Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 47v
INGÞÓR LÍNDAL
SIGURÐSSON
+ Ingþór Líndal
Signrðsson
fæddist 24. nóvem-
ber 1920 að Hóla-
baki í Sveinsstaða-
hreppi. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Blönduósi 13. októ-
ber sl. Foreldrar
hans voru Húnvetn-
ingar, þau Krist-
björg Kristmunds-
dóttir og Sigurður
Lindal Jóhannes-
son. Hann var fjórði
í röðinni af fimm
systkinum, sem eru
Guðmundur, látinn, var búsett-
ur á Hvammstanga, Kristmund-
ur, búsettur í Reykjavík, Finn-
bogi, látinn, var búsettur í
Reykjavík, og Hólinfríður, bú-
sett í Hlíð í Garðabæ.
10. maí 1947 kvæntist hann
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Önnu Mörtu Helgadóttur frá
Kollsvík. Saman eignuðust þau
sjö börn, sem eru í aldursröð: 1)
Sigurður Helgi, f. 1947, kvænt-
ur Gunnhildi Lárusdóttur. 2)
Kristmundur Ó.J., f. 1950, í
sambúð með Sigrúnu Herdísi
Sigurbjartsdóttur. 3) Sigrún
Björg, f. 1952, gift Hjálmari
Magnússyni. 4) Þorsteinn Rafn,
f. 1955, kvæntur Sigurbjörgu
Maríu Jónsdóttur. 5) Magnús
Huldar, f. 1957,
kvæntur Sylvíu
Ingibergsdóttur. 6)
Guðmundur Elías,
f. 1961, í sambúð
með Guðrúnu
Kjartansdóttur. 7)
Birgir Líndal, f.
1963, í sambúð með
Sigríði Bjarnadótt-
ur. Auk þess ólu
þau upp elsta
barnabarn sitt,
Önnu Bryndísi, sem
er gift Þorsteini
Gíslasyni. Fyrir
hjónaband eignað-
ist Ingþór Fjólu Guðbjörgu,
sem búsett er í Mosfellsbæ.
Barnabörnin eru orðin 24 og
barnabarnabörnin 12. Ingþór
fluttist með foreldrum sínum í
Víðidal og bjuggu þau að Lækj-
armóti, Laufási og Refsteins-
stöðum. Árið 1942 keypti Ing-
þór ásamt foreldrum sínum
jörðina Uppsali í Sveinsstaða-
hreppi og fluttu þau þangað til
ábúðar 1943. Að föður hans
látnum keypti hann alla jörðina
og bjó þar á meðan heilsa og
kraftar leyfðu. Hefur nú yngsti
sonurinn ásamt fjölskyldu sinni
tekið við jörðinni.
títförin fer fram frá Þing-
eyrakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ástkær tengdafaðir minn er lát-
inn og verður hans hlýi faðmur ekki
lengur til að ylja mér né öðrum sem
til hans sóttu.
Kynni okkar urðu allt of stutt þar
sem samband mitt við Gumma son
hans, eins og hann er alltaf kallað-
ur, hófust ekki fyrr en haustið ‘93.
Það haust kom ég fyrst að Uppsöl-
um. Það liðu ekki mai-gar heim-
sóknir þar til gamli maðm-inn heils-
aði mér eins og öllum öðrum í fjöl-
skyldunni, með hlýju faðmlagi,
nokkrum kossum á kinnina og ekki
síst gleði og kátínu í augunum.
Ingþór gamli, eins og ég kýs að
nefna hann, var stórhöfðingi af
gamla tímanum, ósérhlífinn við alla
vinnu og mátti ekkert aumt sjá.
Hann hugsaði vel um skepnurnar
sínar, þekkti þær með nafni, talaði
hlýlega til þeirra um leið og hann
klappaði þeim, enda mátti greini-
lega sjá að þær þekktu gamla
manninn. Oftar en ekki komum við
Gummi til að fara á hestbak og lík-
aði honum það vel, hann sagði alltaf
að hestarnir væru til að nota þá
annars yrðu þeir ekki til neins.
