Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 4
I haminggu!
í dag kemur út annað bindi skáld-
ævisögu Guðbergs Bergssonar,
Eins og steinn sem hafið fágar.
kvöld les höfundur úr henni og úr
bók sinni um Sæmund Valdimarsson
og stytturnar hans á Súfistanum.
Aðgangur ókeypis - Hefst kl. 20.30
FORLAGIÐ
4 PRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PÁLL Torfi Önundarson yfirlæknir var annar tveggja lækna sem
unnu við rannsóknir á rannsóknarstofum Landspitalans í blóðmeina-
og meinefnafræði í gær.
eins að við semjum af okkur
reynsluflokk eins og hjúkrunar-
fræðingar gerðu og einn til tvo
menntunarflokka sem eru 3-9%,“
sagði Anna Svanhildur.
Hún sagði að flesta þá meina-
tækna, sem sagt hafa upp störfum á
Landspítalanum, langaði til að ráð-
Uppsagnir meinatækna á rannsóknarstofum Landspítalans í blóðmeina- og meinefnafræði
ast þangað aftur til starfa, því þrátt
fyrir launin hefði þeim Ukað mjög
vel starfið og starfsandinn. Frum-
kvæðið að frekari viðræðum yrði
hins vegar að koma frá viðsemjend-
um meinatækna.
Angi af miklu
stærra máli
Bráðamóttaka var á Landspítal-
anum í gær og þar er einnig bráða-
móttaka í dag, og hefur þess verið
farið á leit við héraðslækninn í
Reykjavík að hann beiti sér fyrir
því að læknar leitist við að fækka
sjúklingum sem sendir eru á bráða-
móttöku og freisti þess að beita öðr-
um ráðum til úrlausnar. Þá er ætl-
ast til þess að læknar sem hafa vís-
að sjúklingum til rannsókna á
Landspítalann vísi sjúklingum á
aðrar rannsóknarstofur sé það
mögulegt.
Fimm meinatæknar og tveir
læknar voru að störfum á dagvakt á
Landspítalanum í gær og að sögn
Páls Torfa Önundarsonar yfirlækn-
is er nú aðeins unnið þar að algeng-
ustu og nauðsynlegustu rannsókn-
um, en hins vegar fara engar sér-
hæfðar rannsóknir fram.
„Spítalinn er ekki í standi til þess
að greina sjúkdóma á þann hátt sem
ætlast er til af þessum spítala og við
erum að bjóða upp á rannsóknir
núna sem eru líkar því sem boðið er
upp á á læknastofum úti í bæ, eða
heilsugæslustöðvum og litlum
sjúkrahúsum úti á landi,“ sagði
hann.
Páll Torfi sagði að launamál
meinatækna væru aðeins angi af
miklu stærra máli þar sem þrátt
fyrir góðæri undanfarin ár hefðu
fjárveitingar til Landspítalans
raunverulega minnkað allt frá árinu
1991.
„Sjúkrahúsinu er sagt að halda
sig innan fjárveitinga ár eftir ár, en
þær standa ekki undir kostnaði og
sjúkrahúsið heldur varla í horfinu.
Við erum að missa starfsfólk og við
getum ekki ráðið hingað nýtt fólk
vegna þess að starfsfólki bjóðast
sambærileg störf fyrir miklu betri
laun hjá einkafyrirtækjum," sagði
Páll Torfi.
Læknaráð Landspítalans hefur
lýst yfir áhyggjum sínum af þeirri
takmörkun á rannsóknarþjónustu
sem nú er unnt að veita á rannsókn-
arstofum spítalans í blóðmeina- og
meinefnafræði. Unnið sé eftir neyð-
aráætlun og fyrirséð að ekki verði
unnt að halda úti sólarhringsvakt
nema í nokkra daga. Samkvæmt
neyðaráætlun verði reynt að láta þá
bráðastarfsemi hafa forgang sem
sérhæfð sé fyrir spítalann og ekki
unnt að fá annars staðar. Þá hafi
strax eftir uppsagnir meinatækna
reynst nauðsynlegt að draga úr
starfsemi legudeilda, bráðamóttöku
og göngudeilda.
Uppsagnir meinatækna
ræddar á Alþingi
UPPSAGNIR meinatækna á
Landsspítalanum voru ræddar í fyr-
irspurnartíma á Alþingi í gær. Þar
spurði Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, Þingflokki jafnaðarmanna,
Geir H. Haarde fjármálaráðheiTa
hvort hann hygðist grípa inn í
kjaradeilu meinatækna á Landspít-
alanum með því að leggja fram
meira fjármagn fyrir hönd ríkisins
til að hægt væri að greiða meina-
tæknum hærri laun.
Asta Ragnheiður sagði að í frétt-
um hefði komið fram að lífi og
heilsu sjúklinga væri stefnt í hættu
á Landspítalanum, en þar væru nú
5 meinatæknar starfandi þar sem
47 hefðu starfað fyrir helgina.
Læknar töluðu um neyðarástand og
að ljóst væri að einhverjir sjúkling-
ar væru mögulega í lífshættu þar
sem þessir fáu meinatæknar önn-
uðu því ekki að fylgjast með þeim.
Hafði Asta Ragnheiður eftir Páli
Torfa Önundarsyni yfirlækni á
rannsóknadeild Landspítalans að
deilan myndi ekki leysast nema
fjármálaráðherra og jafnvel forsæt-
isráðhen-a kæmu að málinu og til
kæmi aukið fjármagn.
Ekki hefðbundin
kjaradeila
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að ekki væri um að ræða
kjaradeilu í hefðbundnum skilningi.
