Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 36

Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 36
36 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN LEIKUR CLAY Fighter 63 1/3, leikur fyrir Nintendo 64 frá Interplay. Leikurinn er slagsmálalcikur en þó leyfður fyrir alla aldurshópa. I VENJULEGUM slags- málaleikjum má oft sjá stór vöðvabúnt slást við ninjur og karategaura og aðra slíka óvini, í Clay Fighter er staðan aðeins öðruvísi, þú ert búinn til úr leir og átt að slást við aðra óvini búna til úr leir. Leikurinn á sér stað á Kla- ymodo-eyju einhvemtímann í ná- inni framtíð. Hinn illi Dr. Kiln hef- ur búið til einkaher og hyggst ná yfírráðum í heiminum þegar Mister Frosty og vinir hans ákveða að stoppa dr. Kiln og sigra heiminn sjálfir. Það fer kannski ekki mikið fyrir sögu- þræðinum í þessum leik en það er bætt upp með hraðri atburðarás og flottum karakterum. Leikurinn er í tvívídd þannig að þú sérð aðeins á hliðina á fígúrunum með- an þú ert að slást, samt er hægt að stökkva til hliðar og fleira sem ekki hef- ur verið mögulegt í tvívíddar leikjum eins og Mortal Kombat, Street Fighter og fleiri leikjum. Önnur nýj- ung er að ef þú ert kýld- ur út um glugga eða dett- ur eitthvert niður þá hoppar andstæðingurinn á eftir þér og bardaginn heldur áfram. Hægt er að velja um átta per- sónur í leiknum og einnig hægt að finna nokkrar bónus persónur með því að klára leikinn með öllum körlunum meðal annars. Enginn skortur er á árás- um í leiknum, bæði eru fjölmargar grunnárásir sem valda ágætlega miklum skaða séu þær notaðar rétt og fléttaðar sam- an í svokallað Combo. Einnig er hægt að finna sérstök brögð sem taka oft allt að helming eða meira af orku andstæðingsins. Grafíkin í leiknum er með af- brigðum góð og sérstaklega flott hvernig umhverfi leiksins hefur verið hannað sérstaklega fyrir hverja einustu persónu leiks- ins. Þó leikurinn sé afar hraður slagsmálaleikur þar sem vopn eru oft notuð þá ætti hann að höfða jafnt til flestra aldurs- hópa, jafnvel þeirra yngstu og allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Ingvi M. Árnason Dreamcast nálgast SEGA-menn leggja nú síðustu hönd á Dreamcast-tölvuna sem sett verður á markað í Japan í næsta mánuði. Einskonar generalprufa var á New Challenge-ráðstefnunni í Tókýó fyrir stuttu en þá kom meðal ann- ars fram hvað vélin ætti að kosta. Dreamcast-tölvan kemur á markað 27. nóvember næst- komandi í Japan en á Vestur- löndum um mitt næsta ár. Við kynninguna á New Challenge- ráðstefnunni kom fram að tölvan verður seld á sem nem- ur um 13.000 krónum í Japan, sem gerir hana vel samkeppnisfæra við keppinautana. Fimm leikir verða kynntir um leið og tölvan, Godzilla Generations, Sega Rally 2, Virtual Fighter 3th, Pen Pen Triathlon og July. Til stóð að kynna nýjan Sonic- leik um líkt leyti, Sonic Adventure, en hann kemur ekki á markað fyn' en um miðjan desember. Að sögn Sega-manna er fjöldi leikja væntanlegur á næstu vikum, þar á meðal leikur úr smiðju Res- ident Evil-manna sem ekki verður til fyrir aðrar gerðir leikjatölva, og Namco, framleiðandi Tekken-leikjar- aðarinnar, hyggst einnig senda frá sér leik fyrir Dreamcast. Margir bíða spenntir eftir tölvunni og ýmsar tölvuverslanir bjóða mönn- um upp á að skrá sig á lista fyrir tölv- um þegar þær koma á markað, til að mynda bandaríska netverslunin Game Cave, http://www.game- cave.com/, sem hyggst verða helsti seljandi Dreamcast-tölva frá Japan, en fleiri munu eflaust slást í þann hóp. KiiMjim Pálviun illJlMlflífilMrtrtlIf t* HiUVH « 4 klip.iiUu! Mií Ljnþicur t«|R«e4i Ú V WHlifSV S* RirliS *| ** ii#i ilíVci UIR ) it» **i*ö»# *•*>■<?■* Au t nín-.itu i t«vciy»Í^t hi b« *rj sit ú*fctl W íÍí*w, H *« **«!»« trt «qa 4 ^jpí omnm ?«ithqwí ** Wþiiiwígi h » x* H ’ H •** tmf '&i* !< ixéfiii M* vi «Á (Í»S titfil i í*f rf|ii Cþíjf vr.jv, lí ** &» M #***%*&*,téitoil!* H ftjiSN*?* WFfáitiffc m »! «S** nkifili AtDt fs! þií? tfÍM i! féf ’Hfl'ð . fftlft H -*! I* KHp **4 gígriíjtsn m ■ ■ , *:. i. • .. . ; ... .. • ■ ■ »• ►- ■■ ‘ . n.nífci v'-'w i> !