Morgunblaðið - 24.10.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 33
fast að fertugu og hafi átt mörg
börn geti hún náð góðum árangri í
líkamsrækt. En hér eru fleiri konur
að æfa sem komnar eru yfir þrítugt
og ætla að taka þátt í keppninni."
I þessum svifum ber að Ingu Sól-
veigu Steingrímsdóttur eróbikþjálf-
ara en tíma í pallapuði hjá henni er
að ljúka. Konurnar sem voru í tím-
anum ganga út rjóðar og sveittar af
áreynslunni og stefna á kvennaklef-
ann til að kpmast í sturtu. Inga Sól-
veig æfir Agústu í að „pósa“ eða
stilla sér þannig upp í keppninni að
vöðvar og líkamsbygging fái að
njóta sín sem best. Sjálf vann Inga
Sólveig „pósuverðlaunin" í fyrra.
„Ég get sagt ykkur það að aldur er
engin fyrirstaða í vaxtarræktar-
keppni,“ segir Inga Sólveig þegar
hún heyrir hvað við erum að tala
um. „Ég sá keppni í Bandaríkjun-
um ekki alls fyrir löngu þar sem
móðir og dóttir kepptu saman en
móðirin var 75 ára og dóttirin 52
ára!“
Agústa er þegar farin að búa sig
undir vaxtarræktarkeppnina. Að
sögn Unnars hefui' æfingunum
hvorki verið breytt né fjölgað
vegna keppninnar. „Ég læt hana
ekki æfa meira því fituprósentan er
þegar orðin það lág hjá henni. Þeg-
ar líkaminn er farinn að brenna of
miklu er erfitt fyrir hann að auka
vöðvamassa," segir hann.
Æfir „pósur“
Mataræði Ágústu verður breytt
skömmu fyrir keppnina. Bráðlega
þarf hún að hætta að neyta mjólk-
urvara en það er liður í því að skera
líkamann niður eins og það er kall-
að þegar keppendurnir tilvonandi
þurfa að minnka líkamsfitu svo hún
skyggi ekki á vel lagaða vöðvana,
en gert er ráð fyrir að fitan hjá
Ágústu fari niður í 7%. „Það sem
skiptir máli í vaxtarræktarkeppni
er að samræmi sé milli vöðvahópa
en eftir.því sem fítuprósentan er
lægri sjást vöðvarnir betur,“ segir
Unnar.
„Viku fyrir keppnina þarf hún að
minnka kolvetnið í fæðunni og
hækka hlutfall próteins,“ bætir
Unnar við. „Síðustu þrjá dagana
gerir hún svo hið þveröfuga, hækk-
ar kolvetnainnihald fæðunnar og
lækkar próteininnihaldið. En þeg-
ar vöðvarnir eru sveltir af kolvetn-
um þá tæmist allt glykogen úr
þeim. Með því að svelta vöðvana er
hægt að hlaða þá af enn meira kol-
vetni en áður en við það verður út-
lit vöðvanna fyllra og þeir verða
harðari viðkomu og taka sig betur
út.“
Ágústa hefur undanfarna daga
verið að æfa „pósumar" með Ingu
Sólveigu. Æfingamar fara fram í
einu æfingaherbergja Betranar-
hússins. Þar stendur Ágústa fyrir
framan stóran spegil og spennir
réttu vöðvana svo þeir minna helst
á myndarlegan fjallgarð, einnig
lærir hún hvemig hún á að hreyfa
sig á sviðinu fyrir framan áhorfend-
ur, dómara og sjónvarpsvélar en
keppninni verður sjónvarpað á Stöð
2. Ágústa segir að það sem hún
kvíði mest fyrir sé að koma fram
fyrir áhorfendur á bíkini. „En fyrst
ég gat gengið með og fætt sjö börn
þá get ég þetta líka,“ segir hún
ákveðin.
Morgunblaðið/Þorkell
ÁGUSTA æfír þrisvar í viku undir liandleiðslu Unnars Karlssonar
einkaþjálfara í Betrunarhúsinu.
MEÐ börnunum sínum sex en eitt þeirra, Ásbjörg, býr nú í Bandaríkj-
unum, talið frá vinstri í fremri röð: Sigríður Erla, Jóhann Helgi, Vil-
hjálmur Snær, Ólafur Friðrik, Björn Kristinn. í efri röð: Þorbergur
Björn og Ágústa.
ekki allt rétt því Unnar er svo ná-
kvæmur og þá meðal annars á það
hvar útlimirnir era staðsettir á
tækjunum," segir hún hlæjandi.
Styrkurinn var lítill,
vöðvarnir linir og slakir
Það kemur fram að Ágústa neyt-
ir ekki áfengis. „Mér hefur þó ekki
ennþá tekist að hætta að reykja,"
bætir hún við örlítið skömmustuleg
eins og þeir era gjaman sem reykja
á þessum síðustu tímum. Hvernig
ætli matseðillinn hennar líti út?
