Morgunblaðið - 17.10.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998
ofnotuð klisja. Ég set það samt hér
vegna þess að ég held að fátítt sé að
það eigi betur við. Tæp heilsa og
þverrandi máttur megnuðu engan-
veginn að ræna Dóra á Minni-Borg
andlegri orku eða lífsfjöri og kímni-
gáfan var til staðar til síðustu stund-
ar og stutt í galsann. Við skulum því
ekki vera dauf í dálkinn, eða döpur
úr hófi fram, nú er við kveðjum góð-
an og glaðbeittan vin, sem hvarvetna
reyndi að sópa á brott lognmollunni,
væri hún til staðar. Ég held honum
þætti það miður. Varðveitum heldur
minninguna um hann, glaðan og reif-
an, í þakklátum huga.
Ástvinum hans og aðstandendum
öllum sendum við, hjónin frá Dal og
böm okkar, innilegar samúðarkveðj-
ur, með þökk fyrir kynnin góðu.
Erlendur Halldórsson
frá Dal.
Eitt fegursta sumar og haust í
mörg ár eru að renna sitt skeið á
enda. Náttúrufegurðin eftir alla
gi’ósku sumarsins er einstök, kyrr-
viðrið, birtan, haustlitirnir eins og
lifandi málverk.
Þegar okkur systkininum bai-st
fregnin um að Dóri frændi hefði orð-
ið bráðkvaddur var þó sunnan rok og
beljandi rigning, dimmviðri og laufin
féllu í hrönnum. Allt varð hljótt og
stutta stund virtist tíminn standa í
stað. Hugurinn fór skyndilega að
reika, öll gömlu góðu árin í sveitinni.
Við systkinin ólumst upp í nánum
samvistum við Dóra og hans fjöl-
skyldu þar sem heimili okkar og
hans voru svo að segja hlið við hlið.
Sum okkar voru þó lengur en önnur í
nágrenninu.
Það er margs að minnast, flest
okkar fengum við fyrst að prófa að
aka dráttarvél, bíl eða öðrum tækj-
um sem komu í sveitina á þeim ár-
um, hjá frænda á Minni-Borg. Efth'
að við fullorðnuðumst vai' gaman að
sitja við eldhúsborðið á Minni-Borg
með frænda og taka púlsinn á stöð-
unni á líðandi stundu. Drekka ís-
kalda mjólk og borða góða heima-
bakaða bakkelsið hennar Ingu okk-
ar.
Hjálpsamari og greiðviknari mann
var vai't að finna, alltaf tilbúinn ef
eitthvað bjátaði á eða kom og spurði
„er ekki eitthvað sem þarf að gera
eða búa í haginn?“. Kappsemi, metn-
aður og harðfylgi einkenndi hann
Dóra frænda. Helst vildi hann eiga
sem flestar tvílemburnar, bestu
hrútana, klára heyskapinn fyrstur,
laga girðingarnar, bara að nefna það,
hann vildi di'ífa hlutina áfram enda
var hann einstakur eljumaður.
Allt þetta flýgur upp í hugann
þegar hugsað er til baka nú þegar
komið er að kveðjustund við þennan
dugnaðarbónda sem gaf allt af lífi og
sál. En heilsan fór að gefa sig eftir
mikið erfiði og ósérhlífni í gegnum
árin. Hann varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eignast þvflíka öðlingskonu
sem hún Inga okkar er, og eigum við
henni jafn mikið að þakka og honum
frá bemsku, þau voru okkur sem
aðrfr foreldrar.
Síðast liðið vor ákváðu þau að selja
jörð og bústofn og flytjast í Borgar-
nes. Gengið var frá öllu, nýjum ábú-
endum afhentur bústofn og vétar.
Nú átti að eiga góð ár í Borgarnesi,
en sú stund varð því miður ekki löng.
Með þessum fátæklegu orðum frá
okkm- systkinunum frá Borg langar
okkur að þakka Dóra frænda allt það
sem hann gerði og gaf okkur í gegn-
um árin. Megi góður guð geyma
þennan einstaka öðlingsmann. Við
vottum Ingu okkar, börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og öðrum
innilegustu samúðai-kveðjur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margthéraðþakka.
