Morgunblaðið - 24.10.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 57 i
skjalasafni en þar kom til einstakur
sagnfræðiáhugi hans og söfnunar-
hneigð. A safninu starfaði hann við
almenna afgreiðslu en einnig við að
innheimta skjöl frá embættismönn-
um, einkum prestum, en þeir eru
margir hverjir fastheldnir á kirkju-
bækumar. Sú innheimta fór mest
fram í gegnum síma og var oft unun
að heyra málflutning hans við þá en
þar var beitt rökum og fortölum af
þolgæði og mikilli snilld en jafn-
framt gætt ýtrustu kurteisi.
Eyþór átti mikið safn heimilda
um sögu Vestmannaeyja, Suður-
nesja og Keflavíkurvallar. Mér er
nær að halda að í fórum hans sé að
fínna allar prentheimildir um þessi
byggðarlög, a.m.k. frá þessari öld,
en einnig átti hann mikið af mynd-
um og ýmsum öðrum gögnum.
Maður kom aldrei að tómum kofun-
um hjá honum um sögu þessara
byggða. Einnig má minna á að
hann ritaði bók um sögu Sa-
meinaðra verktaka (útg. 1996) þar
sem saman er dreginn mikill fróð-
leikur írá upphafsárum verktaka-
starfsemi á Vellinum.
Annað stórvirki, sem Eyþór átti
drjúgan þátt í, var samning Beck-
sættarinnar sem kom út nú í vor í
þremur stórum bindum. Eyþór
hafði safnað saman miklum drögum
að ritinu og gengist íyrir stofnun
formlegs félags niðja Becksættar-
innar og mun það sitt fyrsta sinnar
tegundar á landinu. A lokastigum
útgáfunnar vann hann af sinni
vanalegu þrautseigju við söfnun
mynda í verkið.
A árum Eyþórs í Þjóðskjalasafni
var einn veturinn auglýst námskeið
fyrir almenning á vegum Háskól-
ans. Þátttakan var heldur dræm en
Eyþór dreif sig þar í námskeið í
bókfræði. Viðskiptum hans og Há-
skólans lauk á heldur leiðinlegan
hátt því ætlunin var að meina hon-
um að taka próf um vorið ásamt
öðrum nemendum. Hann fékk því
þó framgengt og stóð sig með prýði
en afleiðingin af þessu stappi öllu
varð samt sú að hann hætti frekari
tilburðum til að bæta sig á áhuga-
sviðum sínum við Háskólann. Auð-
vitað eru til reglur um inntökuskil-
yrði í þann ágæta skóla en það ríð-
ur þó varla stofnuninni að fullu þótt
fólk með aðrar prófgráður en stúd-
entspróf stundi þar nám, og hann
átti þangað fullt erindi vegna áhuga
síns og elju. Það má líka minna á
það að lærðu mennirnir með prófin
og gráðurnar standa á herðum
óskólagenginna manna. Ætli ís-
landssagan yrði t.d. ekki snautlegri
ef ekki hefði notið við manna af Ey-
þórs tagi.
Við Eyþór byrjuðum gjarnan
daginn á því að bera saman afglöp
flokkanna okkar þá og þá stundina
enda yfirleitt af ærnu að taka. Eftir
að hann hætti störfum kom hann
stundum á safnið með sitt hlýja
bros og var þá farið í að meta stöð-
una í landsmálunum, rifja eitthvað
upp frá æskuárum í Eyjum, frá
sfldarbræðslunni á Raufarhöfn eða
störfum á Vellinum. Hann var lífs-
reyndur maður og hafði lag á að
kenna manni ýmislegt um mannleg
samskipti. Þessara stunda á ég eft-
ir að sakna.
Við hittumst síðast nokkrum
dögum áður en hann fékk áfallið
sem varð hans síðasta. Þá var hann
glaður og hress og ánægður með
lífið og þess vegna er sárt að kallið
skyldi koma einmitt núna. Svan-
laugu, dætrunum Elfu og Þóreyju,
og barnabömunum, sem hann lét
sér ávallt annt um, sendi ég samúð-
arkveðjur um leið og ég þakka Ey-
þóri samfylgdina.
