Morgunblaðið - 24.10.1998, Side 30
30 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Járnhúsgögn
í Hagkaup
HAGKAUP hóf sölu á járnhús-
gögnum í gær. Húsgögnin eru
frá Tékklandi og eru úr massífu
járni, ýmist með gler- eða við-
arplötum. Um er að ræða, hillur,
sófaborð, lampaborð, stóla,
blaðagrindur, arinsett, kerta-
stjaka og margt, fleira. Húsgögn-
in fást í Hagkaup Skeifu, Kr-
inglu, Smáratorgi og Akureyri.
-------------
Grænmetisréttir
á Pizza Hut
FRAM kom fyrir stuttu á Neyt-
endasíðunum að lítið framboð væri
af skyndibitafæði fyrir græn-
metisætur í tveimur þekktum
skyndibitafæðiskeðjum í Reykjavík.
Hjá Steinþóri I. Ólafssyni, eiganda
Pizza Hut, kom fram að boðið væri
upp á salatbar, grænmetispizzu og
grænmetispastarétt á veitingahús-
inu.
Steinþór sagði að skylda væri að
bjóða upp á salatbari á Pizza Hut
veitingahúsum um allan heim. Hon-
um hefði sjálfum ekki litist alltof vel
á hugmyndina þegar hann hóf
reksturinn fyrir 10 árum. Fyrst um
sinn hefði salatbarinn aðallega verið
sóttur af útlendingum. Smám sam-
an hefði Islendingum fjölgað og
væri salan nú orðin nokkuð stöðug.
Með salatbamum er selt brauð og
súpa. Sérstök grænmetispizza og
pastaréttur með grænmeti eru á
matseðli Pizza Hut.
-----♦-♦-♦---
Nýr orku-
drykkur
HAFIN er sala á nýjum orkudrykk
undir nafninu NICE. Orkudrykkur-
inn er framleiddur úr náttúrulegum
afurðum og hentar sérstaklega vel
fyrir og eftir íþróttaviðburði, próf,
erfiðan vinnudag eða ferðalag að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Umboðsaðili NICE á íslandi er Eð-
alvín ehf. og ýemur orkudrykkurinn
frá Svíþjóð. í hverri dós eru 250 ml.
NICE fæst í flestum stórmörkuð-
um, matvörubúðum, líkamsræktar-
stöðvum og sölutumum um land
allt.
Sala á ávöxtum og grænmeti
Stykkjaverði breytt í kfló-
verð í síðustu verslununum
ÞRÁTT fyrir að innlent bann á
notkun stykkjaverðs í sölu á græn-
meti og ávöxtum hafi verið fest í
sessi með aðild Islendinga að samn-
ingnum um Evrópskt efnahags-
svæði var lítið gert til að uppræta
stykkjaverðið þar til Samkeppnis-
stofnun kannaði ástandið í matvöru-
-verslunum undir lok september. Að-
alástæðan fyrir því að óeðlilegt þyk-
ir að styðjast við stykkjaverðið er
að hver eining getur verið ákaflega
misþung og þar af leiðandi misdýr í
innkaupum fyrir neytendur. Dæmi
hefur verið tekið af því að blaðlauk-
ur á 98 kr. stykkið geti vegið 62 g
eða 278 g. Viðskiptavinurinn greiði
því 353 kr. fyrir kílóið af þyngri
blaðlauknum og 1.580 kr.
fyrir kílóið af léttari blað-
lauknum. Munurinn á kíló-
verðinu er 348%.
Lárus ísfeld, innkaupa-
maður hjá Nýkaup, sagðist
vera að breyta stykkjaverði í
kílóverð þegar talað var við
hann á fimmtudag. Fyrir
breytinguna voru rabbarbari,
gul melóna, sellerí, blaðlauk-
ur, jöklasalat og grænkál seld
í stykkatali. Eftir breyting-
una er aðeins hægt að fá
vigtað grænmeti og ávexti á
stykkjaverði samkvæmt kíló-
verði, t.d. 250 g af baunaspír-
um á fjórðungi af kílóverði.
Við vigtuðu vörumar verður
gerð grein fyrir mælieininga-
verði, næringargildi, uppruna
o.fl. þegar merkingarnar
verða tilbúnar í byrjun næsta
mánaðar.
