Morgunblaðið - 17.10.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 5V
AÐSENDAR GREINAR
Einelti verður
ekki liðið
ERINDI tengd skól-
anum hafa frá upphafi
verið fyrirferðarmikil
hjá embætti umboðs-
manns barna, þar á
meðal hafa börn vakið
athygli mína á því að
þau séu lögð í einelti af
öðrum nemendum eða
jafnvel einstökum
starfsmönnum skóla, þá
ýmist í skólanum sjálf-
um, á skólalóðinni eða í
skólabílnum. Foreldrar
hafa einnig haft sam-
band vegna þessa,
sömuleiðis kennarar og
ýmsir aðrir er starfa Þorhildur
með börnum. Lmdal
Börnum hefur verið ráðlagt að
ræða fyrst um þetta við foreldra sína
eða einhvern nákominn, sem gæti
stutt þau, kennarann sinn, skóla-
stjóra eða annað starfslið skólans,
svo sem hjúkrunarfræðing, sálfræð-
ing eða námsráðgjafa. Foreldr-
um/forráðamönnum barna hefur auk
þessa verið vísað á nemendaverndar-
ráð og foreldraráð, sem starfa innan
skólans, og loks fræðslu- eða skóla-
skrifstofur sveitarfélaganna. Dygðu
þessar leiðbeiningar ekki hefur verið
bent á þann möguleika að hafa sam-
band við skólanefnd sveitarfélagsins,
hina pólitísku fulltiúa, og gera þeim
grein fyrir úrræðaleysi skólans til að
koma til móts við réttindi og þarfir
nemenda sinna.
Þrátt fyrir ráð og leiðbeiningar
um hvert beri að leita úrlausna blas-
ir sú staðreynd við að börn jafnt
sem fullorðnir reka sig á veggi - á
vandanum er ekki tekið og í sumum
tilvikum er hann ekki viðurkenndur.
Böm kvarta undan því að þeim sé
ekki trúað, þau séu ekki tekin alvar-
lega, þau fái jafnvel sektarkennd
eftir að hafa reynt að leita sér að-
stoðar.
Einelti viðgengst ekki einungis í
skólum heldur er hér á ferðinni
vandamál sem skýtur upp kollinum
á öllum athafnasviðum ungs fólks. A
það ber hins vegar að líta að einelti
innan skólans er mjög alvarlegt,
ekki síst þegar litið er til þess að
böm em skólaskyld hér á landi frá 6
ára til 16 ára aldurs. Þeim ber því
skylda til að sækja skólann, hvort
sem þeim er það ljúft eða leitt, og
þrátt fyrir að eiga von á lítilsvirð-
andi framkomu í sinn garð, af hálfu
nemenda eða einhverra starfsmanna
skólans.
Vitað er að fórnarlömb eineltis
hafa orðið fyrir alvarlegum truflun-
um á skólagöngu sinni vegna eineltis
auk þess sem það markar þau and-
lega langt fram á fullorðinsár.
Forráðamenn barna, kennarar og
stjórnvöld verða að taka höndum
saman og stemma stigu við þessu
böli. Samstarf stjórnvalda og hags-
munasamtaka er þýðingarmikið á
þessum vettvangi. Baráttan gegn
einelti krefst bæði þekkingar og
raunvemlegs áhuga hinna fullorðnu
sem starfa að málefnum barna og
unglinga. Við menntun kennara þarf
að leggja rækt við fræðslu um ein-
elti og gefa þarf út fræðsluefni um
einelti.
Hvað er einelti?
Eigi baráttan gegn einelti að skila
einhverjum árangri er nauðsynlegt
að skilgreina nákvæmlega hugtakið
svo öllum sé ljóst hvaða háttsemi
fellur þar undir. Samkvæmt ís-
lensku orðabókinni er einelti skil-
greint sem það að elta einhvern óaf-
látanlega, gefa einhverjum engan
frið. Samkvæmt bók Guðjóns Ólafs-
sonar, Einelti, sem kom út á árinu
1996, er um einelti að ræða þegar
einhver er tekinn fyrir og píndur,
andlega eða líkamlega, aftur og aft-
ur í lengri tíma af einum eða fleiri.
Mikilvægt er að átta sig á því að
handalögmál/slagsmál milli tveggja
jafnvígra einstaklinga eða einhver
annar einstakur atburður telst ekki
vera einelti heldur er hér um að
ræða margendurtekið
atferli.
Einelti getur birst í
mörgum myndum:
Andlega, t.d. með því
að... skilja einhvern út-
undan eða setja „út í
kuldann", tala illa um
einhvern, ógna eða
hæða með orðum,
skemma eða eyðileggja
fyrir einhverjum reglu-
bundið.
Líkamlega, t.d. með
því að... hrinda, sparka,
slá eða klípa einhvern,
halda einhverjum föst-
um eða loka einhvern
inni gegn vilja hans.