Veit ég fyrir víst að á árum áður
átti hann mjög góða hesta, enda
þurfti að reiða sig meira á þá hér
áður fyrr.
Ingþór gamli var ákaflega hlátur-
mildur maður og talaði frekar hátt,
hann fylgdist vel með því sem gerð-
ist í kringum hann, hlustaði á allar
fréttir og sýndi Þjóðarsálinni mikla
athygli. Oft spunnust í kringum
hann hinar fjörugustu umræður því
það var ekki hans háttur að liggja á
skoðunum sínum. Hann var mjög
gestrisinn maður og var alltaf gam-
an að koma til hans. Hann átti það
til að kalla: „Anna, Anna, ætlarðu
ekki að fara að koma með kaffi-
sopann?“ Þá fannst honum hún
draga það fulllengi að koma með
kaffið. Já svona er það nú í sveit-
inni, alltaf hugsað um að gefa fólki
gott kaffl og með því.
Ingþór gamli var orðinn frekar
heilsulítill þegar ég kynntist honum
en til marks um óbifandi trú hans á
sjálfan sig keypti hann sér gírahjól
þegar hann gat ekki lengur ekið um
á fjórhjólinu sínu. Þetta var nú mað-
ur að mínu skapi en auðvitað leið
ekki á löngu þar til hjólinu var skil-
að og allir önduðu léttar. Það er
ekki hægt að segja annað um hann
Ingþór en að hann stóð meðan stætt
var.
Svo kom að því að heilsan leyfði
ekki að hann gæti verið lengur
heima og var hann þá fluttur á Hér-
aðssjúkrahús Blönduóss og sagði
hann þá að líklega kæmi hann ekki
aftur heim. Það reyndust orð að
sönnu.
Góði guð, tak þú þennan höfð-
ingja í þína arma og umvef hann
allri þeiiri hlýju og ástúð sem við
hin sem eftir sitjum vildum svo
gjarnan geta gert.
Kristur minn, ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gakktu hér inn og geymdu mig,
Guð, í faðmi þínum.
Vertu sæll að sinni, elsku Ingþór
minn.
Þín tengdadóttir
Guðrún.
Minn elskulegi tengdafaðir Ing-
þór Líndal Sigurðsson er látinn.
Þegar ég minnist Ingþórs kemur
fyrst í hugann þakklæti fyiúr allt.
Eg kynntist Ingþór fyrst þegar ég
kom til hans í sveit 12 ára gömul og
hjá honum og fjölskyldu hans átti
ég yndisleg sumur sem böðuð eru
birtu minninganna. I sveitinni varð
vinnan leikur og margar góðar
stundir í heyskapnum og húsunum.
Ingþór gat verið ákaflega ör, en
einnig var hann hlýr og umhyggju-
samur og mér alla tíð mjög góður.
Ef maður stóð sig vel, fékk maður
gjarnan hraustlegt klapp á bakið í
viðurkenningarskyni, en Ingþór var
með afbrigðum hraustur og nýtti
sér það við vinnu sína, en hann var
bóndi af lífí og sál. Fallegasti gróð-
urinn í huga hans var grænt grasið
og alltaf talaði hann hlýlega við
skepnurnar og strauk þeim. Ingþór
kenndi mér að njóta fegurðar ís-
lenskra heiða, en þangað fór hann
með okkur krakkana til veiða. Mér
er ógleymanlegt eitt sinn þegar við
komum niður af heiðinni og Ingþór
stöðvaði bílinn á brúninni til að sýna
okkur „fallegasta dal á íslandi“
Vatnsdalinn baðaðan í sólskini og
víst var hann fallegur. Ég hélt síðan
áfram að koma á Uppsali til Ingþórs
og Önnu eftir að ég hætti að vera
þar í sveit og alltaf tóku þau hjónin
jafnhlýlega á móti mér og buðu mér
til sín um réttir. Ingþór var ákaf-
lega gestrisinn, oft mannmargt á
heimilinu og mjög glatt á hjalla.
