Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þorsteinn Pálsson á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksíns á Suðurlandi
GRENJIÐ þið bara, þið fáið ekki meiri gjafakvóta hjá mér.
Náttúru-
fræðihús
rís í Vatns-
mýrinni
Morgunblaðið/Kristinn
UPPSTEYPA á Náttúrufræðihúsi Háskóla íslands í Vatnsmýrinni
gengur vel.
UPPSTEYPA á Náttúrufræði-
húsi Háskóla íslands í Vatns-
mýrinni gengur vel, að sögn dr.
Magga Jónssonar, arkitekts
hússins, en fyrsta skóflustungan
að byggingunni var tekin í janú-
ar 1996.
Langt er komið með að steypa
húsið upp og er reiknað með að
því verki verði lokið upp úr ára-
mótum. Ármannsfell hefur með
verkið að gera og er reiknað
með að fyrirtækið skili húsinu
fullgerðu að utan í mars árið
2000. Að sögn dr. Magga á þá
eftir að innrétta bygginguna og
fer það eftir fjárhagsgetu skól-
ans hve hratt sú vinna mun
ganga. Reiknað er með að frá-
gangur að innan verði boðinn út
síðar.
Náttúrufræðihúsið verður
um 7.900 fermetrar og munu
þar fara fram rannsóknir og
kennsla í líffræði, jarðvísindum
og landafræði. Auk þess sem
Norræna eldfjallastöðin verður
þar til húsa. Áð sögn dr.
Magga liggur húsið á liraun-
púða í mýrinni og kemur þar
af Ieiðandi ekki til með að
breyta flæði á grunnvatni mýr-
arinnar, en sú forsenda var
sett við byggingu hússins að
það myndi ekki raska lífinu í
friðlandi mýrarinnar og Tjarn-
arinnar.
/
glæpur
OG
REFSIN
heimsbókmenntir
ik,
aðeins
/LslsJyi
Fjórarafperlum
heimsbókmenntanna
sem hafa verið
ófáanlegar um skeið
fást nú aftur á mjög
hagstæðu verði!
aðeins
2.480 kr.
aðeins
^80 kr.j
aðeins
»•980 kr.
Mal og mennms FORLAGIÐ WWW.mm.ÍS
Fyrirlestur um erfðarannsóknir
Hvorki krafta-
verk né stórslys
hingað til
Paul Rabinown
s
dag, laugardaginn 24.
október, verður hald-
inn opinber fyrirlest-
ur á vegum Mannfræði-
stofnunar Háskóla Is-
lands um erfðarannsókn-
ir og erfðatækni frá sjón-
armiði mannfræði. Fyrir-
lesturinn markar upphaf-
ið á nýrri fyrirlestraröð
Mannfræðistofnunai- en
yfirskrift hennar er
„Markalínui- náttúru og
samfélags“. Fyrirlesarai'
eru þekktir á alþjóðleg-
um vettvangi fyrir mikils-
vert framlag og nýstárleg
viðhorf á mörkum mann-
vísinda og náttúrufræða.
Paul Rabinow, prófess-
or í. mannfræði við Kali-
forníuháskóla í Berkeley
flytur fyrirlesturinn í
dag. Hann mun sérstaklega fjalla
um erfðarannsóknir í Frakklandi
en nýlega lauk hann við handrit
bókar um þetta efni, French
DNA, sem byggð er á vettvangs-
rannsókn hans í helsta fyrirtæki
á sviði erfðagi'einingar í Frakk-
landi.
-Hver er staða líftæknirann-
sókna í Frakklandi?
„Nokkur sérfrönsk einkenni
koma í hugann. Franska vísinda-
siðanefndin, sem hefur aðeins
ráðgjafahlutverk, beitir sér fyrir
margvíslegri umræðu. Frakkar
voru mjög hikandi að hvetja
einkaaðila til að fara inn á þetta
svið, í samanburði við t.d. Breta
og Bandaríkjamenn. Hraðinn í
þessari þróun og samkeppnin á
alþjóðavettvangi til að kortleggja
genamengið, fínna meingen og
svo framvegis, knýr á um að
Frakkar tileinki sér vinnubrögð
annarra."
- Hver telur þú að sé skýi-ing-
in á þeim deilum sem líftækni-
rannsóknir valda?
„Það eru fjölmargar ástæður
fyrir því að líftækni er umdeild.
