Morgunblaðið - 24.10.1998, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
ERLENT
SSI leggur til stofnun
landsfélags sjómanna
„Mikilvægt að einingarnar verði sem fæstar og stærstar“
Reuters
Ungverjar minnast
uppreisnar
FLEST bendir nú til að sjómanna-
félögin í landinu sameinist í eitt
stórt landsfélag sjómanna. 21. þing
Sjómannasambands Islands sam-
þykkti ályktun í gær þess efnis að
nauðsynlegt sé að fækka félögum,
sem hafi samningsumboð til að
semja um kaup og kjör sjómanna,
fækki þannig að félagseiningarnar
verði færri og stærri. Þingið taldi
að markmiðið sé að í framtíðinni
verði samið um kaup og kjör sjó-
manna á einu borði og því mark-
miði megi ná með stofnun eins
landsfélags sjómanna. Svipuð um-
ræða á sér stað innan Farmanna-
og fiskimannasambands Islands,
en vélstjórar eru flestir í einu
landsfélagi, Vélstjórafélagi Is-
lands.
Þessari ályktun þingsins, sem
lauk í gær, var beint til sambands-
stjórnar SSI. Jafnframt áréttaði
þingið að með sameiningu sjó-
mannafélaganna sé ekki stefnt að
því að brjóta niður félagseiningar
á hverjum stað. Þvert á móti sé
hugunin sú að áfram verði unnt að
starfrækja slíkar einingar eftir at-
vikum sem deildir í stærri félög-
um.
Skoðanakönnun
um hug sjómanna
Jafnframt var samþykkt að
beina því til sambandsstjórnar
SSÍ, að hún léti fara fram skoðana-
könnun meðal sjómanna sem aðild
eiga að félögum sem eru í SSÍ um
skoðun þeirra á því að stofna eitt
landsfélag sjómanna. Mikil áherzla
verði lögð á að skoðanakönnunin
verði mjög vandlega undirbúin og
unnin af fagaðilum. Stefnt skuli að
því að henni verði lokið fyrir fyrsta
maí 1999. Þegar niðurstöður liggi
fyrir, verði sambandsstjórnin boð-
uð til fundar til að marka stefnuna
fram á veginn.
Loks yar því beint til aðildarfé-
laga SSÍ að þau taki til sérstakrar
umfjöllunar skipulagsmál SSÍ á
komandi félags- og aðalfundum.
Mest umræða um
skipulagsmálin
„Helztu mál þingsins voru at-
vinnu- og kjaramál, öryggismál og
loks skipulagsmál, sagði Sævar
Gunnarsson, formaður SSÍ í sam-
tali við Morgunblaðið að þinginu
loknu. „Kannski má segja að þar
hafi umræðan verið langmest,
hörðust og mjög skiptar skoðanir
milli manna. Það var nauðsynlegt
veganesti fyrir sambandsstjómina
til næstu tveggja ára að heyra ofan
í menn. Það voru samþykktar þar
ályktanir um að fara í skoðana-
kannair meðal sjómanna um vilja
þeirra. það verður svo okkar hlut-
verk að starfa eftir þeirra vilja svo
ákvörðunin um þessa skoðana-
könnum svar hvað markverðast í
þeirri umræðu.“
Skilvirkari
ákvarðanataka
Eigum við von á því að á allra
næstu árum verði stofnað eitt félag
sjómanna, Sjómannafélag íslands?
„Eg leyni því ekkert að það er
mín skoðun að svo ætti að verða
mjög fljótlega og þá á ég við inn-
an tveggja til þriggja ára. En
menn eru ekki allir sammála um
það. Sumir telja það fyrirkomu-
lag, sem er í dag, mjög gott, en
vilja þó sníða af því nokkra agnúa.
Ef við ætlum að styrkja okkur og
efla í baráttunni fyrir sjómenn,
eigum við að verða með sem fæst-
ar einingar. Þeim mun færri og
stærri, þeim mun styrkari. Þá
verður öll ákvarðana taka einnig
skilvirkari. Það tekur oft langan
tíma, þegar leita þarf með málin
inn í 37 félög til að fá niðurstöðu.
Það er oft þannig að ekki er hægt
að bíða í langan tíma eftir ákvörð-
unum. Það verður að taka þær
strax.
