Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 29
80 konur í
blóðprufu
ÁTTATÍU sænskar konur fóru
í gær í blóðprufu vegna ótta
um að þær hefðu smitast af
eyðniveirunni af fjöllyndum
manni sem grunaður er um að
hafa haft samræði við meira en
100 konur. Mannsins, sem
kynnti sig sem James Kimball,
er nú leitað og sögðu fulltrúar
lögreglunnar í gær að þeim
hefði borist ábending um að
maðurinn, sem talið er að sé
Irani, væri nú á nýjan leik í
Stokkhólmi en hann var áður
sagður hafa flúið til Danmerk-
ur.
Chevene-
ment heim
JEAN-PIERRE Chevenem-
ent, innanríkisráðherra Frakk-
lands, sem var átta daga í djúp-
um dásvefni
eftir gall-
blöðruupp-
skurð, fékk að
fara af
sjúkrahúsi í
gær eftir sjö
vikna dvöl.
Uppskurður-
inn sem
Chevenement
fór í telst áhættulítill en líkami
hans brást hins vegar illa við
svæfingu og hætti hjarta ráð-
herrans að slá. Virtist
Chevenement í góðu ásigkomu-
lagi í viðtali sem tekið var við
hann í vikunni en þó er gert ráð
fyrir að hann muni þurfa að
fara vel með sig næstu tvo
mánuðina.
Fær NATO
Nóbel?
TVEIR þingmenn norsku
stjórnarandstöðunnar til-
nefndu í gær Atlantshafs-
bandalagið (NATO) til friðar-
verðlauna Nóbels fyrir árið
1999. Segja þau Björn Hernaes
og Ingvald Godal, þingmenn
hægriflokksins, að NATO hafi
framar öðrum samtökum
tryggt frið og öryggi í Evrópu
eftir síðari heimsstyrjöldina.
Sögðu þau í bréfi til Nóbels-
nefndarinnar að við hæfi væri
að NATO fengi friðarverðlaun-
in á næsta ári, þegar bandalag-
ið heldur upp á fimmtíu ára af-
mæli sitt, og þegar gert er ráð
fyrir að þrjú ný lönd gangi til
liðs við það, Pólland, Ungverja-
land og Tékkland. Þau Herna-
es og Godal eru í fyrra fallinu
með tilnefninguna því ekki er
nema vika liðin síðan tilkynnt
var að John Hume og David
Trimble, sem aðstandendur
friðarsamkomulags á N-ír-
landi, hiytu verðlaunin í ár.
Iranir hafna
skýrslu SÞ
ÍRANIR sögðu í gær að
skýrsla sem Sameinuðu þjóð-
irnar hafa gert um ástand
mannréttindamála í íran væri
„pólitísk“ og stangaðist sem
slík á við stofnsáttmála SÞ. Var
hún sögð í ósamræmi við þróun
í átt til aukins frelsis í íran sem
átt hefði sér stað frá því Mo-
hammad Khatami var kjörinn
forseti í fyrra. I skýi-slunni var
því haldið fram að mannrétt-
indabrot viðgengjust enn í Iran
jafnvel þótt margir leiðtoga
landsins vildu innleiða meira
samfélagslegt umburðarlyndi.
Carlos Menem neitar að hafa beðist
afsökunar á Falklandseyjastríðinu
Menem segir orð sín
hafa verið oftúlkuð
London. Reuters.
CARLOS Menem, forseti Argentínu,
neitaði í gær að hafa beðið Breta af-
sökunar á Falklandseyjastríðinu sem
Argentínumenn og Bretar háðu árið
1982 og sagði að breska dagblaðið
The Sun hefði mistúlkað orð sem
hann lét falla í blaðinu.
í gi-ein sem Menem reit í The Sun
í gær lýsti hann „djúpri eftirsjá“
vegna stríðsins sem háð
var um yfirráð yfir
Falklandseyjum.
„Fjöldi ungra og efni-
legra argentínskra og
breskra pilta lét lífið í
stríði sem hefði aldrei
átt að eiga sér stað og
það hörmum við mjög.“
Menem staðhæfði hins
vegar í gær að þessi orð
sín hefðu ekki átt að
gefa ritstjórum The
Sun tilefni til að skella
fyrirsögninni „Argent-
ína biðst afsökunar á
Falklandseyjastríðinu“
á forsíðu blaðsins eins
og þeir gerðu. „Orðin
„ég biðst afsökunar“
eru víðs fjarri þeim sem ég notaði,"
sagði Menem við blaðamenn.
David Yelland, ritstjóri The Sun,
sagðist í gær standa við fyrirsögn
blaðsins og ítrekaði þá skoðun sína
Argentína gerir
enn kröfur til
Falklandseyja
að orð Menems hlytu að verða túlkuð
sem afsökunarbeiðni. „Það er ekki
hægt að búast við því að forseti Ar-
gentínu falli niður á
hnén og segi afsakið, af-
sakið, afsakið. En hann
kemst ekki nær því en
þetta,“ sagði Yelland.
