Morgunblaðið - 17.10.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 17.10.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 43 FRÉTTIR ' Norsk unglingamynd í Norræna húsinu kostuð hafa verið að hluta eða að öllu leyti með því fé sem samtökin hafa fengið undir þessum lið frá stofnun 1994. Listinn fer hér á eftir: Verkefnin sem voru kostuð „Starfsskilyrði og samkeppnis- staða. í tengslum við störf stjórn- skipaðrar nefndar um starfsskilyrði og samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar var veittur styrkur til þess að vinna að samantekt efnis og rannsókna vegna skýrslu á vegum nefndarinn- ar. Iðnaðarhorfur. Styrkur til reglu- bundinnar söfnunar lykiltalna og könnunar á ástandi og horfum iðnaði og reglubundinnar útgáfu rits með helstu niðurstöðum. Byggingarkönnun. Styrkur til að gera sérstaka könnun á ástandi og horfum í byggingariðnaði. Auglýsingar og kynningarstarf- semi. Styrkur til ýmissa aðgerða til þess að auka markaðshlutdeild ís- lenskrar framleiðslu. Hér má nefna verkefnið Islenskt, já takk, sem var rekið í samvinnu við verkalýðs- hreyfmguna og sérstaka byggingar- daga sem haldnir eru til þess að kynna almenningi íslenskan bygg- ingariðnað. Samkeppnishæfni. Styrkur til að þýða og staðfæra könnun samtaka evrópskra iðn- og atvinnurekenda, UNICE, um samkeppnishæfni evr- ópskra og íslenskra fyrirtækja. Evrópufréttir. Styrkur til útgáfu fréttaritsins Evrópufréttir sem ski-ifað er á skrifstofu SI og VSÍ í Brussel í þeim tilgangi að upplýsa ís- lensk fyrirtæki um möguleika evr- ópsks samstarfs og markaðstæki- færi. Uppbygging á fræðslusviði - nám- skeiðahald. Styrkir til þess að byggja upp fræðslustarfsemi í iðn- aði, til námskeiðshalds og gerðar fræðslu- og kennsluefnis. Styrkur til þess að undirbúa stofnun Félags- og fræðslumiðstöðvar iðnaðarins. Hönnunarmiðstöð. Styrkur til reksturs hönnunarmiðstöðvar í sam- vinnu við iðnaðarráðuneytið. Félags- og fræðslumiðstöð iðnað- arins. Styrkur veittur til stofnunar og reksturs Félags- og fræðslumið- stöðvar iðnaðarins. Hagvaxtarstefna. Styrkur til þess að vinna að fræðilegum undirbúningi fyrir mótun hagvaxtarstefnu þar sem reynt er að draga úr sveiflum í raungengi og öðrum starfsskilyrð- um. Afkomukannanir í iðnaði. Styrkur til þess að efla þennan þátt hag- rænna upplýsinga, m.a. í samvinnu við Þjóðhagsstofnun, til þess að nota við mat á stöðu iðnaðarins á hverjum tíma. UNICE. Stjukur til þess að gera SI kleift fylgjast betur með og taka þátt í evrópsku samstarfi sem mótar æ meir allt starfsumhverfi íslensks iðnaðar. Til þess að efla þennan þátt í starfseminni er nauðsynlegt að taka virkan þátt í störfum samtaka evrópskra iðn- og atvinnurekenda í Brussel. Þróunarverkefni. Styrkur til þátt- töku í sérstökum þróunarverkefnum, s.s. Nordfood, SMB-forum, þar sem fjallað er um stöðu smærri fyrir- tækja og MINT sem fjallar um möguleika og tækifæri fyrirtækja til þess að tileinka sér nýjungar í stjórnun og tækni til þess að styrkja samkeppnisstöðu sína. Menntafélag byggingariðnaðarins. Styrkur til að vinna að undirbúningi og stofnun Menntafélags