Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ
^58 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
Safnaðarstarf
Sunnudags-
morgunn í
Hallgríms-
kirkju
FYRIRLESTUR verður haldinn á
morgun, sunnudag kl. 10 árdegis.
Efnið verður í höndum Steinunnar
Jóhannesdóttur rithöfundar en hún
kallar það ,Á heimleið". 400 ára
minning Guðríðar Símonardóttur.
Steinunn hefur um langt skeið
rannsakað líf og sögu Guðríðar,
skrifað leikritið „Heimur Guðríðar",
sem flutt hefur verið mjög víða í
kirkjum landsins. Kl. 11 verður
messa og bamastarf. Bama- og
unglingakór Hallgrímskirkju syng-
ur og báðir prestarnir þjóna fyrir
altari, en sr. Sigurður Pálsson pré-
dikar. Fermingarbörn og fjölskj'ld-
ur þeirra em sérstaklega hvött til
þátttöku.
Guðbrandsmessa
og fyrirlestur í
Langholtskirkju
Hin árlega Guðbrandsmessa í
Langholtskirkju verður haldin á
morgun, sunnudag. Pessi messa
sækir fyiirmynd í messubók Guð-
brands biskups, Graduele - Grallar-
ann - sem gefin var út 1594. Messan
verður bæði sungin á íslensku og lat-
ínu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson,
rektor í Skálholti, prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt sóknarpresti sr.
Jóni Helga Þórarinssyni. Kam-
merkór Langholtskirkju syngur
foma kórtónlist og leiðir almennan
söng undir stjóm Jóns Stefánssonar.
Eftir messu, kl. 12.25, heldur sr.
Kristján Valur stutt erindi um Gra-
duale - Grallarann - messubók Guð-
KIRKJUSTARF
A
*
Brimilsvallakirkja.
Sveinn heitinn Bjömsson, listmál-
ari, málaði altaristöflumyndina í
vinnustofu sinni í þessu húsi haustið
1996. Krýsuvíkurkirkja sú sem nú
stendur var reist árið 1857 en kirkja
hefur verið í Krýsuvík frá því á mið-
öldum og var hún helguð Maríu
mey í kaþólskum sið. Kirkjan er nú
í umsjá Þjóðminjasafns Islands,
sem vinnur að endurbótum á henni
og kirkjugarðinum. Að lokinni skoð-
un „Sveinshúss" verður farið í
messukaffi í Krýsuvíkurskóla í
næsta nágrenni við „Sveinshús".
Kaffiveitingar verða í boði fyrir kr.
500 til stuðnings við starfsemi skól-
ans.
Messugestum gefst nú kostur á
að skoða vinnustofu og híbýli Sveins
Bjömssonar listmálara í húsinu
hans bláa við Gestsstaðavatn í
Krýsuvík og einnig að gerast þátt-
takendur í stofnun styrktarfélags
Sveinssafns.
Sveiflukvöld í
Keflavíkurkirkju
SVEIFLUKVÖLD til styrktar
kaupum á góðu söngkerfi í kirkjuna
verður í Keflavíkurkirkju á morgun,
sunnudag, kl. 20.30. Poppmessur
em að jafnaði einu sinni í mánuði
yfir vetrarmánuðina og einnig eru
sveiflukvöld á aðventu búin að festa
sig í sessi. Til að þessi tegund tón-
listar skili sér vel, er nauðsynlegt að
búa yfir góðu söngkerfi. Það er að
frumkvæði popparanna sjálfra sem
þetta er gert nú.
Á sveiflukvöldinu koma fram
Ruth Reginalds, Einar Júlíusson,
Rúnar Júlíusson, Magnús Kjart-
ansson, Birta Sigurjónsdóttir,
Kjartan Már Kjartansson, Ragn-
heiður Skúladóttir, ásamt Kór
Keflavíkurkirkju og poppbandi
kirkjunnar sem er skipað Einari
Erni Einarssyni organista, Baldri
Jósepssyni, Guðmundi Ingólfssyni,
Þórólfi Inga Þórssyni og Arnóri
Vilbergssyni.
Miðar verða seldir við inngang-
inn.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
unglinga kl. 21.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
bama (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vinaminni
kl. 13.
KFUM og KFUK v/Holtaveg.