Menem sagði í gær
að ríkisstjórn sín gerði
enn kröfu til
Falklandseyjanna, sem
Argentínumenn kalla
Malvínaseyjar, og að
hann myndi nota tæki-
færið þegar hann heim-
sækir Bretland í næstu
viku til að ítreka þá
kröfu. Hann sagði hins
vegar að Argentína
mjmdi einungis sækja
málið með friðsamleg-
um hætti hér eftir.
Falklandseyjar, sem liggja úti fyr-
ir ströndum Argentínu sunnarlega í
Atlantshafi, tilheyi’a Bretlandi en
Argentínumenn hertóku eyjarnai- í
apríl árið 1982. Sendu bresk stjórn-
völd þá herskip suður í höf og náðu
eyjunum á sitt vald á nýjan leik eftir
bardaga.
Misheppnuð sáttatilraun?
Talsmaður breska forsætisráðu-
neytisins sagði í gær að orð Menems
hlytu í öllu falli að verða túlkuð sem
sáttaboð til Breta. Munu bresk
stjórnvöld hafa verið höfð í ráðum
þegar grein Menems var rituð en
fréttaskýrendur sögðu í gær að ef
áætlun Argentínumanna hafi verið
sú að liðka fyrh- vegna umdeildrar
heimsóknar Menems til Bretlands á
þriðjudag, þá fyi-stu argentínsks
þjóðhöfðingja síðan fyi'ir
Falklandseyjastríðið, hafi sú tilraun
mistekist.
Hefur Menem m.a. blandast inn í
umræðu um handtöku Augustos Pin-
ochets, fyrrverandi ehu'æðishen’a í
Chile, en hann sagðist í fyrrakvöld
styðja kröfu stjórnvalda í Chile um að
Pinochet verði þegar látinn laus.
Margaret Thatcher, sem var forsæt-
isráðherra Bretlands á tímum
Falklandseyjastríðsins, skammaði
einnig núverandi stjórnvöld í Bret-
landi í fyrradag fyrir að handtaka
Pinochet, sem veitti Bretum aðstoð í
sfiáðinu við Argentínumenn, á sama
tíma og í bígerð væri að taka vel á
móti forseta Argentínu.
Blair og
Ahern á
neyðarfundi
REIKNAÐ er með að Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, og
Bertie Ahern, forsætisráðherra ír-
lands, eigi í dag neyðai'fund vegna
deilunnar um afvopnun öfgahópa á
N-írlandi sem talin er ógna friðar-
samkomulaginu frá páskum. Eru
þeir Blair og Ahern báðir staddir í
Austurríki þar sem fram fer sér-
stakur fundur leiðtoga Evrópusam-
bandsríkjanna.
Jafnframt fer fram í dag flokks-
þing Sambandsflokks Ulsters (UUP)
í DeiTy-borg á N-írlandi en frétta-
skýrendur The Irísh Times gerðu í
gær ekki ráð fyrir því að þar yrði
gerð atlaga að David Trimble, leið-
toga flokksins og verðandi forsætis-
ráðherra á N-Irlandi, sem hlýtur
friðarverðlaun Nóbels í ár. Segja
fréttaskýrendur að á meðan Trimble
lætur ekki af þeirri kröfu sinni að
Irski lýðveldisherinn (IRA) afvopn-
ist áður en fulltrúum Sinn Féin er
veitt aðild að ríkisstjóm sé hann
tryggur í sessi sem leiðtogi UUP.
Martin McGuinness mun hafa ít-
rekað við Blair á fundi í London á
mánudag að það sé ekki í valdi Sinn
Féin að fá IRA tii að afvopnast og
virðist þvi komin upp pattstaða í
málinu. Er jafnvel gert ráð fyrir að
Blair haldi til Belfast í næstu viku
til að gera tilraun til að þrýsta á um
málamiðlun áður. Liðsmenn UUP
hafa hins vegar vakandi auga með
því að Trimble gangi ekki of langt í
málamiðlunarátt og því óvíst hvern-
ig deilan verður leyst.
CARLOS
Menem
Ovænt hag-
vaxtaraukning
í Bretlandi
London. Reuters.
ÞVERT ofan í spár
manna sýndu hagtöl-
ur, sem gerðar voru
opinberar í gær, að
efnahagur í Bretlandi
var áfram í vexti á
þriðja ársfjórðungi og
féll verð á hlutabréfa-
markaði nokkuð eftir
að þessar fréttir voru
kunngerðar því miðl-
arar telja nú ólíklegt
að Englandsbanki
lækki vexti á fundi
sínum 4-5. nóvember.