Guði sé lof fyrir hðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Systkinin frá Borg,
Páll, Ásgrímur, Auðunn,
Arndís og Björgvin.
Sumarið er að kveðja - hlýtt og
sólríkt sumar. Lauf trjánna falla til
jarðar eftir góð lífsskilyrði sumars-
ins, haustblær færist yfir. Lífsgang-
an kennir okkur að tilvera okkar hér
á jörð er háð sömu lögmálum og lauf
trjánna sem nú falla til foldar, líf-
skeiðinu er lokið.
Mitt í þessum óvenjugóðu haust-
dögum er kvaddur héðan úr heimi
góður maður í bestu merkingu þess
orðs. Elskaður eiginmaður, faðir, afi,
tengdafaðir, bróðir, frændi og mág-
ur.
Heilsan undanfarin ár var ekki
sem skyldi, Halldór kunni ekki að
hlífa sér, dugnaður og áræðni voru
honum í blóð borin. Hann var heill
og sannur bóndi af lífi og sál. Sá
gullni þráður sem gefur lífinu gildi
tengir nútíð og fortíð. Þráður lífsins
sem varðveitist gegnum lífið og skil-
ur eftir ljúfar minningar þeirra sem
eftir standa, þegar hugsað er til þess
sem að baki býr.
Á kveðjustundu er okkur efst í
huga góðvildin og glaðværðin, æðru-
leysi, tryggð og drengskapur sem
hann með fómfúsum verkum mótaði
mannlífsfegurð sem verður okkur
sem næst honum standa dýrmætur
minningarsjóður, þegar hugsað er til
langrai’ samvistar.
I æsku naut Halldór hollra heim-
ilishátta, ólst upp í hópi sjö syst-
kyna sem öll voru samhent og full af
lífsþrótti. Þau vildu öll hjálpa for-
eldrum sínum sem best þau máttu.
Þau settu sér það markmið full af
lífsþrótti, að verða styrkir þjóðfé-
lagsþegnar og látið gott af sér leiða.
Þroskað lífsviðhorf og heilbrigð
hugsun, hefur reynst traust bjarg,
að byggja á.
Halldór var lengi styi'kur félagi í
íþróttafélagi Miklaholtshrepps.
Kappsfullm- íþróttamaður sem oft
var í fremstu röð á héraðsmótum
Snæfellinga. Hann vann um tíma við
akstur en hugurinn var þó ætíð
bundinn sveitinni. Þar fann hann sig
á réttum vettvangi. Hann kom því
aftur heim í sína fæðingarsveit og
stofnaði nýbýli sem hann nefndi
Minni Borg.
Halldór sýndi það fljótlega að við
að „yrkja jörðina" var hann á réttri
hillu. Ræktun jai'ðar var honum
hugleikin, hann vildi láta þrjú strá
vaxa þar sem eitt stóð áður. I þá
daga var frjálsræði bænda meira en
nú er, í öllum athöfnum þeirra.
Draumur sáðmannsins að yrkja
jörðina var sú hugsjón sem ungur
bóndi hafði, enda jókst ræktun og
aðrar framkvæmdir hröðum skref-
um. Búsmala sinn önnuðust þau
hjón af einstakri natni, enda afurðir
gripanna í hámarki. Því skal ekki
gleymt að hlutur konu hans Ingu
Guðjónsdóttur var einstakur í allri
þeirra búsýslu. Hún stóð fast við
hlið bónda síns, fylgdi honum í öll-
um þeirra störfum af einstakri
væntumþykju og fórnfýsi. Ekki
geta ég og kona mín dásamað nægi-
lega öll samskipti sem fjölskyldur
okkar hafa átt saman við Halldór
Ingu og börn þeirra. Sú þökk sem
hér er tjáð bið ég guð að þakka og
blessa. Hjálpsamari nágranna er
vart hægt að finna sama hvaðan
hjálparbeiðnin barst, alltaf var
sjálfsagt að veita af góðvild og fórn-
fysi.
Þegar við hugsum til heimabyggð-
ar okkar í dag þá hafa þrír einstak-
lingar kvatt þennan heim á liðnu ári.
Allt einstakt ágætis fólk sem guð
geymir í minningu okkai' sem eftir
stöndum.
