Morgunblaðið - 24.10.1998, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 65
Matur og matgerð
Gefíð börnunum
kartöflur
Um daglnn kom maður að máli við
Kristínu Gestsdóttur og kvartaði yfír
því að börnum hans gengi illa að koma
kartöflum í börnin sín.
HVAÐ er til ráða? Líklega gera
sér ekki allir grein fyrir því hvað
kartöflur eru næringarríkar og
fer neysla þeirra minnkandi eink-
um meðal ungs fólks og barna.
Dreifingaraðilar kartaflna mættu
gera meira af því að auglýsa þær
og gefa góðar einfaldar upp-
skriftir. Flestar þjóðir nýta kart-
öflur á miklu fjölbreyttari hátt en
íslendingar. Fyrir nokkrum ár-
um var pasta mikið auglýst og
allir fóru að borða pasta og gera
enn, það er ódýrt og fólki var tal-
in trú um að það
væri afar
fæða -
og það trúði
því.
Eg reyndi að
segja börnun
um sem ég
kenndi að
margt
væri miklu
hollara en
pasta. Bömin
litu á mig stór-
um augum og
sögðu: „Veit kenn-
arinn virkilega
ekki hvað pasta er hollt, íþótta-
menn borða það fyrir keppni?"
Vissulega eru kolvetni í pasta - og
þar með upp talið í flestum tilfell-
um, en kartöflur era ekki síður
kolvetnaríkar en auk þess eru í
þeim geysimörg önnur næringar-
efni, svo sem C-vitamín, ýmsar
tegundir B-vítamína, kalk og járn
o.fl. í frönskum kartöflum eru
nær öll vítamín horfin og þær
sjúga í sig mikla fitu. Neysla
þeirra á stóran þátt í vaxandi
offituvandamáli þjóðarinnar. Það
er útbreiddur misskilningur að
kartöflur eins og þær koma fyrir
séu fitandi. Aðeins 80 hitaeining-
ar eru í 100 g af soðnum kartöfl-
um. Til þess að fólk gefi sér tíma
til að gera annað við kartöflur en
sjóða þær þarf það að fá einfaldar
og góðar kartöfluuppskriftir. En
hafið í huga að það er aldrei hægt
að búa til góðan mat nema maður
hugsi örlítið um hvað maður er að
gera og gefi sér smátíma í það.
Bakaðar kartöflur
með osti
Nokkrar kartöflur, helst
_________nokkuð stórar_________
nokkrar sneiðar ostur, sú tegund
________sem ykkur hentar________
30 g smjör eða annað viðbit
1/2 tsk. salt
álpappír
1. Þvoið kartöflurnar vel, sker-
ið í þunnar sneiðar ekki alveg í
gegn. Kartaflan á að hanga sam-
an á botninum.
2. Setjið litla ostsneið í hverja
rifu. Raðið kartöflunum á smurða
eldfasta skál. Bræðið smjörið
með saltinu og hellið jafnt yfir,
leggið síðan lok eða álpappír yfir.
Bakið kartöflurnar í bakaraofni
við 200°C, blástursofni við 180°C í
um 45 mínútur. Stingið prjóni í
kartöflurnar til að aðgæta hvort
þær era soðnar.
Kartöflustappa (mús)
með gulrótum.
Um 300 g kartöflur
vatn svo að rétt fljóti yfir kartöflu-
__________sneiðarnar_________
__________1/2 tsk. salt______
1/2 tsk. sykur (meira ef ykkur sýnist)
1 - 2 meðalstórar gulrætur
15 g smjör (1 smápakki)
1. Afhýðið kartöflurnr og
skerið í frekar þunnar sneiðar.
Setjið í pott, hellið sjóðandi
vatni yfir, setjið salt út í og sjóð-
ið við hægan hita þar til kartöfl-
urnar eru orðnar meyrar. Hellið
soðinu af kartöflunum í ílát og
geymið.
2. Stappið kartöflurnar í pott-
inum með kartöflustappara,
hrærið út með hluta af.kartöflu-
soðinu, en fleygið því sem af-
gangs er. Stappan á að vera
þykk.
3. Þvoið gulrótina vel, skafið
ekki, mest vítamín er við hýðið.
Rífið hana fínt og setjið saman
við stöppuna. Hrærið smjörið út
í. Borðið með skinku eða hvers
kyns heitum eða köldum mat.
wmmmmmmmmmmmmmmm
Kúmen
kartöffur
Líklega þarf að steikja þetta
magn í tvennu eða þrennu lagi á
pönnunni, notið feitina skv. því.
