Morgunblaðið - 17.10.1998, Síða 70

Morgunblaðið - 17.10.1998, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sett upp andlit ►LEIKKONAN Zhu Deming frá Peking-óperunni undirbýr sig fyrir hlutverk Risaguðsins og eins og sjá má á myndinni er það vandasamt verk því farðinn er mikill og iitrikur að kínverskri hefð. Óperuhópurinn Liaoning í Peking stendur fyrir sýningu í Menningarsetri Hong Kong dag- ana 15.-18. október, þar sem blandað er saman leik, óperu og fimleikum. Víst er að þar mun iita- og leikgleðin ráða ríkjum. Ohamingjusöm til æviloka? ►DEMANTAR eru bestu vinir hverrar stúlku, söng Marilyn Monroe um árið og skal enginn dómur kveðinn upp um sannleika þessara orða hér. Hins vegar geta þeir sem undir sönginn taka drifið sig til Indlands en þar stendur De Beers, stærsta fyrirtæki heimsins í demantsframleiðslu, fyrir tískusýn- ingu þar sem demantar af öllum stærðum og gerðum eru sýndir. Fyrir sýninguna var stað- ið fyrir samkeppni hjá alþjóðlegum skart- gripahönnuðum og voru aðeins 25 skartgripir sýndir á tískusýningunni af þeim rúmlega 2000 sem bárust í keppnina. Dýrir steinar GAMANLEIKARINN Bobeat Goldthwait og tvítuga leikkon- an Nikki Cox hafa staðfest að þau eigi í ástarsanibandi og hefur það verið kallað furðuleg- asta ástarsamband Hollywood síðan Julia Roberts og sveita- söngvarinn Lyle Lovett gerðu sér dælt hvort við annað. Goldthwait og Cox leika í sjónvarpsþáttunum „Þau voru óhamingjusöm til æviloka". Þar talar Goldthwait inn á fyrir kanínuna „Hr. Slapp“. Goldthwait segir að hann og Cox hafi „alltaf verið fé- lagar“ og byrjað að hitt- ast fyrir þremur mánuð- um. Hann segir að „þetta sé alvarlegt ástarsamband" og að hann og Cox eigi sam- an hundinn Sid Vicious, þótt þau búi ekki ennþá saman. Aðspurður hvað þau geri sér til skemmtunar svarar Cox: „Ef ég kæmi með ítar- legan lista myndi fólk halda að við værum geðveik. Við ferð- umst, við reykjum, við horfum á kvikmyndir." } Hringið núna í síma 881 2061 -881 Otrúlegur heimur vísindanna í hverju tölublaði Lifandi vísinda getur þú lesið fjöldann allan af skemmtilegum og spennandi greinum úr heimi vísindanna. Greinarnar eru skrifaðar af fag- mönnum og myndskreyttar með myndum teknum af bestu ljósmyndurum heimsins. Eins fylgja oft teikningar sem skýra jafnvel flóknustu hluti á ein- faldan hátt. I hverju tölublaði finnur þú einnig fasta kafla eins og: Ný þekking: Nýjustu niðurstöður og uppgötvanir alls staðar að úr heiminum. Spurningar og svör: Sérfræðingar Lifandi vísinda svara spurn- ingum lesenda um allt milli himins og jarðar. Vísindi og dulúð: Hér er fjallað um nýjustu kenningarnar um yfirskilvitleg atvik og óútskýrð fýrirbæri. MYNPBÖNP Hryllings- vídd Þriðji geimurinn (Thirdspace) Vfsindaskáldsaga ★★★ Framleiðendur: John Copeland. Leik- stjóri: Jesus Trevino. Handritshöf- undar: J. Michael Straczynski. Kvik- myndataka: John C. Flinn III. Tónlist: Christopher Franke. Aðalhlutverk: Bruce Boxleitner, Mira Furlan, Claudia Christian, Stephen Furst, Jeff Conaway, Patricia Tallman, Jos- hua Cox, Shari Belafonte. 90 mín. Bandaríkin. Warner Myndir 1998. Myndin er öllum leyfð. ÞETTA er önnur myndin sem TNT framleiðir um Babylon 5 stöð- ina og fjallar hún um þegar stór óþekktur hlutur, sem er meira en milljón ára gamall, fínnst fljótandi í geimnum. Stuttu eftir að komið hef- ur verið með hlut- inn til stöðvarinnar byrjar fólk að haga sér undarlega og nokkrir fá sýnir af risastórri borg, sem virðist kalla til þeirra. Þessi mynd er mun sjálfstæðari en „In the Beginning" sem kom út í síðasta mánuði og þarfnast ekki eins mikillar þekkingar á Babylon 5 þáttunum til þess að njóta hennar. Atburðarásin er hröð og mikið er um tæknibrellur í myndinni sem ættu að svala þorsta geimmynda- fíkla, en söguþráðurinn minnir einnig töluvert á sögur hrollvekju- höfundarins H.P. Lovecraft um Cuthulu goðsögnina. Leikaranir standa sig vel og sérstaklega Pat- ricia Tallman í hlutveki Lytu Alex- ander, sem er með fjarskynjunar- hæfileika. Ottó Geir Borg Utþynnt sápuglundur Kvöldstjarnan (Evening Star)______ Fjölskyldudrama ★ Framleiðsla: David Kirkpatrick, Polly Platt og Keith Samples. Leik- stjórn: Robert Harling. Handrit: Ro- bert Harling. Kvikmyndataka: Don Burgess. Tónlist: William Ross. Aðal- hlutverk: Shirley Maclaine, Bill Paxton, Miranda Richardson og Juli- ette Lewis. 123 nn'n. Bandarisk. Sam- myndbönd, október 1998. Leyfð öll- um aldurshópum. HÉR er komið framhald fimm- faldrar Óskarsverðlaunamyndar frá 1983, „Terms of Endearment". Sag- an gerist u.þ.b. 16 árum eftir að hinni fyrri lýkur og mik- ið hefur breyst í lífi Auroru Greenway (Maclaine) síðan dóttir hennar lést úr krabbameini í lok fyrri myndar- innar. Gríðarlegt hug- rekki og sjálfsöryggi þarf til að framkvæma verkefni á borð við þetta. Mikil hætta fylgir því að bera verk sitt saman við flókið meistara- stykki eins og „Terms of Endear- ment“, því samanburður er óhjá- kvæmilegur. Hugmyndin er vissu- lega áhugaverð, en sagan fellur í þá gryfju að endurtaka í sífellu ákveðin mynstur úr fyrri myndinni. Per- sónusköpun er flöt, þunn og ómerki- leg í samanburði og í heild silast myndin áfram, löng, ótrúverðug og þunglamaleg. Heiðarleg og óvægin sýn á mannlegar tilfinningar verður að útþynntu og tilgerðarlegu sápuglundri. Guðmundur Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.