Seinna varð ég tengdadóttir Ing-
þórs og betri og umhyggjusamari
tengdaföður hefði ég ekki getað
hugsað mér, en hann var ákaflega
barngóður og bar mikla umhyggju
fyrir barnabörnum sínum. Höfum
við hjónin farið margar ferðir í
sveitina með strákunum okkar í
gegnum árin, en ferðirnar í sveitina
að hitta Ingþór og Önnu hafa alltaf
verið órjúfanlegur þáttur í lífi okk-
ar.
Elsku Ingþór, nú þegar þú erf
farinn eigum við mikið eftir að
sakna þín. Hafðu þökk fyrir sam-
fylgdina og allt það sem þú gafst, þú
lifir í minningu okkar.
Far þú í friði.
Friðui- Guðs þig blessi
Hafðu þökk fyrir allt og allt
(V. Briera)
Sylvía Ingibergsddttir.
Með Ingþóri Sigurðssyni er horf-
inn einn af bestu sonum þessa lands
og er sem sveitin hans sé ekki söm
eftir sem áður. Þar sem Ingþór fór
var engin lognmolla hvort sem var í
blíðu eða stríðu, á gleðistundum var
hann hrókur alls fagnaðar en hann
gat líka látið í sér hvína ef þannig
stóð á. Ingþór var mikill höfðingi
heim að sækja og einkenndi mikil
gleði, gestrisni og fjölmenni heimili
þein-a hjóna. Ingþór var mikill fjöl-
skyldumaður, dugleg fyrirvinna,
börnum sínum og barnabörnum
ákaflega hlýr og ástríkur. Síðustu
æviárin fór mikið af hans tíma í að
hlúa sem best að afkomendum sín-
um og ef einhvers staðar var eitt-
hvað að þá var hann ætíð fyrstur
manna að rétta fram hjálparhönd.
Ingþór var harðduglegur maður
og vildi sjá hlutina ganga, ungur
maður keypti hann jörðina Uppsali
sem þá var ræktarlítil og lítt fýsileg
til búskapar en Ingþór hafði glöggt
auga fyrir landinu og sá þá mögu-
leika sem jörðin gat boðið upp á á
þeirri öld véla og tækni sem
framundan var í landbúnaði. Með
harðfylgi og dyggri aðstoð konu
sinnar og barna ræktaði hann jörð-
ina og byggði upp þannig að í dag er
rekið stórbýli á jörðinni sem yngsti
sonur þeirra hjóna, Birgir, hefur nú
tekið við.
Hann var ekki bara bóndi heldur
bóndi af lífi og sál og mikill náttúru-
unnandi, undi sér ákaflega vel innan
um búfénaðinn og var stundum eins
og hann skynjaði huga þeirra, fjár-
glöggur með afbrigðum og einstak-
lega fundvís á ef eitthvað var að
skepnu út í haganum og var stund-
um hreinlega eins og hulin hönd vís-
aði honum veginn. Að koma með
honum í fjárhúsin var upplifelsi út
af fyrir sig, hann þekkti hverja ein-
ustu kind með nafni, þó þær væru
fleiri hundruð og hann þekkti þær
ekki bara með nafni heldur líka á
svipnum, og svei mér þá ég held að
hann hafi líka þekkt þær á bak-
svipnum.
Ingþór átti ætíð marga og góða
hesta og urðu þeir að vera dugmikl-
ir og harðir, því oft þurfti að spretta
úr spori í smalamennskum á hinum
víðlendu húnvetnsku heiðum.
Ingþór stóð ekki einn í búskapn-
um, hann var mikill gæfumaður í
sínu hjónabandi. Anna kona hans
stóð ætíð eins og klettur við hlið
hans í lífsins ólgusjó. Lét ekki sitt
eftir liggja í að byggja upp jörðina
og skapa fjölskyldunni notalegt
heimili.
Hann hafði mikið yndi af því að
umgangast landið og heiðarferðirn-
ar sem við fórum saman eru mér
ógleymanlegar, hann þekkti þar
hverja þúfu og hafði frá mörgu að
segja, t.d. smala- og veiðiferðum,
sem voru orðnar margar á langri
ævi.
