Morgunblaðið - 24.10.1998, Qupperneq 25
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 25
VIÐSKIPTI
Framkvæmdastjóri Smáralindar um gagnrýni eÍKenda Sautján
Dregur ekki úr áhuga
cinimrra kaupmanna
ÁKVÖRÐUN eigenda fataverslunarinnar
Sautján uni að draga sig út úr samningaviðræð-
um við verslunarmiðstöðina Smáralind, mun ekki
hafa nein áhrif á framvindu verkefnisins né verða
til þess að draga úr áhuga annarra kaupmanna á
þátttöku. Þetta er mat Pálma Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Smáralindar ehf.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á
fímmtudag, þá hafa forsvarsmenn Sautján ákveð-
ið að slíta samningaviðræðum um þátttöku í
Smáralindarverkefninu. Að sögn Asgeirs Bolla
Kristinssonar, framkvæmdastjóra Sautján,
byggir ákvörðunin á niðurstöðum markaðsrann-
sókna sem gefa tilefni til að ætla að Smáralindar-
verkefnið gangi ekki upp.
Kemur ekki á óvart
Pálmi segir ákvörðunina ekki koma sér á
óvart enda litlar sem engar formlegar viðræður
átt sér stað á milli aðilanna: „Fyrsti og eini fund-
ur okkar með þessum kaupmanni fór fram
fimmtudaginn 15. október að hans beiðni en á
það má benda að sl. 1-2 ár höfum við átt fundi
með 100-200 innlendum og erlendum kaupmönn-
um. Akvörðun þeirra um að draga sig til baka
hefur engin áhrif á verkefnið og í raun skiptir
verslunin Sautján engu máli í þessu sambandi.
Við höfum lengi vitað um áform þeirra að opna
fleiri verslanir í útihúsi og tengibyggingu Kr-
inglunnar þar sem viðkomandi kaupmaður er
formaður byggingarnefndar og einn stærsti
hluthafínn. Fyrir liggur að ein stærsta og
þekktasta tískuverslun heims, Top Shop / Top
man, mun verða með verslun í Smáralind auk
annarra þekktra tískuverslana, jafnt innlendra
sem erlendra. Það er því líklegt að viðskiptavinir
Smáralindar muni flestir fínna verslanir við sitt
hæfi 1 húsinu“, að sögn Pálma.
Hann vísar gagnrýni framkvæmdastjóra
Sautján um óraunhæfar áætlanir á framkvæmd-
um í Kópavogi á bug og bendir á að niðurstaða
Bolla hljóti fyrst og fremst að byggja á mati hans
á eigin aðstæðum og samkeppnishæfni fremur en
markaðsathugunum er varða Smáralind: „Hann
hefur ekki haft aðgang að niðurstöðum þeirra
umfangsmiklu markaðsrannsókna sem við höfum
unnið að sl. 2-3 ár. Þær benda ótvírætt til þess að
þörfin fyrir slíkt húsnæði sé til staðar og gott
betur. Ökkur er jafnframt kunnugt um að for-
ráðamenn Kringlunnar hafi komist að svipaðri
niðurstöðu í úttekt sem þeir létu gera fýrr á
þessu ári og líklegt er að þeir hafi stuðst við varð-
andi ákvörðun um stækkun Kringlunnar. í raun
minna þessar yfirlýsingar eigenda Sautján um
Smáralind dálítið á þá gagnrýni sem einn stærsti
og þekktasti tískukaupmaður landsins viðhafði
um Kringluna fyrir 12-13 árum“.
270 aðilar sýnt áhuga
Pálmi segir að auðvitað sé það markaðurinn
sem endanlega ráði því hvort þörfin fyrir Smára-
lind sé til staðar. í því sambandi bendir hann á að
nú hafi um 270 innlendir aðilar í verslun og þjón-
ustu lýst yfir áhuga á að fá þar inni auk fjölda er-
lendra fyrirtækja: „Við höfum nú þegar ráðstafað
um 60% af leiguplássi hússins og miðað við þá
eftirspurn er ljóst að færri komast að en vilja“.
Undanfarið hefur farið fram endurmat á ýms-
um verkþáttum framkvæmdanna sem að sögn
Pálma miðar að því að gera Smáralind að öflug-
ustu verslunar- og þjónustumiðstöð landsins.
M.a. kemur til greina að stækka húsið nokkuð
umfram þá 44 þúsund fermetra sem upphaflegar
teikningar gera ráð fyrir. Af þeim sökum hefur
hægt nokkuð á jarðvinnunni við Smáralind sem
staðið hefur yfir frá því í vor meðan verið er að
endurskipuleggja hönnunarferlið. Upphaflegar
áætlanir gengu út frá því að reksturinn hæfist
um haustið 2000 en að sögn Pálma liggur ekki
enn fyrir hvort einhverjar tafir verða á fyrirhug-
uðum opnunartíma.
