Morgunblaðið - 03.11.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 31
Hlutabréfaeign í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Getur þetta ekki verið eitthvað fyrir þig?
Hiutabréf fyrir 4,67 milljarða eru til sölu núna
Nú geta allir, sem þess óska, keypt hlut í FBA og
tekið þátt í að byggja upp sterkt og framsækið
viðskiptaumhverfi sem gera mun ísland hæfara í
samkeppni við önnur lönd. Ef þú vilt kynna þér
þetta tækifæri betur, bendum við þér á að snúa
þér til bankans þíns, verðbréfafyrirtækja eða
heimsækja vefsíðu okkar: www.fba.is
Með sölunni nú er ætlunin að ná dreifðri
eignaraðild meðal almennings
Með þessum fyrsta áfanga er almenningi gefinn
kostur á að eignast hlut í bankanum. Hægt er að
skrá sig fyrir hlut fyrir hvaða upphæð sem er, að
hámarki 3 milljónir króna að nafnverði, 4,2
milljónir á markaðsvirði. Salan á FBA er ekki
aðeins stærsta einstaka einkavæðing sem fram-
kvæmd hefur verið hér á landi, heldur er hún
stærri en allar fyrri einkavæðingar samanlagt.
FBA byggir á traustum eignagrunni
FBA byggir á traustri arfleifð forvera sinna,
fjárfestingarlánasjóða atvinnulífsins. Eignir sjóð-
anna, í formi útlána, voru myndaðar á löngum
tíma og samkvæmt ströngum reglum.
Hluthafar í FBA njóta í raun meiri dreifingar á
áhættu en alla jafna þegar fjárfest er í einu
fyrirtæki því eignir bankans endurspegla að
mörgu leyti íslenskt efnahagslíf. Með því að
byggja áfram upp sterkar eignir innanlands og
erlendis í formi útlána og auka um leið
áhættudreifingu, hyggst FBA skila eigendum
sínum góðri arðsemi.
Stærsti hluti eigna FBA eru útlánasafn bankans
og markaðsverðbréf í eigu hans. Eignir Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins námu 64,2
milljörðum króna þann 30. júní 1998.
FJÁRFESTINGARBANKl
ATVINNULÍFSINS H F
Sala hlutabréfa fer fram um allt land
Sala á hlutabréfum Ríkissjóðs í FBA fer fram hjá
öllum bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrir-
tækjum landsins.
Söluaðilar eru: Búnaðarbanki íslands hf.,
Fjárvangur h£, Handsal h£, Íslandsbanki h£,
íslenskir fjárfestar h£, Kaupþing h£, Kaupþing
Norðurlands h£, Landsbanki íslands h£,
Landsbréf h£, Sparisjóðirnir, Verðbréfastofan h£,
VÍB hf.
Þú getur nálgast skráningarlýsingu
og skráð þig fyrir hlut í útboðinu:
hjá öllum bönkum og verðbréfaiyrirtækjum
á internetinu: www.fba.is
hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík