Morgunblaðið - 17.10.1998, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Símtöl um Netið munu
stóraukast í Evrópu
London. Reuters.
SIMTOL milli landa um Netið
munu stóraukast á næstu fimm ár-
um í Evrópu og notendur geta bú-
izt við að símgjöld lækki um allt að
7% samkvæmt nýrri skýrslu.
Fyrirtæki sem standa framar-
lega á Netinu geta hins vegar bú-
izt við hörðum viðbrögðum hefð-
bundinna fyrirtækja sem munu
reyna að koma í veg fyrir að mark-
aðshlutdeild þeirra minnki sam-
kvæmt skýrslunni sem er frá fyrir-
tæki á sviði hátækniráðgjafar,
Schema.
Til að standast gagnsóknina
verða nýju fyrirtækin að hefjast
fljótt handa við að útvega nýja
margmiðlunarþj ónustu.
„Við búumst við aukningu á
næstu fimm árum i Evrópu og að
um 21% millilandasamtala muni
fara fram um Netið fyrir 2003,“
sagði einn helzti sérfræðingur
Schema í samtali.
Schema telur að þessi grein
muni afla um 1,3 milljarða dollara í
sölutekjur fyi-ir 2003, en þær eru
nú litlar sem engar.
Fyrirtæki eins og Delta Three,
dótturfyrirtæki RSL Commun-
ications, eru meðal þeirra sem
bjóða símaþjónustu um Netið.
Delta notar hugbúnað frá
VocalTec Communications Ltd í
Israel Delta og heldur því fram að
skera megi niður kostnað til mik-
illa muna.
Gagnsókn stórfyrirtækja
Sérfræðingar segja hins vegar
að AT&T Corp í Bandaríkjunum,
British Telecommunications Plc í
Bretlandi og France Telecom sæki
nú þegar inn á þennan markað eða
búi sig undir að tileinka sér net-
símatækni. Deutsche Telekom AG
á 21 & hlut í VocalTec.
Sérfræðingar segja að afnám
hafta í fjarskiptageiranum, sem
hófst í janúar sl., muni hafa enn
meiri áhrif en lækkun símgjalda í
Evrópu vegna netsímanotkunar.
Árið 2003 er gert ráð fyrir að sím-
gjöld milli landa muni lækka um
tvo þriðju frá því sem nú er.
I sumum Evrópulöndum þar
sem afnám hafta er hafið og
reynslan frá Bretlandi er höfð til
hliðsjónar er búizt við að gjöldin
muni lækka um 70%.
Morgunblaðið/Sigurgeir
ÁSMUNDUR Friðriksson og Erlingur Einarsson hjá Aðgerðarþjónust-
unni Kúttmagakoti í Vestmannaeyjum koma þorskhnökkum í flug á
V estmannaeyj aflugvelli.
Ráðstefna
um Netið í
alþjóðlegu
umhverfi
RÁÐSTEFNA um löggjöf og
verslun á Netinu stendur nú yfir
í Reykjavík á vegum Sambands
ungra sjálfstæðismanna og
CSEI, (Centers for the Study of
Emerging Institutions), sjálf-
stæðrar bandarískrar rann-
sóknastofnunar og hugmynda-
banka. Á myndinni sjást netspek-
ingar velta vöngum í pall-
borðsumræðum á ráðstefnunni í
gær. Frá vinstri: Birgir Þór Run-
ólfsson lektor, Barry Downey
lögmaður, Clint Bolick stjórn-
lagalögmaður og Ian Grigg tölv-
unarfræðingur. Umræðunum
sljórnaði Andrés Magnússon,
formaður Félags íslenskra net-
veija.
Versnandi
afkoma í
landbún-
aði vestra
Racine, Wisconsin. Reuters.
CASE Corp., annar helzti fram-
leiðandi landbúnaðarvéla í
Norður- Ameríku, hefur til-
kynnt að hagnaður á þriðja árs-
fjórðungi hafi minnkað um 19%
og telur að hagnaður á þessu ári
verði 40% minni en 1997 - áður
en eingreiðsla er tekin til
greina.
Talið er að lækkandi hrá-
vöruverð muni valda þungum
búsifjum í landbúnaði á þessu
ári og þar með muni draga úr
eftirspurn eftir landbúnaðarvél-
um frá Case, næstmesta fram-
leiðandanum á eftir Deere &
Co.
Vegna versnandi stöðu land-
búnaðar verður hagnaður 1998
og 1999 líklega minni en Case
bjóst við íyrir aðeins fimm vik-
um. Og nú er búizt við að af-
koman 1999 verði verri en 1998
að sögn fyrirtækisins, sem hef-
ur bækistöð í Racine, Wiscons-
in.
Case er umsvifamesti fram-
leiðandi léttra og meðalstórra
vinnuvéla í byggingariðnaði í
heiminum. Hagnaður fyrirtæk-
isins 1997 nam 403 milljónum
dollara, eða 5,11 dollurum á
hlutabréf. í september bjóst Ca-
se við að hagnaður í ár mundi
minnka um 25% miðað við 1997
og að fyrirtækið kæmi slétt út
1999.
Morgunblaðið/Kristinn
Á ráðstefnunni verður tekist á
við margvísleg álitamál um mál-
efni netsins, m.a. hvort hægt sé
að viðhalda réttindum almenn-
ings þar og framfylgja samning-
um og hvort tækifærum upplýs-
ingasamfélagsins verði fórnað á
altari miðstýringar. Þá verður
leitað svara við því hvort notkun
netgjaldmiðla sé hagkvæmasti
kosturinn í viðskiptum á Netinu,
hvort Netið ryðji burt landamær-
um í viðskiptum og hvað taki við
ef svo fari. Ráðstefnan er í Val-
höll, Háaleitisbraut 1, og stendur
fram til hádegis í dag.
Rupert Mur-
doch uggandi
um samdrátt
Adelaide, Ástralfu. Reuters.
FJOLMIÐLAJOFURINN Rupert
Murdoch hefur sagt að hann hafi
áhyggjur af samdrætti í heiminum
og muni ekki halda áfram aðskiln-
aði Fox kvikmynda- og sjónvarps-
deildarinnar fyrr en ró færist yfir
fjármálamarkaði.
„Við virðumst sigla inn í tímabil
verðhjöðnunar. Við höfum séð mik-
il áfóll og kunnum að sjá meiri
áfóll,“ sagði Murdoch á ársfundi
News Corp. Ltd.
Murdoeh sagði líka að hann
gerði sér að góðu verulegan hagn-
að fyrirtækisins þar til óróa á
mörkuðum linnti og kvaðst engin
áform hafa á prjónunum um mikla
eignaöflun.
Til áréttingar varkárri afstöðu
gerði Murdoch lítið úr hugmyndum
um að hann væri að því kominn að
semja um samevrópskt áskriftar-
sjónvarp við fyrirtæki Silvios
Berlusconis, Mediaset SpA, og
þýzka Kirch-fyrirtækið.
Áhyggjur af
auglýsingatekjum
Murdoch sagði seinna á blaða-
mannafundi að hann óttaðist að
samdráttur í heiminun af völdum
verðhjöðnunarafla bitnaði á aug-
lýsingatekjum sjónvarpsstöðva og
dagblaða hans. En hann sagði að
enn benti ekkert til slíkrar niður-
sveiflu í auglýsingum.
Murdoch sagði að News Corp.
vildi halda áfram fyrirætlunum um
aðskilnað rúmlega 13 af hundraði
Fox Group, en biði eftir endanlegu
samþykki eftirlitsyfirvalda og ró-
legra ástandi á mörkuðum á næstu
mánuðum. Meira vildi hann ekki
um málið segja eða staðfesta að
News Corp. mundi láta til skarar
skríða fyrir árslok 1998.
Verð hlutabréfa í News Corp.
hefur lækkað um allt að 25% síðan
það var 13,65 Ástralíudollarar í
júlí.
Á öðrum stað sagði Murdoch að
auglýsingatekjur helztu sjónvarps-
stöðva News Corp. í Bandaríkjun-
um, Fox Network, og staðbundinna
stöðva Fox hefðu verið dræmar í
byrjun reikningsársins 1998-99 er
hófst 30. júní. Sérfræðingar hafa
bent á að ótti við minni hagvöxt í
Bandaríkjunum hafi valdið veru-
legri lækkun á verði hlutabréfa í
News Corp. að undanfómu.
„Við höfum farið heldur seint af
stað,“ sagði Murdoch. „Verkfallið
hjá General Motors hafði skaðleg
áhrif. Bílaauglýsingar hafa mjög
mikið að segja og þær þurrkuðust
út á nokkrum fyrstu vikum fjár-
hagsársins."
Þorskhnakkar með
flugi frá Eyjum
EKKI er algengt að ferskur fiskur
sé fluttur með flugi frá Vestmanna-
eyjum. Vaninn er að senda sjávaraf-
urðir sjóleiðina til lands en þessa
dagana er helsta samgöngutæki og
lífæð Vestmanneyinga á legi,
Herjólfur, hins vegar í slipp í Dan-
mörku. Því verða fiskverkendur að
leita á náðir loftsamgangna til að
koma afurðum sínum á markað. Að-
gerðaþjónustan Kúttmagakot í
Vestmannaeyjum hefur frá því í
sumar flutt út ferska þorskhnakka á
markaði í Frakklandi, Belgíu og
Þýskalandi. Ásmundur Friðriksson
framkvæmdastjóri segist hafa sent
um 1,5 tonn af þorskhnökkum með
flugi til Reykjavíkur í vikunni en
þaðan sé afurðin flutt til Keflavíkur
í flug. „Við höfum stöku sinnum haft
þennan háttinn á. Það er vænlegur
kostur að senda fiskinn héðan frá
Vestmannaeyjum með flugi og von-
andi getur orðið framhald þar á ef
samningar nást um verð,“ segir Ás-
mundur.