Irving, Texas. Reuters.
Exxon með 23%
minni hagnað
EXXON olífélagið segir að
hagnaður þess á þriðja ársfjórð-
ungi hafi minnkað um 23% 11,4
milljarða dollara úr 1,82 millj-
örðum á sama tíma í fyrra
vegna þess að olíuverð lækkaði
um þriðjung og hefur ekki verið
lægra síðan 1986.
Hagnaður á hlutabréf minnk-
aði í 58 sent úr 74 sentum eins
og sérfræðingar höfðu búizt
við. Framleiðsla Exxon stóð í
stað og nam 1,55 milljónum
tunna á dag.
Meðalverð hráolíu lækkaði um
6 dollara fatið og hagnaður af
olíuleit og framleiðslu í Banda-
ríkjunum minnkaði í 211 milljón-
ir dollara úr 326 milljónum. Er-
lendis minnkaði þessi hagnaður
um meira en helming í 274 millj-
ónir dollara úr 569 milljónum
dollara á sama tíma í fyrra.
Sem fyrr hagnaðist Exxon vel
á olíuhreinsun og markaðssetn-
ingu. Sá hagnaður jókst um 10%
vegna betri markaðsstöðu í
Bandaríkjunum, Evrópu og Ró-
mönsku Ameríku og aukins
hagnaðar af smurolíu, sem vó á
móti veikri stöðu á Asíu-Kyrra-
hafssvæðinu og á sviði olíu-
hreinsunar í Baudaríkjunum.
Hagnaður í Bandaríkjunum af
olíuhreinsun og markaðssetn-
ingu minnkaði um 40 milljónir
dollara í 142 milljónir, en hagn-
aðurinn erlendis jókst um 90
milljónir dollara í 439 milljónir
dollara.
Microsoft
með meiri
hagnað en
spáð var
Seattle. Reuters.
MICROSOFT-hugbúnaðarris-
inn jók rekstrarhagnað sinn á
fyrsta fjórðungi reikningsárs
síns meir en sérfræðingar
höfðu búizt við og býst við að
hagnaðurinn haldi áfram að
aukast á yfirstandandi ársfjórð-
ungi.
Methagnaður Microsoft
stafar að nokki’u leyti af sam-
stiltum aðgerðum til að draga
úr kostnaði og er fjárfestum
fagnaðarefni eftir slæmt umtal
um fyrirtækið í marga mánuði
vegna lögsóknar til að koma í
veg fyrir hringamyndun.
Hagnaður Microsoft nam
1,52 milljörðum dollara, eða 56
sentum á hlutabréf, á þremur
mánuðum til septemberloka
samanborið við 959 milljónir
dollara, eða 36 sent á hlutabréf
á sama tíma í fyrra.
Rekstrarhagnaðurinn á árs-
fjórðungnum var 14% meiri en
almennt hafði verið spáð í Wall
Street, þar sem búizt hafði ver-
ið við 49 sentum á hlutabréf.
Fjármálastjóri Microsoft,
Greg Maffei, spáði áframhald-
andi hagnaði og taldi spá sér-
fræðinga um 52 senta hagnað á
hlutabréf lýsa of mikilli var-
kárni.
Sérfræðingur Goldmans
Sachs hældi Microsoft og spáði
áframhaldandi velgengni.
Microsoft sagði að eftirspurn
eftir Windows 98 stýrikerfinu
hefði verið meiri en búizt hefði
verið við í nokkrum Evrópu-
löndum og Japan, þótt almennt
hefðu undirtektir verið dræmar
í Asíu. Fyrirtækið kveðst hafa
selt 10 milljónir eintaka af
Windows 98 síðan 25. júní.
Er ein skemmtilegasta nýjungin í húsgögnum hin síðari ór
Er sérstaktega hannaður til að mœta krö/um nútímans
um aukin þœgindi
Er með innbyggðu skammeli í bóðum endasœtum
Er með niðurfellantegu baki í miðju sem breytist í borð
með einu handtaki
Er með blaðageymslu þar sem þú gengur að
sjónvarpsdagskrúnni vísri
Er/danlegur í mörgum tegundum, áklœðum og titum
Er húsgagn sem þú vilt ekki vera án
onvar
★
★
★
★
lll lli-1.1 *
★ ★
Kr 122.460
---------- ★
eða kr. 4.350 að meðaltali
á mán. í 36 mánuði
HÚSGAGNAHÖLUN
Bildshöfði 20-112 Rvík - S:510 8000
Fyrir/alteg heimiti