Morgunblaðið - 03.11.1998, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Mikill áhugi á
hlutabréfum í FBA
MIKILL áhugi hefur verið fyrir
hlutabréfum í Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins (FBA) í dag hjá bank-
anum og öðrum seljendum að sögn
Bjarna Armannssonar, forstjóra
FBA
Óheimilt er að gefa upp hve mikið
hefur verið selt af bréfunum en
Bjami segir að mjög margir hafí
sýnt áhuga hjá seljendum og eins
hafí margir farið inn á heimasíðu
FBA, þar sem einnig er hægt að
nálgast skráningarlýsingu, ásamt
Landsbankinn lán-
ar fyrir kaupunum
áskriftar- og tilboðsblöðum.
FBA mun ekki lána sérstaklega
fyrir hlutabréfakaupum en Lands-
banki Islands hefm- tilkynnt að hann
hyggist bjóða þeim, sem vilji fjár-
festa í FBA, sérstök hlutabréfalán
fyrir allt að 80% kaupverðs. í til-
kynningu frá Landsbankanum segir
að eitt meginmarkmiðið með þess-
um lánaflokki sé að auðvelda sem
flestum að eignast hlutabréf og
stuðla þannig að dreifðri eignaraðild
fyrirtækja í eigu ríkisins, sem era á
leið á hlutabréfamarkað.
Lántakendur verða að fullnægja
skilmálum útlánareglna Landsbank-
ans og mun bankinn almennt taka
handveð í bréfunum sem tryggingu
fyrir greiðslu. Lánið er í formi
skuldabréfs til allt að þriggja ára og
ber 9,85% fasta ársvexti. Lántöku-
gjald nemur 2%.
Islensk útgáfa
Axaptii komin iít
ÍSLENSK útgáfa Axapta-við-
skiptahugbúnaðarins er komin
út, en hugbúnaðurinn er, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
Coneorde Axapta Island, vottað-
ur af Microsoft og tilbúinn fyrir
aldamótin 2000.
„Axapta er ný kynslóð Coneor-
de-viðskiptahugbúnaðar sem
mörg stærstu fyrirtæki Islands
hafa notað um árabil en auk þess
er hann ráðandi viðskiptahug-
búnaður á Norðurlöndum.
Axapta sameinar m.a. fjárhags-
bókhald og vöra- og framleiðslu-
kerfi og er því heildstætt upplýs-
ingakerfi fyi-ir öll fyrirtæki, allt
frá litlum heildverslunum til
alþjóðlegra stórfyrirtækja," seg-
ir í tilkynningunni.
Vinnuumhverfi Axapta er á ís-
lensku og meirihluta notenda
viðskiptahugbúnaðar á Islandi
býðst að uppfæra búnað sinn í
Axapta.
Axapta er í eigu IBM og Dam-
gaard Internatinonal í Dan-
mörku. Concorde Axapta ísland
ehf. sér um dreifingu og gæðaeft-
irlit hér á landi en söluaðilar eru
Hugur forritaþróun, Tæknival hf.
og Þróun ehf.
Námstefna Gæðastj órnunarfélagsins
Mat á stjórnunar-
árangri fyrirtækja
Samkeppnisstofnun
*
Oskar eftir
gögnum frá
Sements-
verksmiðj-
unni
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
óskað eftir umsögn Sementsverk-
smiðjunnar hf. vegna ásakana mal-
bikunarstöðvarinnar Hlaðbæjar-
Colas um óeðlilegt undirboð vegna
tilboðs verksmiðjunnar í gerð flug-
hlaðs við Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar á Keflavíkurflugvelli. Hlaðbær-
Colas sendi erindi til samkeppnis-
ráðs vegna málsins, kærði það til
kærunefndar útboðsmála og skaut
því jafnframt til iðnaðarráðherra.