__________250 g kartöflur_________
_________3 msk. matarolía________
1-2 msk. smjör eða annað viðbit
kúmen
1. Afhýðið kartöflumar ef hýð-
ið er þykkt, látið það annars vera
á en þvoið vel. Skerið í þunnar
sneiðar.
2. Setjið hluta af smöri og olíu á
pönnu, hafíð meðalhita svo ekki
brenni. Steikið kartöflurnar í
nokkrar minútur á báðum hliðum.
Þær þurfa að vera alveg meyrar
og gæti þurft að minnka hitann.
Stráið kúmeni á þær þegar þið
hafið snúið þeim við. Haldið heit-
um meðan þið steikið meh-a.
Athugið: Þessar kartöflur era
geysigóðar með skinku og hvers
konar pylsum svo og með kjöti
og steiktum fiski og raunar með
hverju sem er. Þær eru líka góð-
ar með slátri.
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla
fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11 á
kirkjuvígsludegi Dómkirkjunnar. Prestur
sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Guðsþjónusta kl. 14 fyrirferm-
ingarbörn og foreldra þeirra. Prestur sr.
Jakob A. Hjálmarsson. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta
kl. 10.15.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl.
11. Barnakór Grensáskirkju syngur
undir stjórn Marrétar Pálmadóttur.
Kirkjukór Grensáskirkju leiðir almennan
safnaðarsöng. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorg-
unn kl. 10. „Á heimleið". 400 ára minn-
ing Guðríðar Símonardóttur: Steinunn
Jóhannesdóttir, rithöfundur. Messa og
barnasamkoma kl. 11. Organisti Dou-
glas A. Brotchie. Barna- og unglinga-
kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn
Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdótt-
ur. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hró-
bjartssyni.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Organisti Pavel Manasek. Bryn-
dís Valbjörnsdóttir og sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Guð-
brandsmessa. Árleg messa að fyrir-
mynd messu úr Graduale, messubók
Guðbrands biskups, sungin á íslensku
og latínu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti, sr. Jóni Helga Þórarins-
syni. Kammerkór Langholtskirkju syng-
ur forna kórtónlist og leiðir almennan
söng undir stjórn Jóns Stefánssonar.
Eftir messu heldur sr. Kristján Valur
stutt erindi í safnaðarheimilinu um Gra-
duale -Grallarann - messubók Guð-
brands biskups 1594. Að venju verður
kaffisopi. Barnastarf í safnaðarheimil-
inu kl. 11. Umsjón Lena Rós Matthías-
dóttir og Ágústa Jónsdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Drengjakór
Laugarneskirkju syngur. Stjórnandi
Friðrik S. Kristinsson. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Prestur sr. Bjarni Karls-
son. Guðsþjónusta kl. 13 1 Sjálfsbjarg-
arsalnum, Hátúni 12. Ibúar Hátúns 12
og 10 velkomnir. Kór Laugarneskirkju
syngur. Guðsþjónusta kl. 14. Þjónustu-
hópurinn annast messukaffi. Organisti
Gunnar Gunnarsson . Prestur sr. Bjarni
Karlsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Guðsþjónusta kl.
14. Árleg guðsþjónusta Önfirðingafé-
lagsins í Reykjavík. Prestur sr. Gunnar
Björnsson. Örganisti Reynir Jónasson.
Kaffisala í safnaðarheimilinu að lokinni
guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Organisti Vikera Manasek. Prestur
sr. Sigurður Grétar Helgason. Barna-
starf á sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnastarf á sama tíma.
Söngæfing fyrir hinn almenna kirkju-
gest kl. 13.30. Kaffi eftir messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 í safnaðar-
heimilinu á Laufásvegi 13. Tilvalið fyrir
fjölskylduna að koma saman þar sem
hver og einn fær eitthvað við sitt hæfi. í
lokin verður spjallað yfir svaladrykk,
kaffi og kexi. Organisti er Guðmundur
Sigurðsson. Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðar-
prestur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 með þátttöku AA-félaga. Gísli Al-
freðsson leikari flytur stólræðu. Undir-
spil og kórstjórn: Valgeir Skagfjörð.
Einsöngur Guðrún Gunnarsdóttir.
Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu
kl. 13. Foreldrar boðnir velkomnir með
börnum sínum. Poppguðsþjónusta kl.