„Ég borða mikið af soðinni ýsu
og kartöflum, grænmeti, pasta,
nautahakki og rækjum, hafragraut
og skyri. En Unnar reiknar út fyrir
mig rétt hlutfall fæðutegunda sem
ég má neyta hvem dag og kaloríu-
fjölda þeirra. Þegar ég fer á kaffi-
hús og aðrir sem með mér era fá
sér kaffi og kökur þá sit ég og
borða skyr,“ segir hún.
ÞEGAR Ágústa fer á kaffihús
borðar hún skyr meðan aðrir fá
sér kaffi og kökur.
ÁGÚSTA setur sig í stellingar
fyrir ljósmyndarann.
Þegar Ágústa steig fyrst inn fyr-
ir dyr Betranarhússins var hún að
koma manninum sínum í líkams-
rækt. Hún ætlaði að tryggja það að
hann mætti í tímann sinn. Skömmu
síðar hóf hún að æfa kerfisbundið
undir handleiðslu Unnars sem er
lærður einkaþjálfari en hann nam
við ISSA, Intemational Sport Sci-
enses Association í Bandaríkjunum.
„Þegar Ágústa byrjaði í líkams-
ræktinni var hún eins og hver önn-
ur húsmóðir sem lítið hefur æft síð-
an á unglingsáranum," segir Unn-
ar. „Styrkurinn var lítill, vöðvarnir
vora linir og slakir og fituprósenta
líkamans var yfir meðallagi."
„Ég hafði prófað að fara nokkra
tíma í eróbik,“ skýtur Ágústa inn í.
„Við fóram rólega af stað,“ held-
ur Unnar áfram. „Nú æfum við
þrisvar í viku. Eitt skiptið æfum við
brjóst- og upphandleggsvöðva, í
næsta skipti eru lærin tekin fyrir
og í þriðja tímanum era bak- og
axlarvöðvar þjálfaðir. Þannig að
hver vöðvahópur er tekinn fyrir
einu sinni í viku.“
Hvaða mun ætli hún finni á sér
frá því að hún byrjaði í líkamsrækt-
inni og þar til nú?
„Mér líður svo mikið betur í
skrokknum," segir Ágústa. „Ég er
sterkari og léttari á mér. Áður var
ég alltaf þreytt en núna hef ég meiri
orku. Þegar ég byrjaði æfingarnar
hjá Unnari var ég nýkominn úr að-
gerð vegna slits í annarri öxlinni,“
heldur Ágústa áfram. „Ég hafði
verið með höndina í fatla í nokkurn
tíma og gat varla lyft handleggnum.
Eftir að hafa verið hjá honum í æf-
ingum breyttist ástandið en það
skipti miklu máli að ég æfði rétt því
ef ég hefði ekki gert það hefði ég
getað eyðilagt öxlina og það hefði
ekki verið aftur tekið.“
Ertu ekkert hrædd um að verða
karlmannleg í vexti á því að vera í
vaxtarrækt? spyr blaðamaður.
„Þegar ég var að bytja að lyfta
var ég hrædd við að verða eins og
kraftalegur karlmaður. Ég reyndi
að komast hjá því að
lyfta þungu, þóttist
jafnvel ekki geta lyft
nema mjög litlum
þyngdum. Staðreyndin
er sú að ummálið á upp-
handleggjunum og yfir
axlirnar, bijóst, læri og
rass hefur ekkert auk-
ist að ráði eftir að ég
bytjaði í lyftingunum.
Þetta er vegna þess að
ég losnaði við fitu en
bætti við mig vöðvum.
Ég fer alltaf reglulega í
fitumælingu og þegar
ég byrjaði mældist ég
með 20% fitu en er nú
komin niður í 9% fitu,“
segir Ágústa.
Aldur engin
fyrirstaða
„Eftir vaxtarræktar-
keppnina stefni ég að
því að fara upp í
12-14% fitu. Fólk veik-
ist frekar ef það hefur
ekki svolítinn auka-
forða af fitu og einnig
vegna þess að við búum
í köldu loftslagi og
þurfum fituna til að
halda á okkur hita. Mér getur
stundum verið hræðilega kalt,“
bætir hún við og hryllir sig.
En var ekki nóg fyrir Ágústu að
komast í betra líkamlegt ástand,
þurfti hún endilega að fara í vaxtar-
ræktarkeppni?
„Ég hafði ekkert hugsað um það
að fara í keppnina fyrr en þjálfar-
arnir hérna í Betrunarhúsinu
spurðu mig að því hvort ég hefði
ekki áhuga á því að taka þátt í
Vaxtarræktarkeppni Islands. Mér
fannst fyrirspurnin uppörvandi. Og
þegar ég fór að hugsa betur um
þennan möguleika fannst mér þetta
spennandi. Mér fannst líka gaman
að geta sýnt að þótt kona sé komin
Bjóðum enn betur
ORIENT Chronograph
með skeiðklukku, millitíma og vekjara.
Vatnsþétt 200 m.
Vgi • Hermann Jónsson, Veltusundi 3 „ ____ ,
mundsson, Selfossi • Kornelius, Skólavörðustíg 8 G v*
igavegi 55 • Klukkan, Hamraborg _____________________
20%
afsláttijr
<r/
armbands-
úrum
til 3l.oKtóber
ORIENT