Samkeppnisstofnun hefur nú
óskað eftir upplýsingum um al-
menna verðlagningu Sementsverk-
smiðjunnar á sementi og röksemd-
um og útreikningum á því verði á
portlandssementi, sem nefnt er í
erindi Hlaðbæjar-Colas, og bjóðast
mun vegna stækkunar flughlaðs
við flugstöðina. „Þá óskar Sam-
keppnisstofnun eftir gögnum sem
sýna það verð, sem boðist hefur
verktökum eða öðrum vegna fram-
kvæmda, sem eru að umfangi álíka
miklar og sú framkvæmd mun
verða sem um er fjallað í þessu
máli. Loks er beðið um frekari
upplýsingar og gögn, sem kunna að
varða málið,“ segir í bréfi Sam-
keppnisstofnunar til Sementsverk-
smiðjunnar.
Þar sem opnun tilboða vegna
umrædds útboðs verður 12. nóvem-
ber nk., óskar Samkeppnisstofnun
eftir því að umbeðin gögn og at-
hugasemdir berist henni eigi síðar
en 5. nóvember.
GÆÐASTJÓRNUNARFÉ LAG ís-
lands heldur nómstefnu undir heit-
inu Mat á stjórnunarárangri - kjöl-
festa í betri rekstri næstkomandi
fimmtudag frá kl. 8-12. Á námstefn-
unni mun Clive Jeanes, fyrrverandi
forstjóri Milliken í Evrópu, skýi-a frá
reynslu sinni og fyrirtækisins af
notkun sjálfsmats í rekstri undir yf-
irskriftinni: „Hvers vegna ættu
æðstu stjómendur að hafa áhuga á
sjálfsmati?“
Milliken hlaut Evrópsku gæða-
verðlaunin árið 1993 að því er fram
kemur í fréttatilkynningu fi-á Gæða-
stjórnunarfélaginu. Á námstefnunni
mun hann jafnramt skýra frá þeim
ávinningi, sem hlotist hefur af notk-
STOFNAÐUR hefur verið
starfsþróunar- og fræðsluhópur
innan Gæðastjórnunarfélags Is-
lands (GSFÍ). Samkvæmt fréttatil-
kynningu hefur þörfin fyrir fræðslu
og umræðuvettvang um þessi mál
farið vaxandi undanfarin ár. Kemur
þar til bæði utanaðkomandi þrýst-
ingur vegna harðnandi samkeppni
og hertra opinberra reglna, auk
vaxandi áhuga og viðleitni í fyrir-
tækjum til að auka gæði í starfs-
un sjálfsmats hjá Milliken, og fjalla
um hlutverk og mikilvægi viður-
kenninga og gæðaverðlauna í því
samhengi. Meðal annars mun hann
skýra frá því hvernig tókst að fækka
frábrigðum, auka ánægju viðskipta-
vina, virkja starfsfólk betur og auka
framleiðni.
Mogens Molgaard Jensen, fram-
kvæmdastjóri Bruhn/Canon AS í
Danmörku, mun á námstefnunni
fjalla um gæðakerfi fyrirtækisins og
hvemig það nýtir Evrópska sjálfs-
matslíkanið til að meta árangur í
rekstri undir „Mat á eigin starfsemi
sem hluti af stjórnunarkerfi Bru-
hn/Canon A/S.“ Fyi-irtækið hlaut
dönsku gæðaverðlaunin árið 1995.
manna- og fræðslumálum.
Meðal framtíðarverkefna hópsins
verður að skapa vettvang fyrir
þverfaglegar og þverstjórnunarleg-
ar umræður um hvernig megi auka
gæði í starfsþróunar- og fræðslu-
málum í íslenskum fyrirtækjum og
stofnunum.
Hópurinn mun m.a. halda
mánaðarlega fundi þar sem af-
mörkuð viðfangsefni era tekin fyr-
ir, formlega kynnt og rædd.
Hann mun jafnframt ræða um teng-
ingu líkansins við gæðakerfi fyiir-
tækisins og hvemig það er nýtt til að
koma á stöðugum umbótum og
nýsköpun hjá því.
Þá munu Eysteinn Helgason
íramkvæmdastjóri Plastprents hf.,
Ágúst Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Bakkavarar hf. og Aðalsteinn
Eiríksson skólastjóri Kvennaskólans
skýra frá reynslu fyrirtækja sinna af
notkun sjálfsmats út frá mismunandi
sjónarhóli. Að lokum mun Eyjólfur
Sveinsson framkvæmdastjóri
Frjálsrar fjölmiðlunar hf. hugleiða
þróunina í stjómun næstu árin.
