Morgunblaðið - 24.10.1998, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fræðslurit um launajafnrétti kynjanna
Dreifstýrt launa-
kerfi leiðir til
launamisréttis
RITIÐ Launajafnrétti í fram-
kvæmd í dreifstýrðu launakerfí, er
komið út á vegum Jafnréttisráðs,
Jafnréttisnefndar BHM og Jafn-
réttisráðgjafar Reykjavíkurborg-
ar með styrk frá félags- og fjár-
málaráðuneytinu auk Reykjavík-
urborgar. Ritinu er ætlað að
fræða forstöðumenn stofnana og
trúnaðarmenn stéttarfélaga um
launajafnrétti kynjanna en því
hefur verið haldið fram að dreif-
stýrt launakerfi, sem tekið var
upp við síðustu kjarasamninga
hafi leitt til aukins launamisréttis
kvenna og karla.
A kynningarfundi með forstöðu-
og trúnaðarmönnunum kom m.a.
fram að tilgangur bæklingsins er
að leiðbeina um kynbundið launa-
misrétti og hvemig megi bregðast
við því. Bent er á að nauðsynlegt sé
við gerð sérhvers vinnustaðasamn-
ings og við framkvæmd hans að
huga að hvemig eyða megi því
launamisrétti sem gæti verið til
staðar á vinnustað og hvernig
tryggja megi að misréttið milli
kynjanna aukist ekki. Markmið
með dreifstýrðu launakerfi er að
auka sveigjanleika launakerfisins,
draga úr miðstýringu í launaá-
kvörðun og fela stofnunum út-
færslu og framkvæmd kjarasamn-
inga. Að koma á skilvirku launa-
kerfi sem taki mið af þörfum stofn-
ana og starfsmanna og að hækka
hlut dagvinnulauna.
Ekki fyrir bókaskápinn
„Þetta er ekki rit fyrir bóka-
skápinn," sagði Birgir Bjöm Sigur-
jónsson, einn höfundanna. „Við er-
um að leggja hér drög að miklu
verki, sem brýnt er að vinna.“
Sagði hann að upphaf verkefnisins
mætti rekja til þess að fjölmargir
félagsmenn í aðildarfélögum BHM,
einkum og sér í lagi konur, hefðu
snúið sér til jafnréttisnefndar
bandalagsins og lýst áhyggjum
vegna dreifstýi-ðs launakerfis.
Bent hefur verið á að víða í þeim
löndum, þar sem kerfið hefur verið
tekið upp hafi komið fram hrópleg-
ur launamunur milli kynja.
Misrétti bundið kvennastörfum
Birgir Bjöm sagði að við gerð síð-
ustu kjarasamninga hafi tekist að
tryggja samningsréttaraðild stétt-
arfélaganna að stofnanasamning-
um, fá fram yfirlýsingu frá fjár-
málaráðherra og borgarstjóra, sem
fól í sér skuldbindingar um að
barist yrði gegn því launamisrétti
kynjanna, sem launasamningurinn
hefði hugsanlega í för með sér og
að bregðast almennt við launamis-
rétti. Loks hafi verið ákveðið að
samningsaðilar og kjararannsókn-
arnefnd ynnu faglega athugun á
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÖFUNDAR ritsins Launajafnrétti í framkvæmd í dreifstýrðu launakerfi, þau Elsa S. Þorkelsdóttir,
Hildur Jónsdóttir, Birgir Björn Siguijónsson og Vigdís Jónsdóttir.
launamisrétti, afleiðingum þess og
hvemig mætti bregðast við því.
„Auðvitað veldur það okkur
áhyggjum að launamisréttið er
býsna mikið bundið við hefðbundin
kvennastörf,“ sagði Birgir Bjöm.