byggingar- iðnaðarins. Hagskýrslugerð. Styrkur til þess að þróa og útfæra nýjar aðferðir við að fylgjast með hagstærðum í iðnaði, t.d. þeim möguleikum sem felast í frekari úrvinnslu vsk-skýrslna, ann- arra skattgagna og ekki síst þeim möguleikum sem felast í því að nýta strikamerkingar í þessu samhengi til þess að kanna markaðshlutdeild og sveiflur á markaði. Útboð á EES-svæðinu. Styrkur til að kanna á hvem hátt best verður staðið að miðlun upplýsinga tU iðn- fyrirtækja um útboð á EES-svæð- inu. Tilraunaverkefni sem felur í sér að velja og flokka upplýsingar úr TED-útboðsbankanum og miðla til fyrirtækja. Hagskýrslugerð. Styrkur tU viða- mikillar rannsóknar í samvinnu við Robert E. Rowthorn, prófessor í hagfæði við Cambridge háskóla í Bretlandi, um af-iðnvæðingu (de- industrialization) á Islandi, orsök og afleiðingar og leiðir til úrbóta. Efnaiðnaðm-. Styrkur til þess að standa straum af margvíslegum verkefnum sem miða að því að laða hingað til lands erlenda fjárfesta og fyrirtæki, einkum á sviði efnaiðnað- ar, t.d. polyolframleiðslu. MIDAS. Styrkur til reksturs svo- kallaðrar MIDAS skrifstofu sem SI tók að sér að reka skv. samningi við ESB, en tilgangurinn með henni er að hvetja fyrirtæki til þess að nýta sér möguleika upplýsingatækninnar. NAS-North Atlantic Solutions. Styrkur til þess að gera markaðs- og kynningarátak með véla- og tækja- framleiðendum fyrir veiðar og vinnslu." KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir böm eru í Norræna húsinu alla sunnudaga kl. 14. Hinn 18. okt. kl. 14 verður sýnd leikin, norsk ung- lingamynd, Markús og Díana. I fréttatilkynningu segir: „Mark- ús er 13 ára, minnstur í bekknum og er hræddur við flest sem mögu- legt er að óttast hér í heimi. Sem betur fer er besti vinur hans algjör andstæða. Markús hefur að tóm- stundagamni að skrifa aðdáenda- bréf til frægs fólks. Þá skrifar hann ekki í eigin nafni heldur læst vera fullorðinn, t.d. gömul kona í hjólastól. Þannig reynir hann að losna við óttann við umhverfið. Dag nokkurn skrifar hann Hollywoodstjömunni Díönu Mor- tensen. Það verður til þess að þau fara að skrifast á. En hvað á Mark- ús að taka til bragðs, þegar Díana boðar komu sina til Noregs og vill hitta pennavin sinn, sem hún held- ur að sé einstæður milljónamær- ingur?“ Handritið er eftir Klaus Hager- up og leikstjórn í höndum Sveins Scharffenbergs. Myndin hæfir best eldri en 10 ára. Hún er með norsku tali og sýningartími er 90 mín. STÆRSTA SYNINGARSVÆÐI Á ISLANDI MEÐ EFNI TIL INNRETTINGA Heimilisleg tiboö NY LJOSADEILD NY GOLFDUKADEILD HELGARTILBOÐ Viö höfum opnaö nýjar deildir meö Ijós og gólfdúka í Hólf og Gólf í Breiddinni. í dag og næstu daga bjóöum viö heimilisleg tilboö á Ijósum, dúkum, parketi ofl. Ef þú ert að leita aö nýjum innréttingum skaltu segja okkur hvaö þú vilt og viö gerum þér hagstætt tilboð. Komdu og skoðaðu úrvaliö og veröið. Viö tökum vel á AFGREIÐSLUTÍMI VirKir dagar Laugard. Hólf&Gólf 8-18 Sími: 515 4030 10-16 móti þér og í dag bjóðum upp á vöfflur og kakó. Verði þér að góðu! BYKO Hólf & Gólf B R I* J D J) I N N I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.