Skráning fer fram hjá Gæða-
stjórnunarfélaginu.
Olíufélög
í Japaní
eina sæng
Tókýó. Reuters.
JAPÖNSKU olíufélögin Nippon
Oil Co Ltd og Mitsubishi Oil Co
Ltd hafa ákveðið að sameinast 1.
apríl vegna minni hagnaðar heima
fyrir og harðnandi samkeppni.
Með samrunanum verður til
stærsta olíufyrirtæki Japans. Það
mun ráða yfir einum fjórða
markaðarins innanlands og skjót-
ast fram úr einkafyrirtækiunu
Idemitsu Kosan Co Ltd, sem hefur
16% markaðshlutdeild.
Bókarisi
tekur upp
netsíma-
þjónustu
Bonn: Reuters.
BERTELSMANN AG, umsvifa-
mesta útgáfufyrirtæki heims, hefur
komið á fót nýju fyrirtæki, sem
mun bjóða fjarskiptaþjónustu
byggða á alnetinu og keppa við
símarisann Deutsche Telekom.
Viðskiptavinir geta notað þjónust-
una með því að hringja að-
gangskóta og verða langlínu- og
millilandasamtöl allt að 60% ódýr-
ari en nú þekkist, að sögn fyrirtæk-
isins.
Fyrirtækið telur að þjónustan
verði vinsæl meðal fólks, sem notar
mikið síma, ferðast mikið og þarf að
laga sig að breytilegum aðstæðum
samkvæmt tilkynningu frá forstjóra
fyritækisins, Tonio Bogdanski.
Með því að taka upp þessa þjón-
ustu stígur Bertelsmann, stærsta
fjölmiðlafyrirtæki Evrópu, stórt
skref í þá átt að verða heilsteypt
margmiðlunarfyrirtæki, sem lætur
að sér kveða á sviðum sjónvarps, út-
varps, netþjónustu, hljóðritunar og
tölvudiskaútrgáfu, bókaklúbba og
bókaútgáfu.
Samvinna við America Online
Boðið verður upp á net-
símaþjónustuna í náinni samvinnu
við tölvuþjónustumar America On-
line Inc. og CompuServe-deild
hennar.
í boði verða langlínusamtöl í
Þýzkalandi fyrir 18 pfenninga
mínútan, til Bandaríkjanna fyrir 49
pfenninga mínútan og samtöl við
farsímanotendur fyrir 64 pfenninga.
Notendur geta einnig hringt frá
tölvum sínum.
Símtöl við aðrar tölvur eru
ókeypis og símtöl frá tölvu í síma
munu kosta 12-14 pfenninga.
Gæðastjórnunarfélag íslands
Stofna starfs
þróunarhóp
| Vefur Flugleiða d Intemetinu: www. icelandair. is
Netfang fyrir almennar upþlýsingar: info@icelandair.is j
VIÐ FLJÚGUM
TIL LONDON
TÍU SINNUM
IVIKU
Á Saga Business Class vinnur þú tíma og
sparar peninga. Nú getur þú farið til London
að morgni og komið heim aftur að kveldi.*
Á Saga Business Class bjóðast tíðar
áætlunarferðir og sveigjanleiki sem miða að
því að stytta viðskiptaferðir og auka þannig
afköst starfsmanna, nýta tímann betur og
draga úr ferðakostnaði.
Á Saga Business Class er enginn bókunarfyrirvari og
gilda engin skilyrii um lágtnarks- eða helgardvöl erlendis.
*Fimmtudag, föstudag og sunnudag
FLUGLEIÐIR £6
Trauilur íslemkur feriafélagi jft
Fundarmöppur
Sölumöppur
Nafnspjaldamöppur
Nafnspjaldahylki
Dagskinna
Seðla- og kortaveski
Lyklaveski
oq margtfleira
Handunnið úr fyrsta
flokks hráefni
Sérmerkjum með nafni
og/eða vörumerki
LEÐURIÐJAN ehL
Sími 5610060 • Fax 5521454 •atson@simnet.is »Verslun Laugavegi 15 • Sími 5613060