Jón Torfason.
Ágætur Vestmannaeyingur, Ey-
þór Þórðarson, er látinn. Við brott-
för hans rifjast margt upp um hlut
hans í félagsmálum okkar. Hann
var félagshyggjumaður og starfaði
mikið að félagsmálum í mörgum fé-
lögum og oft í forystu þeirra. Hon-
um var ekki nóg að vera skráður fé-
lagi, hann kannaði málin vel og
lagði oftast gott til mála út frá því.
Eyþór var framarlega í flokki við
undirbúning stofnunar Félags
Vestmannaeyinga á Suðurnesjum
og fyrsti formaður þess. Þegar gos-
ið í Heimaey hófst 23. janúar 1973
hófst mesti fólksflutningur íslands-
sögunnar, þegar allir íbúar eyjar-
innar, að örfáum undanskildum,
voru fluttir á einni nóttu upp á
meginlandið. Meginhlutinn fór í
fyrstu á Stór-Reykjavíkursvæðið
en dreifðist síðan vítt og breitt um
landið.
Eyþór og fjölskylda hans bjuggu
þá í Ytri-Njarðvík. Hann var þá í
stjórn Iðnaðarmannafélags Kefla-
víkur. Hann og Birgir Guðnason
málarameistari, sem var ásamt
honum í stjórn félagsins, hófust
þegar handa um athugun á hvemig
standa mætti að aðstoð við þá Vest-
mannaeyinga sem hingað kynnu að
leita. Árangurinn af því var opnun
Vestmannaeyjaskrifstofu þar sem
menn gátu leitað upplýsinga og
fengið aðstoð í ýmsum málum. I
tengslum við hana var svo opnuð
félagsmiðstöð og kaffistofa fyrir
Vestmannaeyinga. Ásamt þeim fé-
lögum starfaði margt gott fólk á
skrifstofunni, við veitingar og
bakstur. Það er síst ofmælt að þeir
félagar hafi fómað mörgum vikum
eingöngu í starf fyrir þetta málefni.
Félag Vestmannaeyinga á Suð-
umesjum var síðan stofnað 8. mars
1973. Það var að við best vitum
fyrsta Vestmannaeyjafélagið sem
var stofnað eftir að gosið hófst. Fé-
lagið varð strax vettvangur fjöl-
mennra fundarhalda Vestmannaey-
inga um vanda- og baráttumál
þeirra. Félagið stóð ennfremur fyr-
ir skemmtunum og öðrum uppá-
komum þar sem vinir, ættingjar og
aðrir kunningjar fengu tækifæri til
að hittast. I formannstíð Eyþórs
var mikið starfað og mæddi þá oft
mikið á honum og félögum hans.
Á grundvelli þessa var hann
kjörinn heiðursfélagi félags Vest-
mannaeyinga á Suðurnesjum. Við
teljum það vera að verðleikum fyrir
gott og fórnfúst starf fyrir Vest-
mannaeyinga á erfiðum tíma og
gott starf að félagsmálum okkar.
Við vottum eiginkonu hans, fjöi-
skyldu og öðrum aðstandendum
dýpstu samúð okkar.
Stjdrn Félags Vestmanna-
eyinga á Suðurnesjum.
Kveðja frá Þjóðskjalasafni
Islands
Eyþór Þórðarson kom til starfa í
Þjóðskjalasafni að loknu ævistarfi á
sviði vélstjórnar og vélaeftirlits.
Kom í hans hlut að starfa með gest-
um safnsins á lestrarsal og greiða
götu þeirra sem þangað sækja.
Hann hafði stundum á orði að það
væri hamingjuríkt að eiga síðustu
starfsárin á vettvangi sem hugur
hans mun jafnan hafa staðið til. Ey-
þór tók þegar til óspilltra málanna
að læra til starfans og neytti þess
borgaralega réttar aðsitja í Há-
skóla Islands og nema bókasafns-
og skjalfræði. Hann henti oft gam-
an að því er hann lauk prófi í nám-
skeiði í bókasafnsfræði að kennar-
inn neitaði að láta hann fá einkunn,
þar sem hann væri hvorki innritað-
ur stúdent eða með stúdentspróf.