Stykkjaverðið hagstæðara
fyrir neytendur
Lárus sagði að með breytingunni
væri verið að uppfylla ákveðin laga-
skilyrði. Hins vegar væri hans per-
sónulega skoðun að eðlilegra væri að
selja allt grænmeti og ávexti á
stykkjaverði. „Við kaupum vöruna
yfmleitt inn á stykkjaverði og hvert
stykki er ákaflega svipað að þyngd,
t.d. kaupum við 100 stykki af eplum í
18 kg kössum. Erlendis er vai-an yf-
mleitt seld á stykkjaverði og eðlilegt
er að fara eins að hér. Með því að
breyta verðinu yfir í kílóverð er að-
eins verið að brengla verðskyn neyt-
endans. Eflaust finnst flestum betra
að átta sig á því að ákveðin appelsína
kosti 39 kr. heldur en hvað hún er
þung og þar af leiðandi hvað greiða
eigi fyrir hana samkvæmt kílóverði
við kassann. Viðskiptavinir Nýkaups
hafa lítið notað aðgang að vog í
versluninni í tengslum við kílóverð á
grænmeti og ávöxtum í lausu enda
Óskýrt með staðlaða vöru
Hér á landi hefur verið ólöglegt að selja
grænmeti og ávexti á stykkjaverði frá ár-
inu 1990. Samkeppnisstofnun gerði at-
hugasemd við að enn væri stuðst við
stykkjaverð í nokkrum matvöruverslunum
undir lok september síðastliðins. Anna G.
Olafsdóttir fór á stúfana og komast að því
að verið er að breyta stykkjaverði í kíló-
verð í síðustu verslununum.
kvæmdastjóri Bónuss, sagði að
Samkeppnisstofnun hefði gert at-
hugasemd við að avókadó væri selt í
stykkjatali í versluninni í haust.
Fljótt hefði verið brugðist við og
verðmerkingu breytt til samræmis
við lagabókstafinn. Nú væri því
ekkert selt á stykkjaverði í verslun-
inni. Reyndar sagðist Guðmundur
ekki hafa haft hugmynd um að
bannað væri að selja grænmeti og
ávexti í stykkjaverði og tók fram að
þar sem hann hefði kynnt sér við-
skiptahætti í Danmörku væri
stykkjaverðið nánast allsráðandi.
Aðspurður sagðist hann ekki hafa
orðið var við að viðskiptavinirnir
kvörtuðu yfir kílóverðinu. Hins veg-
ar sagði hann augljóst að
kílóverðið ætti misvel við, t.d.
væri í raun eðilegra að selja
léttari vöru sem keypt væri í
smærri einingum á stykkja-
verði.
þarf eftir að hafa vigtað vöruna að
umreikna þyngdina yfii' í kílóverð."
Lárus sagði að kílóverðið kæmi
ekki betur út fyrir neytendur heldur
en stykkjaverðið. „Þegar við vorum
með stykkjaverð miðuðum við gjarn-
an við lægra verð en kílóverð á vör-
unni á almennum markaði, t.d. verð
fyrir 280 g íremur en 300 g. Nú er
miðað við almennt kílóverð svo
stykkjaverðið hefur væntanleg verið
heldur lægra. Þar fyrir utan er ég
viss um að kílóverðið á eftir að fæla
neytendur frekar frá því að kaupa
vöruna. Eg get nefnt sem dæmi að
sjá að 170 g af grænkáli kosta ekki
159 g eins og áður heldur kosti kílóið
935 ki'. en fæstir kaupa auðvitað kíló
af grænkáli."
Viðskiptavinir kjósa stykkjaverð
Þórður Þórisson, innkaupastjóri
hjá Hagkaup, sagði að stykkjaverði
hefði verið breytt í kílóverð eftir at-
hugasemdir Samkeppnisstofnunar
fyrir fimm til sex vikum. Nú væru
aðeins nokkur dæmi um vigtað
grænmeti og ávextir væru seld efth’
stykkjaverði, t.d. væri poki með 1,3
kg af eplum seldur á ákveðnu verði.
Fljótlega yrði komið upp merkingu
með mælieiningaverði við uppvigtað-
ar vörur af því tagi. Ekki stæði hins
vegar til að hætta að selja uppvigtað-
ar vörur á kílóverði enda væri ekki
séð að sá háttur stríddi gegn lögum
um verðmerkingar.
Þórður sagði að ein ástæðan fyrir
því að verðmerkingum hefði ekki
verið breytt fyrr hefði falist í því að
viðskiptavinir hefðu fremur kosið
stykkjaverð en kílóverð, t.d. væri
talsvert spurt af hverju ekki væri
lengur hægt að kaupa iceberg á
stykkjaverði. Því til viðbótar væri
gi-einilegt að kílóverðið fældi við-
skiptavini stundum frá vörunum.
Sérstakiega þegar um létta vöru á
borð við krydd væri að ræða.
Guðmundur Marteinsson, fram-
Einar Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Nóatúns, segir
að tilmæli Samkeppnisstofn-
unar hafi verið virt og
stykkjaverði breytt í kílóverð í
haust. „Mér hefur hins vegar
ekki fundist alveg skýrt hvað
ætti að gera við staðlaða vöru
eins og jarðarber í öskjum. Er
ætlast til að vigtað sé upp úr
hverri öskju?“ sagði Einar.