Þetta var mjög gott þing. Það
var starfsamt og nefndarstörf skil-
uðu sér mjög vel. Mér finnst það
alltaf góð þing, þegar menn skipt-
ast á skoðunum og svo var nú, sér-
staklega í skipulagsmálunum, en
reyndar öðrum málaflokkum líka.
Það er mjög gott fyrir forystuna að
heyra mismunandi skoðanir, því
öðlast þeir meiri skilning á því,
sem er að gerast í kringum þá. Ég
er mjög ánægður að loknu þessu
þingi, þar voru engar væringar eða
leiðindi af neinu tagi og góð niður-
staða í öllum helztu málaflokkun-
um,“ sagði Sævar Gunnarsson,
sem var endurkjörinn formaður
SSÍ.
ARPAD Goncz, forseti Ungverja-
lands, lagði í gær blóm að Ieiði
Imres Nagys, fyrrverandi forsæt-
isráðherra landsins, en hann var
leiðtogi uppreisnarinnar í Ung-
verjalandi árið 1956 gegn yfírráð-
um Sovétkommúnista. Héldu
Ungveijar í gær hátíð í minningu
þess að 42 ár eru liðin frá upp-
reisninni sem Sovéther barði nið-
ur með slíkri hörku að talið er að
tuttugu og fimmþúsund manns, að
minnsta kosti, hafi látið lífið.
I hátíðahöldum gærdagsins
fögnuðu Ungverjar fullu sjálf-
stæði sínu og einnig væntanlegri
aðild að Evrópusambandinu og
Atlantshafsbandalaginu (NATO).
Allir skipverjar þurfa
að þekkja stöðugleika
Fyrrverandi meðlimur sértrúarsafnað-
ar í Japan dæmdur til dauða
Fleiri dauðadóm-
Fræðslufundir um stöðugleika skipa haldnir víða um land
Morgunblaðið/Ásdts
FYRSTI kynningarfundur um stöðugleika skipa var haldinn um borð í
Sæbjörgu á fimmtudag og var hann vel sóttur.
ar væntanlegir
Tdkýó. Reuters.
SAMGÖN GURÁÐUNE YTIÐ
mun á næstu vikum og mánuðum
beita sér fyrir fræðslufundum um
stöðugleika skipa. Tilgangur fund-
anna er að minna á mikilvægi
málsins fyrir öryggi áhafna og
skipa. A fundunum verður farið yf-
ir alla helstu þætti sem varða stöð-
ugleika skipa og notast við mynd-
band og módel til að skýra málið
frekar. Þá er einnig farið yfir
helstu lög og reglur. Kennarar úr
Stýrimannaskólanum og starfs-
menn Siglingastofnunar Islands
annast kynninguna. Fundirnir eru
öllum opnir en sérstaklega er
vænst þátttöku sjómanna og út-
gerðarmanna.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra hleypti fundarherferðinni af
stokkunum á fyrsta fundinum sem
haldinn var um borð í Sæbjörgu,
skipi Slysavamaskóla sjómanna á
fimmtudag. Þar sagði Halldór m.a.
að síðustu misserin hefði farið fram
töluverð umræða um stöðugleika
skipa í þjóðfélaginu. Mikilvægt væri
að skipsáhafnir gerðu sér grein fyr-
ir stöðugleika skips síns og að lög
og reglur þar að lútandi væru í
heiðri hafðar. Á námskeiðunum yrði
lögð áhersla á að kynna helstu þætti
stöðugleika og þannig tryggt að
hörmuleg slys verði sem sjaldnast
vegna þess að sjómenn hafi ekki
þekkingu eða skilning á stöðugleika
skipanna. „Island er fiskveiðiþjóð
og því ber okkur að hafa öryggismál
sjófarenda í öndvegi. Umræða sem
þessi er þannig ætluð til fækka slys-
um úti á sjó,“ sagði Halldór.
Á fundinum fjallaði Sigurður
Jónsson, kennari við Stýrimanna-
skólann í Reykjavík, um eðli stöð-
ugleika og helstu reglur þar um. í
máli hans kom m.a. annars fram að
mikilvægt væri fyrir skipstjómar-
menn að vita hve mikið megi lesta
skip. Hann lagði einnig ríka
áherslu á að allir í áhöfn skips
þyrftu að skilja eðli og sjólag skips-
ins og vita hvemig koma eigi
þunga fyrir um borð.