„Það era til stórar stofnanir, þar
sem við sjáum að starfsmenn hafa
til langs tíma verið á lágum laun-
um. Þetta er pólitísk ákvörðun. Ég
er sannfærður um að við eram
komin vel á veg. Við erum farin að
tala um launamisréttið sem stað-
reynd og við eram farin að semja
um hvernig eigi að bregðast við í
kjarasamningum. Þetta mun verða
til að afnema launamisréttið. Þá
sannfæringu byggi ég á því að það
er þjóðhagslega óhagkvæmt að sóa
svona verðmætum eins og felast í
því að virkja ekki konur með sama
hætti til athafna og starfa í ís-
lenskuþjóðfélagi og karla.“
Spá um fbúafjölda næstu fímm árin
Breyting á mannfjölda eftir aldursflokkum
Komiö við í miöstöð kosningabaráttu minnar viö Garöatorg í Garðabæ.
Opiö veröur virka daga frá kl. 16:00 - 21:00 og um helgar frá 11:00 - 15:00.
Símar: 565 7341 og 565 7342.
Prófkjör sjálfstæðismanna á Reykjanesi 14 nóv. 1 998.
Fólki á aldrin-
um 40 til 64 ára
fjölgar verulega
FÓLKI á aldrinum 55-59 ára mun
væntanlega fjölga um á fjórða þús-
und á næstu fimm áram, eða um
þriðjung frá því sem nú er, og þeim
sem verða á aldrinum 50-54 ára ár-
ið 2003 mun Ijölga um tæplega
þrjú þúsund eða um 20% frá því
sem nú er. Fólki á fertugsaldri
mun hins vegar fækka.
Þetta kom fram í erindi Sigurðar
Guðmundssonar, skipulagsfræð-
ings hjá Þjóðhagsstofnun á Mann-
virkjaþingi 1998 sem haldið var á
Grand hótel Reykjavík í gær.
I máli Sigurðar kom m.a. fram
að samkvæmt reiknilíkani sem gert
hefði verið á þróunarsviði Byggða-
stofnunar á sínum tíma væri reikn-
að með því að íbúum hér á landi
fjölgaði um 0,9% á ári á næstu ár-
um og að landsmenn yrðu orðnir
rúmlega 287 þúsund árið 2003.
Lítil fjölguu þeirra sem
eru að stofna heiniili
Hann sagði að þegar horft væri til
þeirra breytinga sem verða sam-
kvæmt þessari spá væra það ekki
heildartölurnar sem vektu athygli
heldur hversu örar breytingar
yrðu í fjölda í einstökum aldurs-
flokkum. Miðað við óbreytta fæð-
ingartíðni yrði nokkur fjölgun í
aldurshópnum fjögurra ára og
yngri frá árinu 1998 til ársins 2003,
en þeim sem hefja munu skóla-
göngu á næstu áram myndi hins
vegar fækka nokkuð. Hins vegar
yrði mikil íjölgun í aldursflokkun-
um 10 til 14 ára. Þeim sem Ijúka
grannskólanámi mun fækka og þar
með þeim sem byrja í framhalds-
skólum.
Sigurður sagði að það sem vekti
athygli þeirra sem koma að íbúða-
markaðinum væri væntanlega það
að ekki yrði um mikla íjölgun að
ræða í hópi þeirra sem era að
stofna sitt fyrsta heimili. Á hinn
bóginn væri mikil fjölgun í þeim
hópum sem reikna má með að hafi
alið upp börn sín og séu hugsan-
lega að íhuga breytingar í húsnæð-
ismálum því til aðlögunar.
Rit með úr-
skurðum
ráðuneytis
Umhverfisráðuneytið hefur
gefið út rit með úrskurðum sín-
um á sviði byggingar- og skipu-
lagsmála á árunum 1991 til og
með 1995. Það hefur að geyma
samtals 86 úrskurði ráðuneytis-
ins á þessu sviði, sem birtir eru í
heild, ásamt ágripum af hverj-
um úrskurði, laga- og reglu-
gerðarskrá og ítarlegri atriðis-
orðaskrá. Ritið er 288 bls. að
stærð.
Við útgáfu ritsins var haft að
leiðarljósi að úrskurðirnir yrðu
aðgengilegir fyrir byggingar-
nefndir, sveitarstjórnir og
hagsmunaðila á sviði bygging-
ar- og skipulagsmála svo og
allan almenning, segir í frétta-
tilkynningu.
Ritið fæst keypt í Bóksölu
stúdenta og kostar 1.500 kr.