20.30 á vegum Æskulýðsfélags kirkj-
unnar. Létt og grípandi tónlist. Eftir
guðsþjónustuna er kirkjugestum boðið
upp á ís í tilefni vetrarkomu.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sama
tíma. Barnakórinn syngur. Organisti
Daniel Jónasson. Tómasarmessa kl.
20. Altarisganga. Fyrirbænir og fjöl-
breytt tónlist. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kl. 11 messa og
sunnudagaskólinn á sama tíma.
Organisti Kjartan Sigurjónsson. Léttur
veitingar eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
Guðspjall dagsins;
Brúðkaupsklæðin.
(Matt. 22.)
son. Organisti Lenka Mátéová. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma. Umsjón
Ragnar Schram og Hanna Þórey Guð-
mundsdóttir. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli í Grafarvogskirkju kl. 11. Prestur
sr. Vigfús Þór Árnason. Hjörtur og
Rúna aðstoða. Sunnudagaskóli í
Engjaskóla kl. 11. Prestur sr. Sigurður
Arnarson. Signý og Guðlaugur að-
stoða. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kór Grafar-
vogskirkju syngur. Organisti Hörður
Bragason. Guðsþjónunsta á Hjúkrun-
arheimilinu Eir kl. 15.30. Prestur sr.
Vigfús Þór Árnason. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti Hörður Braga-
son. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. íris Kristjánsdóttir þjón-
ar. Kristín Lárusdóttir leikur á selló. Kór
Hjallaskóla kemur í heimsókn. Félagar
úr kór kirkjunnar leiða söng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Allir hjartanlega vel-
komnir. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf kl. 11
í safnaðarheimilinu Borgum. Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurjón
Ámi Eyjólfsson. Kór Kópavogskirkju
syngur. Organisti Sigrún Þórsteinsdótt-
ir. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Allir krakkar og foreldrar velkomnir.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Vaigeir Ást-
ráðsson prédikar. Kór Rangæingafé-
lags Reykjavíkur syngur. Altarisganga.
Organisti Gróa Hreinsdóttir. Sóknar-
prestur.
FRÍKIRKJAN Vegurinn: Morgunsam-
koma kl. 11. Lofgjörð, barnastarf. Pré-
dikun Gloria Cotten. Kvöldsamkoma
kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Terry Bridle frá
Englandi. Allir hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Krakkaklúbbur kl. 11
fyrir krakka á öllum aldri. Samkoma kl.
20. Jón Þór Eyjólfsson prédikar. Allir
velkomnir.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messur
sunnudaga kl. 10.30, 14. Messa kl.'18
á ensku. Laugardaga og virka daga
messur kl. 8 og 18. Rósakransbæn:
Október er mánuður rósakransins.
Rósakransbænin verður beðin á hverj-
um degi í kirkjunni kl. 17.30.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8: Messa
sunnudag kl. 11. (Rósakransbænin
beðin 25 mín fyrir messuna). Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa
sunnudag kl. 10.30. Messa virka daga
og laugardaga kl. 18. Mánud.-föstud.:
Rósakransbæn kl. 17.40.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14. Laugardag:
Messa kl. 18 á ensku.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa laugar-
dag og virka daga kl. 18.30.
RIFTUN, Ölfusi. Messa sunnudag kl.
17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 14. Ath. breytt-
an tíma.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta að Bíldshöfða 10, 2.
hæð, kl. 11. Stundin er í höndum barn-
anna, þar sem þau koma fram með
söng og dansi undir stjóm Carinu Ber-
hus frá Kings Kids í Kristjansand. Sam-
eiginlegur matur á eftir, þar sem allir
koma með mat á hlaðborð. Almenn
samkoma kl. 20. Kings Kids börnin
koma fram í byrjun samkomunnar.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik
Schram, safnaðarprestur, prédikar. All-
ir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugardag kl.