Einn besti bitinn af þorskinum
Þorskhnakkar eru að sögn Ás-
mundar einn besti bitinn úr þorsk-
flakinu. „Það er gott að hafa þennan
útflutning með hefðbundinni starf-
semi Kúttmagakots. Þorskhnakkinn
er geysilega fallegur vöðvi, fínn á
grillið. Við teljum okkur vera að
framleiða góða og vandaða vöru, því
við höfum aðgang að mjög góðu hrá-
efni hér í Eyjum. Við flytjum aðal-
lega út í kringum helgar og það virð-
ist vera vaxandi markaður fyrir
þessa afurð. Við höfum fengið ágætt
verð fyrir hnakkana og höfum áhuga
á að halda útflutningnum áfram.“
Ásmundur segir ekki mikið að
gera hjá Kúttmagakoti þessa dag-
ana, enda haldist léleg aflabrögð og
slæm tíð eins og síðustu vikurnar
yfirleitt í hendur.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar
Yill meiri stöðug-
leika í sóknar-
dagakerfi smábáta
BÆJARSTJORN Vesturbyggðar
hefur skorað á ríkisstjóm Islands
að beita sér fyrir því að stöðugleiki
myndist í sóknardagakerfi smá-
báta. Einnig er farið fram á að út-
gerðarmenn sem hyggjast leigja
frá sér aflaheimildir, megi fyrst
bjóða þær til leigu í heimabyggð
áður en til þess kemur að setja þær
inn á Kvótaþing.
I greinargerð með áskoruninni
segir að í flestum þeim lagabreyt-
ingum sem orðið hafa á fiskveiði-
stjórnunarlögum á síðustu árum
hafi stjórnvöld verið að mæta kröf-
um ýmissa hagsmunahópa. I þess-
um breytingum hafi ekki verið tek-
ið tillit til mjög stórs hagsmuna-
hóps, þ.e. sveitarfélaga. í greinar-
gerðini segir ennfremur: „I Vest-
urbyggð er reyndin sú að nálægt
20% alls afla er á land kemur er
landað af sóknardagabátum. Bæj-
arstjórn Vesturbyggðar telur nú-
verandi sóknarstýringu dagabáta
mjög ósanngjarna gagnvart sveit-
arfélögum sem okkar. Á sama tíma
og almennar aflaheimildir aukast
eru veiðiheimildir sóknardagabáta
skertar verulega sem þýðir að þeg-
ar aflasamdráttur verður á ný og
aflaheimildir verða minnkaðar,
verður dögum þessara báta fjölgað
aftur. Þetta er algerlega á skjön
við tilgang fiskveiðistjórnunar-
kerfisins. Því krefjumst við að
sóknarstýring smábáta verði end-
urskoðuð með hagsmuni sveitarfé-
laga er byggja afkomu sína að
mikli leyti á afla smábáta að leiðar-
ljósi.“
Útgerðarmenn megi leigja
kvóta innan sveitarfélags
Bæjarstjórn Vesturbyggðar '
bendir einnig á að í sveitarfélaginu
hafi nálægt 25% alls afla sem land-
að var á fiskveiðiárinu 1997-1998
verið leigukvóti. Nú hafi tilkoma
Kvótaþings og þess ósveigjanleika
sem því fylgir þegar sett stórt strik
í reikninginn hjá fjölmörgum út-
gerðum. Telur bæjarstjórnin
ósanngjarnt að útgerðaraðilar sem
vilji og geti leigt aflaheimildir eigi í
ekki kost á því að leigja þær innan f
sveitarfélagsins, áður en til þess !
kemur að bjóða þær á Kvótaþingi.
„Bæjarstjórn Vesturbyggðar fer
þess eindregið á leit að ríkisstjórn
Islands breyti þeim atriðum er að
ofan eru talin með hagsmuni
smærri sjávarplássa að leiðarljósi,
þannig að sveitarfélög, sem vegna
þróunar hafa neyðst til að byggja J
afkomu sína að verulegu leyti á
leigukvóta og afla smábáta, fái not-
ið þess góðæris sem í dag ríkir hjá I
íslensku þjóðinni," segir að lokum í
greinargerðinni.