Samkoma verður í aðalstöðvum
KFUM og KFUK við Holtaveg á
morgun, sunnudaginn 25. október,
ki. 17. Sigvaldi Björgvinsson flytur
ritningarlestra og bæn. Ársæll Að-
albergsson formaður Skógarmanna
segir frá starfinu í Vatnaskógi. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson lýsir sýn
prófasts á störf KFUM og KFUK í
Reykjavík. Helga Vilborg Sigur-
jónsdóttir syngur einsöng og sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prófastur flyt-
ur ræðu dagsins. Mikil dagski-á og
vonast er til að allir áhugasamir og
fólk hvaðanæva úr borginni fjöl-
menni.
Krýsuvikurkirkja.
brands biskups, sem sungið var eftir
hér á landi fram á síðustu öld. Að
venju verður boðið upp á kaffisopa
eftir messu og em allir velkomnir.
Fjölskyldan
árið 2000
NÆSTKOMANDI sunnudag verð-
ur haldin tónlistarguðsþjónusta í
Hafnarfjarðarkirkju í tilefni fjöl-
skyldudags kirkjunnar. Þema guðs-
þjónustunnar er „Fjölskyldan árið
2000“. Tónlistarguðsþjónusta er
guðsþjónusta þar sem höfuðáhersla
er lögð á tónlist, íhugun og fyrirbæn
og er formið að sænskri fyrirmynd.
í tónlistarguðsþjónustunni á sunnu-
dag syngur Kristján Helgason ein-
söng, en hann hefur lokið söngkenn-
araprófi frá söngskóla Reykjavíkur
og syngur nú í kór Hafnarfjarðar.
Kór kirkjunnar leiðir söng undir
stjórn Natalíu Chow. Prestur er sr.
Þórhallur Heimisson. Eftir stund-
ina er boðið upp á molasopa í safn-
aðarheimilinu og mun sr. Þórhallur
þá segja frá hjónanámskeiðum
kirkjunnar.
Kirkjuafmæli
Á MORGUN, sunnudaginn 25.
október, verður þess minnst með
hátíðarmessu í Brimilsvallakirkju í
hinum forna Fróðárhreppi að 75 ár
em liðin frá vígslu kirkjunnar, en
hún var vígð þann 28. október 1923.
Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju flytur
hátíðarsöngva sr. Bjama Þorsteins-
sonar, en organleik og kórstjóm
annast þau Kjartan Eggertsson og
Nanna Þórðardóttir. Veronika
Osterhammer, sem búsett er á
Brimilsvöllum syngur einsöng.
Söfnuður Brimilsvallakirkju á sér
merkilega sögu, þótt ekki sé hún
löng, en hann var stofnaður út úr
Ólafsvíkursöfnuði árið 1915.1. janú-
ar 1994 vom söfnuðimir aftur sam-
einaðir og er kirkjan síðan skil-
greind sem grafarkirkja. Hún er
þokkalegasta hús og jafnan tiltæk
til þjónustu.
Kirkjukaffi verður í Safnaðar-
heimili Ólafsvíkurkirkju eftir mess-
una. Sóknarprestur er sr. Friðrik J.
Hjartar.
Messa í Krýsu-
víkurkirkju
MESSAÐ verður í Krýsuvíkur-
kirkju sunnudaginn 25. október kl.
14:00, á siðbótardegi. Séra Gunnþór
Ingason, sóknarprestur Hafnar-
fjarðarkirkju, messar. Boðið verður
upp á akstur fyrir þá sem það kjósa
og lagt af stað frá Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 13.
Þeim sið verður fram haldið að
taka altaristöflumynd kirkjunnar
niður við lok haustmessunnar og
færa hana til vetursetu í hlýrri
húsakynnum. Að þessu sinni verður
hún flutt yfir í „Sveinshús" í Krýsu-
vík, steinsnar frá kirkjunni, þar sem
hún verður varðveitt til vorsins en
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Veldu þér tekjur
Háartekjur. Öruggartekjur. Frjáls vinnutími.
Skemmtilegt starf. Ábyrgt samstarfsfólk.
Viltu vera með?
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
3. nóvember, merktar: „V — 6571"
TIL SÖLU
Jörð til sölu
Til sölu er jörðin Sigrídarstadir í Fljótum,
Skagafirði. Á jörðinni er íbúðarhús, útihús,
33 hektara tún og gott beitiland. Veiðiréttur
er í Flókadalsá. Jörðin er án greiðslumarks.