Lífið er þannig að við komum og
förum. Sveitin okkar hefur misst
mikið, en í minningunni lifii' hugblær
liðins tíma í bland heiðríkju jökulsins
, nið fossana, bárukvak frá strönd-
inni, minningar um góð samskipti,
gleði og sorg frá liðinni tíð. Höfund-
ur lífs og lagar geymir minningar
allar. Fjölskyldunni sendum við sam-
úðarkveðjur, guð gefi þeim styrk í
sorg sinni.
Guð blessi minningu góðs manns.
Inga og Páll frá Borg.
I dag er til moldar borinn mágur
minn Halldór Ásgrímsson bóndi á
Minni-Borg í Eyja- og Miklaholts-
hreppi. Halldór var fæddur 3.8. 1931
og því nýorðinn 67 ára. Við skyndi-
legt fráfall náins vinar og félaga til
margi-a ára, sem auk þess var inn-
viklaður í fjölskylduna, verður mér
orðfall um stund. Minningamai'
hrannast upp,' mmningai' frá liðnum
árum og áratugum. Girðingavinna,
steypuvinna, heyskapur, vinna í slát-
urhúsinu í Borgamesi, minningar frá
æskuárum mínum þegar Kalli og
Dóri keyrðu flutningabfl í Borgar-
nes. Það var hlýtt viðmótið sem ég
strákpjakkur fékk hjá Dóra þegar ég
var að sniglast í kringum bflinn þeg-
ar hann var að koma með vörur og
misgáfulegar spurningar hmtu af
vömm.
Dóri var gæfumaður alla tíð, hann
var reglumaður, bindindismaður á
vín og tóbak, og á sínum yngri árum
var hann mikill íþróttamaður og naut
þess mjög að sjá börn sín í íþróttum
og studdi þau í hvívetna. Á þeim ár-
um er við vorum að byrja búskap í
Hrútsholti og byggja þar upp nutum
við þess að Dóri var ekki bara dug-
legur heldur laginn og einstaklega
ósérhlífinn. Hann átti mörg handtök-
in í byggingunum okkar í Hrútsholti,
margar ferðimar kom hann okkur tfl
aðstoðar og fékk ekkert í staðinn
nema þakklætið, enda fannst honum
það ærin umbun. Þau Inga bjuggu
ætíð góðu búi enda samvalin við bú-
skapinn. Þau vora eins og fleiri ginnt
af ráðamönnum okkai' út í loðdýra-
rækt á sínum tíma og riðu þau ekki
frekar en aðrir feitum hesti frá þeim
búskap. Það fór svo að við fluttum
báðir burtu frá jörðum okkar og til
nýrra heimkynna, því miður áttu þau
hjón ekki eftir að njóta þeirra nýju
tíma þar sem kallið kom rétt í þann
mund er þau voru að koma sér fyrir
á nýja staðnum.
Missfr okkar allra er mikill en
mestur er missir systur minnar,
Ingu, og barna þeirra og barna-
bai-na. Eg er þakklátur fyrir að hafa
átt Dóra að mági og vin, það er fjár-
sjóður, slíkan fjársjóð tekur enginn
frá mér.
Elsku Inga, böm og tengdabörn
og barnabörn, Guð styrki ykkur a“
erfiðum sorgarstundum.
Magnús og fjöiskylda,
Þorlákshöfn.
Okkur langar að skrifa nokkur orð
um hann Dóra á Minni-Borg sem var
giftur henni Ingu frænku. Hann var
eins og afi alltaf góður við okkur.
Þegar við komum með pabba að
heyja eða í heimsókn á kvöldin þá
passaði hann alltaf upp á okkur. Gaf
okkur gott í gogginn og fór með okk-
ur á fjórhjólið og fleira skemmtilegt.
Elsku Dóri, við munum sakna þín'
mikið þegar við heimsækjum Ingu
frænku.
Freyja Mjöll og Heiðar Snær.
Haltu þræðinum og Igstu með
Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum
Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og
útvarps en í sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá. Þar
getur þú á auðveldan hátt haldið þræðinum í dagskránni.
I blaðinu eru einnig fréttir, myndir og umfjöllun um
þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem kemur við sögu.
Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu annan hvern
miðvikudag og ókeypis á helstu benslnstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hafðu Dagskrána alltaf við hendina.
í allri sinni mynd!