í gildi væri kjarasamningur milli
ríkisins og þessara starfsmanna og
einnig væri í gildi úrskurður sem
hefði verið kveðinn upp eftir að aðil-
ar náðu ekki saman í aðlögunar-
nefnd. Framkvæmd kjarasamnings
gengi að því er virtist allvel á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur en hópur
starfsmanna á Landspítalanum vildi
greinilega ekki sætta sig við þessa
niðurstöðu og hefði sagt upp störf-
um.
„Eg geri ráð fyrir því að yfir-
menn á Ríkisspítölum vinni nú baki
brotnu við að reyna að leysa þessa
deilu, en formlega séð hafa starfs-
mennirnir látið af störfum vegna
eigin uppsagna. Ég held hins vegar
að öllum megi vera það Ijóst að
svona mál leysast ekki hér í sölum P
Alþingis," sagði Geir.
Ásta Ragnheiður sagði að vitað
væri að Landspítalinn greiddu
lægstu laun til meinatækna. Mikil
gróska væri komin í störf sem
meinatæknar gætu starfað við,
einkum hjá íslenskri erfðagrein-
ingu, og það hefði hækkað laun
meinatækna úti í þjóðfélaginu.
Geir sagði að sér væri kunnugt
um að áður en uppsagnir meina- ■
tækna komu til framkvæmda hefðu W
verið gerðar ítrekaðar tilraunir af
hálfu yfirstjórnar Landspítalans að
koma til móts við kröfur hópsins.
„Ég hygg að það liggi á borðinu til-
boð til þessa fólks sem er svo ríflegt
að það myndi orka mjög tvímælis að
ætla að ganga lengra miðað við aðra
starfshópa á þessum spítölum og
miðað við það sem gerst hefur í k
launamálum í landinu, og er þá haft 1
til viðmiðunar m.a. það sem aðrir ■
hópar í heilbrigðiskerfinu hafa knú- w
ið fram fyrir sjálfa sig,“ sagði Geir.
Mál og menning • Laugavegi 18 • Síml 515 2500
Tímaspursmál hvenær
eitthvað fer úrskeiðis
LJÁÐD ÞEIM EYRA
Vegna uppsagna 47
meinatækna af 60 á
rannsóknarstofum
Landspítalans í blóð-
meina- og meinefna-
fræði er í undirbúningi
að senda sýni til rann-
sókna erlendis og leitað
hefur verið eftir því að
sjálfstæðar rannsókn-
arstofur mæli sýni.
Rætt hefur verið við
Sjúkrahús Reykjavíkur
um aðstoð og verða
sýni mæld þar ef nauð-
syn krefur.
PÁLLl Torfi Önundarson, yfirlækn-
ir á rannsóknarstofum í blóðmeina-
og meinefnafræði, segir að það sé
aðeins tímaspursmál hvenær eitt-
hvað fari úrskeiðis vegna ástandsins
á spítalanum. „Þetta er stórhættu-
legt ástand ef þetta varir meira en
örfáa daga,“ segir hann.
Enginn fundur
verið boðaður
Enginn fúndur hafði í gær verið
boðaður með meinatæknum og við-
semjendum þeirra og í fréttatil-
kynningu, sem skrifstofa Ríkisspít-
ala sendi frá sér í gær, segir að fyrir
liggi gildur kjarasamningur við
meinatækna á Ríkisspítölum.
I tilkynningunni segir að í nýleg-
um kjarasamningum opinberra
starfsmanna hafi verið samið um til-
teknar launahækkanir í miðlægum
samningum og síðan gert ráð fyrir
að stofnanir semdu hver fyrir sig
við starfsmenn sína um röðunar-
reglur. Báðum þessum þáttum
kjarasamninganna væri lokið og
stofnanaþáttur kjarasamnings Rík-
isspítala við meinatækna væri alveg
sambærilegur við stofnanaþátt
kjarasamnings meinatækna á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Þar hefðu
meinatæknar hins vegar sætt sig
við sambærilegar röðunarreglur og
boðnar hefðu verið á Ríkisspítölum.
Þá segir að sú heildarlaunahækk-
Morgunblaðið/Ásdís
HELGA Ólafsdóttir meinatæknir var ein að störfum þar sem venjulega starfa fjórir meinatæknar.
un sem meinatæknum hafi verið
boðin á grundvelli þessara samn-
inga og röðunarreglna stofnunar sé
að meðaltali 24,8% á þessu ári til
viðbótar almennri 4% launahækkun
í ársbyrjun. Þar af sé hækkunartil-
boð stofnunar í nýju röðunarkerfi
16,8%. Hækkunartilboðið sé fylli-
lega í samræmi við það sem öðrum
sambærilegum stéttum hafi verið
boðið, en þó hækki laun meina-
tækna eitthvað umfram laun ýmissa
annarra stétta vegna þess að launa-
tafla meinatækna í miðlægum
kjarasamningi hafi hækkað meira
en annarra vegna vaktakafla sem
bætt var í samning þeirra.
Farið fram á aukið
vinnuframlag
Anna Svanhildur Sigurðardóttir,
talsmaður meinatæknanna sem
sagt hafa upp störfum, segir að
raunveruleg hækkun, sem falist hafi
í síðasta tilboði til meinatækna, sé á
bilinu 6-10%, annað í tilboðinu sé
þegar bundið í kjarasamningi eða
þá að farið sé fram á aukið vinnu-
framlag frá meinatæknum á móti.
„Við viljum bara miða okkur við
hækkanir sem aðrar ríkisstofnanir
hafa fengið og að það sé farið eftir
kjarasamningi. Þeir eru að reyna að
fá aukið vinnuframlag á móti og