Meðal þeirra helstu er að stór-
kostlegur vöxtur hefur verið í líf-
tækniþekkingu undanfarin ár.
Fyrirsjáanlega verður hægt að
nota þessa þekkingu til að hafa
áhrif á manninn sem tegund og á
annað form lífs á jörðinni. Það er
mjög kostnaðarsamt að afla
þessarar þekkingar og sú stað-
reynd að bæði ríkisvaldið og
einkafjármagnið setja mikla pen-
inga í rannsóknir af þessu tagi
vekur áleitnar spurningar um
það hvernig á að hafa stjórn á
þessum málum.“
- Hvaða félagslegu og póli-
tísku afieiðingar gætu líftækni-
rannsóknir haft?
„Við vitum lítið um afleiðing-
amar ennþá. Það er ótti í lofti en
jafnframt miklar
vonir bundnar við líf-
tæknirannsóknir. Við
sjáum þó að jafn-
vægið milli háskóla-
rannsókna og rann-
sókna á vegum
einkaaðila hefur
raskast. Hvað varðar ótta um
stórslys á sviði mannbóta eða
vonir um sigur á illvígum sjúk-
dómum er það hægt að segja að
hvorugt hefur gengið eftir.“
- Ræður þjóðmenning ein-
hverju um hvernig einstök iönd
bregðast við möguieikum líf-
tækninnar?
„Það er greinilegur munur
milli þjóða að þessu leyti. En þar
kemur margt til, allt frá skipu-
lagi heilbrigðiskerfís viðkomandi
► Paul Rabinow Iauk BA-prófi í
mannfræði árið 1965 og dokt-
orsprófi í sama fagi frá Háskól-
anum í Chicago árið 1970.
Hann var einnig í framhalds-
námi við Parísarháskólann í
París á árunum 1965-66.
Paul er prófessor í mann-
fræði við Kaliforníuháskóla í
Berkeley. Hann er heimskunn-
ur fyrir rannsóknir og ritstörf.
Meðal verka hans er bókin
Making PCR: A story of Biot-
echnology. Hún fjallar um til-
urð kjamasýruaðgreinisins
PCR sem valdið hefur straum-
hvörfum í erfðagreiningu og er
byggð á viðtölum við Kary
Mullis sem hlaut Nóbelsverð-
laun fyrir að finna upp rað-
greininn og samstarfsfólk hans
við erfðagreiningarfyrirtækið
Cetus Corporation í Kaliforníu.
þjóða, hvort almannatrygginga-
kerfi sé þar starfrækt til atriða
sem erfiðara er að henda reiður
á eins og trúarhefðir, viðhorf til
ríkisvalds og kapitalisma og
fleira í þeim dúr. Þá er mikill
munur á því hvemig náttúran er
skilin og með hvaða hugtökum
hún er rædd. Einnig eru ólíkai’
hugmyndir um mörkin milli
manns og náttúru eftir því hvaða
þjóð er um að ræða.“
- Sérðu fyrir þér að einhug-
ur muni nást í nánustu framtíð
um helstu álitamál líftæknirann-
sókna?
„Það er of snemmt að segja til
um það hvort einhugur myndist
um þessi mál. Ef tekið er með í
reikninginn hversu stórar fjár-
hæðir er um að ræða í líftækni-
rannsóknum má hvorttveggja
gera ráð fyrir tengingum inn á
önnur svið og harðri samkeppni
um að uppgötva meingen og
annað slíkt. Hingað til hafa
hvorki gerst kraftaverk
né orðið stórslys. Ef
verulegar framfarir
verða í læknavísindum
sem snerta stóra hópa
sjúklinga, t.d. krabba-
meinssjúklinga, má
gera ráð fyrir að ein-
hugur myndist. En það er ekk-
ert víst að slíkar framfarir verði
fyrir tilstilli líftæknirannsókna.
Ef á hinn bóginn það spyrðist út
að matvæli sem væru framleidd
með hjálp líftækni væru skaðleg
eða að genameðferð ylli skaða er
hætt við að þessar rannsóknir
yrðu mjög umdeildar."
Fyrirlestur Rabinows er öll-
um opinn. Hann verður á ensku
og fer fram í Odda, stofu 101,
klukkan 16.15 í dag.
Fjölmargar
ástæður fyrir
því að líftækni
er umdeild