Fundir um allt land
Fleiri fundir verða haldnir víðs
vegar um landið á næstu vikum:
24. okt. ísafirði og Raufarhöfn
25. okt. Hólmavík og Húsavík
30. okt. Sauðárkróki og Reyðar-
firði
31. okt. Stöðvarfirði og Siglufirði
1. nóv. Höfn og Skagaströnd
13. nóv. Keflavík og Dalvík
14. nóv. Vestm.eyjum og Akureyri
20. nóv. Akranesi og Þorlákshöfn
21. nóv. Grundarfirði og Grindavík
Síðar verður auglýst á viðkom-
andi stöðum hvar fræðslufundimir
verða haldnir og á hvaða tíma.
Fundur í Grímsey verður tilkynnt-
ur síðar.
DOMSTOLL í Tokýó dæmdi í gær
til dauða mann sem var á sínum
tíma meðlimur í sértrúarsöfnuðin-
um Aum Shinry Kyo (Æðsti sann-
leikur)sem bar ábyrgð á gasárás í
neðanjarðarlestarstöð í Tókýó árið
1995 þar sem tólf manns dóu og
margir veiktust hastarlega. Er gert
ráð fyrir að fleiri slíkir dómar fylgi í
kjölfarið.
Sakborningurinn, Kazuaki
Okazaki, átti að vísu ekki þátt í
gastilræðinu sjálfu en var dæmdur
fyrir morðin á Tsutsumi Sakamoto,
lögmanni sem beitti sér gegn söfn-
uðinum, konu hans og eins árs
gömlum syni árið 1989. Bíður Shoko
Asahara, leiðtogi safnaðarins, sjálf-
ur dóms fyrir gasárásina en einnig
fyrir þátttöku í morðunum á
Sakamoto-fjölskyldunni.
Okazaki játaði glæpi sína árið
1995 en saksóknari benti við réttar-
höldin á að Okazaki hefði láðst að
geta þess þá að hann sjálfur kyrkti
Sakamoto með berum höndum.
Lögfræðingur Okazakis hafði samt
sem áður farið fram á vægð þar sem
játning sakborningsins hefði aðstoð-
að yfírvöld við rannsókn málsins,
sem lengi hafði gengið illa.
Sagði Megumi Yamamuro, dóm-
ari í málinu, við dómsuppkvaðningu
að vægð kæmi ekki til greina.
„Jafnvel þótt ég taki til greina eftir-
sjá sakbornings og aðrar málsbæt-
ur sem hann hefur þá eru glæpir
hans of alvarlegir og leyfa ekki að
ég sýni vægð og mildi dóm hans í
lífstíðarfangelsi."
Sagði dómarinn að líta bæri á þá
staðreynd að Okazaki hefði ekki
gefið sig fram við lögregluna vegna
eftirsjár sinnar heldur vegna þess
að hann óttaðist að söfnuðurinn
hygðist ráða sig af dögum. Segist
Okazaki hafa sagt skilið við söfnuð-
inn árið 1990, löngu fyrir gastilræð-
ið mannskæða.
----------------
Klerka-
kosning-
ar íIran
Teheran. Reuters.
KOSNINGAR fóru fram í íran í
gær til áhrifamikillar samkundu
klerka. Mohammad Khatami, for-
seti landsins, hvatti almenning til
þátttöku, en gagnrýndi val fram-
bjóðenda, þar sem dreginn hefði
verið taumur íhaldssamra klerka.
Sérfræðingaráðið svonefnda, sem
skipað er 86 klerkum, tilnefnir
erkiklerkinn, sem er valdamesti
maður landsins. Sérstök nefnd, þar
sem íhaldssamir klerkar voru í
meirihluta, lagði mat á guðfræði-
lega „hæfni“ frambjóðenda, og varð
niðurstaðan sú að 80% þeirra sem
metnir voru hæfir teljast íhalds-
samir. Nokkrir mikilsvirtir stuðn-
ingsmenn Khatamis drógu framboð
sitt til baka í mótmælaskyni.
Khatami, sem þykir frjálslyndur
á íranska vísu, lét þau orð falla er
hann greiddi atkvæði að það væru
örugglega fleiri menn hæfir til setu
í ráðinu en þeir 160 sem hlutu náð
fyrir augum dómnefndarinnar.