13 laugardagsskóli fyrir krakka. Sunnu-
dag kl. 19.30. Bænastund. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Sheila og Mike Fitz-
gerald tala. Mánudag kl. 15 heimila-
samband fyrir konur.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam-
koma kl. 17. Ritningalestur og bæn:
Sigvaldi Björgvinsson. Fréttir af starf-
inu í Vatnaskógi: Ársæll Aðalbergsson
formaður Skógarmanna. KFUM og
KFUK í Reykjavlk með augum pró-
fasts: Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Ein-
söngur: Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Ræðumaður: Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son prófastur. Allir velkomnir. Sigur-
björn Þorkelsson framkvæmdastjóri.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta I Mosfellskirkju kl. 14. Sr. Kristín
Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur
prédikar. „Vorboðarnir“ - kór eldri
borgara í Mosfellsbæ kemur í heim-
sókn og syngur undir stjórn Páls
Helgasonar. Kirkjukór Lágafellssóknar
leiðir safnaðarsöng. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Barnastarf í safn-
aðarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfells-
leið fer venjulegan hring. Jón Þor-
steinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kl. 11
fjölskylduhátíð allra sunnudagaskóla>
Hafnarfjarðarkirkju. Strætisvagnar aka
frá Hvaleyrarskóla og Setbergsskóla kl.
11 í kirkjuna og heim aftur kl. 12. Allir
leiðtogar taka þátt. Barna- og ung-
lingakór kirkjunnar syngur undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg. Sögur,
söngur og leikir. Kl. 17 tónlistarguðs-
þjónusta. Þema: „Fjölskyldan árið
2000“. Einsöng syngur Kristján Helgi-
son. Kór kirkjunnar leiðir söng undir
stjórn Natalíu Chow. Prestur sr. Þór-
hallur Heimisson. Kynning á hjóna-
námskeiðum kirkjunnar í safnaðar-
heimilinu eftir stundina. Messa í Krýsu-
víkurkirkju kl. 14.
KRÝSUVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14^
Sveinshús opið eftir messu. Magnús
Gunnarsson flytur þar ávarp. Kaffisala I
Krýsuvíkurskóla til styrktar starfi hans.
Prestur sr. Gunnþór Ingason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón Andri, Ásgeir Páll
og Brynhildur. Guðsþjónusta kl. 14.
Sira Bragi Friðriksson messar. Kór
Víðistaðasóknar syngur. Organisti Úlrik
Ólason. Sigurður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasam-
koma í safnaðarheimilinu kl. 11. Um-
sjón Edda Möller og Öm Arnarson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Ásta, Sara og Steinar
aðstoða ásamt fermingarbörnum. For-
eldrar hvattir til að mæta með bömum
sínum. Baldur Rafn Sigurðsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Ytri-Njarðvíkurkirkju ogt
verða börn sótt að safnaðarheimilinu
kl. 10.45. Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn.
Messa kl. 14. Altarisganga. Prestur
Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavikur-
kirkju syngur. Margrét Hreggviðsdóttir
og Ingunn Sigurðardóttir syngja tví-
söng. Orgelleikari Einar Örn Einars-
son. Sveiflutónleikar kl. 20.30 til
styrktar söngkerfi fyrir Keflavíkurkirkju.
Poppband kirkjunnar leikur, en það er
skipað Baldri Jósefssyni, Guðmundi
Ingólfssyni, Þórólfi Ingiþórssyni, Arn-
óri Vilbergssyni og Einari Erni Einars^
syni. Ásamt þeim koma fram Magnús
Kjartansson, Rúnar Júlíusson, Einar
Júlíusson, Ruth Reginalds, Birta Sig-
urjónsdóttir og kór Keflavíkurkirkju.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Hádegisbænir þriðju-
dag - föstudags kl. 12.10. Sóknar-
prestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11, barnakórinn syngur. Jón
Ragnarsson.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa verður
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Sunnudagaskóli alla sunnudags-
morgna kl. 11. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. "
14. Dvalarheimilið Höfði: Messa kl.
12.45. Sóknarprestur.
BORGARNESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.15. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Organleikari Ingunn
Hildur Hauksdóttir. Sóknarprestur.
KAUPMANNAHÖFN: íslensk messa
sunnudaginn 25. október kl. 13 í St.
Paul’s kirkju, Kaupmannahöfn. Biskup
íslands, hr. Karl Sigurbjömsson, setur
sr. Birgi Ásgeirsson í embætti sendi-
ráðsprests. Kór islenska safnaðarins í
Kaupmannahöfn leiðir söng. Kórstjóri
Ólöf Jónsdóttir. Verið velkomin. Safn-
aðarnefnd.
Fríkirkjan
í Reykjavík
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11.00 LSafnaÆgrheimilinu
á Laufásveoi 13.
Tilvalið fyrir fjölskylduna að koma
saman þar sem hver og einn fær
eitthvað við sitt hæfi.
I lokin verður spjallað yfir
svaladrykk/kaffi og kexi.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Allir eru hjartanlega velkomnir^
Hjörtur Magni Jóhannsson,
safnaðarprestur.