Nokkur grunur leikur enn á því að
vélfræðingurinn hafi hlotið hæstu
einkunn á prófinu enda skorti fátt í
akademískri hugsun, þó að skóla-
þjálfun hafi verið á öðium sviðum.
Eyþór var sérstakur heiðursmaður
og hvers manns hugljúfi í hópi sam-
starfsmanna, léttur í lund með
gamansögu á takteinum við hvert
tækifæri. Eyþór Þórðarson var öt-
ull félagsmálamaður og heimsmað-
ur í framgöngu, sem setti svip á
starf hans og reyndist Eyþór ein-
stakur fulltrúi Þjóðskjalasafns ís-
lands gagnvart gestum þeim er
safnið sækja. Eftir að hann lét af
störfum kom hann oft í heimsókn í
safnið til þess að efla vináttuna við
gamla samstarfsmenn, sem munu
minnast hans með hlýju og þakk-
læti.
Starfsfólk Þjóðskjalasafns ís-
lands flytur fjölskyldu Eyþórs
Þórðarsonar einlægar samúðar-
kveðjur.
Ólafur Ásgeirsson.
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningargreina
birtist daglega í Morgunblaðinu.
Til leiðbeiningar fyrir greina-
höfunda skal eftirfarandi tekið
fram um lengd greina, frágang
og skilatíma:
Lengd greina
Um hvem einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
iengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínubil
og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetr-
ar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið gi-einina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útfór er á mánudegi), er
skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þaif grein að berast fyrir hádegi
á föstudag. I miðvikudags-,
fimmtudags-, fóstudags- og laug-
ardagsblað þai-f gi-einin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrir birtingardag. Þar
sem pláss er takmarkað, getur
þurft að fresta birtingu minning-
argreina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna skilafrests.
Berist grein eftir að skilafi’estur
er útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
Gormabindivélar.
Vírgormar.
Plastgormar.
Kápuglærur og karton
Otto B. Arnar chf.
Árrnúla 29, Reykjavfk,
sfmi 588 4699, fax 588 4696
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
HALLDÓRS ÁSGRÍMSSONAR,
Minni-Borg.
Inga Guðjónsdóttir,
Helga Halldórsdóttir, Gunnar Jónsson,
Erla Hulda Halldórsdóttir, Arnþór Gunnarsson,
Ásgrímur Halldórsson, Dagný Berglind Jakobsdóttir,
Guðjón Halldórsson
Hafþór Ingi, Halldór Óli og íris Gunnarsbörn,
Ásgeir Örn og Eik Arnþórsbörn,
Halldór Freyr og Ásta María Ásgrímsbörn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna fráfalls hjartkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Steinum,
Austur-Eyjafjöllum,
Birkivöllum 34,
Selfossi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Ljós-
heima fyrir kærleiksríka umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Björn Halldórsson, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Grétar Halldórsson, Margrét Sigurgeirsdóttir,
Þórhildur Maggý Halldórsdóttir, Hreinn Aðalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út-
för ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
LILJU LÁRU SÆMUNDSDÓTTUR,
Lækjarási 1,
Garðabæ.
Guðs blessun fylgi ykkur öllum.
Bogi G. Thorarensen,
börn, tengdabörn og ömmubörn.
+
Alúðarþakkir til þeirra, sem heiðruðu minn-
ingu
EINARS KR. EINARSSONAR
fyrrverandi skólastjóra
í Grindavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
Aðstandendur.
+
Þökkum innilega veitta samúð og hlýhug við
andlát og útför
STEFÁNS ÞÓRÐARSONAR.
Einnig þakkir til starfsfólks á deild B-4 á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ingi Þórðarson
og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir til þein-a, sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
JÓNATANS KRISTINSSONAR
frá Dalvík.
Vandamenn.