Það var sem hann yngdist um
mörg ár þegar hann komst upp á
heiði en heiðarlöndin eru heill ævin-
týraheimur fyrir þá sem landinu
unna, í vötnum og lækjum vakir sil-
ungur og í kvöldkyrrðinni speglast
svanir í tjörnum, þar átti hann sitt
draumaland.
Heimahagarnir voru ávallt hún-
vetnskir. Þetta umhverfi mannlífs
og náttúru nægði honum til að gera
hverja stund mikilvæga.
Sökum veikinda voru síðustu ævi-
ár Ingþórs honum erfið en frábær
umönnun og hjúkrun konu hans
gerði honum kleift að vera heima þó
að heilsa og kraftar væru þrotnir,
utan að síðustu mánuðina dvaldi
hann á Sjúkrahúsinu á Blönduósi.
Vil ég færa starfsfólki þess sérstak-
ar þakkir fyrir hlýlega umönnun við
gamla manninn þennan síðasta tíma
hans.
Þegar hann kvaddi gat hann litið
stoltur yfii- farinn veg, sáttur við líf-
ið, skin þess og skugga, hann vissi
að hverju stefndi og óskaði eftir að
kveðja. Hann lítur í anda yfir landið
sitt, jörðin hefur verið byggð upp,
tún stækkuð og búsmala fjölgað.
Miklu dagsverki er lokið og verður
hann lagður til hinstu hvílu við hlið
foreldra sinna í kirkjugarðinum að
Þingeyrum.
Fai-ðu sæl til herrans heima,
hreina góða sterka sál!
Þínir niðjar þér ei gleyma,
þai- til tæmist lífsins skál.
Pegar lýjumst vér að verki
vilji, birta, þrek og trú,
þá sé oss þín minning merki
meirogbeturstríddirþú.
Með þessum orðum þjóðskáldsins
Matthíasar Jochumssonar vil ég
kveðja Ingþór tengdaföður minn
með þökk fyrir einstaka hlýju og
vinsemd í minn garð alla tíð.
Hjálmar Magnússon.
Mig langar að minnast afa míns
með nokkrum orðum. Hann var
fremur hár vexti, myndarlegur og
sterklegur maður. Ég sé fyrir mér
ömmu við hlið hans fíngerða og
brosmilda. Saman taka þau á móti
mér opnum örmum þegai' ég, borg-
arbamið, kem til þeirra í sveitina.
Inni bíða dýrindis kræsingar í eld-
húsinu og rætt er um það sem hæst
ber á líðandi stundu í sveitinni.
Það er margs að minnast, hjá afa
fékk ég fyrst að aka dráttarvél og
fjórhjóli og fara á hestbak. Alltaf
var mildð að starfa í fjósi og í fjár-
húsum enda vildi afi fá góðar afurð-
ir og það tókst honum vel.
Hann tók mig með sér í flest úti-
störf og lagði mikið upp úr því að ég
lærði þau sem fyrst og tæki til
hendinni enda_ var hann sjálfur
harðduglegur. Ég minnist þess hve
afi var alltaf þakklátm- fyrir veitta
aðstoð og helst vildi hann launa
margfalt fyrir sig. Margar veiði-
ferðir fórum við saman, t.d. upp á
Grímstunguheiði. Þessar ferðir
voru frábærar, enda þekkti afi
hvern krók og kima og hafði frá svo
mörgu skemmtilegu að segja, m.a. '
frá atburðum úr göngum á heiðinni,
frá ömefnum og gróðurfari og hvar
fiskurinn í vötnunum héldi sig enda
veiddum við yfirleitt vel. Mikinn
starfsvilja hafði afi, þótt sjúkdómar
herjuðu á hann síðustu árin, svo
hann átti erfitt með allar hreyfing-
ar. Hann lét samt ekki sitt eftir
liggja, þegar hann var sestur undir
stýri dráttarvélar að slóðadraga og
slá eða á fullu að smala kindum á
fjórhjólinu sínu, þá vai' eins og hann
yrði ungur á ný. Margt er að þakka
á stundu sem þessari, sem orð ná -
ekki yfir. Eftir lifir minning um
hlýjan og skemmtilegan afa.
