Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 14

Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 14
14 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Kostnaður vegna veiðarfæra 5,2% Enginn fiskur fcngist úr sjó án veiðarfæra. Árlegur kostnaður vcgna veiðarfæra er því óhjákvæmilegur, en einnig þurfa útgerðir að leggja í töluverðan kostnað vegna þróunar nýrra veiðarfæra. Mk íT i.i m:t iflf r íé B' f~ ;(í -A-m- Margvíslegur kostnaður 20,4% Á útveginn eru lögð margvísleg gjöld sem aðrar atvinnugreinar þurfa ekki að greiða. Þau eru m.a.. notuð til að fjármagna eftirlit og þróunarstarf og eru beinlínis tengd veiðum. Fjórum sinnum á ári greiða útvegsfyrirtæki gjald af úthlutuðu aflamarki og hafi greiðsla ekki borist innan mánaðar frá gjalddaga fellur veiðileyfi skips niður. Dæmi um gjöld sem útvegurinn greiðir: Aflagjald: 516 milljónir króna árið 1996. Veiðieftirlitsgjald: A. Til Fiskistofu: 155 kr. á hvert þorskígildistonn. B. Leyfisgjald til veiða í atvinnuskyni 14.135 kr. fyrir hveQ leyfi. C. Eftirlitskostnaður vegna Fiskistofu: 161 milljón króna. D. Úthafsveiðigjald áætlað 30 millj. kr. Greiðslur tii Þróunarsjóös: A. Eigendur fiskiskipa 90 millj. kr. B. Gjald á hvert þorskígildistonn: 650 millj. kr. Lögskráningargjald: Áætlað 10 millj. kr. Vitagjald: 13 millj. kr. Skipagjald: 60 millj. kr. Skoðunar- og eftirlitsgjöld Siglingastofnunar: 25 millj. kr. Sérstakt slysatryggingariðgjald: 130 millj. kr. (Listinn er ekki tœmandi.) Viðhalds- kostnaður 7,8% Dýr veiðitæki þurfa gott viðhald ef þau eiga ekki að drabbast niður. Stöðugt viðhald á öllum tækjum er því nauðsynlegt, auk þess sem skip þurfa að fara í árlega klössun. % Ni f ' a'sM Dýrmætur Það kerfi sem íslendingar hafa á stjóm fiskveiða hefur skilað árangri. Um það em flestir sammála og æ fleiri gera sér grein fyrir því að með auknum álögum á sjávarútveginn yrði árangrinum sópað burt í einu vetfangi. Eftir langvarandi örðugleika í sjávarútvegi eru mörg fyrirtæki loksins farin að skila hagnaði. Það er mikilvægt að rétt sé með hagnaðinn farið svo hann nýtist til nýsköpunar, til að endumýja skip og tæki og til að bæta aðbúnað þeirra sem starfa í sjávarútvegi. Þá er nauðsynlegt að útvegsfyrirtæki komi sér upp varasjóði til að mæta óvæntum áföllum vegna gæftaleysis, aflabrests eða verðhmns á erlendum mörkuðum. Síðast en ekki síst myndar hagnaður allra fyrirtækja kærkominn stofn til tekjuskatts. Enda þótt kostnaður af rekstri fiskiskips sé mikill, eins og dæmi sýna, getur orðið til dýrmætur hagnaður við núverandi aðstæður. Það er afar mikilvægt að þeim hagnaði sé skynsamlega varið og hann nýttur til langþráðrar uppbyggingar og til þess að skapa ný sóknarfæri í sjávarútvegi. Þess vegna er fráleitt að svigrúm hafí skapast til nýrrar stórfelldrar gjaldtöku. Á myndinni er líkan af fjölnota frystitogara. Frystitogarar hafa búnað til þess að vinna og frysta aflann á hafi úti. Frystitogarar veiða við ísland og á fjarlægum miðum, einkum þorsk, ýsu, ufsa, karfa, rækju og grálúðu. ísfisktogarar eru minni en frystitogarar og ísa aflann um borð. í flotanum eru nú 60 frystitogarar og 54 ísfisktogarar. Samanburður milli íslands og samkeppnislanda í sjávarútvegi Veiðiheimildum Ríkisstyrkir Veiðileyfagjal< úthlutað J Island Já Nei Nei Noregur Já Já Nei Færeyjar Já Já Nei Kanada Já Já Nei Þýskaland Já Já Nei Bretland Já Já Nei íslenskur sjávarútvegur þarf að standa undir sér sjálfur enda byggist vclferð þjóðarinnar á honum. í mörgum af okkar helstu samkeppnislöndum er sjávarútvegur aftur á móti ríkisstyrkt aukabúgrein. Það er ólíklegt að neytendUI erlendis séu reiðubúnir til að greiða mun hærra verð fyrir íslcnskan fisk. Aukin gjöld, hverju nafni sem þau nefnast myndu skekkja samkcppnisstöðu íslenskra útvegsfyrirtækja. Á sama hátt myndu auknar álögur koma hart niðuf u þeim byggðalögum á íslandi sem ciga allt undir sjávarútvegi. í dæminu um kostnaðarskiptingu er stuðst við tölur frá Þjóðhagsstofnun: Rekstraryfirlit frystitogara 1996.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.