Hann sagðist halda að aðalá-
stæðan fyrir stykkjaverðinu
hefði falist í því að stykkja-
verð viðgangist víðast erlend-
is. Heildsalar hefðu því keypt
vöruna á stykkjaverði og ættu
auðveldast með að selja hana áfram
á stykkjaverði. Nú þyrftu kaupmenn
að vigta vörana og umreikna
stykkjaverðið yfii’ í kílóverð.
Hjördís Björgvinsdótth', í 10/11,
sagði að stykkjaverði á grænmeti og
ávöxtum hefði verið breytt í kílóverð
eftir athugasemdh' Samkeppnis-
stofnunar í haust. Breytingin hefði
ekki verið einföld því að sumt hefði
verið keypt af heildsölunum á
stykkjaverði. Nú væri gerð krafa um
fá vöruna í kílóverði af heildsölunum
og hefði t.d. verið farið að því í
tengslum við innkaup á jöklasalati.
Sigurður Teitsson, framkvæmda-
stjóri 11/11, sagði að breytingin ætti
að vera um garð gengin í öllum 11/11
verslunum eftir að Samkeppnis-
stofnun hefði gengið eftir því í byrj-
un mánaðarins. „Breytingin hefur
tekið lengri tíma en ella af því að við
kaupum flest inn á stykkjaverði en
nú á allt að vera komið í gott horf,“
sagði hann.
Stjómmálaskóli FUF í Reykjavík
Stjórnmálaskóli Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík
mun hefja göngu sína nk. mánudag.
í haust verður dagskrá stjórnmálaskólans sem hér segir:
Mánudagurinn 26. október.
Kl. 18.00-19.30 Saga Framsóknarflokksins
Leiðbeinandi: Finnur Ingólfison
Kl. 20.00-22.00 Ræðumennska
Leiðbeinandi: Vigdís Hauksdóttir
Mánudagurinn 2. nóvember.
Kl. 18.00-19.30 Ræðumennska, framhald
Kl. 20.00-22.00 Fundarsköp
Leiðbeinandi: Vigdís Hauksdóttir
Mánudagurinn 9. nóvember
Kl. 18.00-19.30 Samskipti við fjölmiðla
Leiðbeinandi: Árni Magnússon
Kl. 20.00-22.00 Umræður um starfið framundan.
Skólinn er öllum opinn!
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifitoju
Framsóknarflokksins í síma 562 4480.
Nýtt
Snyrtivörur fyrir ald-
urshópinn 18-34 ára
KOMIN er á markað ný húð-
vörulína frá Jergens, sem nefn-
ist Bioré (Bee your’ray) sem er
sérstaklega framleidd fyrir fólk
á aldrinum 18-34 ára.
Forvitnilegasta nýjungin er
plástur til djúphreinsunar á húð
og svitaholum á nefi. Plásturinn
binst óhreinindum í svitaholun-
um og lyftir þeim upp. Tvær
tegundir húðhreinsunarefna eru
hluti línunnar, annars vegar í
gelformi til hreinsunar á venju-
legri húð og hins vegar í sápu-
formi sem ætlaður er til djúp-
hreinsunar og á fitumeiri húð.
Einnig er komið nýtt rakakrem í
Bioré-línunni, algjörlega olíu-
frítt. Kremið inniheldur
II r í
jff| btors /
‘jfea&V
Nutramide TM sem hjálpar til
að viðhalda rakajafnvægi húðar-
innar og ver hana gegn UV-
geislum sólarinnar.
Vörurnar fást í apótekum og
eru seldar á kynningarverði um
þessar mundir.
Frystir
sveppir
SVEPPIR hafa verið á tilboðsverði
í nokki'um verslunum að undan-
fömu. Tilvalið er að kaupa 1-2 kíló
þegar verðfall verður og frysta í litl-
um skömmtum.
Sveppirnir era skornir niður í litl-
ar sneiðar og eru bestir ef þeir eru
steiktir í smjöri eða smjörva. Ein
pönnufylli í einu. Hægt er að nota
mismunandi krydd, t.d. salt, pipar,
majoram og timian í einn hlutann
og salt, pipar, oregano og salvia í
annan hlutann.
Sveppimir eru látnir kólna þegar
þeir hafa verið steiktir. Síðan eru
þeir settir í litla plastpoka í hæfi-
lega skammta, merktir eftir ki-ydd-
blöndum og frystir. Þegar á að nota
þá má affrysta þá í örbylgjuofni áð-
ur en þeir eru settir í réttinn en það
er ekki nauðsynlegt.
Einnig má skella sveppunum í
samlokur, heitar eða kaldar, til
dæmis með skinku eða pepperoni.