Kasta hagtölurnar
einnig rýrð á aukna
trú manna á að sam-
dráttur sé væntanlegur í
efnahag á næsta ári.
Framleiðsla á vöru og
jókst um 0,5% á þriðja ársfjórð-
ungi, jafnmikið og á öðrum árs-
fjórðungi og talsvert meira en
breskar fjármálastofnanir höfðu
spáð, en þær spáðu því nýverið að
aukningin yrði 0,3%.
Breska hagstofan sagði í gær
að framleiðsla í iðnaði hefði ekki
minnkað sem neinu næmi og jafn-
vel væru merki um að hún færi
vaxandi. Hefur nú átt sér stað
stöðug hagvaxtaraukning síðan á
öðrum ársfjórðungi árið 1992 og
hefur breskur efnahagur vaxið
um 21% síðan þá.
„Þessar upplýsingar veita enga
heimild til að menn slaki á verði
sínum en tölurnar sýna að vegna
þeirra markvissu aðgerða sem
þessi ríkisstjórn hefur beitt sér
fyrir er breska þjóðarskútan nú
betur fallin til að sigla í gegnum
ólgusjó í efnahag heimsins," sagði
Stephen Byers, fulltrúi í breska
fjármálaráðuneytinu.
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands,
kvaðst í fyrrakvöld
ekki íhuga niðurskurð
ríkisútgjalda þrátt
fyrir blikur á lofti í
efnahagsmálum, og
sagði að auknar fjár-
veitingar í heilbrigðis-
og menntamálum,
sem fyrirhugaðar eru
á næsta ári, væru
áfram á dagskrá jafn-
vel þótt það myndi
kosta tímabundinn
halla á fjárlögum.
Viðurkenndi Brown
þó að hann yrði
sennilega að breyta
breskum spá sinni um hagvöxt á næsta ári,
að öllum líkindum úr tveimur pró-
þjónustu sentum í eitt prósent.
Gordon
Brown
Reuters
Varasöm fjórhjól
BANDARISKA stórfyrirtækið
Fisher-Price hefur ákveðið að
innkalla allt að 10 milljónir raf-
knúinna fjórhjóla og annarra
slíkra farartækja vegna galla.
Hefur kviknað skyndilega í sum-
um þessara farkosta, til dæmis
þessum, sem var til sýnis hjá
bandarísku neytendaverndar-
stofnuninni.
Fyrrverandi meðlimur sértriíar-
safnaðar dæmdur til dauða
Tókýó. Reuters.
DÓMSTÓLL í Tókýó dæmdi í gær
til dauða mann sem var á sínum
tíma meðlimur í sértrúarsöfnuðin-
um Aum Shinry
Kyo (Æðsti
sannleikur)sem
bar ábyrgð á
gasárás í neðan-
jarðarlestarstöð
í Tókýó árið 1995
þar sem tólf
manns dóu og
margh' veiktust
hastarlega. Er
gert ráð fyrir að
fleiri slíkir dómar fylgi í kjölfai'ið.
Sakborningurinn, Kazuaki
Okazaki, átti að vísu ekki þátt í
gastilræðinu sjálfu en var dæmdur
KAZUAKI
Okazaki
fyrir morðin á Tsutsumi Sakamoto,
lögmanni sem beitti sér gegn söfnuð-
inum, konu hans og eins árs gömlum
syni árið 1989. Bíður Shoko Asahara,
leiðtogi safnaðarins, sjálfur dóms
fyrh' gasárásina en einnig fyrir þátt-
töku í morðunum á Sakamoto-fjöl-
skyldunni.
Okazaki játaði glæpi sína árið
1995 en saksóknari benti við rétt-
arhöldin á að Okazaki hefði láðst
að geta þess þá að hann sjálfur
kyrkti Sakamoto með berum
höndum. Lögfræðingur Okazakis
hafði samt sem áður farið fram á
vægð þar sem játning sakborn-
ingsins hefði aðstoðað yfirvöld við
rannsókn málsins, sem lengi hafði
gengið illa.
Sagði Megumi Yamamuro,
dómari í málinu, við dómsupp-
kvaðningu að vægð kæmi ekki til
greina. „Jafnvel þótt ég taki til
greina eftirsjá sakbornings og
aðrar málsbætur sem hann hefur
þá eru glæpir hans of alvarlegir
og leyfa ekki að ég sýni vægð og
mildi dóm hans í lífstíðarfang-
elsi.“
Sagði dómarinn að líta bæri á þá
staðreynd að Okazaki hefði ekki
gefið sig fram við lögregluna vegna
eftirsjár sinnar heldur vegna þess
að hann óttaðist að söfnuðurinn
hygðist ráða sig af dögum. Segist
Okazaki hafa sagt skilið við söfnuð-
inn árið 1990, löngu fyrir gastilræð-
ið mannskæða.