•*::•. ’ þ«4í Irf jjsjsi tq 3»fA¥‘» *5 iik piéfi «1 þivj. Vtfto ’l góíif g>M« Ái;*yyi49i4fA is; tíi,p,ji(ti:liivl^' miPII vkíí j 4» 'if k. WW. jsl íXlí 09 j t* HiiíKélJlj fi. Afli! fiý b(4i<<»pí*9.'» 4f*aiP»»* Kristján Pálsson á Netið NETIÐ er til marga hluta brúklegt og þá ekki síst til samskipta við fólk. Fáir þurfa meira á að halda að kom- ast í samband við almenning en stjómmálamenn og Netið gefur þeim betri möguleika en áður að ná sam- bandi við umbjóðendur, kynna stefnumál sín og gefa netverjum færi á beinum samskiptum. Bjöm Bjarna- son menntamálaráðherra var fyrstur þingmanna til að átta sig á möguleik- um netsins, en aðrir hafa fylgt í kjöl- farið. Styttist í kosningar og stjórnmála- menn nýta margir tækifærið til að koma sér fyrir á Netinu, öðrum þræði til að kynna baráttuna sem framundan er. Kristján Pálsson al- þingismaðui- er einn þeirra sem það gerir, en Kristján segir að það eigi sér nokkurn aðdraganda að hann kom sér fyrir á Netinu og sú ráðstöf- un sé hugsuð til lengri tíma. Barátta sem hafin er vegna prófkjörs sjálf- stæðismanna í Reykjaneskjördæmi eigi þó eftir að vera áberandi á síðun- um næstu vikur, sem vonlegt væri, en hann hafi hugsað sér að vefsíðum- ar opni fleh-i samskiptaleiðir milli hans og almennings og gefi honum færi á að koma á framfæri skoðunum sínum á mönnum og málefnum. Leirbrúður að slást South Park-leikur SOUTH PARK-þættirnir hafa verið vinsælt efni í sjónvarpi og á Netinu og eru nú loks konmir í sjónvarp hér á Iandi. Þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda vestan hafs og varla minnka vin- sældirnar þegar kemur á markað leikur byggður á þáttunum. Fyrir jól er fyrirhugað að út komi leikur byggður á South Park-þáttunum. Vekur athygli að leikurinn er fyrir Nintendo 64, enda hafa Nintendo-menn forðast sem mest þeir mega að gefa út leiki með ofbeldi og dónaskap ým- iskonar. Leikurinn verður enda ekki eins krassandi og þættirnir, en nógu krassandi samt; að sögn þeirra sem séð hafa forútgáfu hans eru þeir félagar Cartman, Kyle og Stan ekki síður orðljótir og háðskir en í þáttunum. Ymislegt kemur uppá í hverjum þætti og ekki verður minna að gerast í leiknum, því leikandi þarf að glíma við óða kalkúna, frelsa móður Cartmans frá geimverum ovopnaður kúavörpu, prumpu- dúkku og svampörvabyssu. Inn á milli koma síðan kaflar úr þáttunum og ýmsar persónur birt- ast sem eru áhorfendum að góðu kunnar. Hægt verður að spila leikinn yf- ir Netið, fara í póstaleik, grá- myglustöru og sparkað í barnið. Viðbót við PlayStation FRAMUNDAN er barátta á milli Sega og Sony um yfirráðin á leikja- tölvumarkaðnum og enginn skyldi vanmeta Nintendo í þeim slag. Vænt- anlega á verð eftir að lækka og ýmis- legur aukabúnaður að líta dagsins ljós til að svara Dreamcast-tölvu þeirra Sega-manna. Á árlegri leikjasýningu í Tókýó í byrjun október kynnti Sony viðbót við PlayStation sem kallast PocketStation. Hægt er að nota tæk- ið sem minniskubb, en einnig til að keyra sérstakan hugbúnað eins og sjálfstæð leikjatölva. 31 leikur verður tilbúinn þegar PocketStation kemur á markað og einnig hugbúnaður sem hægt er að lesa inn í PlayStation tölvu og auka þannig styrk og aðra eiginleika leikjapersóna, skiptast á upplýsingum við aðra eða nota PocketStation sem klukku eða dag- bók. Samkvæmt upplýsingum Sony kemur PocketStation á markað næsta vor og kostar nálægt 2.000 krónum. Ekki er ljóst hvort eða hvenær PocketStation kemur á markað á Vesturlöndum. $z»,s VI* ALLUR PAKKinilU AÐEIIUS KR. 99.990,- Sf| WM ■^iiilfcawa 18 i Enterprize turn i Intel Celeron Pll 300 Mhz örgjörvi 117" skjár með aðgerðum á skjá 32 MB SDRAM innra minni i 4,3 GB harður diskur I 32 hraða geisladrif i 4MB Grafixstar 560 PRO AGP skjákort 116 bita 3D hljóðkort I 80 W hátalarar i 33.6 bás mótald m/ faxi 81 símsvara I 4 mánaða Internetáskrift 1 Windows lyklaborð aja hnappa Logitech mús ows 98 uppsett og á CD Skeifunni 11 • Rvk • Snni:550-4444 og Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • Sími 550-4020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.