Innilegar þakkir fyrii' allt.
Magnús Þór Ujálmarsson.
Með fáeinum orðum langar mig
að minnast afa míns, Ingþórs Sig-
urðssonar á Uppsölum. Þegar ég
vissi að hann væri sofnaður svefnin-
um langa setti mig hljóða því mér
fannst að ég væri ekki tilbúin að
kveðja. Ég var alltaf á leiðinni norð-
ur og þar sem okkur finnst að tím-
inn sé alltaf nægur þá dróst ferðin á
langinn þar til of seint var að leggja
af stað. En hugurinn dvaldi oft hjá
þér, afi minn, og í dag kem ég norð-
ur til að kveðja þig í hinsta sinn og
þakka þér góðu stundimar sem ég
átti hjá þér og ömmu. Elsku afi,
minning þín lifir í hjörtum okkar.
Við útför bónda
Tak þú, jörð, með opnum örmum
óskabarni í hinsta sinn.
Bú þú um á beði vörmum
bóndann, góða soninn þinn.
Honum gefðu á hæstum vetri
hlýjan svæfil, mjúka fold.
Hvergi er værðin honum betri
heldur en í þinni mold.
(Guðmundur I. Kristjánsson.)
Anna Bryndís og fjölskylda.
GUÐRÚN KATRÍN
ÞORBERGSDÓTTIR
+ Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir
forsetafrú fæddist
14. ágúst 1934. Hún
lést á sjúkrahúsi í
Seattle í Bandaríkj-
unum 12. október
síðastliðinn. Útför
hennar fór fram frá
Hallgrímskirkju 21.
október.
Kveðja frá Geðhjálp
Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir forsetafrú
var verndari alþjóðlegs
geðheilbrigðisdags á íslandi, sem
haldinn er hátíðlegur 10. október ár
hvert. Hún lét það vera sitt fyrsta
opinbera embættisverk fyrir tveim-
ur árum að ávarpa samkomu okkar
af þessu tilefni í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Það var mikill heiður fyrir fé-
lagsmenn og skjólstæðinga Geð-
hjálpar. Margir minnast hvatning-
arávarps hennar, en hún sagði frá
þjóðarsamstöðunni sem varð til
þess að útrýming berklanna tókst á
sínum tíma. Þannig samhjálparanda
vildi hún sjá varðandi geðsjúkdóma
og hún lét í ljós von um að árangur-
inn gæti orðið mikill. Sumum fannst
þetta óhófleg bjartsýni
þá, en gott ef ekki er
farið að örla á þessum
árangri nú þegar. Þótt
geðsjúkdómum verði
seint útrýmt líkt og
smitsjúkdómum, má
með samstilltu átaki ná
langt í því að koma í
veg fyrir alvarlegar af-
leiðingar þeirra.
Einnig hafa vaknað
vonir vegna nýjunga í
forvörnum. Framkoma
Guðrúnar Katrínar,
sem var í senn glæsileg
og hlýleg, minnti okkur
á þessi bjartsýnisorð, vakti von í
brjósti og var okkur öllum hvatning.
Fyrir það erum við þakklát og við
minnumst hennar með virðingu.
Fyrir hönd félagsmanna Geð-
hjálpar votta ég Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Islands, dætrum
og fjölskyldu Guðrúnar Katrínar
okkar innilegustu samúð.
Við eiginkona mín vorum svo
lánsöm að kynnast Guðrúnu
Katrínu einnig á öðrum vettvangi.
Við minnumst þeirra kynna með
þakklæti og sendum fjölskyldu
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Pétur Hauksson.
Formáli
minningargreina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra hans,
systkini, maka og börn, skóla-
göngu og störf og loks hvaðan út-
fór hans fer fram. Ætlast er til að
þessar upplýsingar komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í greinunum
sjálfum.