Ég legg áherslu á að skilgreining
skólanna á einelti sé skýr og þannig
Börn og unglingar sitja
ásamt fullorðnum ráð-
stefnu um einelti í
Súlnasal Hótels Sögu í
dag. Þórhildur Líndal
segir baráttuna gegn
einelti hluta baráttunn-
ar fyrir bættum
hag barna.
orðuð að sérhver nemandi skilji
hvað við sé átt. í þessu skyni er
nauðsynlegt að draga upp almenna
mynd af einelti, en ævinlega ber þó
að hafa hugfast að í raun er hvert
eineltistilfelli einstakt og taka ber á
því í samræmi við það.
Hver ber ábyrgðina?
Einelti er grafalvarlegt mál, sem
getur leitt til ýmissa félagslegra og
sálfræðilegra vandamála. Mikilvægt
er að vandinn sé greindur sem fyrst,
en hver ber ábyrgðina?
Lög um grunnskóla. í lögum um
grunnskóla kemur fram að það er
skólastjóri sem ber ábyrgð á starfi
skólans og veitir honum faglega for-
ustu. Skólastjóri sér jafnframt um
að skólanámskrá sé gerð.
Mín skoðun er sú að inn í lögin um
grunnskóla þurfi að koma afdráttar-
lausara ákvæði um að hver skóli beri
ábyrgð á því að tekið sé á markvissan
hátt á eineltisvanda skólans, í skóla-
húsnæðinu, á skólalóðinni og í skóla-
bílnum. Til að auðvelda skólum að
taka á þessum vanda teldi ég eðlilegt
að skólanefndir sveitarfélaga mótuðu
grundvallarstefnuna í þessum mál-
um. Síðan væri það í valdi hvers skóla
að ákveða hvemig þein-i stefnu yrði
markvisst hrint í framkvæmd með
hliðsjón af aðstæðum innan skólans.
Brýnt er að hafa samvinnu við full-
ti-úa nemenda í þessum efnum. Lýs-
ingu á aðferðum skólal ti að ná settu
marid ætti að birta í skólanámskrá,
en samkvæmt lögum um grunnskóla
er gert ráð fyrir að þar sé fjallað um
atriði sem varða innra starf skólans.
Lög um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. Sagt er að
nám sé vinna og sú staðreynd liggur
fyrir að böm og unglingar dvelja í
skóla stóran hluta ævi sinnar. Nauð-
synlegt er að aðbúnaður þeirra þar
sé sem allra bestur, hvað snertir lík-
amlega en ekki síður andlega vel-
ferð þeirra. Núgildandi ákvæði laga
um aðbúnað, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum viðurkenna ekki
skólann sem vinnustað nemenda og
af þeim sökum eiga þeir ekki sjálf-
stæðan rétt er tryggir þeim ömggt
og heilsusamlegt umhverfi, en það
er þeim ekki síður mikilvægt en t.d.
kennuram. Til að tryggja nemend-
um þennan rétt tel ég brýnt að
vinnuvemdarlöggjöfín verði rýmkuð
hvað þetta áhrærir.
Vernd barna og unglinga, velferð
þeirra og góð líðan verður aldrei
metin til fjár, og það er skylda lög-
gjafans að tryggja öryggi og vellíð-
an allra þegna sinna, og gæta hags-
muna þeirra sem minna mega sín.
Þátttaka barna og unglinga -
Barnasáttmáli Sameinuðu
þjáðanna
I starfi mínu sem umboðsmaður
barna hef ég lagt ríka áherslu á að
bömum og unglingum sé gefinn
kostur á að láta í sér heyra og að þau
fái að taka virkan þátt í umræðu um
mál er þau varða. Er það í samræmi
við 12. gr. Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna, þar sem segir að hlusta
beri á skoðanir og sjónarmið bama.
Umræða um einelti hefur verið
nokkur hér á landi. Börnum og ung-
lingum hefur hins vegar að mestu
verið haldið utan við þá umræðu
þrátt fyrir þá bláköldu staðreynd að
það era þau, sem fyrst verða þess
vör, að einelti er í gangi eða í upp-
siglingu. Þekking þeirra hefur því
alls ekki verið nýtt sem skyldi. Ekki
síst með hliðsjón af þessu hef ég boð-
að 80 börn og unglinga auk 60 full-
trúa hinna ýmsu stofnana og félaga-
samtaka til ráðstefnu í Súlnasal
Hótels Sögu í dag, laugardaginn 17.
október, þar sem einelti verður rætt,
en markmið mitt er að fá fram skoð-
anir þeirra og tillögur um, hvaða
leiðir unnt er að fara til að koma í
veg fyrh’ ofbeldi af þessu tagi.
Von mín er sú að í þjóðfélaginu
skapist málefnaleg umræða og þétt
samstaða allra þeirra sem vilja
bættan hag barna í baráttunni gegn
einelti. Þá á ég jafnt við hag þeirra
sem verða fyrir einelti, þolenda, sem
og þeirra er leggja aðra í einelti,
gerenda. Einelti verður aldrei liðið.
Höfundur er umboðsmaður bama.
E
*•
V "mmmL'
r-r-
w'
rvi
W
/ . >--
Kosninga-
skrifstofa
Gunnars I.
Birsíissonar
Hamraborg 12
Skrifstofan er opin
virka daga kl. 11-22.
Laugardaga kl. 13-19.
Sunnudaga kl. 13-17.
Alltaf heitt á könnunni.
Sjáumst!
M U N I Ð
S í MAN-N
564 5823