Hentar vel fyrir hrossa- og sauðfjárbú. Einnig
eru til sölu nokkur hross á tamningaaldri.
Uppl. í síma 467 1136 eða 467 1027 á kvöidin.
Verslun til sölu á Akranesi
Af sérstökum ástæðum er til sölu verslun með
barna- og kvenfatnað. Verslunin er í leigu-
húsnæði á góðum stað. Tilvalið fyrir aðila sem
vilja starfa sjálfstætt.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignamiðlun
Vesturlands, Akranesi, s. 431 4144.
NAUÐUNGARSALA
Nauðungarsölur
Framhald uppboðs verður háð á fasteigninni Miðtúni 7, Hólmavík,
f immtudaginn 29. október 1998 kl. 14.00. Þinglýstir eigendur eru
Þórunn Einarsdóttir og Guðbjörn Sigurvinsson. Gerðarbeiðandi er
Byggingarsjóður rikisins.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
22. október 1998.
TILK YNNING AR
Handverksmarkaður
Handverksmarkaður verður á Garðatorgi
í dag, laugardaginn 24. október, frá kl. 10—18.
Milli 60 og 70 aðilar sýna og selja muni sína.
Kvenfélagskonur sjá um kaffisölu.
SMÁAUGLÝSINGAR
TIL SÖLU
Aukakílóin af — hringdu.
Klara, sími 898 1783.
FÉLAGSLÍF
Dalvegi 24, Kópavogi.
Almenn samkoma i dag kl. 14.
Ræðumaður Sigrún Einarsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð sunnud. 25. okt.
Frá BSÍ kl. 10.30 Þyrilsnes.
Gengið um nesið. Komið við hjá
brúnni yfir Bláskeggsá, fyrstu
steinsteyptu brúnni á islandi.
Verð kr. 1.700/1.900.
Myndakvöld verður haldið í
Húnabúð, Skeifunni 11, mánu-
daginn 2. nóvember kl. 20.30.
Sýndar verða myndir frá áherslu-
svæði Útivistar í Skaftárhreppi.
Aðganseyrir er kr. 600, innifaldar
eru kaffiveitingar.
Miðasala hafin í áramóta-
ferðina 30. des.—2. jan.
Heimasíða: centrum.is/utivist
Skíðadeild Víkings
Vetrarkaffi
Vetrarkaffi verðurí skíðaskála
Víkings sunnudaginn 25. október
kl. 13.30. Félagar velkomnir.
Stjórnin.
SYN
/r.,<1./«, kamnn" I r. rJðfjof
BiUn Iracy nlmtUlAln t Isltndi. Fssný Jéamssdidálllr
Elnarintsl 34. 101 R»k. Slmi 551 5555. Fai: 551 5810
BRIAN
námskeiðið
Phoenix-leiðin
til
angurs.
námskeið 3/11.
Kynning á
Tracy-nám-
skeiðum i
sal Hótels
ieiða 26/10 kl. 19.
Allir velkomnir.
Phoenixklúbb-
félagar munið
fundinn mánu-
daginn 26/10 kl.
Fanný Jónmundsdóttir,
umboðsmaður Brian Tracy
námskeiða á fslandi.
Sími 551 5555.
FERÐAFÉLAG
@ ÍSÍANDS
MORKINNI6 - SÍMI S98-K33
Sunnudagsferð 25. október
kl. 10.30
Bláfjöll - Vífilsfell - Jós-
epsdalur. Fjallganga eftir endi-
löngum Bláfjöllum út á Vífilsfeli
og komið niður í Jósepsdal. Verð
1.300 kr. Um 5—6 tima ganga.
Myndakvöld verður í Mörk-
inni 6 á föstudagskvöldið 30.
október kl. 20.30.
Góðir gestir koma að austan,
þær Inga Rósa Þórðardóttir frá
Ferðafélagi Fljótsdalshérðas og
Ina Gísladóttir frá Ferðafélagi
Fjarðarmanna koma og sýna
myndir og kynna gönguleiðir á
Austfjörðum. Allir velkomnir.
Gerist félagar og eignist árbók-
ina 1998: Fjaliajaröir og Framaf-
réttir Biskupstungna. Árgjaldið
er 3.400 kr.