tilfinningalífs. Þá þótti mér einnig
áberandi hversu margar sögurnar
fjölluðu beinlínis um átök. Saga
Einars Benediktssonar, Valshreiðr-
ið, grípur sérstaklega á slíku átaka-
Fúlasta
alvara á 22
MYNDLISTARSÝNINGIN
Fúlasta alvara verður opnuð á
veitingastaðnum 22, Laugavegi
22, í dag, sunnudag, kl. 20. Þetta
er samsýning fimm einstaklinga
sem sýna mikro-ljósmyndir af
veggmálverkinu á Hótel Fróni.
Einnig verða til sýnis samunnar
myndir og klippimyndir. Á opn-
uninni mun Vete-Skorpor
fremja tónlist á efri hæðinni.
munstri þegar hann
segir í sögu sinni: „I
leikjunum, eins og líf-
inu sjálfu, kemur það
fram að tvennir viljar
geta aldrei orðið að ein-
um eða sama vilja.
Tveir eða fleiri geta, að
því sem verður ráðið af
því ytra, fallist á eitt
mál. En í raun réttri er
það þá ætíð svo að ann-
ar lýtur yfirráðum
hins.“ Hvað sem líður
viljaheimspeki Einars
birtist slíkt átaka-
munstur í flestum
sagnanna, átök
elskenda, átök hins
nýja og gamla, átök innan fjöl-
skyldu og átök innra með mönnum.
Tvær sögur fjalla þannig um konur
sem láta frá sér börn sín og eiga í
erfiðleikum með að sætta sig við til-
veruna eftir það og aðrar fjalla um
átök nútíma og eldra samfélags,
átök fasisma og alþýðu og svo mætti
lengi telja.
I Stjörnunum í Konstantínópel er
að finna býsna margar bitastæðar
smásögur og það er auðvitað aðalat-
riðið. Það er fremur létt yfir mörg-
um sögunum og ég efast ekki um að
þær henta vel stálpuðum unglingum
til aflestrar.
Skafti Þ. Halldórsson
Myndir úr
rennilásum
í Skotinu
í SKOTINU, Hæðargarði 31,
stendur yfir sýning á verkum Bert-
hu Guðjónsdóttur Hall. Bertha
vinnur með blandaðri tækni en
rennilásar era meginuppistaðan í
verkum hennar. Hún hóf söfnun á
rennilásum fyrir nokkram áratug-
um, en gafst síðar á ævinni tóm til
að búa til myndir úr þeim, segir í
fréttatilkynningu. Myndefni, sem
hún hefur valið sér, era aðallega
blóm og fuglar. Hún hefur sýnt
nokkram sinnum í Bústaðakirkju,
en þetta er hennar fyrsta einka-
sýning.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
10-16 og lýkur miðvikudaginn 28.
október.
Halla
Kjartansdóttir
EIN ásýndamynda Óskars
Theódórssonar.
Asýnd
kvenna í
Eden
ÓSKAR Theódórsson opnar sýn-
ingu í Eden í Hveragerði þriðjudag-
inn 22. september. Sýningin hefur
yfirskriftina Ásýnd kvenna og er
um að ræða 30 andlitsmyndir af
konum, málaðar með olíupastellit-
um. Myndimar setur málarinn fram
eftir sinni skynjun og innri hugsun,
segir í fréttatilkynningu.
Sýningunni lýkur 5. október.
Súlnasal Hótel Sögu
föstudaginn 16. október kl. 19.
Húsið opnar kl. 18.
Dagskrá:
Kvöldverður við undirleik Ijúfra tóna
og fjöldasöngur á milli rétta.
Sérstakur söngkvartett flytur létt lög.
Danssýning.
• Hin eina og sanna Diddú syngur eins
og henni einni er lagið.
Nokkur íslensk þjóðlög verða flutt
í nýstárlegum búningi.
Helgi Jóhannsson forstjóri flytur ávarp
og kynnir óvænt tilboð.
Happdrætti.
Hljómsveit leikur fyrir dansi.
Miðasala hefst hjá Samvinnuferðum -
Landsýn, Austurstræti 12, mánudaginn
5. október. Verð 1.990 kr.
Dublin
Örfá sæti laus í ferð Kátra daga
til Dublin 11,- 15. október. Gist verður á
hinu glæsilega Burlington-hóteli. Skemmtidagskrá
ÖJI kvöld og fjölbreyttar skoðunarferðir. Sérstakur
fararstióri er Steinunn Inqvarsdóttir hjúkrunarfræðingur.